Tíminn - 14.02.1987, Side 6
6 Tíminn
ÚTLÖND
Laugardagur 14. febrúar 1987
Ifréttayfirliti
SÍDON, Líbanon — isra-
elskar herþyrlur gerðu loftárás-
ir á stöðvar Palestínumanna í
grennd við hafnarborgina
Sídon. Þetta var önnur árás
israelsmanna á Líbanon á
jafnmörgum dögum. Ásásin
var greinilegt merki um að
ísraelar myndu halda áfram að
beita herafli þrátt fyrir að er-
lendum gíslum sé haldið í
Líbanon og reynt sé að semja
um skipti á þeim.
GENF — Forsvarsmenn Al-
þjóða Rauða krossins sögðust
ekki standa í samningaviðræð-
um um lausn erlendra gísla í
Líbanon. Þeir viðurkenndu þó
að vera ( sambandi við alla
aðila.
MOSKVA — Kona var barin
og fimm aðrir mótmælendur
handteknir í mótmælaaðgerð-
um í Moskvu. Fólkið krafðist
lausnar gyðingsins losif Beg-
uns sem situr í fangelsi fyrir
andófsstarfsemi. Þetta voru
fimmtu mótmælaaðgerðir
stuðningsfólks Beguns á jafn-
mörgum dögum.
STOKKHÓLMUR
Stjórnendur sænska ríkissjón-
varpsins sökuðu starfsmenn
bandaríska sendiráðsins í
Stokkhólmi um að reyna að
koma í veg fyrir sýningar á
sovéskri heimildarmynd um
morðið á Olof Palme. Þar er
meðal annars getum að því
leitt að bandaríska leyniþjón-
ustan CIA hafi látið drepa for-
sætisráðherrann Palme.
KAUPMANNAHÖFN -
Danska lögreglarl sagði að 38
ára gamall brennuvargur hefði
viðurkennt að hafa valdið elds-
voðanum í hóteli í Kaup-
mannahöfn í september árið
1973. Þarfórust35 manns, þar
af tuttugu bandarískir ferða-
menn.
MADRÍD — Ný átök brutust
út milli óánægðra stúdenta og
lögreglu í Madríd, höfuðborg
Spánar, þegar stúdentarnir
gengu að menntamálaráðu-
neytinu til að krefjast þess enn
einu sinni að ekki þyrfti að taka
inntökupróf til að komast inn í
háskóla landslns.
AMSTERDAM — Verðlaun
fyrir Ijósmynd ársins árið 1986
fóru til bandarísks Ijósmyndara
fyrir mynd sem nefnist „Eyðni
í Bandaríkjunum". Hún sýnir
42 ára samkynhneigðan mann
í hjólastól stuttu fyrir dauða
sinn.
Líbanon:
- Sjítar komu sér aftur fyrir í Maghdousheh í gær - Beðið eftir leyfi til að fá að flytja matvæli inn í
flóttamannabúðir Palestínumanna
Reuter-
Bardagamenn úr hópi Amalsveita
sjíta í Líbanon komu sér í gær aftur
fyrir í hernaðarlega mikilvægu þorpi
í suðurhluta landsins. Yfirtaka sjíta
á þorpinu Maghdousheh, sem þeir
misstu í hörðum bardögum við Pal-
estínumenn í nóvember á síðasta
ári, gæti leitt til þess að alvarlegar
friðarumleitanir yrðu hafnar til að
binda enda á hið svokallaða búðastr-
íð milli sjíta og palestínskra bardag-
amanna. Þessi átök hafa sett svip
sinn á innanlandsástandið í þessu
stríðshrjáða landi síðustu mánuðina.
Samkvæmt heimildum Reuters
fréttastofunnar komu vel vopnaðir
sjítar sér fyrir í varnarvirkjum í
þorpinu, drógu að hún flagg Amal-
hreyfingarinnar og komu fyrir stórri
mynd af Ayatollah Khomeni trúar-
leiðtoga í íran.
Amalsjítar höfðu áður sagt að
þeir myndu ekki aflétta umsátiinu
kringum flóttamannabúðir Palest-
ínumanna í Beirút og Suður-Líban-
on fyrr en Maghdousheh kæmist
aftur undir þeirra stjórn. Þorpið er
helsti áningarstaðurinn við þjóðveg-
inn er liggur eftir strönd Líbanons.
Yfirtaka sjíta fylgdi í kjölfar yfir-
lýsingar sýrlenskra stjórnvalda í
fyrrakvöld að vopnahléi hefði verið
komið á í kringum flóttamannabúð-
irnar.
í gær bárust svo fréttir frá þeirri
stofnun Sameinuðu þjóðanna sem
sér um hjálparstarf til palestínskra
flóttamanna í Líbanon að Amal-
hreyfing sjíta væri að skipuleggja
hleðslu á matvælum frá stofnuninni.
Þau matvæli átti að fara með inn í
Bourj Al-Barajneh flóttamanna-
búðirnar rétt utan við Beirút.
Talsmaður stofnunarinnar sagði
hana hafa gert samkomulag við Na-
bih Berri leiðtoga Amalsjíta um að
þrír flutningabílar fengju að fara
með matvæli inn í búðirnar gegn því
að dreift yrði matvælum úr þremur
flutningabílum til fólks, annara en
Palestínumanna, sem hefðist við fyr-
ir fyrir utan búðirnar.
f Bourj Al-Barajneh búðunum,
sem eru rétt hjá aðalflugvelli Beirút-
borgar, búa nú um tólf þúsund
Palestínumenn, mest konurogbörn.
Ástandið er þar vægast sagt slæmt og
hefur flóttafólkið þurft að leggja sér
hunda, ketti og jafnvel rottur til
munns. Einnig er vitað að sumt fólk
hefur farið fram á undaþágu frá trú
sinni til að geta lagt sér mannakjöt
til munns ef allt annað þrýtur.
Talsmaður stofnunar SÞ sagði í
gær að ekkert „grænt ljós“ hefði
verið gefið fyrir raunverulegri dreif-
ingu matvælanna þrátt fyrir að sam-
komulagið hefði verið gert við Berri.
Sagði talsmaðurinn að ekki væri nóg
að semja við Berri heldur þyrfti að
tryggja stuðning á ýmsum lægri vald-
astigum í Amalhreyfingunni.
Friðarumleitanir og tilraunir til að
fá að senda matvæli inn í flótta-
mannabúðir Palestínumanna komu
þó ekki í veg fyrir að sjítar skytu
sprengju á Bourj Al-Barajneh búð-
irnar síðdegis í gær. Að sögn tals-
manns Palestínumanna létust fimm
börn í þessari árás.
Amalsjítar komu sér aftur fyrir í hernaðarlega mikilvægu þorpi í gær. Gæti
það skipt sköpum í átökum þeirra við palestínska bardagamenn?
Suður-Afríka:
Castro í ónáð
Stjórnvöldum í Suður-Afríku er
hvorki gefið um Castro né Kúbu
Jóhanncsarborg-Reuter
Fidel Castro Kúbuleiðtogi á ekki
upp á pallborðið hjá þeim sem
gegna ritskoðunarhlutverki í Suð-
ur-Afríku og fylgjast með því sem
inn í landið er flutt. Það sannast á
því að bæði mynd um Kúbu nútím-
ans og bók Kúbuleiðtogans, „Fidel
Castro um Chile", eru á bannlista
yfir það sem flutt er inn í landið.
Á bannlistanum má einnig finna
bók um samkynhneigða, barm-
„Heilagt stríð fyrir frelsun gísla“ í Líbanon:
Frelsið gíslanna
í nafni Múhameðs
Reuter-
Múslimahópur sem kallar sig
„Fleilagt stríð fyrir frelsun gísla“ fór
þess á leit í gær að öllum erlendum
mönnum sem haldið er í gíslingu í
Líbanon verði sleppt.
Beiðni þessi kom fram í handrit-
uðum orðsendingum til blaða í Líb-
anon þar sem mannrán voru ekki
sögð í samræmi við múhameðstrú.
Hvatti hópurinn öll þau neðanjarð-
arsamtök í Líbanon sem halda gísl-
um föngnum að láta þá lausa strax.
Tveir aðrir hópar sem kenna sig
við heilagt stríð, „Heilagt stríð“ og
„Heilagt stríð fyrir frelsun Palest-
ínu“, halda nú níu útlendingum í
gíslingu, þar af fimm Bandaríkja-
mönnum.
„Látið ekki heiminn halda að
múslimir séu þeir sem víki frá trú
sinni“, sagði í orðsendingu þessa
nýja hóps.
„Sýnið þeim að múslimar séu
siðferðislega sterkir í trú sinni. Við
hvetjum ykkur til að láta alla gísla
lausa því islamskur siður bannar að
menn séu teknir í gíslingu“, sagði
ennfremur.
_ Að minnsta kosti 26 útlendingum
er nú haldið sem gíslum í Líbanon.
merki með slagorðinu „Gerum hass
löglegt" og almanak Sameinuðu
lýðræðishreyfingarinnar sem eru
stærstu samtök landsins er berjast
gegn aðskilnaðarstefnunni.
ÚTLÖND
UMSJÓN:
Heimir
Berqsson
BLAÐAMAÐUR
Páll Símon
í Zimbabwe
Harare-Reuter
Bandaríska poppstjarnan Paul
Simon, eða Páll Símon upp á ís-
lenska vísu, kom til Zimbabwe í gær
þar sem hann hyggst halda stærstu
hljómleika í landinu síðan Bob Mar-
ley and the Wailers léku þar í tilefni
þess að landið fékk sjálfstæði árið
1980.
Með Páli Símon í för voru nokkrir
hinna suður-afrísku blökkumanna
sem léku með honum á þeirri frá-
bæru plötu „Graceland" sem gefin
var út á síðasta ári. Platan hefur selst
í meira en fjórum milljónum eintaka
en hefur einnig unnið það sér til
frægðar að vera gagnrýnd af Miðstöð
Sameinuðu þjóðanna gegn kyn-
þáttaaðskilnaðarstefnu.
Símon heldur tvenna hljómleika í.
Harare, höfuðborg Zimbabwe, og er
búist við að um tvö þúsund manns
komi frá nágrannaríkinu Suður-Afr-
íku til að hlýða á kappann. Það var
einmitt í Suður-Afrtku sem Páll tók
upp plötu sína og var það tilefni
gagnrýni frá áðurnefndri stofnun SÞ.
Páll Símon hefur hinsvegar sent
stofnuninni bréf þar sem hann segist
vera andvígur aðskilnaðarstefnunni
og hafa ekki brotið menningarbann
það sem sett hefur verið á Suður-
Afríku með því að hljóðrita plötuna
þar.
Miðinn á hljómleika Páls Símons í
Zimbabwe kostar aðeins um sem
samsvarar 200 íslenskum krónum og
rennur ágóðinn af hljómleikunum til
góðgerðarstarfsemi.
ER AD ROFA TIL
í BÚDASTRÍDINU?