Tíminn - 18.10.1986, Page 12
12 Tíminn
Laugardagur 18. október 1986
fni] LAUSAR SXÖÐUR HJÁ
IvJ REYKJAVIKURBORG
Fóstrur - aðstoðarfólk
Fóstrur og aðstoðarfólk vantar á eftirtalin heimili,
ýmist í heilar eða hálfar stöður:
Dagheimilið Valhöll, Suðurgötu 39,
dagh./leiksk. Grandaborg, Boðagranda 9,
dagh./leiksk. Ægisborg, Ægissíðu 104,
og leikskólana Kvistaborg v/Kvistaland, Njálsborg
Njálsgötu 9, Seljaborg v/Tungusel og Tjarnarborg
Tjarnargötu 33.
Upplýsingar veita umsjónarfóstrur á skrifstofu
Dagvistar barna í síma 27277 og forstöðumenn
viðkomandi heimila.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð á
sérstökum eyðublöðum sem þar fást. Umsóknar-
frestur er til kl. 16.00, föstudasginn 7.11 .’86.
VEGAGERÐIN
Útboð
Vegagerð ríkisins óskar eftirtilboðum í Svínvetn-
ingabraut og Kjalveg 1986.
Helstu magntölur:
Lengd................................ 14,6 km
Fylling og burðarlag ............. 170.000 m3
Verkinu skal lokið 15. október 1987.
Útboðsgögn verða afhent hjá aðalgjaldkera Vega-
gerðar ríkisins, Borgartúni 7, 105 Reykjavík og
Vegagerð ríkisins, Borgarsíðu 8, 550 Sauðárkróki
frá og með mánudeginum 20. október 1986.
Skila skal tilboðum fyrir kl. 14.00 hinn 3. nóvember
1986.
Vegamáiastjóri.
I^RARIK útboð
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í
eftirfarandi: Rarik: 86016. Innlend stálsmíði. Há-
spennulínur.
Opnunardagur: Föstudagur 7. nóvember 1986, kl.
14.00.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, fyrir
opnunartíma og verða þau opnuð á sama stað að
viðstöddum þeim bjóðendum er þess óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagns-
veitna ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá
og með mánudegi 20. október 1986 og kosta kr.
300.- hvert eintak.
Reykjavík 16. október 1986.
Rafmagnsveitur ríkisins.
Laus staða
verkfræðings
Hjá Fasteignamati ríkisins er laus til umsóknar
staða deildarverkfræðings í tæknideild.
Laun samkvæmt launakerfi opinberra starfs-
manna.
Umsóknarfrestur er til 15. nóvember n.k.
Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. janúar 1987.
Umsóknum skal skila til forstjóra FMR.
Reykjavík 10. október 1986.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Á AKUREYRI
óskar að ráða sjúkraþjálfara til starfa.
Umsóknarfrestur er til 10. nóvember n.k. Upplýs-
ingar veitir yfirsjúkraþjálfari í síma 96-22100.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
BÚVÖRUDEILD SÍS
FLYTUR ÚT HR0SS
388 hestar meö sérhönnuðu gripaflutningaskipi
Nú á laugardaginn, meöan fundir
þeirra Reagans og Gorbatsjovs
stóðu yfir í Reykjavík, fór frá Þor-
lákshöfn sérbúið gripaflutningaskip
með 388 hesta innanborðs. Það var
Búvörudeild Sambandsins sem var
nreð þetta skip á leigu, og flutti það
173 reiðhesta og 215 sláturhross.
Förinni var heitið til Frcderikstad í
Noregi, Esbjerg í Danmörku og
Gent í Belgíu. Sláturhrossin áttu öll
að fara til Gent, en reiðhestarnir til
allra hafnanna. Þessir hestar komu
alls staðar að af landinu og fóru allir
um borð í Þorlákshöfn. Að sögn
þeirra Búvörudeildarmanna tókst
útskipunin vel og öll ferðin hafði
gengið að óskum þegar síðast
fréttist.
Þessi útílutningur Búvörudeildar
byggist á því að samcina útflutning
reiðhesta og hesta til slátrunar,
þannig að hvor greinin styðji hina.
Útflutningur reiðhesta er veruleg
búbót fyrir bændur, og með þessu
móti fæst góður stuðningur við þá
grein.
Þá fæst einnig betra verð fyrir
hrossakjötið með þessu móti heldur
en ef það væri selt hér hcinta.
Magnús G. Friðgeirsson fram-
kvæmdastjóri sagði okkur að Bú-
vörudeild hefði átt mjög ánægjulcg
Nokkrir hcstanna um borð í flutningaskipinu í Þorlákshöfn á laugardaginn var.
skipti við Hagsmunafélag hrossa-
bænda í sambandi við þessi mál og
hefðu þeir átt mjög gott samstarf um
þetta í nokkur ár.
Magnús sagði einnig að þessi út-
flutningur væri til verulegra hags-
bóta fyrir bændur sem fá talsvert
mikið meira fyrir reiðhestana en
sláturhrossin. Þetta hefði einnig
valdið því að nú væru ekki birgðir af
hrossakjöti í landinu, og væri það
raunar eina kjötgreinin hjá okkur
þar sem ekki væri nú við birgða-
vandamál að stríða. -esig.
BÓKMENNTIR
VANDVIRKNISEM
L0FAR GÓDU
Heimir Már, Myndbrot, Bókaútgáfan Ax, Rvk.
1986.
Þetta er ljóðabók, ekki stór í
sniðum því að hún geymir aðeins 25
ljóð, en snyrtilega frágengin. Höf-
undurinn, Heimir Már, er ekki að
leggja fram hér frumraun sína, því
að hann hefur áður gefið út tvær
bækur. Yrkisefni hér eru ekki ýkja
frábrugðin því sem nú er algengast
og mest í tísku. Þetta eru fyrst og
fremst innhverf tilfinningaljóð og
fjalla á einn eða annan hátt um líðan
eða vanlíðan þess sem talar, hvort
sem það er skáldið eða annar.
En það sem þessi bók hefur fram
að yfir margar aðrar nýlegar er
vandvirkni í vinnubrögðum. Þótt
hún sé ekki efnismikil bætir hún það
á ýmsan hátt upp með gæðum.
Framan af í henni er tekist á við ýmis
hefðbundin og gamalkunn efni og
flest í heldur léttum og opinskáum
stíl. Jafnvel örlar á kímni, en þarna
eru líka vel gerð líkingaljóð, svo
sem þetta sem ber heitið Hafið:
Svo máttugl
er hafid
kalt og heitt
svo djúpt
Ég er sem dropi
í öldu sem skellttr á skeri
og hafið
svo máttugt
ert þú.
Þetta er snyrtilega gerð líking.
„Ég“ ljóðsins finnur mjög til eigin
vanmáttar og lítilmótleika, en ber
sig saman við annan aðila, ótil-
greindan, og finnur sárt til stærðar-
inunarins.
Og fleira er þarna vel gert og
svipaðrar tegundar, til dæmis lítið
ljóð sem heitir einungis Svik:
Ég legg eyra mitt
upp að brjósti þínu
heyri rólegan taktinn
þegar steinninn slœr.
Heimir Már
MYNDBROT
Þetta er aftur býsna markviss
líking, og hér er það hjarta sem er
eins hart og steinn, og eigandinn þá
væntanlega miskunnarlaus sem því
nemur.
Það er einmitt í þessum atriðum
sem styrkur höfundar liggur og bygg-
ist á fágun og vandvirkni. Aftur
færist hann meira yfir í angurværð
eða dapurleika þegar líður á bókina,
en þar staldraði ég nokkuð við eitt
ljóðið sem heitir A brautarpalli:
Vinir
rótlausir erum við
á framandi brautarpalli
lestin endalausa rennur hjá
og öll eigum við frátekið sœti.
Ólíklegt er
að við ferðumst
í sama vagni
en á meðan við bíðum
skulum við haldast í hendur
og þegar einn okkar fer
reyna að hlaupa í skarðið.
Hér er aftur smekklega haldið á
líkingum. Hérna er það veröldin
sem er eins og brautarpallur, dauð-
inn eins og lest sem flytur fólk á burt,
og á meðan menn bíða eftir brottför-
inni segir skáldið að þeir skuli styðja
hver annan og taka á sig verk þeirra
sem hverfa. Þetta er kannski ekki
nýr boðskapur, en líkingamálið er
frumlegt og býsna smekklega með
það farið.
Þessi bók nær vitaskuld ekki því
umfangi að það segi hvers megi
vænta af höfundi hennar í framtíð-
inni. En hann kann þó greinilega
töluvert fyrir sér, og vandvirkni hans
sýnist mér lofa góðu. Helst væri þó
að nefna að fróðlegt gæti verið að sjá
hann takast á við fleiri viðfangsefni
en hér, svo sem ádeilur eða söguleg
efni.
Það er mál manna að nú í seinni
tíð sé að koma upp töluverð gróska
í ljóðagerðinni hér hjá okkur. Þessi
bók er enn eitt dæmið um þetta, en
hins vegar hefur það stundum verið
gagnrýnt að skáld nú um stundir
ástundi það heldur um of að loka sig
inni í tilfinningalífi fólks, og að þau
hirði ekki um þau efni sem liggja nær
í daglega lífinu allt umhverfis. Slík
gagnrýni gildir einnig hér, enda má
ljóðagerð helst ekki verða of ein-
hliða innhverf. En allt um það þá
sýnist mér það ekki fara á milli mála
að töluverðs megi vænta af þessum
höfundi í framtíðinni.
-esig