Tíminn - 29.04.1987, Qupperneq 20

Tíminn - 29.04.1987, Qupperneq 20
„Svo uppsker hver sem sáir“ Gullbók og Metbók rísa báðar undir nafni BflNAÐARBANKINN TRAUSTUR BANKI MMSKMMiillinilillllllilW I / . IV1/AIV3 jjLminn Silfurlax semur til tíu ára við Veiðifélag Rangæinga: Mesta fiskiræktarátak á íslandi framkvæmt í Rangám Sleppt verður 25 þúsund seiðum í ár og aukið upp í 50 þúsund seiði árið 1990 Strax á næsta ári má búast við þvíi að laxveiðimenn líti með öðru hu- garfari til Rangánna og fiskvega sem liggja að þeim. Eitt mesta fiskirækt- arátak sem framkvæmt hefur verið á íslandi hefst í Rangánum í sumar. Sleppt verður 25 þúsund laxaseiðum í árnar í ár. Næsta ár verður sleppt 35 þúsund seiðum. Árið 1989 verða seiðin 45 þúsund og loks 50 þúsund árið 1990. Þau ár sem eftir lifa af tíu ára samningi um sleppingarnar er ■ áætlað að sleppa a.m.k. 30 þúsund seiðum í árnar. Samningurinn var gerður til tíu ára milli Silfurlax h£,og Veiðifélags Rangæinga, sem ef félag landeig- enda. Stangaveiðifélag Rangæinga hefur forleigurétt á ánum og yfirtók . því samninginn, með fiskeldisfyrirt-! ækið Búfisk hf. á bak við sig. Þegar sleppingar fara fram í sumar er ráðgert að sleppa seiðum á alls sjö staði á vatnasvæðinu sem er víðfe'ðmt. Er það gert til þess að tryggja að laxinn skili sér sem víðast. Heimildir Tímans segja að stofnar þeir sem notaðir verða til sleppinga séu úr Elliðaánum og af Ölfusar-Hvítár- svæðinu. Ekki tókst að fá endanlega staðfestingu á því. Landeigendur sem Tíminn ræddi við í gær voru mjög spenntir fyrir þessu framtaki og gera menn sér vonir um að með þessu verði vatnasvæðið gert að spennandi stangaveiðisvæði á fáum árum og um leið muni halast inn tekjur. Við gerð samningsins og í tengslum við ákvörðunartöku um framkvæmdina hefur Stangaveiði- félag Rangæinga notið aðstoðar sérf- ræðinga á sviði fiskiræktar. Uppbygging svæðisins er markviss og haia verið byggðir þrír laxastigar, í Árbæjarfossi og Ægissíðufossi, sem báðir eru í Ytri-Rangá og í Skútuf- ossi, en hann er í Fiská, sem fellur í Eystri-Rangá skammt frá Árgilsstöð- um. Rangár hafa til þessa ekki verið hátt skrifaðar sem laxveiðiár, en í fyrra veiddust hátt í hundrað laxar á svæðinu. Nú getur svo farið að þetta breytist, takist vel til við sleppin- garnar. Lengi hefur mönnum þótt vanta góðar laxveiðiár á Suðurlandi, og langt verið að fara til að komast í uppgrip í þeim efnum, fyrir Sunn- lendinga, en útlit er fyrir að það geti j breyst til batnaðar á næstu árum,ES Kosningaúrslit ógild?: Dularfullt atkvæðahvarf á Vesturlandi - 48 atkvæði „týnd“. Rannsóknarlögreglan hefur málið til rannsóknar Sú fáheyrða staða hefur nú komið upp í Vesturlandskjördæmi að 48i greidd atkvæði hafa ekki komið í leitirnar, þrátt fyrir ákafa leit yfir- kjörstjórnar. Merkingum úr hinum einstöku kjördeildum ber ekki sam- an við heildaratkvæðatöluna sem kom upp úr kjörkössunum í Borg- arnesi. Talningin hefur verið yfirfar- in og hefur yfirkjörstjórn enga skýr- ingu getað fengið á hinum týndu' atkvæðum. Málinu var því vísað til Rúnars Guðjónssonar sýslumanns í Borgarnesi, sem sagðist í samtali við Tímann í gær liafa óskað eftir þvf við Samningurinn samþykktur Starfsmannafélag Reykjavíkur hefur samþykkt samning sinn við borgina með 67,5% greiddra atkv. Á móti voru 22,5%, en auðir seðlar voru 10%. Á kjörskrá voru 2772 en þar af greiddu 1664 atkvæði eða um 60%. Borgarráð hafði lofað fóstrum 2 launaflokka hækkun ef samningur- inn yrði samþykktur, en Margrét Pála Ólafsdóttir fóstra sagði í samtali við Tímann í gær að uppsagnir fóstra sem koma eiga til framkvæmda um mánaðamótin, stæðu enn. Borgar- ráð ákvað í gær að taka upp viðræður við STFR um málefni fóstra en enn er ekki ljóst hvort tekst að afstýra fjöldauppsögnunun^ um mánaða- mót. - BG/ABS Rannsóknarlögreglu ríkisins að þeir önnuðust rannsóknina. Rúnar sagðist ekki vilja tjá sig að svo stöddu um það hvort kosningin í kjördæminu gæti talist lögmæt ef engin skýring fyndist á málinu. Hann taldi þó aðspurður ekki ósennilegt að Alþingi yrði að taka afstöðu til þess. Sagði hann að rannsókn væri þegar hafin og ógerlegt að segja hversu lengi hún myndi standa. Þess má geta að svokallaður „flakkari" lenti í Vesturlandskjör- dæmi og komust því 6 manns á þing þaðan í stað 5. Sáralitla breytingu þarf á hlutfalli atkvæða til þess að; flakkarinn, sem nú er af Kvenna- lista, fari á flakk. Þannig þarf ekki nema helmingur týndu atkvæðanna að fara til Kvennalista til að þær fái uppbótarmann á Vesturlandi og flakkarinn yrði þá Benedikt Boga- son í Reykjavík. Fái Framsókn hins vegar helming atkvæðanna og restin skiptist milli Kvennalista og Alþýðu- bandalags yrði flakkarinn kvennalis-1 takonan Guðrún Halldórsdóttir Kvennalista Reykjavík. Dreifist týndu atkvæðin hins vegar í réttu hlutfalli við aðrar atkvæðatölur í kjördæminu gerist ekkert. Mestar breytingar yrðu ef t.d. Framsókn fengi öll eða flest öll týndu atkvæðin. Þá fengi Framsókn Davíð Aðal- steinsson kjörinn í kjördæminu en Sjálfstæðisflokkurinn missti mann á Austfjörðum. Þar kæmi inn Guð- rnundur Einarsson en í staðinn myndu kratar missa mann á Vest-1 fjörðum til Alþýðubandalags, sem aftur hefði misst sinn mann á Vest- urlandi. - BG UONSKLÚBBURINN VÍÐARR í Reykjavík tókst það þjóðþrifaverk á hendur í gær að hreinsa tjörnina í Reykjavík, en flestir sem komist hafa í návígi við þessa perlu borgarinnar geta verið sammála um að þess var þörf. Þetta mun vera þriðja árið í röð sem Lionsmenn hreinsa tjörnina. Tímamynd pjetur ÍSLENDINGAR NMETA FRÖKKUM f KVÖLD Vestmannaeyjar: Konu um fimmtugt leitað Lögrcgla og hjálparsveitir í Vestmannaeyjum hófu leit ^ð fimmtíu og eins árs gamalli konu í gærmorgun en hún hvarf að heiman frá sér um þrjúleytiö aðfaranótt þriðjudagsins. Að sögn lögreglunnar í Vest- mannaeyjum hafa cngar vísbend- ingar komiö frani um hvert konan hefur farið en sporhundur frá Hafnarfirði var m.a. fenginn til þess að rekja slóð hennar en án árangurs. ABS íslenska landsliðið í knattspyrnu mætir franska landsliðinu í undan- keppni Evrópukeppninnar í knatt- spyrnu í París í kvöld. Leikurinn verður sýndur beint og hefst útsend- ing Sjónvarpsins kl. 17.55. Islendingar og Frakkar léku fyrri leik sinn í Evrópukeppninni á Laug- ardalsvelli í haust og lauk þeirri viðureign með markalausu jafntefli. Sigfried Held landsliðsþjálfari segist vonast eftir hagstæðum úrslitum í kvöld, íslenska liðið verði ekki auð- unnið. Sjá nánar á íþróttasíðu bls. 10-11. -HÁ Útvegsbankinn hf.: ENN HEFUR RÉTTUR MADUR EKKIFUNDIST - í bankastjórastöðuna Búist var við að gengið yrði frá ráðningu á bankastjóra Útvegsbankans í gær, en svo varð ekki. Virðist það vefjast nokkuð fyrir hinu nýja bankaráði að rata á „réttan“ mann og er óvíst hvenær það tekst.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.