Tíminn - 07.05.1987, Blaðsíða 6

Tíminn - 07.05.1987, Blaðsíða 6
6 Tíminn Fimmtudagur 7. maí 1987 Vaxtamunurinn of mikill segir Bjarni Bragi Jónsson, aöstoðarbankastjóri: Útlánsvextir bank- anna hækkað um 5,7% Scandinavia Furniture Fair: Þrjú ísl- enskfyrir- tæki sýna Árleg húsgagnasýning í Kaup- mannahöfn, Scandinavia Furnit- ure Fair, verður haldin dagana 6.-10. maí n.k. Sýning þessi, sem haldin er á vegum félaga húsgagn- aframleiðenda á Norðurlöndum, er álitin ein fremsta sýning á norrænni hönnun og er þetta í 22. sinn sem sýningin er. Poul Schlúter, forsætisráðherra Dana, mun opna sýninguna formlega hinn 6. maí. Að þessu sinni sýna vörur sínar 561 fyrirtæki á u.þ.b. 54 þúsund fermetra svæði. Flest eru fyrir- tækin frá Danmörku eða 340 talsins en 67 frá Svíþjóð, 34 frá Noregi, 44 frá Finnlandi og 3 frá íslandi. íslensku fyrirtækin eru AXIS; Axel Eyjólfsson hf., sem kynnir MAXIS svefnherbergishúsgögn fyrir ungt fólk, sem Pétur B. Lúthersson arkitekt FHI er hönnuður að; Káess; Kristján Siggeirsson hf. kynnir Wogg 1 hillueiningar, sem framleiðsla er nýhafin á; og G.P. húsgögn; í eigu Guðmundar Pálssonar í Hafnarfirði og sýnir mjög sérstæð glerhúsgögn, aðallega hillukerfi og sófaborð, en einnig sjónvarps- og myndbandshillur og aðrar vör- ur smærri. Útflutningsráð íslands verður með sérstakan kynningarbás á sýningunni, þar sem kynntar verða íslenskar vörur og svarað fyrirspurnum um íslensk málefni. Á sama tíma verður allsérstök kynning á íslenskri framleiðslu- vöru í Illum Bolighus sem hófst 25. apríl sl. og stendur fram yfir húsgagnasýninguna. Þar er kynntur sófi sem hannaður er af Ole Kortzau og framleiddur af Epal hf. þj „Ég fer nú að gangast fyrir mynd- un GRAFARVOGSHÓPSINS," sagði einn af ungu húsbyggjendun- um þar, er í haust fékk bankalán á 15,5% vöxtum sem síðan hafa hækk- að upp í um 21% nú við síðustu mánaðarafborgun. „Má maður kannski búast við að þeir haldi áfram að hækka um nær 1% á mánuði?" spyr hann og sjálfsagt þúsundir annnarra lántakcnda. En þótt meðalvextir á skuldabréfalán- úm bankanna hafi hækkað um 5,7% og á verðtryggðum lánum um 1,1% mánuðina október-apríl hafa þeir sem lagt hafa aura inn á almennar bankabækur aðeins fengið 1,5% vaxtahækkun og 0,2% á lengri verð- tryggða reikninga. Bankarnir virðast því hafa aukið sinn eigin hlut veru- lega upp á síðkastið. Tíminn lagði spurningar hús- byggjandans, þ.e. af hverju vextirnir hafi hækkað svo mikið og hvort búast megi við áframhaldandi hækkun, fyrir Bjarna Braga Jónsson, aðstoðarbankastjóra Seðlabankans. Og jafnframt um þennan aukna vaxtamun. Skýringuna sagði hann þá að verð- bólgan hafi aukist á tímabilinu. í september hafi verðbólgustigið t.d. verið metið 9,3%, en það hafi síðan eftir endurmat reynst vera 13,1%. Miðað við 4 mánaða verðbólgu hafi hún verið um 13% í september, og komin upp í tæp 21% í janúar og febrúar, cn aftur niður í rúm 17% í maí. Bjarni Bragi sagði greinilegt að bankarnir hafi verið dálítinn tíma að átta sig á verðbólguhækkuninni, þannig að það hafi ekki verið nein skyndiaðlögun á vöxtunum. Þess- vegna megi búast við að það verði engin skyndilækkun á þeim heldur. Frekari vaxtahækkun kvaðst hann varla búast við, þar sem verðbólgan sé á ný frekar á niðurleið og ættii heldur að hjaðna frá þeim 18-20% sem hún hafi verið í að undanförnu. Þótt talað sé um raunvexti virðast stjórnendur bankanna þó ekki víla fyrir sér að hafa allt að 10% nei- kvæða raunvexti ( um 10% vexti í 20% verðbólgu samkv. framan- sögðu) á þeim 12-13 milljörðum króna - nær fjórðungi allra innlána í bankakerfinu - sem fólk geymir hjá þeim á almennu bankabókunum sínum. En komið hefur í ljós að það er fyrst og fremst um að ræða eldri kynslóðina, sem bankarnir þarna virðast nota sér að greiða lága vexti. Hvert 5% í neikvæðum vöxtum t.d. af þeirri upphæð rýrir hana um 625 milljónir króna á ári. En vextir af - en innlánsvextir um 1,5% frá í haust þessum reikningum hafa aðeins hækkað um 1,5% á meðan útláns- vextir hafa verið hækkaðir um 5% sem fyrr segir. Bjarni Bragi sagði að þetta kynni að vera gagnrýnivert. Seðlabankinn á að hafa eftirlit með því að vaxtamunurinn milli heildarinnlána og útlána verði ekki of mikill. Bjarni Bragi staðfesti að hann hafi fremur hækkað upp á síðkastið, sennilega vegna þess að almennu bankabækurnar hafi ekki fengið stna hlutdeild í vaxtahækkun- inni. Enda hafi verið viðvörun í ræðu Jóhannesar Nordals, seðla- bankastjóra á ársfundinum í gær varðandi vaxtamuninn. Spurður sagði Bjarni Bragi vaxtamuninn í raun of háan, en menn séu að vonast til að hann lækki töluvert á næstu árum með auknum viðskiptum og aukinni samkeppni. - HEl Þjónar og kokkar taka lokaprófin Þessa dagana er verið að brautskrá nemendur með sveinspróf í matreið- slu og framreiðslu frá Hótel-og veit- ingaskólanum. Tíminn staldraði við í skólanum meðan þjónsefni tóku lokapróf sitt í að bera á borð og sanna fyrir dómnefnd, að þau kynnu allar að- ferðirnar og væru vel að sér í vín- fræðinni o.fl. Þjónsnámið tekur að jafnaði þrjú ár. Mestan tíma tekur verklegt nám, en á skólabekk er setið í samtals tólf mánuði. Fræðilega námið í matr- eiðslunni er jafn langt, en verklega ári lengra. Á myndinni eru f.v. Jón Sigurðs- son, kennari við Hótel-og veitinga- skólann, og nemendur í þjónsprófi, Hanna M. Geirsdóttir, Édda Jóns- dóttir, Elías Guðmundsson, Svala Geirsdóttir, Dagný Davíðsdóttir og Helga J. Kjartansdóttir. Þá er mynd af borði Elíasar Guðmundssonar, glæsileg framreið- sla í svörtu og hvítu og kallast „skákmennirnir". Lokaprófum af sviðum skólans lýkur í dag. þj (Tímamyndir: BREIN) Aðalfundur Félags framhaldsskóla: Leggst gegn hugmyndum Sverris - um skólastjórn sem fram koma í frumvarpi menntamálaráðherra um framhaldsskóla Aðalfundur Félags framhalds- skóla, sem 13 skólar eiga aðild að, fór fram 18. apríl sl. Auk hefð- bundinna aðalfundarstarfa var fjallað um framkomið frumvarp menntamálaráðherra um fram- haldsskóla og var samþykkt álykt- un í fimm liðum um það. í fyrsta lagi fagnar félagið að loks skuli vera komið fruntvarp um heildarskipan framhaldsskóla, en jafnframt er lýst yfir sárum von- brigðum með margt í frumvarpinu. í öðrum lið fagnar félagið þeirri „grundvallarhugmynd frumvarps- ins, að draga úr miðstýringu fram- haldsskóla", en telur leið mennta- málaráðherra til þess arna stór- hættulega. í ályktuninni segir: „Hér er auðvitað átt við þá fárán- legu flokks-pólítísku skólanefnd sem ráðherra vill fá í hendur stjórn hvers framhaldsskóla. Það að ætla þremur mönnum skipuðum af flokkunum, óháð þekkingu þeirra á skólamálum. vald til að ákvarða námsframboð, skólagjöld og ráð- stöfun þeirra, sem og hlutdeild í ráðningu kennara og inntöku nem- enda, er ekki eingöngu fáránlegt heldur felst í þessari skipan mála atlaga að framhaldsskólakerfinu. Öllum áhrifum nemenda, kennara og starfsliðs skólanna er varpað fyrir róða og þau fengin í hendur utanaðkomandi aðilum.“ Þá segist félagið heita fullri andstöðu sinni við þá skólanefnd, sem frumvarpið leggur til, og aldrei munu sætta sig við tilvist hennar. Ennfremur segir í ályktun Félags framhaldsskóla, að skilgreining frumvarpsins á „nema“ og úthlut- unartillögur þess á fjármagni til skólanna, vegi að þeirri grundvall- arhugsjón áfangakerfisins að nem- endur geti valið sér eigin náms- hraða. Með ákvæðum um aukna þátttöku nemenda í efniskostnaði í námi telur félagið að jafnrétti til náms á verklegum brautum sé verulega raskað. Næst varar félagið við þeirri nýbreytni í frumvarpinu, að skól- um verði gefinn möguleiki á að setja ákveðnar lágmarkskröfur í einstökum fögum við innritun í skólanna. Félagiðfrábiðursérupp- byggingu menntakerfis, þar sem til verða „tossa-skólar“ annars vegar og „úrvals- skólar“ hins vegar. í verkfallinu heimtuðu nemend- ur menntastefnu, sögðu hana ekki til, og í beinu framhaldi af því, er í lok ályktunarinnar fagnað því, að umræða um stefnu framhaldsskóla sé hafin og Félag framhaldsskóla lýsir sig albúið til frekari umræðna um málefni þeirra á komandi miss- erum. þj

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.