Tíminn - 04.04.1987, Blaðsíða 3
Laugardagur 4. apríl 1987
Tíminn 3
Á sjöunda hundrað stofnaðilar. Einkaaðilar og fyrirtæki með 30-35 m.kr. í stofnhlutafé:
stöðvar
Sambandið selur
kexverksmiðju
- og Kexverksmiðjan Frón kaupir
Verslunardeild Sambandsins
hefur selt Kexverksmiðjuna Holt
sem rekin hefur vcrið í Holtagörð-
umfrá 1979. KaupandierKexverk-
smiðjan Frón. Innifalin í kaupun-
um eru búnaður verksmiðjunnar
og uppskriftir.
Snorri Egilson aðstoðarfram-
kvæmdastjóri sagði að Verslunar-
deild þyrfti á húsnæðinu að halda,
sem kexverksmiðjan er í, flutning-
ur á henni myndi verða dýr. auk
þess sem í henni þyrfti að fjárfcsta
mikið ef menn ætluðu að endur-
nýja hana. Þá hefði verið taprekst-
ur á verksmiðjunni lengst af. Versl-
unardeildin hefur lengi átt gott
samstarf við Frón og m.a. verið
einn stærsti viðskiptavinur þess
fyrirtækis um árabil. Framvegis er
fyrirhugað að Frón framleiði kex
fyrir Sambandið undir sérstöku
vörumerki þess, en óákveðið cr
hvort nafnið Holtakex verður not-
að áfram.
Á næstunni verða því vélar Kex-
verksmiðjunnar Holt' fluttar út úr
núverandi húsnæði hennar í Holta-
görðum. Þá hafa nýir eiggndur
boðið öllum starfsmönnum við
kext'ramleiðsluna í Holtagörðum
störf hjá sér áfram. - esig
Eigendur og forsætisráðherra við
vígslu fiskeldisstöðvar Fellalax hf:
(f.v.) Hermann Jóhannesson, Sig-
urður Sigurkarlsson, Guðmundur
Bang, Steingrímur Hcrmannsson,
Hilmar Sigurðsson og Björn Bald-
vinsson. Stefán Jóhannesson, bóndi
á Kleifum í Gilsfirði, sjötti cigandi
stöðvarinnar, var ekki viðstaddur.
(rímaniynd: Þór)
Fellalax hf.
Vígsla
fiskeldis-
Sigurður Þórðarson í fjármálaráðuneyti:
Heimamenn verða
að hafa frumkvæði
„Verið að vinna að málinu í fjármálaráðuneyti eftir því sem ég best
veit“, segir Sigurður Jóhannesson bæjarfulltrúi á Akureyri
„Ég veit ekki betur en það sé
áfram verið að vinna að lausn þessa
máls hjá fjármálaráðuneytinu. Ég
tel að málið sé í ákveðinni biðstöðu
á meðan,“ sagði Sigurður Jóhannes-
son bæjarfulltrúi á Akureyri í sam-
tali við Tímann.
„Málið stendur þannig að við
erum búnir að gera þessar tillögur og
heimamenn hafa fjallað um þær.
Ef menn vilja eiga frekari viðræð-
ur við ríkisvaldið, þá verða heima-
menn að hafa frumkvæðið að því.
Af okkar hálfu í nefndinni er þetta
mál afgreitt. Ef um áfrainhald verð-
ur að ræða, þarf að skipa nýja nefnd
eða koma til beiðni um að við
höldum áfram störfum", sagði
Sigurður Þórðarson skrifstofustjóri í
fjármálaráðuneytinu aðspurður
hvort ráðgert væri að halda áfram
viðræðum við viðræðunefnd Akur-
eyrarbæjar um hvaða leiðir skuli
fara til að leysa fjárhagsvanda Hita-
veitu Akureyrar. Sigurður var einn
nefndarmanna í svokallaðri hita-
veitunefnd ríkisstjórnarinnar.
Hitaveitan hefur sem kunnugt er
ákveðið að verða ekki við þeim
tilmælum ríkisstjórnarinnar að
lækka hitaveitugjöld um 20% því
hún telur að slík lækkun myndi
stefna veitunni í fjárhagslegan voða
í framtíðinni. Á meðan ríkisstjórnin
svarar ekki þeim athugasemdum
sem gerðar hafa verið af hálfu Akur-
eyrarbæjar er málið í biðstöðu.
ABS
Sjávarútvegurinn mun
taka heildarafstöðu
- hvort hann gerist hluthafi í Útvegsbankanum. Engir erlendir bankar með
í gær var vígð ný fiskcldisstöð í
Hofsvík á Kjalarnesi, sem gefið var
nafnið Fellalax hf. Steingrímur Her-
mannsson, forsætisráðherra, var við-
staddur opnunina. Skóflustunguna
tók skurðgrafa frá Hagvirki 15. októ-
ber sl. og hefur byggingin risið á
skömmum tíma. Hugmyndin er
rúmlega ársgömul. „Þctta er 500
þúsunda gönguseiðastöð," sagði
Björn Baldvinsson, upphafsmaður
aðstöðinni. Þar verða alin regnboga-
silungs-, sjóbirtings- og laxasciði, en
jafnvel lúöueldi kemur til álita síðar.
„Við höfum trú á þessum rekstri.
Þrátt fyrir að það hafi risiö á svo
skömmum tíma sem raun bcr vitni á
Frestur til að gerast stofnaðili að
Útvegsbanka íslands hf., rann út í
gær og að sögn Tryggva Axelssonar,
fulltrúa í viðskiptaráðuneytinu er
búist við að stofnaðilar verði á
sjöunda hundrað. Sagði Tryggvi að
hlutur einstaklinga og fyrirtækja yrði
sennilega á bilinu 30-35 milljónir
króna, Fiskveiðasjóður leggur til
200 m. kr. og ríkið tryggir að
heildarhlutafé nemi alls einum mill-
jarði.
Á stofnfundinum verður hlutafé-
lagið stofnað og kýs fundurinn
stjórn, þ.e. bankaráð. Bankaráðið
sér síðan um að velja bankastjóra
nýja bankans, en hið nýja hlutafélag
tekur síðan formlega við bankanum
þann 1. maí og á þá allt hlutafé að
vera fullgreitt. Minnsti hlutur er að
upphæð 10.000 kr. og eiga aðilar
upp í 2 milljón kr. hlut.
Én af hverju er þátttaka einkaað-
ila og fyrirtækja ekki meiri ?
„Það lá alltaf ljóst fyrir að Útvegs-
bankinn myndi byrja sem ríkishluta-
félag. Þessar undirtektir segja ekkert
til um það hvort sjávarútvegurinn
mun takast á við það vandamál að
eignast meirihluta í þessum banka
með Fiskveiðasjóði. Það mál verður
athugað, en hefur ekki þótt tímabært
hingað til,“ sagði Kristján Ragnars-
son, frkvst. LIÚ í samtali við Tím-
ann í gær.
„Menn munu leita eftir því að það
verði tekin heildarafstaða af eða á,
innan sjávarútvegsins. Það verður
einhver af aðalstofnunum innan sjá-
varútvegsins sem mun hafa forgang
í því máli, það gæti orðið LÍÚ þó
ekki sé ljóst enn hver það verður.
Enn eru engar formlegar viðræður
hafnar, að minnsta kosti engar sem
menn vilja skýra frá,“ sagði Kristján.
Matthías Bjarnason, viðskipta-
ráðherra sagði að haldið yrði áfram
að reyna að selja hlutabréf í bankan-
um, það væru margir stórir aðilar
sem hefðu hugsað sér að eignast hlut
í bankanum en gerðu það ekki núna,
vegna þess hve tíminn væri knappur
fyrir stofnfundinn þann 7. apríl.
Ékki vildi Matthías nefna nein nöfn,
en þetta væru aðilar á sviði sjávarút-
vegs og víðar. Sagði Matthías að víst
væri hlutur einkaaðila minni en
menn hefðu átt von á, en hann áliti
að sala hlutabréfanna væri rétt að
byrja.
Hins vegar hefði ekkert heyrst frá
erlendum bönkum, „enda hef ég
aldrei gert mér miklar vonir um þá,“
sagði Matthías Bjarnason.
- phh
það ekki í neinum fjárhagskrögg-
um.“
Guðmundur Bang, fiskifræðing-
ur, cr cinn af scx eigcndum stöðvar-
innar. Hann segir að þegar sé já-
kvætt útlit fyrir sölu á erlendum og
innlendum markaði. „Sala er þegar
komin í gang.“
Þj
Útboð
- uppsteypa og frágangur utanhúss
Sláturfélag Suðurlands óskar eftirtilboðum í uppsteypu
og frágang utanhúss 2. áfanga byggingarframkvæmda
félagsins í Laugarnesi Reykjavík. Búið er að byggja 1.
áfanga og sprengja fyrir 2. áfanga. Stærð 2. áfanga er
30.500 rúmmetrar. Verklok eru fyrst í desember 1988.
Útboðsgögn verða afhent á verkfræðistofunni FERLI
h.f. Suðurlandsbraut 4 Reykjavík frá og með miðviku-
deginum 8. apríl n.k. gegn 30.000.00 kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Sláturfélags Suður-
lands Skúlagötu 20 Reykjavík, þriðjudaginn 28. apríl
n.k. kl. 14.00 að viðstöddum þeim bjóðendum er þess
óska.
SLÁTURFÉLAG
SUÐURLANDS
IÐNSKÓLINN f REYKJAVÍK
Iðnskóladagurinn
í dag; laugardag
Iðnskólinn í Reykjavík, Skólavörðuholti verður
opinn almenningi í dag kl. 10-16. Þar gefst
tækifæri til að kynna sér nám í löggiltum iðngrein-
um, tölvutækni, tækniteiknun og á tæknibraut.
Nemendur verða að störfum í öllum verklegum
greinum og gefst gestum kostur á að ræða við
nemendur og kennara. Atvinnufyrirtæki sækjast
eftir tæknimenntuðu fólki sem hefur haldgóða
undirstöðumenntun. í Iðnskólanum miðast náms-
markmiðin við að uppfylla þessar kröfur.
Komið í dag á Iðnskóladaginn og kynnið ykkur
starfið.
Kaffihlaðborð í matsal
Iðnskólinn í Reykjavík