Tíminn - 07.05.1987, Side 8

Tíminn - 07.05.1987, Side 8
8 Tíminn Fimmtudagur 7. maí 1987 MÁLSVARIFRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og Framsóknarfélögin í Reykjavík Framkvæmdastjóri Ritstjórar: Aöstoöarritstjóri: Fréttastjórar: Auglýsingastjóri: Kristinn Finnbogason Indriöi G. Þorsteinsson ábm. IngvarGíslason NíelsÁrni Lund OddurÓlafsson Birgir Guðmundsson EggertSkúlason SteingrímurGíslason Skrifstofur: Síðumúli 15, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími: 18300. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686306, íþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent h.f. Kvöldsímar: 686387 (tæknideild) og 686306 (ritstjórn). Verð í lausasölu 55.- kr. og 65.- kr. um helgar. Áskrift 550.- Samráðsstefnan Á ársfundi Seðlabankans sem haldinn var í þessari viku, hélt Jóhannes Nordal formaður bankastjórnarinnar yfirgripsmikla ræðu um ástand og horfur í efnahagsmálum. Þess er ekki að vænta að allir verði sammála skoðun seðlabankastjóranna um hvaðeina, sem varðar efnahagsmál og þjóðmál, en eigi að síður er seðlabankaræðan skilmerkileg greinargerð um efnahagsmál, sem ekki er hægt að láta framhjá sér fara. Þess er ekki kostur að rekja hér allt efni ræðunnar né leggja ítarlega út af henni, en meginefni hennar birtist í Tímanum í gær. Um heildarþróun efnahagsmála á síðastliðnu ári segir í þessari greinargerð seðlabankastjórnar að líta megi hagstæðari mynd en sést hefur um áraraðir. Saman hefur farið mikill hagvöxtur, sem er meiri en í flestum öðrum löndum, jákvæð viðskiptastaða við útlönd og lækkandi hlutfall erlendra skulda. Jafnframt tókst með betri sam- ræmingu kjarasamninga og opinberri efnahags- stefnu að ná fram hvoru tveggja í senn verulegri hjöðnun verðbólgu og mikilli hækkun á kaupmætti ráðstöfunartekna. Ástæða er tii að staldra við þessi orð úr skýrslu seðlabankastjóranna, átta sig á hvað í þeim felst og hvaða lærdóm megi af þeim draga. Hér er um að ræða frásögn af staðreyndum efnahagslífsins og lýsingu á ástandi sem segir einfaldlega að efnahags- ástandið á íslandi sé gott, ef rétt er á litið, og afkoma almennings með allra besta móti. Það er sérstaklega athyglisverður árangur að tekist hefur að halda verðbólgu í skefjum um leið og kaupmátt- ur launa hefur hækkað mikið og þar með bætt afkomu launþega. Vart þarf að efa að almenningur vill að áfram verði haldið á þeirri braut að hemja verðbólguna. Almenningur vill að samvinna haldist milli ríkis- stjórnar og aðila vinnumarkaðarins um samræmda stefnu í efnahagsmálum og kjaramálum. Hvað sem líður að öðru leyti skoðanaágreiningi milli flokka og hagsmunasamtaka þá er það ekki annað en opinberun á ábyrgðarleysi að hafna samráðsstefn- unni, sem er aðalvörnin gegn því að missa verðbólg- una úr böndunum að nýju. Þrátt fyrir góðan árangur í efnahagsmálum undanfarin misseri, þá er nú komið að þeim tímamótum að nauðsynlegt er að yfirfara stöðuna á nýjan leik og setja sér ný markmið og sameinast um leiðirnar. Eðlilegasta markmiðið er að koma verðbólgunni stig af stigi niður í þá tölu sem gerist í nágranna- löndunum, en varast að kynda undir verðbólgueld- inn sem óhjákvæmilega gerist, ef slakað verður á stefnunni, sem sameinast var um í febrúar 1986 um samræmdar aðgerðir í efnahagsmálum og kjara- málum. Hagsmunir launþega og húsbyggjenda og þjóðarbúsins í heild velta á því að verðbólgunni sé haldið niðri. Þetta viðurkenna allir ábyrgir forystu- menn hagsmunasamtaka og stjórnmálaflokka í orði. En þeirverðaeinnigað sýnahugsinn íverki. Af f ramhjáhöldum Framhjáhald hefur án efa verið stundað uni áraþúsundir- viðkom- andi mönnum og konum til skemmtunar, yndisauka og hress- ingar. Maðurinn er ncfnilega þeim skemmtilega eiginleika búinn að hafa náttúru sem fær útrás með því aö gera Dodo. Flestir menn eiga sér fastan maka og segir lítið af Dodoisma þeirra enda er hann löglegur, og fer fram bak við luktar dyr svefn- herbergisins. Hins vegar nægir mörgum ekki að vera við eina fjölina felldur eins og sagt er og í því skyni að gefa náttúrinni lausan tauminn er læðst út úr svefnher- berginu og leitað á önnur mið þrátt fyrir öll boð og bönn. Um þetta athæfi hafa veriö gcrðar margar vísur og ef Garri man rétt er ein þeirra eitthvað á þessa leið: „Hvað er það sem giftur inaður ekki má.l Það að sofa annarra manna konu hjá./ En á kvöldin hefur hann þann leiða Ijóta siö,/ að læðast inn í vinnukonuherbergið.“ Að sjálfsögðu fylgir þessari vísu sérstakt lag sem hér skal ekki fest á nötur og vel má vera að vísan sé ekki alveg rétt, en boðskapur hennar er skýr. Þótt hér hafi verið rætt um menn á þetta að sjálfsögðu einnig við um konur því þær eru auk þess að vera menn líka ágætlega náttúraðar og það er nú einu sinni svo að fram- hjáhald vcrður ekki stundað nema að tveir komi til leiks. Gera þarf könnun Nú er það svo að af framhjáhaldi eru til margar skemmtilegar sögur, sagðar af öðrum en þeim sem verknaðinn framkvæmdu. IVIeira segja er það svo að ýmsir telja sig vita mun betur hvað gerðist en þeir sem viðstaddir voru. Hins vcgar verður að viðurkcnnast að allt of fáar skjalfcstar heimildir eru til um þessi mál og Garrí veit ekki til þess að nein sérstök félagsfræðileg könnun hafí verið gerð hvað þetta varðar. Þetta er mjög bagalegt t.d. hvað varðar allar samanburðar- rannsóknir. Er t.d. mcira um þetta á Suðurlandi eða Norðurlandi? Er framhjáhald stundað meira úti eða inni? Hættir Ijóshæröum meira til þess en svarthærðum? Borða menn fyrir cða eftir atburðinn? Þctta og margt annað þarf að rannsaka. Framhjáhald getur haft alvarleg- ar afíeiðingar þótt ckki sé mcira sagt. Börn geta komið fyrirvara- laust í heiminn og hjónabönd geta leyst upp. Um þetta eru til margar hcimildir. íslendingar eru gæddir mikilli náttúru ekki síður en aðrar þjóðir heims. Viö crum auk þess vel upplýst þjóð og gerum okkur fulla grein fyrir því að við þessu er ekkert að gera „Þótt náttúran sé lamin með lurk, leitar hún út um síðir“. Margir fullyrða að það hald- 'ist auk þess í hendur að kraftmesta fólk þjóðarinnar sé hvað náttúrað- ast og mönnum hefur yfírlcitt verið talið það til tekna að hafa hana lausbeislaða. En svo er ekki hjá öðrum þjóðum. Ameríka er skrítin Nú berast fregnir af því vestan úr Ameríku að einn efnilegasti kand- ídat þeirra til forseta sé uppvís af því að hafa sofíð hjá annarri konu en konunni sinni og fyrir það sé hann óhæfur sem forscti Banda- ríkjanna. Ja ég segi nú ekki annað en það, ef þetta cr nú það versta sem Bandaríkjaforseti getur að- hafst þá kemur mér heimurinn spánskt fyrir sjónir. En Ameríka er Ameríka og þar er ekki allt auðskilið. Til að mynda skilst manni á fréttum að forsetacfnið hafi gert þetta sér til ánægju en konan til að auka frægð sína sem fyrirsæta. Sem sagt annar aðilinn stórtapar fylgi en hinn græðir á öllu saman!!! Mætti þetta ckki vera minna og jafnara? Svona nokkuð gæti ekki gerst hér á landi. Til þess erum við of meðvitaðir um náttúru okkar og til þess vitum við of mikið hvert um annað. Þar með er ekki sagt að hér ríki eitthvert samsæri þagnarínnar, heldur þvert á móti lítum við á svona nokkuð sem ofur eölilegan hlut sem alltaf er að gerast. En við skulum láta framhjáhald forsetaefna Bandaríkjanna fram hjá okkur fara. Það er þeirra vandamál en ekki okkar. Við skul- um halda okkar hefðum, þær hafa reynst okkur bcst gegn um tíðina. Garri. VÍTT OG BREITT Siðleg viðhorf á undanhaldi Alltaf er jafn hörmulegt að sjá nýjar skýrslur um umferðarslys og þurrar tölur um slasaða og látna af völdum hörmulegrar meðferðar á ökutækjum. Alltof mörgum bíl- stjórum er ekki sjálfrátt þegar þeir setjast undir stýri. Og umferðar- og skipulagsyfirvöld eru ekki vanda sínum vaxin og er tími til kominn að fara að taka öll þau mál til gagngerðrar endurskoðunar, ef einhverjir eru þá færir um að betrumbæta sljótt og dáðlaust kerfi. f þriðjudagsblaði Tímans var skýrt frá að á fyrstu þremur mánuð- um þessa árs hafi helmingi fleiri slasast í umferðinni en á sama tímabili í fyrra. Voru hörmungarn- ar þó nógu miklar þá og ekki á bætandi. Tölurnar um umferðarslysin eru ógnvekjandi. 7 Iátnir. 238 slasaðir. Skráð umferðaróhöpp með eigna- tjóni 2.100, auk þeirra sem samið er um á staðnum og ekki komast á skrá lögreglu eða tryggingafélaga. Þessar tölur eiga aðeins við um fyrsta ársfjórðung þessa árs. Meira en lítið að Fjárhagstjónið af umferðarslys- unum er gífurlegt og dauði og örkuml fjölda manns er þyngra en tárum taki. Áður en þessi helm- ingsaukning varð voru umferðar- slys á íslandi miklu mun tíðari en í þeim löndum, þar sem bílaeign og umferðarþungi er svipaður. Börn og kornungt fólk eru í miklum meirihluta fórnarlamba umferðar- áþjánarinnar. Hér er eitthvað meira en lítið að. Kunnáttuleysi í meðferð öku- tækja og léleg þekking á umferðar- lögum hefur verið nefnd sem skýring. Ökukennslu er áreiðan- lega ábótavant og tillitsleysið margumþvælda á sinn þátt í ósköpunum. Þá er skammt í að kenna siðleysi um. En íslensk umferð einkennist ÞniOJUDAGUn 5. MAl 1987 - 98 TBL 71. ÁnG zrrrr, \ .-»r. s rsrs-x. rrrrr:.- Slasaöir um helmingi fleiri en i fyrra: Umferðin ógnar lífi og limum iandsmanna tkohabv *ru löluf um umterftarslyi fyrlr fyrMu 3 mAnuM «6 hlute tll a.m.k. kl miklUI l|0lgun bifrd6a a aiftutlu miiaarum þriu art kamur i l|Ot a6 f|öldl þmrrt t«n tittatl i uml.r6.nnl tamhUOa þvi a» uml.r6arm.nnmg latervtlnga Itefur Mki br.ytt i hafur aldr.l v*ri6 malrl .n nu. Slaaa6ir I umltrMnnl i ar aru or6rv aamrteml vl6 br.ynar a6.ta.6ur Ir um fwlmlngl ftelrl mvira aama tima i fyrra. Raunar 1 aama TOIur tra Umf.rftarraði banda |afntramt til að ar.kttrar t.u hvar borið er mður vlð tamanburö. ffOlgun alaaaðra * alltaf gif- harðarl an aður. þar aam þalm aam tlatatt hafur f|Olgað rr urteg. ntelra .n omterðarOhOppum. Eðlltegt .r að aatla að þaaal t(ölgunalaaa6raMjmte^^jyj um margt af siðleysi og hreinum og klárum dónaskap, sem vægt til orða tekið er kallaður tillitsleysi. Yfirgangur og dónaskapur Mjög margir ökumenn aka af öryggi og kurteisi og eru hvorki sjálfum sér né öðrum hættulegir. En alltof margir virða hvorki rétt annarra til að vera nærri þeim á umferðaræðum eða tilverurétt yfir- leitt. Þeir aka eins og þeim sjálfum sýnist og finnst allir vera fyrir sér og öll þeirra hegðun einkennist af yfirgangi og dónaskap. Ef betur er að gáð koma þessi einkenni fram miklu víðar en í umferðinni. Hver kannast ekki við nákvæmlega sömu hegðun fólks í bankaafgreiðslum, bakaríum, fisk- búðum og annars staðar, þar sem siðað fólk reynir að mynda biðraðir og hliðra svo til að afgreiðsla gangi eðlilega. En nær alltaf skulu óupp- dregnir dónar og frekjudallar troða sér fram fyrir og ryðjast um og láta sér aldrei detta í hug að náunginn eigi líka sinn rétt. Á fjölförnum gangstéttum má einnig greina spegilmynd bílaum- ferðarinnar. Ungir menn og mynd- arlegir, stundum fleiri saman, æða þar áfram og vaða á hvern þann sem ekki er nógu snöggur að víkja til hliðar. Þetta er svo algeng sjón að maður tekur varla eftir henni. Það er eitthvað brogað við uppeldi og viðhorf þeirra einstaklinga sem sýna tilverurétti annarra svona lítil- svirðingu. Hættuleg frekja Það er ekkert endilega slæmt fólk sem temur sér svona umgengn- isvenjur. Það kann bara ekki mannasiði og er önugt og skap- styggt af því að það á í sífelldum erfiðleikum í umgengni við aðra, hina dónana og þá sem gæddir eru siðlegum viðhorfum til samferða- mannanna og geta umgengist þá án sýnilegra erfiðleika. Frekja og tillitsleysi er hvimleið en að öllu jöfnu ekki hættuleg - nema í umferðinni. Ef unnt reyndist að innræta al- menna siðfágun og æskilegar um- gengnisvenjur myndi umferðar- slysum áreiðanlega fækka þar sem ökuvenjur breyttust og umferðin færast í manneskjulegan farveg. Manndráp, örkuml og fjárhags- tjón vegna umferðar eru siðleysi. OÓ

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.