Tíminn - 04.04.1987, Qupperneq 12

Tíminn - 04.04.1987, Qupperneq 12
12 Tíminn FRÉTTAYFIRLIT MOSKVA — Sovétmenn sprengdu sína þriöju kjarn- orkusprengju síöan í febrúar er þeir bundu enda á átján mánaöa bann, sem Banda- ríkjamenn höföu neitað aö taka þátt í, og hófu aö nýju tilraunir meö kjarnorkuvopn. BEIRÚT — Forráðamenn háskólans í Beirút hvöttu mannræningja til að láta laus- an fræðimanninn Alan Steen sem er lífshættulega sjúkur. Hvatningin kom á sama tíma og birt var frétt þar sem því var haldið fram aö Steen og þrír aðrir gíslaryrðu bráölega látnir lausir. COLOMBO — Skæruliöar tamila úr Tígrishóþnum svo- kallaöa drápu 65 manns sem talið er að hafi verið meðlimir tveggja annarra skæruliöa- hópa tamila sem berjast gegn Tígrishópnum. MANILA — Stjórnvöld á Fil- ippseyjum skipuöu hernum aö auka enn baráttu sína gegn vinstrisinnuðum skæruliðum. Hermálayfirvöld tilkynntu um tuttugu látna víðsvegar um landið í átökum hersins og skæruliöa. KAIRÓ — Hosni Mubarak forseti Egyþtalands varaöi stjórnmálaflokka landsins viö því að gera trúmál að kosn- ingamáli í þingkosningunum á mánudaginn. Þrátt fyrir þessa viövörun virtist sem flokki Mu- baraks væri jafnmikiö í mun og öörum aö næla sér í atkvæöi múslima er ráðiö geta úrslitum um útkomu kosninganna. WASHINGTON — Banda- ríkjastjórn sakaöi ísraelsstjórn um aö hafa selt voþn til Suour- Afríku í trássi viö bann Sam- einuðu þjóðanna frá árinu 1977. Þetta gæti enn átt eftir aö gera samskiþti ríkjanna stirðari en þeim hefur veriö mjög ábótavant í kjölfar njósnamálsins er tengdist Jónatan Pollard. PEKING — Stjórnvöld í Kína sögöu Sovétmenn hafa sam- þykkt aö ræöa ný málefni í þeim tilgangi aö bæta sambúö ríkjanna tveggja. Frétta- skýrendur sögöu stjórn Mikhail Gorbatsjovs hafa meö þessu greinilega sýnt vilja til betri samskipta. llllllllllllllll 1111 llllllllllllllllllllllllllllll lllllllllllllll Laugardagur 4. apríl 1987 UTLOND Kosið t héraðsstjórna í Japan um næstu helgi: Söluskattur og kvenmenn gera Nakasone erfitt fyrir Nakasonc forsætisráöherra Japans ásamt Reagan Bandaríkjaforscta: Sá japanski býr við minnkandi vinsxldir rétt eins og Reagan þótt ástæðurnar séu aðrar. Tokyo - Kcuter Næsta vika gæti átt cftir að verða Yasuhiro Nakasone forsætisráð- hcrra Japans erfið í skauti. Þá er nefnilega víst að þúsundir andstæð- inga forsætisráðherrans, sem bjóða sig frant til hérðasstjórna, munu gagnrýna hann harkalega fyrir tillög- urum mjög svo óvinsælan söluskatt. Nakasone var langvinsælasti stjórnmálamaðurinn í Japan á síð- asta ári eftir að hafa leitt hinn ráðandi Frjálslynda lýðræðisflokk til síns mesta kosningasigurs frá upp- hafi. En fljótt skipast veður í lofti. Stjórnmálaskýrendur eru nú á því að Nakasonc og flokkur hans verði að hætta að hugsa unt stóra sigra og einbeita sér að því að tapa ekki mikið þegar kosið verður um hin 3.235 sæti í hcraðsstjórnum landsins sunnudaginn 12. apríl. Síðustu skoðanakannanir sýna að vinsældir Nakasone hafa minnkað mjög, niður í 20% frá þeim 50% sent hann hafði í fyrra eftir kosningasigur Frjálslynda lýðræðisflokksins. En það er fleira en minnkandi vinsældir Nakasone sem angrar fylg- isspaka flokksmenn hans í stjórnar- flokknum. Þar má meðal annars ncfna þá stefnu leiðtoga japanskra sósíalista Takako Doi, scm er fyrsta konan til að leiða stjórnmálaflokk þar í landi, að láta fleiri kynsystur sínar vcra í framboði til héraðs- stjórna en þekkst hefur áður. Sósíal- istar eru nú með 30 konur í framboði í stað 19 í síðustu héraðsstjórna- kosningum. Þcssi stcfna Doi cr ekki einungis tímanna tákn heldur skynsöm að niörgu leyti, konur verða t.d. mjög varar við söluskatt sem lagöur er á vörur og gæti Sósíalistaflokkurinn náð til margra kvenna sem óánægðar eru með þessa álagningu. Tugþúsundir manna hafa á undan- förnum vikum mótmælt áætlunum ríkisstjórnar Nakasone um sölu- skattsálagninguna. Og það verða fleiri sem gagnrýna munu Nakasone harðlega í næstu viku. Hinn mjög svo hægrisinnaði Þjóðernisflokkur hefur komið upp hátalarabílum og keyra liðsmcnn hans unt ntiðborg Tokyo hrópandi slagorð gegn Nakasone, Bandaríkj- unum og sitthverju fleiru. Að auki hafa nokkrir liðsmenn Frjálslynda lýðræðisflokksins ákveð- ið að bjóða sig fram sem óháðir einstaklingar í héraðasstjórnakosn- ingunum til að mótmæla söluskatts- tillögunum. Nakasone og flokkur hans verða því nær örugglega í varnarstöðu er kosningaslagurinn nær hámarki í næstu viku. Tyrkneski söngvarinn Ibrahim Tatlises: Sýknaður af söng á kúrdisku Ankara-Reuter Dómstóll í lstanbúl liefur sýknað tyrkneska söngvarann Ibrahim Tatl- ises af ákæru um að „veikja þjóðar- kennd“ með því að syngja á kúr- disku. Tyrknesk stjórnvöld viðurkenna ekki kúrda sem sérstakan þjóðflokk og her landsins á í skæruhernaði við fámennan hóp þeirra sem berst fyrir sjálfstæðu Kúrdistan. Tatlises er kúrdi og á að hafa sungið á máli þeirra á hljómleikum sem hann hélt í Sodertalje í Svíþjóð á síðasta ári. Hann sagði fyrir réttin- um að hann hefði jú. sungið á kúrdisku en bara eina línu í arabísku kvæði. Ákærandinn í málinu heimtaði að fyrir þessa línu yrði Tatlises dæmdur í 24 ára fangelsi. Tatlises neitaði hinsvegar að hann hefði verið að starfa gegn hagsmunum Tyrklands og öryggisdómstóll í Istanbúl var honum sammála og sýknaði söngvar- ann. Frakkland/Sovétríkin: Kólnandi sambúð - Kemur njósnamáliö í sambandi viö Ariane eldflaugina evrópsku í veg fyrir ferö Chiracs til Moskvu? París-Reuter Frönsk stjórnvöld reyndu að gera lítið úr ósætti sínu við Sovétstjórnina í gær út af njósnunum um Ariane eldflaugina og sagði utanríkisráð- herra landsins Jcan-Bcrnard Rai- mond að ólíklegt væri að málið myndi koma í vcg fyrir fyrirhugaða fcrð Jacques Chiracs forsætisráð- herra til Moskvu. Raimond sagði þá ákvörðun frönsku stjórnarinnar í fyrradag að vísa þrentur sovéskum stjórnarer- indrckum úr landi. vegna gruns unt að hafa staðið fyrir njósnum utn evrópsku Ariane eldflaugina, vera einangraða og ckki til þess gerða að skemma fyrir hinum góðu samskipt- um ríkjanna tveggja. Ferð Chiracs forsætisráðherra til Sovétríkjanna er fyrirhuguð í síðari hluta maímánaðar en í gær var þó I greinilegt að samskipti ríkjanna höfðu kólnað verulega vegna njósnamálsins og um leið vöknuðu upp efasemdir um hvort af heimsókn Chiracs yrði. í tilkynningu sovéska sendiráðsins í París var varað við að brottrekstrarnir gætu skaðað sant- skipti ríkjanna og var ljóst að þar var átt við ferð Chiracs rétt eins og annað. í gær sagði svo fréttastofan Tass frá því að frönsk herflugvél hefði sveimað yfir sovéska flutningaskip- inu Fyodor Podtelkov fyrir utan Frakklandsströndum, truflað ferðir þess og stefnt áhöfninni í voða með lágflugi. í gærdag var ekki ljóst hvort sovésk stjórnvöld létu sér þessi mót- mæli nægja eða svöruðu brottrekstr- unum með því að vísa jafnmörgum frönskum stjórnarerindrekum frá | Moskvu. Á síðasta ári vísaði franska , ríkisstjórnin fjórum sovéskum stjórnarerindrekum úr landi vegna njósna og þá rak Sovétstjórnin fjóra j Frakka snarlega frá Iandi sínu. I Kremlverjar gerðu hinsvegar ckkert slíkt í miklu alvarlegra máli árið 1983 þegar franska stjórnin sendi 47 sovéska diplóntata til síns heima, einnig eftir ákærur í sambandi við njósnir. Stígur Chirac forsætisráðherra Frakklands ekki á sovéska grund í maímánuði vegna njósnamálsins í sambandi við evrópsku Arianc eld- flaugina? Pólland: Hungrað í bensín Varsjá-Reuler Þjófar í Póllandi hafa stolið bensínmiðunt upp á meira en tvær milljónir zlota eða sem sam- svarar um fjörutíu milljónum ís- lenskra króna. Það var pólska sjónvarpið sem skýrði frá þessunt þjófnaði frá einni tryggingarskrif- stofu ríkisins. Bensín er dýrt í Póllandi, hækkaði t.d. um 25% um síðustu helgi, og á hver landsmaður rétt á um 30 Iítrum af þessum orku- gjafa á mánuði. Þjófarnir gætu keypt þrjár milljónir lítra af gæðabensíni, sem selt er á tvöfalt hærra verði en venjulegt bensín á svörtum markaði, fyrir stolnu ntiðana. Pólska sjónvarpið sagði ekki hvenær þjófnaður hefði farið fram en atburðurinn átti sér stað í Szamotuly, nálægt Poznan í vesturhluta landsins. Eyðnibaráttan á Nýja Sjálandi: NÁLAR SELDAR TIL EITURLYFJANEYTENDA Wcllinglon-Rcuter Stjórnvöld á Nýja Sjálandi hafa ákveðið að leyfa apótekum að selja nálar og sprautur til eiturlyfjaneyt- enda. Þetta er gert í þeim tiigangi að varna útbreiðslu eyðnisjúkdómsins illræmda. Það var Michael Bassett heilbrigð- ismálaráðherra landsins sem frá þessu skýrði og.sagði hann T yflrlý.s- ingu að alvarlcgum vandamálum þyrfti stundum að niæta með róttæk- um aðgerðutn. Yfirlýsing Bassetts fylgdi í kjölfar frétta um að læknar í Auckland hefðu fundið eyðniveiruna í fjórum gagnkynhneigðum eiturlyfjaneyt- endum nú nýlega. Talið er að um2400 eiturjyfjaneyt- endur sem sprauta sig séu í N Sjálandi. Alls er vitað um 37 eyðnitilfelli hafa sex manns látist af völdi sjúkdómsins. Bassett heilbrigc málaráðherra sagði að sanna lægju fyrir um að eiturlyfjaneyter ur bæru sjúkdóminn út meðal gaj > ‘kynhnoigðra; : - . -

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.