Tíminn - 18.10.1986, Síða 9
Tíminn 9
Laugardagur 18. október 1986
VETTVANGUR llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
Samhjálp í öndvegi án þess að
skerða framtak einstaklinga
Ræöa Haralds Ólafssonar í umræðum um stefnuræöu forsætisráðherra
Þau ánægjulegu umskipti hafa
orðið á íslandi að verðbólga er nú
að komast á svipað stig og í helstu
viðskiptalöndum okkar, og efna-
hagsástandið sýnir ýmis batamerki.
Vextir og afborganir af eldri lánum
valda þó ýmsum erfiðleikum, en
hættumerki eru erlendar skuldir og
halli á ríkissjóði, en góðæri til lands
og sjávar auðvelda okkur að fást
við þann vanda. Margir velta nú
fyrir sér hvað framundan sé og líta
þá gjarnan til fortíðarinnar.
Alþýðuflokkur lítur til baka til við-
reisnar og Alþýðubandalagið alla
leið til nýsköpunarinnar. Stjórn-
mál eru ekki uppákomur og upp-
hrópanir heldur þrotlaust starf að
því að móta framtíðina. Fyrirgang-
ur og læti eru til þess eins að þyrla
' upp moldviðri, hylja veruleikann,
glepja fólki sýn á þau viðfangsefni,
sem mestu varðar að vel séu unnin.
En fyrst mönnum er svo umhugað
um fortíðina, hví þá ekki að rifja
upp nokkur atriði. Hvernig skildi
nýsköpunarstjórnin við landstjórn-
ina um áramótin 1946 og 7? Gjald-
eyrinum var eytt, ríkið tók á sig að
bera tap útgerðarinnar, landið
komst á það stig að þurfa að fá
efnahagshjálp eins og þau lönd,
sem lögð höfðu verið í rúst á stríðs-
árunum.
Hvernig var umhorfs þegar Við-
reisnarstjórnin yfirgaf stjórnarráð-
ið vorið 1971 ? Sú stjórn vann mörg
góð störf, ekki síst í menntamál-
um, en vorið 1971 var landsbyggðin
í rúst. Afkomugrundvellinum var
kippt undan fólki. Fjölmargir
neyddust til að yfirgefa verðlitlar
eignir sínar og flytja suður. Alvar-
leg byggðaröskun var hafin.
Vörn snúið í sókn
Stjórn Ólafs Jóhannessonar, er
þá tók við, hófst þegar handa um
að efla atvinnulíf um land allt.
Auðvitað kostaði þetta mikið, en
markmiðinu var náð, þróuninni var
snúið við, fólk fékk nýja trú á land-
inu og möguleikunum á að lifa hér
góðu lífi. Hafa menn virkilega
gleymt því hvernig landsbyggðin
vaknaði eins og af svefni? Og hafa
menn gleymt því að á þessum
árum, á framsóknaráratugnum
margumtalaða, vannst fullnaðar-
sigur í baráttunni fyrir 200 sjómílna
efnahagslögsögu. Landið bókstaf-
lega sjöfaldaðist að stærð og við
sátum einir að einhverjum gjöfu-
lustu fiskimiðum í víðri veröld. Það
voru framsóknarmenn, sem þar
voru í eldlínu ásamt mörgum góð-
um mönnum, Ólafur Jóhannesson
og Einar Ágústsson. Útfærslan í
200 mílur er mikilvægasti atburður-
inn frá stofnun lýðveldisins, og
undirstaða ótrúlegra framfara. Um
þetta er oft þagað.
Núverandi ríkisstjórn var mynd-
uð til þess að ná tökum á verðbólg-
unni. Stöðugt verðlag og jafnvægi í
fjármálum er forsenda þess góða
þjóðfélags, sem við öll viljum
styðja og styrkja. Milli stjórnar-
flokkanna er djúpstæður ágrein-
ingur um ýmis mál, en vorið 1983
varð að ýta deilumálum til hliðar.
Þjóðarnauðsyn krafðist aðgerða,
sem einungis þessir tveir flokkar
voru reiðubúnir að bera ábyrgð á.
Öðrum flokkum og flokksbrotum
fannst þægilegra að sitja hjá, án
ábyrgðar, án stefnu.
Framsóknarflokkurinn hefir alla
tíð lagt mikla áherslu á umhverfis-
mál og mun vinna að þeim á næstu
árum. Umhverfismál ná ekki að-
eins til hins ytra umhverfis, náttúr-
unnar, heldur einnig til hins innra,
mannlífsins sjálfs. Efling fjölskyld-
unnar, heilbrigt líf, eru áhugamál
okkar framsóknarmanna og von-
andi landsmanna allra. Uppeldi og
skólastarf verður að vera í höndum
hinna hæfustu manna og þeim búin
kjör í samræmi við það. Menntun
þjóðarinnar hlýtur að vera eitt
meginviðfangsefni okkar í nútíð og
framtíð, öflug menntastefna verð-
ur að koma til, háskólann verður
að efla, og kennurum og uppalend-
um verður að skapa þau kjör, sem
geri þeint fært að sinna störfum sín-
um án þess að hafa sífelldar áhyggj-
ur af afkomu sinni. Það er brýnt
verkefni. Þótt kaupmáttur sé að
aukast, verða enn niargir að vinna
langan vinnudag til að endar nái
saman. Það verður að endurskoða
launakerfið og tryggja sómasamleg
daglaun.
Við verðum að taka upp nýja
byggðastefnu, sem grundvallast á
því að færa völd og áhrif út til hér-
aða og landshluta í ríkara mæli en
nú er. Þessu fylgir auðvitað aukin
ábyrgð. Landshlutarnir eiga að
annast ákveðna málaflokka, heils-
ugæslu, skóla o.fl. Hvernig, sem
þessu verður fyrirkomið þá er aug-
Ijóst.að hér verður einhvers konar
þriðja stjórnstig að koma til.
Þjóðfélagið
breytist óðfluga
Samkvæmt niðurstöðum fram-
tíðarspár um fólksfjölgun og ald-
ursdreifingu á næsta aldarfjórðungi
er að vænta mikilla breytinga á
gerð þjóðfélagsins. Fæðingum mun
fækka, meðalaldur hækkar og æ
fleiri komast á eftirlauna-aldur.
Þetta kallar á margvíslegar aðgerð-
ir, sem nú þegar verður að undir-
búa. Eitt af því, sem brýnt er að
taka afstöðu til er lífeyrissjóður
fyrir alla landsmenn. Um það mál
ætti ekki að vera ágreiningur milli
flokka landsins, þótt framkvæmda-
atriði geti verið með ýmsu móti.
Miklar breytingar eiga sér nú
stað á flestum sviðum atvinnulífs.
Að forgöngu framsóknarmanna
hefir margt verið gert til að búa í
haginn fyrir nýjar atvinnugreinar
eins og hv. forsætisráðherra gat um
í ræðu sinni. Þjónustugreinum af
ýmsu tagi vex mjög fiskur um hrygg
og má vænta áframhaldandi aukn-
ingar á því sviði á næstu árurn.
Heilbrigðisstéttirnar og kennarast-
éttin, auk skyldra stétta, eru þar
fyrirferðarmestar, enda gegna þær
lykilhlutverki í nútímaþjóðfélagi.
Ferðamannaþjónusta mun einnig
eflast verulega. Upplýsingaöldin er
þegar hafin, og allri þjónustu fylgir
mikil þörf fyrir upplýsingar, sem
hin nýja tækni gerir fært að ná til
hraðar og öruggar en áður.
Nýbyggðastefna
Eitt mikilvægasta byggðamálið
er nú að færa þjónustuna til fólks-
ins en ekki fólkið til þjónustunnar.
Byggðastefnan hefir stundum á
liðnum árum breyst.í styrkjastefnu.
Hin nýja byggðastefna á að gera
landshlutum og einstökum héruð-
um kleift að annast sérmál sín án
miðstýringar að sunnan. Til þess
þurfa þau tekjur, sem verður að
tryggja þeim af því fjármagni, sem
verður til í landshlutum. Þessi mál
eru margþætt og vel verður að
vanda til allra ákvarðana. Ég er
þeirrar skoðunar að landið allt eigi
að byggja þar sem skilyrði eru fyrir
hendi. Höfuðborgin nýtur góðs af
öflugri landsbyggð, og landsbyggð-
in þarfnast blómlegrar höfuðborg-
ar. Hagsmunirnir eru gagnkvæmir.
Reykjavík er glæsileg miðstöð
mennta og lista og mun svo vera
áfram.
Hernaðarumsvif
verði takmörkuð
Um síðustu helgi komust íslend-
ingar í nánari snertingu við heims-
viðburðina en nokkru sinni fyrr.
Viðræður ráðamanna voldugustu
ríkja heims snerust um þau mál, er
varða líf og dauða mannkyns.
Fimrn ríki veraldar eiga nú kjarn-
orkuvopn, en nokkur í viðbót geta
búið til kjarnavopn, ef þau hafa
ekki þegar gert það á laun.
Við skulum hafa það hugfast, að
verulegur hluti þeirra kaflráta, sem
þannig eru útbúnir, að úr þeim er
hægt að skjóta eldflaugum, sem
bera kjarnorkusprengjur heimsálfa
á milli, eru í NA-Atlantshafi og
margir þeirra eiga leið skammt frá
landinu. Ein mesta herstöð í hcimi
er á Kólaskaga í Sovétríkjunum,
skammt frá landamærum Finn-
lands og Noregs. Braut langdrægra
eldflauga, sem skotið yrði milli
Ameríku og Sovétríkjanna liggur
yfir norðurhvel jarðar, jafnvel
harhi nálægt íslandi. fsland er mitt
á hugsanlegu átakasvæði risaveld-
anna. Stjörnustríðsáætlunin svo-
nefnda, sem Reagan heldur í
dauðahaldi, er í því fólgin að reynt
er að eyðileggja burðarflaugar, er
skotið er í átt að Ameríku, frá
stöðvum úti í geimnum. Vopnið er
leysigeisli, sem magnaður er upp
með kjarnasprengju. Sprengingin
eyðilcggur stöðina sekúndubroti
tíftir að geislinn fer af stað.
Það er óhugnanlegt að vita af
slíku í grennd við sig.
Vegna margvíslcgra samskipta
við Bandaríkin megum við aldrei
gleyrna því, að smáríki verður ætíð
að gæta fyllsta réttar síns í sam-
skiptum við volduga nágranna. Við
megum aldrci gleyma því, að her-
stöðin í Keflavík er bráðabirgða-
stöð, sem fyrr eða síðar verður lögð
niður. Þess vegna megum við aldrei
verða efnalega háðir veru erlends
herliðs í landinu. í hvalveiðimálinu
fóru Bandaríkjamenn offari í sam-
skiptum sínum við íslendinga.
Harkaleg viðbrögð þeirra þá sýndu
okkur enn einu sinni, að sjálfkrafa
náum við aldrci rétti okkar.
Það er hagsmunamá! okkar, að
dregið sé úr spennu á norðurslóö-
um, og hernaðarumsvif í grennd
við landið takmörkuð. Við eigum
að láta heyra til okkar í þessum'
málum. Liður í því er að taka þátt í
umræðunni um kjarnavopnalaus
Noröurlönd, sem getur veriö upp-
haf að víðtæku samkomulagi um
kjarnavopnalaus svæði annars
staðar í Evrópu og ýta undir samn-
inga risaveldanna. Þá hljótum við
einnig að styðja bann við tilraunum
með kjarnavopn, enda er nú rutt úr
vegi hinu gamla ágreiningsefni um
traust eftirlit með því að slíku
banni sé hlýtt. Með slíkri samþykkt
er stjörnustríðsáætlun sjálfkrafa
lokuð inni á rannsóknarstofum.
Markmiðið er að skapa
farsælt þjóðfélag
Jónas Jónsson frá Hriflu skipti
stjórnmálamönnum í tvo flokka:
þá scnt aðhyllast augnabliks-
hyggju, og hina sem hallast að alda-
hyggju.
Hinir fyrrnefndu sjá aldrei ann-
að en daginn í dag. Þeir grípa hug-
myndir héðan og þaðan, láta skjót-
fenginn gróða ganga fyrir þeim
sjóði, sem vex í framtíðinni. Hinir
síðarnefndu hugsa fram í tímann,
þeir fylgja settri stefnu að fjarlægu
takmarki, kanna mál til hlítar og
komast að skynsamlegri niður-
stöðu um hvaða leiðir séu færar.
Ég held að þjóðin treysti ekki
augnabliksmönnunum fyrir fram-
tíð þessa lands. Hún mun treysta
þeim sem hugsa í öldum en ekki
árum.
Og hvert er þá markmiðið? Að
skapa gott þjóðféiag, þar sem sam-
vinna og samhjálp er í öndvegi án
þess að framtaki einstaklinga og
hópa séu settar of þröngar skorður.
Samvinnuhreyfingin og Framsókn-
arflokkurinn hafa oft átt samleið,
og svo er enn. Flokkurinn hallast
að því að blandað hagkerfi gefi
besta möguleika á því, að allt hið
besta með þjóðinni fái að þroskast.
Að þessu vill hann vinna með
þeim, sem velja leið samhjálpar og
samvinnu, en við höfnum sam-
keppnisþjóðfélagi frjálshyggjunn-
ar.
Og þcssu þjóðfélagi hefir Step-
han G. lýst betur en mér er unnt í
þessum Ijóðlínum um framtíðar-
þjóðfélagið þar sem
„einskis manns velferd
er volæði hins
né valdið er takmarkið hæst,
og sigurinn aldrei
cr sársauki neins.
en sanngirni er boðorðið æðst.
Góðar stundir.