Tíminn - 19.02.1987, Qupperneq 10

Tíminn - 19.02.1987, Qupperneq 10
10 Tíminn Fimmtudagur 19. febrúar 1987 MINNING Hjónaminning Gunnar Pálsson og Anna Vilhjálmsdóttir Tungu Fáskrúðsfirði Fæddur 22. júní 1896 Dáinn 1. febrúar 1987 Fædd 29. október 1892 Dáin 27. júlí 1981 Gunnar Pálsson bóndi í Tungu í Fáskrúðsfirði er látinn. Hann var kvaddur við fagra og látlausa minn- ingarathöfn í kirkjunni á Selfossi, þar sem hann hafði dvalið á sjúkra- húsi undanfarna mánuði. Daginn eftir var haldið austur á bóginn með kistuna til Fáskrúðsfjarðar þar sem Gunnar var lagður til hinstu hvíldar við hlið konu sinnar laugardaginn 7. þessa mánaðar. Gunnar fæddist í Þingmúla í Skriðdal 22. júní 1896, en fluttist með foreldrum sínum að Tungu í Fáskrúðsfirði tæplega tveggja ára. Þar ólst hann upp síðan í stórum systkinahópi, og þar vann hann ævistarf sitt allt. Anna Vilhjálmsdóttir húsfreyja var frá Brekku í Mjóafirði, fædd 29. október 1892. Þau Gunnar gengu í hjónaband 14. október 1923. Fram að þeim tíma hafði Anna dvalið í foreldrahúsum, einnig við fjöl- menni, en foreldrar hennar voru Vilhjálmur Hjálmarsson hreppstjóri og útvegsbóndi og Svanbjörg Páls- dóttir húsfreyja. Foreldrar Gunnars voru Páll Þor- steinsson bóndi og hreppstjóri og Elínborg Stefánsdóttir húsfreyja. Þau byrjuðu búskap í Skriðdal, en fluttu niður að Tungu sem fyrr segir og „gerðu garðinn frægan", því þau voru atgervismanneskjur. Þegar Gunnar og Anna giftust hafði Páll fyrir nokkru fengið sonum sínum í hendur ábúð jarðarinnar og færðist hún nú yfir á Gunnar, sem síðan bjó í Tungu meðan kraftar entust - langa ævi. Síðustu árin var félagsbú með honum og yngsta syn- inum Friðmari. Áður hafði elsti sonurinn Vilhjálmur búið með föður sínum í Tungu allmörg ár og byggt sér þar íbúðarhús og nefndi í Tungu- holti. Þar var um hríð heimavistar- skóli fyrir börnin í sveitinni. Gunnar nam búfræði á Hvanneyri og lauk þaðan prófi 1918. Það nám átti eftir að nýtast honum vel, bæði við búskapinn og þau störf í al- mannaþágu sem honum voru falin á hendur. Af þeim var hreppstjóra- starfið umfangsmest. Því hafði faðir hans áður gegnt frá aldamótum - og síðan tók Friðmar við. Gunnar var lengi í skattanefnd, sem var ærið tímafrekt fyrrum og fylgdi jafnan hreppstjórastarfinu, og hafði með höndum ýmsa aðra sýslan þótt hér verði ekki rakið. Gunnar í Tungu gerði sér far um að leggja góðum málum lið, fór ekki með fyrirgangi en fylgdi jafnan fast eftir. Kom þetta vel fram þegar unnið var að ýmsum umbótamálum í sveitinni, vegagerð, símalögn, raf- væðingu o.s.frv. Var hann vakinn og sofinn að ýta á eftir og þekktum við þetta vel sem þá áttum sæti á Alþingi fyrir Suður-Múlasýslu og seinna Áusturlandskjördæmi. Sami framfaravilji og þrautseigja auðkenndi búsetuna í Tungu. Hann fór ekki rasandi bóndinn, en lagðist þungt í. Um það vitna glöggt, í fæstum orðum sagt, framræslan á jörðinni, ræktunin og byggingarnar, peningshús og íbúðarhús sem kom' síðast. - Þá var Friðmar orðinn aðalbóndinn og byggðu þeir feðgar saman tveggja íbúða hús. Allar eru þessar framkvæmdir með myndar- brag og leystu þær af hólmi alda- mótamannvirki næstu kynslóðar á undan. Árnar fyrir botni Fáskrúðsfjarðar spilla löndum og brjóta. Gunnar gerði sér snemma far um að leita úrræða til varna. Átti hann hlut að því mcðföðursínum, áðuren jarðýt- ur komu til sögu, en hafnar voru aðgerðir við Dalsá. Málefnum Bún- aðarfélagsins lagði hann allt það lið er hann mátti. Engum sem til þekktu gat dulist hvern hug Gunnar Pálsson bar til bújarðar sinnar, sveitar og ættlands. Þegar Anna kom að Tungu 1923 var þar fyrir í heimilinu margt manna þar á meðal foreldrar eiginmannsins og yngstu börn þeirra, sem ekki höfðu þá enn fest ráð sitt og stofnað eigin heimili. Þegar svo stendur á er ungri húsmóður ærinn vandi á hönd- um og er það alkunna. En það greiddist vel úr þessum sambúðar- málum tveggja kynslóða. Næsta aldarfjórðunginn áttu þau Páll og Elínborg heimili sitt í Tungu hjá syni og tengdadóttur. Þó að þremur árum undanskildum (1925- 28), sem þau bjuggu út í kaupstað ásamt yngstu dætrunum, þremur í fyrstu. En raunar giftust þær um þessar mundir og settust að annars staðar. Þá undu gömlu hjónin ekki ein „á mölinni" og færðu sig aftur inn að Tungu. Þannig atvikaðist það, að börn Önnu og Gunnars ólust upp með afa sínum og ömmu til gagns og gleði fyrir alla. Anna Vilhjálmsdóttir var skör- ungskona og áhugasöm um málefni lands og þjóðar. Hún var dugnaðar- forkur og umfram allt góð húsmóðir og ástrík móðir barna sinna. Var einkar kært með fjölskyldunni allri, Jvjónunum og börnum þeirra og ættfólki til beggja handa og bar ekki skugga á. Anna og Gunnar eignuðust sex böm, en eitt þeirra fæddist andvana. - Ragnhildur er kennari í Reykjavík, gift Gunnari Sigurðssyni frá Ljóts- stöðum og bjuggu þau þar áður. - Vilhjálmur er búfræðingur frá Hvanneyri, nú verslunarmaður á Selfossi, kvæntur Steinunni Úlf- arsdóttur frá Vattarnesi. - Elínborg kennari er gift Sigurjóni Sigurðssyni frá Ljótsstöðum og búa á Syðra- Hvarfi í Svarfaðardal. Páll húsa- smíðameistari á Fáskrúðsfirði er kvæntur Olgu Sigurbjörnsdóttur. - Friðmar er bóndi í Tungu sem fyrr getur. Hans kona er Jóna Sigur- björnsdóttir, systir Olgu. Þær eru Fáskrúðsfirðingar. Eins og fyrr getur bjuggu þeir Gunnar og Friðmar félagsbúi í Tungu um árabil. Og eftir að kraftar þrutu dvöldu eldri hjónin þar enn um hríð í skjóli Friðmars og Jónu. Anna lést á Landspítalanum 27. júlí 1981 eftir skamma legu þar. Hún hafði áður legið veik heima og var það Gunnari öldruðum erfiður tími. Heilsu hans var nú einnig tekið að hnigna, en þó gat hann enn um sinn verið hjá börnum sínum. En allra síðustu misserin dvaldi hann á elli- og hjúkr- unarheimilinu í Kumbaravogi og loks á sjúkrahúsinu á Selfossi. A þeim slóðum naut hann návistar Vilhjálms og Steinunnar sem fylgd- ust með líðan hans frá degi til dags. - Gunnar andaðist 1. febrúar 1987. Það má með sannindum segja, að hjónin í Tungu í Fáskrúðsfirði, Gunnar Pálsson og Anna Vilhjálms- dóttir, luku með sæmd löngu dags- verki. Þau urðu þeirrar gæfu að- njótandi að lifa mikið framfaraskeið í landi sínu, að sjá mannvænlega kynslóð vaxa úr grasi og að lifa í sátt við góða granna og umhverfi yfir höfuð. Nú hafa þau kvatt í fyllingu tímans og samferðafólk hugsar til þeirra með virðingu og þökk. Anna var föðursystir mín og hef ég margs að minnast frá okkar sam- skiptum, allt frá því hún söng mér barni fögur Ijóð góðskálda. Það verður þó ekki rakið hér. Báðum þeim hjónum á ég þökk að gjalda. Um leið og ég kveð þau með þessum fátæklegu orðum bið ég blessunar börnum þeirra og öðrum ástvinum. Viihjálmur á Brekku BÆKUR Illlllllllllli llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll llllllllllllllllllll lllllllllllllllllllllllll llllllllllllllllllllllllllll llllllllllllllllllll lllllllillllllll! Illllllllllllllili Frá dýrum til frægra manna Hcnry Oddlo Erichsen. Har dyrenc sjel. Avent- ura Oslo 1986. 125 bls. Þeir eru margir sem vilja endilega að dýrin séu ekki aðeins gáfaðar verur, heldur einnig með sál. Höf- undurinn, sem er einbúi á norður- norskri ey og býr þar með labrador hundi sínum Píu, hefur einstaklega góða frásagnargáfu og vekur vissu- lega með öðrum þessa tilfinningu fyrir því að kannske hafi nú dýrin líka sál. Frásagnir hans spanna tím- ann frá „dýr bernsku minnar“ til Píu sem í dag fylgir honum gegnum þykkt og þunnt. Skáld og veiðimað- ur, heimspekingur og smiður, eru lýsingar sem notaðar hafa verið um líf Erichsen frá Andöya. En það er kannske fyrst og fremst hin létta og ljúfa frásagnargleði, sem hrífur les- andann með sér og lætur hann upplifa það sem vakið hefir athygli einbúans. David Green/Bjame O. Braastud. Utrolige katter. Aventura. Oslo 1986. 224 bls. Sálfræði kattanna er einstök og allir hafa heyrt að þeir hafi níu líf. En hvernig ratar köttur langar vega- lengdir oe kemst lifandi_út úr öllum þeim vanda, sem hefur gert máls- háttinn frægan? Hann les hugsanir þínar og ýmist hlýðir þeim eða lætur sem hann skilji ekkert þótt þú vitir betur. í bókinni eru ekki aðeins hinar ótrúlegustu sögur af köttum, þó allar sannar, heldur einnig rann- sóknir og niðurstöður þeirra um hina ýmsu hæfileika kattanna. Mál kattanna er einnig kennt í bókinni og allt sem um þá er sagt er stutt með dæmum. Skemmtilegum dýrasög- um. Ekki aðeins kattavinir heldur allir dýravinir, munu hafa mikla ánægju af að lesa þessa bók. Steven Callahan. Overleve. Aventura. í þýðingu Ádne Goplen. Oslo 1968. 264 bls. 12 og hálfs mánaðar ferð í björg- unarbát yfir Atlatshafið, eftir að skip hans sökk, er ekkert venjulegt ævintýri. Hér er slíkri ferð lýst af manni sem ekki aðeins lifði af, en skráði einnig frjóa frásögn af atburð- inum og gerði jafnvel fjölda teikn- inga af því sem á dagana dreif og hvernig hann fór að til að lifa af. Þjáningar, vonleysi, örvænting og einmanaleiki, eru allt hluti af dag- legu lífi við þessar aðstæður. Þegar hinsvegar sá sem upplifir þetta er staðráðinn í að láta ekki yfirbugast, þá sigrast hann á þessu öllu og getur notað reynslu sína til að miðla öðrum. Lestur bókarinnar er mikil- væg kennslustund í því að lifa af og gefast aldrei upp. Peter Wessel Zapffe. Hvordan jeg blev sá flink, ogandre tekster. Aventura. Oslo 1986.149 bls. Allt frá því er ég kynntist fyrst ritverkum Zapffe í bókinni Om det targiske, hefi ég verið einn af trygg- um lesendum hans. Það eru ekki heldur á hverju strái menn, sem svara verkefni á lokaprófi í lögfræði í ljóði. Þetta prófverkefni er að finna í bókinni auk þess svo margt annað sem er raðað í tímaröð eftir því sem líf hans hefir runnið og hann verið frelsaður til hinna ýmsu áhugamála. Frábær stíll einkennir allt er hann lætur frá sér, en ekki síður glettnin, sem jaðrar við sprell. Allt frá djúphyggju í „Job“ til glettninnar í „Tindbestig- ere“. Þetta getur aðeins jafn alhliða höfundur og Zapffe. Lögfræðingur, sagnfræðingur, útivistarmaður og rithöfundur og ekkert af þessu í smáum stíl. Jun Harr. Lykkeliga Bidler, et kunstportrett. Aventura. Oslo 1986. Eftir Ivar B. M. Alver. 87 bls. með fjölda litmynda. Þetta er önnur bókin um Jan Harr, manninn sem speglar náttúr- una í myndum sínum, sem Ivar B.M. Alver, hjá Asker Bærum Budstikka dagblaðinu skrifar. Ég átti þess kost að kynnast báðum þessum mönnum lítillega er ég bjó í Noregi, þá frímerkjateiknarann Harr og blaðamanninn Alver. En báðir hafa gert svo margt fleira að það auðgar sjóndeildarhringinn að kynnast slíku. Það væri kannski réttara að lýsa Harr þannig aðhann yrki náttúr- una á léreft, eins og mynd hans, til Tolkien, ber með sér. Hann var aðeins 27 ára er listasafn ríkisins fór að kaupa inn myndir eftir hann, en hann er fæddur 1945. Alhliða mynd- listarmaður er hann, allt frá leik- sviðum, búningum, frímerkjum og til bestu olíumálverka. En hann er alltaf norður-norskur í lífi sínu og list. Það er raunar höfundur bókar- innar líka og hann lýsir lífshlaupi listamannsins með sínum mjúka penna er lýsir málaranum sem opnar ljóðrænar víddir náttúrunnar með pensli sínum og teikningum. Christian Borch. Kronpríns Harald. Aventura. Oslo 1986. 240 bls. Þetta er fyrsta bókin, sem gefin er út um ævi Haraldar krónprins, sem verður fimmtugur í febrúar á þessu ári. Hann erkonungborinn, tilheyrir. þeim hópi manna sem er yfirþjóðleg- ’ ur, fæddur til að ríkja. Hvernig hljómar slíkt í dag? En starf þeirra er að halda þjóðum saman og vera tákn þeirrar einingar. Stundum hafa heyrst raddir um eitt og annað, en Norðmenn sýndu best hug sinn til ríkisarfans, með því að gera þessa ágætu bók að metsölubók fyrir síð- ustu jól. Höfundurinn sem er blaða- maður á utanríkisdeild Aftenposten hefir vandað sig mjög og skilar góðu verki. Þá er kannski ekki svo lítils virði að hann lætur persónu krón- prinsins fá að koma í ljós, er hann segir álit sitt á fjölda málefna er hann þarf að fást við og sem eru ofarlega á baugi í daglegu lífi í heiminum í dag. Þar fáum við kannske réttasta mynd af Haraldi af Noregi.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.