Tíminn - 29.04.1987, Qupperneq 1
MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1987 - 95. TBL. 71. ÁRG.
þjóðin
stjórnar
Síðdegis í gær gekk Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, á fund
forseta Islands Vigdísar Finnbogadóttur og baðst lausnar fyrir sig og
ríkisstjórnina. Lausnarbeiðnin er afleiðing af niðurstöðu kosninganna, þar
sem stjórnarflokkarnir fengu ekki tilskilinn hluta atkvæða til að halda
stjórnarsamstarfi áfram þótt kannanir sýndu að stjórnin hefði 64% fylgi
landsmanna.
Þá er vert að benda á þá staðreynd, að í kosningunum vann Steingrímur
Hermannsson, frafarandi forsætisráðherra, glæsilegan persónulegan sigur,
sem þakka ber alhliða vinsældum hans í embætti forsætisráðherra. Engu aði
síður þurfti hann að biðjast lausnar.
Nú þegar eru hafnar viðræður um stjórnarmyndun, þótt varlega sé rætt um
þær þreifingar. Bæði Steingrímur Hermannsson og Þorsteinn Pálsson eiga
eftir að koma þar við sögu. Það er hins vegar ekki séð á þessari stundu hvort
þeir saman á ný og þá III ilW '1111
við þriðja eða
Steir.-yrímur Hermannsson gekk á fund forseta í gær og baðst lausnar fyrir sig og
ríkisstjórn sína. Að neðan situr ríkisstjórnin sinn síðasta fund fyrir lausnarbeiðni
Tímamvnair: BREIN
Nú bíður
Rangárnar fylltar af laxi
TT
Heklugos hafa alltaf haft
þann fylgikvilla að eyðileggja
veiði í Rangánum. Og þótt
veiði komi í þær aftur tekur
það náttúruna langan tíma
svona hjálparlaust. Nú ætlar
mannshöndin áð gera það sem
náttúran þarf sinn tíma til að
vinna. Það á að fylla Rangárnar
af laxi. Fyrirhugað er að setja
25 þúsund sjógönguseiði í
árnar í sumar, 35 þúsund
næsta sumar, 45 þúsund 1989
og 50 þúsund árið 1990. Og
þetta er aðeins byrjunin. Aldrei
fyrr hefur jafn skipulega og
jafn mikið verið sett af sjó-
gönguseiðum í nokkrar ár.
Þetta er mesta fiskiræktarátak
á Islandi, glæsiiegt framtak
sem vitað er að á eftir að
heppnast - fram að næsta
Heklugosi verði það illvígt.
Annars búum við undir ógnum
eldgosa hvort sem er og getum
ekki látið það stjórna gerðum
okkar og áætlunum.
Sjá baksíðu