Tíminn - 19.02.1987, Síða 5
Fimmtudagur 19. febrúar 1987
Tíminn 5
iliiilllllllllllllllliliil ÚTLÖND
Svíþjóð:
Stjórnmálabrestur
í rannsókninni á
morðinu á Palme
Járnbrautarslysið í Brasilíu:
Hugað að látnum
Sao Paulo - Kcutcr
Brasilískir embættismenn voru í
gær að reyna að gera sér nákvæmi-
lega grein fyrir hve margir og hverjir
hefðu beðið bana í járnbrautarslys-
inu í úthverfi Sao Paulo í fyrrakvöld.
Alls fórust uni sjötíu manns og mörg
hundruð slösuðust.
Háttsettur björgunarstarfsmaður
sagði í gær að vitað væri um 68
manns sem látist hefðu, þar af 28 á
slysstað og aðrir 40 í þremur sjúkra-
húsum í grendinni. Hjúkrunarfólk í
sjúkrahúsum þessum gerði einnig að
sárum 153 manna sem í slysinu lentu.
Lögreglan sagði að önnur sjúkra-
hús á svæðinu gætu einnig átt eftir að
skýra frá látnum í sambandi við
slysið sem varð þegar tvær járn-
brautalestir fullar af fólki rákust á í
Itaqueira, úthverfi Sao Pauloborgar.
Companhia Brasileira de Tran-
sporte Urbano járnbrautarfélagið
hélt því fyrst fram að bilun hefði
valdið slysinu en embættismenn
segja að ekki sé hægt að útiloka að
mannleg mistök hafi valdið hörm-
ungaratburði num.
Stokkhólmur-Rcutcr
íhaldsflokkurinn, helsti stjórnar-
andstöðuflokkurinn í Svíþjóð, hvatti
í gær Ingvar Carlsson forsætisráð-
herra landsins til að koma fram fyrir
þingnefnd og svara spurningum um
Ingvar Carlsson forsætisráðherra
Svíþjóðar: íhaldsmenn vilja spyrja
hann um rannsóknina á morðinu á
Olof Palme
rannsóknina á morðinu á Olof Palme
og útskýra hvers vegna hann ákvað
að grípa inn í hana.
Þessi ákvörðun íhaldsflokksins
var tekin þrátt fyrir formlega ósk
jafnaðarmanna til stjórnarandstöð-
unnar á mánudaginn um að rjúfa
ekki þá pólitísku samstöðu sem
hefur sett svip sinn á leitina að
morðingja Olofs Palme. Forsætis-
ráðherrann var skotinn til bana á
stræti Stokkhólmsborgar þann 28.
febrúar 1986 eða fyrir rétt tæpu ári.
Lögreglan og ákæruvaldið hafa
eldað grátt silfur saman mest allan
tímann sem leitin að morðingja
Palme hefur staðið yfir en stjórnar-
andstaðan hefur hingað til ávallt
stutt við bakið á ríkisstjórn jafnað-
armanna í málinu.
Fyrstu merkin um að samstaðan
væri að rofna komu um helgina
þegar þrír stjórnarandstöðuflokkar
kröfðust þess að frammistaða Sten
Wickbomsdómsmálaráðherra í mál-
inu yrði rannsökuð.
Nú er aðeins rúm vika þar til árið
er liðið frá morðinu á Palme en
lögreglan hefur enn enga vísbend-
ingu í höndunum, hvorki grunaða
einstaklinga, morðvopnið né hvað lá
að baki morðinu.
Carlsson gerði breytingar á hóp
þeim sem vinnur að rannsókninni á
morðinu fyrr í þessum mánuði til að
ná sáttum milli lögreglu og ákæru-
valdsins. Þessar breytingar hafa þó
ekki náð að leysa ágreininginn og
stjórnarandstöðuflokkarnir virðast
hafa nú bæst í hóp þeirra sem vilja
hafa sitt að segja í málinu.
Skæruliðar á Filippseyjum: Hlaða vopnin.
Filippseyjar:
Skæruliðar í
sprengjustríð
Manila-Keuter
Skæruliðar kommúnista á Filipps-
eyjum hafa aukið hernað sinn í
sveitahéruðum landsins og lögregla
varaði við því í gær að skæruliðarnir
hyggðu á sprengjuherferð í höfuð-
borginni Manilu nú á næstunni þegar
þess verður minnst að ár er liðið frá
byltingunni sem kom Corazon Aq-
uino forseta til valda.
Hermálayfirvöld skýrðu frá því í
gær að einn hermaður hefði látist og
fimm særst er herflutningabíll, er
flutti um hundrað menn, keyrði yfir
jarðsprengju. Atburður þessi átti
sér stað nálægt Legaspi, sem er í um
320 kílómetra fjarlægð suðaustur af
Maniluborg. Þar geisuðu bardagar
eftir að sprengjan sprakk og talið var
að nokkrir skæruliðanna hefðu
særst.
Norður af höfuðborginni náðu um
150 skæruliðar völdum yfir fjórum
þorpum og héldu þeim í sex klukku-
stundir. Að sögn hermálayfirvalda
var fulltrúi hersins á staðnum tekinn
af lífi fyrir framan þorpsbúa og
sonur hans tekinn í gíslingu.
Stjórnarherinn reynir nú að hafa
uppi á skæruliðunum og nýtur að-
stoðar tveggja herþyrla í þeirri eftir-
för.
Lögreglan í Maniluborg sagðist
hafa heimildir fyrir því að skærulið-
arnir hyggðu á sprengjuherferð í
næstu viku en þá verða hátíðarhöld
í tilefni árs afmælis byltingarinnar
gegn Marcosi forseta, byltingar sem
kom Corazon Aquino til valda.
Rúmlega 80 manns hafa látist í
átökum er tengjast stríði skæruliða
við stjórnarherinn síðan sextíu daga
vopnahléinu lauk þann 8. febrúar.
Tíminn
DJÓÐVILJINN
S.686300
S.681866
S.681333
Blaðburður er
Skerjafjörður Eskihlíð
Gunnarsbraut26-út Mjóuhlíð
Bollagata
Flókagata 15-18
Guðrúnargata
Hrefnugata
Kjartansgata
Mlklabraut1-5
Snorrabr. oddat.
frá61-út
Kringian
Listabraut
Neðstaleiti
Ofanleiti
Miðleiti
Efstaleiti
Hús verslunarinnar
Kvisthagi
Fornhagi
Hjarðarhagi45-út
og 64-út
Hofsvallagatafrá49
Ægissiða 78-98
Neshagi
Melhagi
Einimelur
Hagiv/Hofsvallag.
Hofsvaliag.frá49
Tómasarhagi
Ægissíða 60-76
Þrastargata
Smyrilsvegur
Fálkagata
Lambastaðir
Túnsberg
Lynghagi
Starhagi
Grimshagi
Ægissíða 50-58
Garðarv/Ægissíðu
írsku þingkosningarnar:
HAUGHEYÁ
SIGURBRAUT
Dyninni-Reuter
Charles Haughey, leiðtogi helsta
stjórnarandstöðuflokksins á ír-
landi, var á sigurbraut í gær er
talning stóð yfir eftir þingkosning-
arnar á þriðjudag. Ekki var þó víst
að Haughey og flokki hans tækist
að vinna hreinan meirihluta.
Talningarmenn, sem leyft er að
fylgjast með skráningu atkvæða
upp úr kjörkössunum, töldu að
Fianna Fail flokkur Haugheys gæti
unnið frá 82 upp í 85 sæti á þinginu.
Flokkurinn þarf 84 sæti til að ná
meirihluta á þingi og þar með yrði
Haughey forsætisráðherra í þriðja
skiptið á stjórnmálaferli sínum.
A írlandi þykja talningarmenn
oft áreiðanlegri en tölvur, svo mik-
ið er þeim treyst til að geta sér til
um úrslitin. Allir voru þeir sam-
mála um að Garret Fitzgerald for-
sætisráðherra og flokkur hans Fine
Gael myndu tapa allt að tíu sætum
á þingi en Framfarasinnaði lýð-
ræðisflokkurinn gæti komið sterk-
ur út í sínum fyrstu kosningum.
Af talningu atkvæða mátti þó sjá
að baráttan yrði mjög jöfn og í
gærkvöldi var sýnt að ekki yrði
ljóst um fullnaðarúrslit fyrr en í
dag.
Sovétríkin:
Myndböndin blómstra
Moskvu - Rcutcr
Stjómvöld í Sovétríkjunum bandaiðnaðar. Hann tók þó fram
hyggjast á næstu tveimur árum að peningum væri nú varið í kaup
opna þúsundir ntyndbándaleiga út á vídeómyndum og sýningartækj-
utn allt land og er það gert til að um sem fara eiga í myndbanda-
þróa myndbandaiðnaðinn. Þetta leigurnar.
var haft eftir háttsettum sovéskum Kamshalov sagði að fólk ætti
embættismanni í kvikmyndaiðnað- bæði að geta tekið myndir á leigu
inum þar eystra í gær. og horft á myndir í vídeóhöllunum.
Alexander Kamshalov, formað- ' Sovésk yíirvöld hafa áður lýst
ur hinnar opinberu kvikntynda- yfir áhyggjum af svartamarkaðs-
stofnunar Goskino, sagði í viðtali braski með vestrænar vídeómynd-
við dagblaðið Sovietskaya Rossiya ir. Almenningur þar eystra hcfur
að Sovétríkin væru langt á eftir verið sólginn í slíkar myndir, allt
flestum löndum í þróun mynd- frábíómyndumtil„blárra“mynda.
TIMINN Síðumúla 15 © 68 63 00