Tíminn - 07.05.1987, Qupperneq 3

Tíminn - 07.05.1987, Qupperneq 3
Fimmtudagur 7. maí 1987 Tíminn 3 Japanski fólksbfllinn stórskemmdur eftir aftanárekstur við pallbfl í Elliðavogi í gær. Pallbíllinn var stans á akbrautinni til að sækja sagpokann sem liggur utan vegar. Hjólbarðinn á götunni losnaði af pallbflnum við áreksturinn. (Tímamynd: Pjctur) Stórkaupmenn vilja Glasgowverð á íslandi: „Álagning lægri hér en erlendis" Ríkið tekur: Um 200 flugvallar- skattar af hjólhýsi Hvað mundu margir fara í sólar- landaferðir ef þeir þyrftu að borga 180% skatt af öllum ferðakostnað- inum?, spurði Sverrir Bernhöft á blaðamannafundi stórkaupmanna í gær. Fáir, svöruðu flestir. Sverrir, sem oft kvaðst fara til útlanda með fjölskylduna benti á að einu skattarnir sem hann þurfi að borga af þeim ferðum sé 2.700 kr. flugvallarskattur. Á sýningunni í Laugardalshöll á dögunum heill- aðist hann af glæsilegu hjólhýsi og fór að velta fyrir sér að breyta ferðamátanum - ferðast innan- lands með hjólhýsi. Þegar hann fór að skoða um 900 þús. króna verð þess nánar komst hann að því að af þessu eina hjólhýsi þyrfti h^nn að borga 540 þús. krónur í tolia og gjöld til ríkissjóðs. Með öðrum orðum að ríkið hirti af honum á einu bretti 200 flugvallarskatta við kaup á hjólhýsinu. Ef hins vegar hefði verið vél í hjólhýsinu, þ.e. að um hefði verið að ræða bíl á sama verksmiðju- verði, hefði ríkið aðeins fengið úm þriðjung af þessari skattupphæð. Sömuleiðis ef Sverrir hefði skrúfað hjólin undan ogflutt hjólhýsiðinn sem sumarhús hefði ríkið aðeins fengið um 45% skatttekjur af því, eða um 130 þús. krónur. Virðist þetta glöggt dæmi um það hvernig ríkið getur haft áhrif á það hvernig menn verji sumarfríinu sínu. -HEI Hlaut höfuð- högg í aftan- ákeyrslu Fyrri hluta gærdags varð harður aftanáakstur á Kleppsvegi við EU- iðavog skammt frá gatnamótum Dugguvogar. Áreksturinn bar til með þeim hætti að bílstjóri japansks fólksbfls á leið suður Kleppsveg áttaði sig of seint á því, að pallbíll hafði numið staðar á miðri akbraut- inni og skall aftan á hann með þeim afleiðingum, að báðir bflar skemmd- ust verulega og ökumaður fólksbíls- ins fékk þungt höfuðhögg. Hann var færður á slysadeild, en meiðsl voru ekki alvarleg. Pallbíllinn stansaði vegna þess að sagpoki hafði fallið aftan af honum og út af akbrautinni en ökumaðurinn hugðist sækja hann aftur. þj segir formaður Félags ísl. stórkaupmanna „Við teljum að unnt sé að gera vöruverð á íslandi hliðstætt vöru- verði í Glasgow," segir Haraldur Haraldsson form Félags ísl. stór- . kaupmanna. Ograunarhefurfélagið ályktað að krefjast þessa, enda sé það eina leiðin til að ná inn í landið þeirri verslun sem margir gera nú í innkaupaferðum erlendis - en af þeirri verslun fái hvorki íslenskir verslunarmenn né íslenska ríkið neinar tekjur. Tækist þetta telja stórkaupmenn að það mundi færa launafólki meiri hagsbætur en nokkru sinni hafi verið samið um í einu lagi á vinnumarkaðnum, jafn- framt því sem verðbólgan mundi hjaðna verulega. Stórkaupmenn segja verslunará- lagningu að vísu lægri hér en í öðrum löndum. En til slíkrar lækk- unar vöruverðs verði til að koma ýmsar stjórnvaldsaðgerðir, hagræð- ingu hjá þeim sjálfum, aðgerðir þeirra er veita versluninni þjónustu og kannski síðast en ekki síst sann- gjarnar aðhaldsaðgerðir almennings í landinu. Meðal opinberru aðgerðanna eru ný tollskrárlög, sem jafna tolla og taka mið af breyttum neysluvenjum í þjóðfélaginu. Aðflutningsgjöld segja stórkaupmenn nú allt frá 0% og upp í 132% af innfluttum vörum, en 15% gjöld af öllum vöruinnflutn- ingi mundi skila ríkinu sömu tekjum. Vegna hærri tolla á mörgum vörum frá Bandaríkjunum en Evrópulönd- um hafi íslenskir neytendur t.d. aðeins að litlu leyti notið góðs af gífurlegri verðlækkun Bandaríkja- dollarans. Samræming aðflutnings- gjalda gæfi möguleika á vörukaup- um þar sem þau væru ódýrust hverju sinni. Þá beri að reikna aðflutningsgjöld en ekki einnig af flutningsgjöldum og tryggingum eins og nú. Fjár- magnskostnað verslunarinnar sé nauðsyn að lækka, fyrst og fremst með þvf að leyfa innflytjendum lántökur þar sem hagkvæmast er hverju sinni. Óhjákvæmilegt sé að lagfæra núverandi neysluskattakerfi. Fella þurfi niður sérsköttun á verslun og ennfremur skatta af fjarskipta- tækjum og öðrum framleiðslutækj- um verslunarinnar. Samhliða þessu telja stórkaup- menn að efla þurfi verðskyn almenn- ings, því án þess sé lítið gagn í bættum viðskiptaháttum. A það reyni enn frekar með aukinni sam- keppni og jafnframt möguleika al- mennings á að átta sig á hvaða kostir séu í boði. Verðkannanir þurfi að vera vel unnar. Félagið lýsir sig reiðubúið til að taka þátt í hvers konar samstarfi til eflingar almennu verðskyni. Þótt farið sé að tillögum þeirra Skreiðarmálaferli í London: Frestað í fjórða sinn Enn tekst ekki að koma skreiðar- kaupsýslumanninum slynga, Sam Naidoo, fyrir rétt í London. Skreiðarsamlagið og íslenska um- boðssalan hafa höfðað mál á hend- ur honum vegna víxla, að upphæð um 200 milljónir króna, sem gjald- fallnir eru. Fjórum sinnum hefur Naidoo og lögfræðingur hans feng- ið málarekstrinum frestað og hlýt- ur það að teljast í hæsta máta óeðlilegt. Þær raddir verða nú æ háværari sem segja að skuld Naidoo fáist aldrei greidd og peningarnir séu tapaðir. Að þessu var frestur veitt- ur til 19. maí. Hvort málinu verður þá frestað í fimmta sinn, eða jafnvel látið niður falla verður að koma í ljós þá. -ES varðandi aðflutningsgjöldin segja stórkaupmenn að það þurfi ekki að skerða tekjur ríkissjóðs af þeim. Stóraukinn kaupmáttur sem kæmi í kjölfar lækkaðs vöruverðs mundi almennt leiða til aukinnar verslunar m.a. með því að sá hluti verslunar sem nú fer framhjá skattheimtu ríkisins og íslenskri verslun færðist inn í landið. -HEI Greinargerð Þjóðhagsstofnunar til stjórnmálaflokka: Vaxandi viðskiptahalli og meiri verðbólga í greinargerð sem Þjóðhagsstofn- un hefur tekið saman að ósk stjórn- málaflokkanna vegna komandi stjórnarmyndunarviðræðna og var send þeim í gær, kemur m.a. fram að nú er spáð að tekjur í landinu aukist meir en áður var ráð fyrir gert og að auk þess stefni nú í meiri halla á ríkissjóði. Helstu áhrif þessara breytinga koma fram í vaxandi við- skiptahalla gagnvart útlöndum og meiri verðbólgu en áður var spáð. í viðtali við Tímann í gær, sagði Steingrímur Hermannsson að þessar spár kæmu sér ekki á óvart og ljóst að þörf væri á „bremsunaraðgerð- um“ fyrr en síðar. í greinargerð Þjóðhagsstofnunar um þróun tekna, verðlags og kaup- máttar segir að enn sé ósamið við ýmsa launahópa og að gera megi ráð fyrir talsverðu launaskriði á vinnu- markaðnum. Þá hafi opinberir starfsmenn samið um meiri launa- hækkanir en gert var í ASÍ/VSÍ samningunum. í ljósi þessa megi gera ráð fyrir að verðbólga verði meiri en áður var reiknað með, eða á bilinu 13-15%. Er þá miðað við óbreytt gengi. Með hliðsjón af ofansögðu megi gera ráð fyrir að kaupmáttur at- vinnutekna og ráðstöfunartekna hækki um 8,5%-10% milli áranna 1986 og 1987. Tekið er fram að þegar rætt er um þessa hækkun kaupmáttar ráðstöfunartekna er ekki gert ráð fyrir neinum breyting- um á beinum sköttum, en gera má ráð fyrir að komandi ríkisstjórn notfæri sér þá leið til að „draga úr þenslu". í greinargerðinni er dæmið sett þannig upp að aukist atvinnutekjur á mann um 25% megi gera ráð fyrir að viðskiptahalli við útlönd aukist um 1 milljarð króna og verði alls um 2 milljarðar króna. Sé hins vegar gert ráð fyrir að 27% aukningu atvinnutekna segir greinargerðin að viðskiptahallinn geti orðið 2,5 millj- arðar króna á árinu. Óvissa ríkir um þróun olíuverðs á árinu, en þó eru taldar líkur á að olíuverð lækki minna en ráð hafði verið gert fyrir. Þá er bent á að frekari gengislækkun dollarans geti haft neikvæð áhrif á viðskiptakjör. Endurskoðun á tekjuáætlun ríkis- sjóðs bendir til að tekjur verði um 45,2 millljarðar króna, eða 2,2 millj- örðum meiri en ráð var fyrir gert á fjárlögum. Hins vegar er reiknað með að útgjöld ríkissjóðs verði um 2,7 milljörðum króna meiri en upp- gefið var á fjárlögum, eða um 48,6 milljarðar króna. Þetta þýðir að tekjuhallinn verði um 3,4 milljarðar króna, eða um 7,5% af áætluðum tekjum ríkissjóðs. Þetta er í grófum dráttum sú mynd sem við flokksleiðtogunum blasir nú þegar myndun nýrrar ríkis- stjórnar er á næsta leiti. Það fer síðan m.a. eftir efnahagsráðstöfun- um þeirrar ríkisstjórnar hvort þessar tölur verða raunveruleikanum sam- kvæmar þegar líður að lokum ársins. -phh Sjávarafuröadeild Sambandsins 1986: w Utflutningsverð- mæti jókst um 36% á árinu Heildarverðmæti útflutnings Sjávarafurðadeildar Sambandsins varð 6.970 milljónir króna á árinu 1986 og er það rúm 36% aukning frá árinu áður. Innanlandssala um- búða og veiðarfæra jókst um 40% frá árinu áður og varð því heildar- salan 7.400 m. sem er 36,5% aukning. Heildarframleiðsla frystra afurða nam á árinu tæpum 50.000 lestum og var það 4% meira en árið 1985. Heildarútflutningur frystra afurða nam rúmum 53.000 lestum og varð rúmum 11% meiri en árið áður. Samanburður á heild- arframleiðslu og heildarútflutningi sýnir að birgðir hafa minnkað um rúmlega 4500 lestir frá ársbyrjun 1986 til ársloka. Sagði Sigurður Markússon, framkvæmdastjóri á aðalfundi Sjávarafurðadeildar að ekki hefði í annan tíma verið rýmra í frystigeymslum framleið- enda en í árslok 1986. Skreiðardcildin flutti út 4820 lestir af hertum hausum og skreið á árinu og var það mesti skreiðarút- flutningur s.l. fimm ár. Allar skreiðarskuldir eru nú innheimtar og fullar tryggingar fyrir þeim skreiðarsölum síðustu mánaða, sem enn eru ógreiddar. Allar birgðir af hertum hausum og skreið eru nú seldar. Sigurður gerði sérstaklega að umtalsefni á aðalfundinum hina miklu aukningu á útflutningstekj- um landsmanna á árinu 1986 og góðan hlut sjávarútvegs og fisk- vinnslu í aukningunni. Nemur heildaraukningin rúmlega 11 millj- örðum og þar af koma 9.530 millj- ónir frá sjávarafurðum, eða 85%.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.