Tíminn - 29.04.1987, Síða 14

Tíminn - 29.04.1987, Síða 14
 getrluna- VINNINGAR! 36. leikvika - 25. apríl 1987 Vinningsröð: 121 - X11 - XX1 - 122 1. vinningur: 12 réttir, kr. 196.580,- 11076 53930(4/n) 2.vinningur:11 réttir, kr. 12.035, 9727 51537+ 129121 Úr19. viku 11075 55709 590642 49168 47835 97386 590643 Kærufrestur er til mánudagsins 18. maí 1987 kl. 12:00 á hádegi. Kærur skulu vera skriflegar. Kærueyðublöö fást hjá umboðsmönnum og á skrifstofunni í Reykjavik. Vinningsupphæðirgeta lækkað, ef kærurverðateknar til greina. Handhafar nafnlausra seðla (+) verða að framvisa stofni eða senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til Getrauna fyrir lok kærufrests. ÍSLENSKAR GETRAUNIR Iþróttamiðstöðiimi v/Sigtún, Reykjavík Olíugeymar Landsvirkjun auglýsir til sölu tvo olíugeyma viö Elliðaár aö rúmmáli 1892 m3 hvor. Þvermál að innan: 14,63 m. Hæö að innan: 11,25 m. Plötuþykktir: 4,7-6,6 mm. Eiginn þungi: Nálægt 40 tonnum. Smíðaár: 1946. Kaupandi skal fjarlæga geymana á sinn kostnað og skila tímaáætlun um verkið með tilboði sínu. Nánari upplýsingar veitir innkaupastjóri Landsvirkjunar. Tilboðum skal skila á skrifstofu Landsvirkjunar fyrir kl. 14.00, 5. maí 1987. A Bæjarlögmaður Staða bæjarlögmanns Kópavogskaupstaðar er laus til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 19. maí n.k. Umsóknir skulu berast undirrituðum á um- sóknareyðublöðum sem liggja frammi á Bæjar- skrifstofunum, Fannborg 2, 4. h. Upplýsingar um starfið veita núverandi bæjarlögmaður og undirrit- aður. Bæjarstjórinn í Kópavogi. 14 Tíminn lllllll MINNING Miðvikudagur 29. apríl 1987 Jóhann Gunnlaugsson á Víðimýri Þegar ég heyrði lát Jóhanns Gunn- laugssonar bónda á Víðimýri í Skaga- firði fór ég að hugleiða, hve mikið Þjóðminjasafnið ætti því fólki upp að inna, sem annast hefir og gætt þeirra menningarminja úti um íandið, sem safnið á og ber að varðveita. Ekki síst eru það umsjón- armenn gömlu bæjanna og gömlu kirknanna, sem eru á fornleifaskrá, sem hér eiga þakkir skildar. Mér fannst ég því ekki mega láta hjá líða að geta Jóhanns að nokkru nú þegar hann er allur og færa þakkir fyrir samskipti okkar, sem ekki bar hátt en voru þó með þeim mestu ágætum, sem verða mega. Jóhann hitti ég fyrst sumarið 1965, en síðar kynntist ég honum betur er ég fór að koma við nokkuð reglulega á Víðimýri í eftirlitsferðum. Þessi lágvaxni og hógværi maður bar með sér mikla hlýju. Hann var samanrek- inn og vinnumerktur, eins og sagt var, enda var hann þá orðinn einbúi á Víðimýri, hinu gamla stórbýli, og var aleinn þar mestan hluta ársins þótt hann hefði oft nokkra hjálp yfir sumarið. Á Víðimýri stendur ein af gömlu torfkirkjunum, sem Þjóðminjasafn- ið á og annast, og sú sem þekktust er og líklegast prýðilegust þeirra allra. Hún var reist 1834 af þjóðhagasmiðnum Jóni Samsonar- syni í Keldudal, komst í eigu og umsjá Þjóðminjasafnsins er hún var hundrað ára gömul og stendur nán- ast óbreytt með öllu enn í dag. Jóhann annaðist þessa gömlu kirkju á Víðimýri í áratugi af mikilli samviskusemi og trúmennsku. Þótt hann væri einbúi virtist hann aldrei eiga svo annríkt, að hann gæti ekki farið og sýnt kirkjuna, hvort sem komu hópar fólks eða einstakir menn, og mikils mat hann það þegar starfsmenn safnsins komu þar og gátu rætt við hann um ástand og þarfir kirkjunnar. - Þarna á Víðimýri var alltaf jafn snyrtilegt umhverfis bæ og kirkju, aldrei véladót eða rusl neins konar og kirkjan ævinlega hrein og hirt af natni. Að Víðimýri koma þúsundir gesta árlega, erlendir sem innlendir, til þess að skoða kirkjuna. Alltaf brá Jóhann við þótt hann væri í önnum, enda þurfti hann sjálfur að annast alla hluti innan- og utanhúss mestallt árið. - Hann fór þá og opnaði kirkjuna og sýndi. Honum virtist þetta alit til mikillar ánægju, settist gjarnan á einn fremsta bekkinn karl- mannamegin, að gamalli venju og skýrði þaðan frá kirkjunni eða ræddi um hana við okkur safnfólkið, á- stand hennar og viðgerðir. - Sjálfur dyttaði Jóhann að henni eins og hann gat, slóþekjurog veggi, málaði hurð og glugga og bar tjöru á stafna, og oft útvegaði hann í samráði við okkur menn til að vinna stærri viðgerðarstörf. - Var ljóst að Jóhann bar mikin hlýhug til þessa gamla og merka húss og annaðist það af stakri samviskusemi. Aldrei var vandræð- ast yfir málum, jafnvel þótt veggur væri klofinn eða þekjan sólbrunnin, heldur var leitað ráða og samþykkis til að fá gert við skemmdir og bent á úrræði. - Þannig var Jóhann. Laugardaginn 11. apríl síðastlið- inn var Jóhann Gunnlaugsson kvaddur frá Víðimýrarkirkju og lagður til hvílu í garðinum þar, en hann andaðist nær 68 ára að aldri 1. apríl. - Ég veit harla lítið um ætt og feril Jóhanns, nema það að hann var fæddur 16. maí 1919 að Fremri-Kot- um í Norðurárdal í Skagafirði, yngstur af fimm börnum hjónanna þar Gunnlaugs Guðmundssonar og Friðbjargar Halldórsdóttur, er þar bjuggu til 1924. Eftir það bjó fjöl- skyldan á ýmsum stöðum í Skaga- firði, en 1941 fluttist Jóhann ásamt móður sinni að Víðimýri, sem þá var ríkisjörð en hann fékk keypta fyrir nokkrum árum. Þar bjuggu þau meðan hún lifði og eftir það var Jóhann einn á Víðimýri, nema hvað hann hafði stundum hjálp yfir sumarið af unglingum, stundum þeim sem áttu við einhverja erfið- leika að stríða, enda var honum lagið að blanda geði við unglinga, skildi þarfir þeirra og vandamál og tókust vináttubönd á milli. - Sjálfur kvæntist Jóhann aldrei né átti afkomendur. „Vertu trúr yfir litlu og yfir mikið mun ég setja þig.“ - Ég vona, að Jóhann á Víðimýri njóti þessa fyrir- heits nú þegar hann er horfinn héðan af heimi. Þór Magnússon. Guðrún Eyþórsdóttir organisti Sauðárkróki Sólskin, - söngur, - síðsumar í Skálholti. Minningarnar þyrptust að mér þegar fregnin barst um andlát Guð- rúnar, andlát sem varð henni lausn frá erfiðum þjáningum. Ég kynntist henni í Skálholti á organistanám- skeiðum Söngmálastjóra, en þar hittast árlega organistar víðs vegar að af landinu. Þá skín sólin og söngur ómar frá morgni til kvölds. - Og stundum morgnaði snemma og kvöldaði seint -. Glaðværð og hlýja einkenndi sam- skipti þátttakenda. Allir lögðu nokk- uð af mörkum til að gera dagana dýrmæta. Hlutur Guðrúnar til þessara stunda er stór. Jákvætt lífsviðhorf og lífsgleði voru förunautar hennar og aðrir hrifust með. Enginn gat hugsað ; sér Skálholtsnámskeiðin án Guðrún- | ar. Gleðin og kjarkurinn sátu henni sitt til hvorrar handar. Þeir sömu eðlisþættir reyndust henni vel í tví- sýnni glímu við þjáningarfullan sjúkdóm. Hún var nær óbilandi í þrótti sínum og lífsvilja. Dýrmætt var að fá að kynnast henni. Guð blessi veginn hennar. Heiðmar Jónsson. Útboð Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar f.h. hitaveitu Reykjavíkuróskareftirtilboðum í álklæðningu fyrir gufusafnæðar Nesjavallavirkjunar. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkju- vegi 3, Fteykjavík. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 2. júní n.k. kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN RÉYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvagi 3 — Simi 25800 Sveit Ég er 14 ára strákur, sem óska eftir sveitaplássi í sumar, er vanur. Upplýsingar í síma 91-36576. Illllllllllillillll LESENDUR SKRIFA . Frjálshyggju-fasistarnir Ægir mér hinn ömurlegi íhaldssvipur þinn - Þad er sem þar sjái í freðið svartamyrkur inn - skuggar þrjósku, hörku, heimsku, hrella anda minn - Fyrir rúmlega 60 árum gáfu burg- eisar samtökum sínum sannnefnið „íhaldsflokkur". Auðveldlega tókst jjeim að tæla til sín fjölda fólks: Þröngsýna bjargálna bændur og sjómenn, fákæna kotunga og fátæk- an verkalýð, bæði við sjó og í sveit, sem síðan kusu með burgeisunum til bölvunar sjálfum sér. Réttnefni flokksins reyndist óvin- sælt. Andstæðingar hans styttu það og snéru í skammaryrði - Kölluðu flokkinn oftast „íhaldið“, eins og oft heyrist enn. Klókir fhaldskarlar uggðu, að réttnefnið fældi fólk frá flokknum - og skynsamlegast mundi, að skipta um nafn. Þeir hafa síðan nefnt hann Sjálfstæðisflokk. í því snotra skálka- skjóli hafa þeir skákað lengi. Og íhaldsgeltirnir kunnu fleiri klæki: Þeir smöluðu grísum sínum saman í Íhalds-Svartaskóla, sem þeir kalla „Heimdall“. Eigi er mér kunn- ugt hvað þeir kenna þar, en gott og fagurt getur fæst af því verið. Tvær kynslóðir íhaldsgalta hafa útskrifast úr þessum skóla. Sú eldri er ekki góð, hin yngri þó sýnu verri. í þeim hópi eru slæmir þjóðmálavilli- geltir - að völdum í borgar- og ríkisstjórnum - og byrjaðir þar að leika listir sínar. Aðrir sækja fast, að komast á Alþing og þaðan í landsstjórn, með atbeina lhalds- skrílsins. Þeir hrópa hátt um frelsi - frelsi - frelsi - en hyggja flátt um ójöfnuð og helsi. Frelsi til að okra, svíkja, níðast á flestu minni máttar, brjóta lög og stela undan skatti. Það sýnast óska- draumar sumra þeirra þokkapilta. Heimdallar-frjálshyggjufasistam- ir vofa eins og illir árar yfir þjóðlífi íslendinga, ef þeim tekst að komast hér til varanlegra valda. Skoðið vel svip þeirra í Sjónvarpinu og varist að fela þeim völd og ráðherrastóla. Fyrst og síðast: Fáið þeim aldrei forsætisráðherraembættið! Á sumarmálum 1987 Helgi Hannesson.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.