Tíminn - 07.05.1987, Blaðsíða 12

Tíminn - 07.05.1987, Blaðsíða 12
12 Tíminn Fimmtudagur 7. maí 1987 UTLOND SEOUL — Mótmælin gegn ríkisstjórn Suöur-Kóreu hafa aukist síðustu daga og stjórn- arandstaöan hefur gagnrýnt Chun Doo Hwan forseta harð- lega fyrir aö leggja á hilluna endurbætur á kosningalögun- um. TEL AVIV — ísraelskar herf- lugvélar gerðu árásir á stöövar Palestínumanna í Líbanon á sama tima og eldflaugum var skotið frá Líbanon á landsvæði í Norður-ísrael. Að minnsta kosti sjö manns létust og 28 særðust í loftárásunum. CONAKRY — Sextíu manns, þar á meðal níu fyrrum ráðherrar, voru dæmdir til dauða í Vestur-Afríkuríkinu Guinea. Mennirnir voru allir stuðningsmenn Ahmed Sekou fyrrum forseta en einræðis- stjórn hans var steypt af stóli fyrir þremur árum. WASHINGTON — Richard Secord, fyrrum hershöfðingi og lykilvitni í yfirheyrslunum í Iransmálinu, hefursagt frammi fyrir rannsóknarnefnd þingsins að 3,5 milljónir dollara, af hin- um 30 milljóna dollara ágóða af vopnasölunni til irans, hafi farið til að styrkja Contra skæruliðana í Nicaragua. PARIS — Jacques Chaban Delmas fyrrum forsætisráð- herra Frakklands neitaði ásökunum yfirmanns leyni- þjónustunnar um að frönsk yfir- völd hefðu falið gögn þar sem í Ijós kæmi að margir háttsettir menn sem tengdust frönsku andspyrnuhreyfingunni hefðu í raun unnið fyrir nasista. MANILA — Tveimur sviss- neskum starfsmönnum Rauða krossins og fjórum filipps- eyskum hjúkrunarkonum hefur verið rænt á suðurhluta Filipps- eyja. Þar hafa skæruliðar músl- ima barist gegn stjórnarhern- um en viðræður milli múslima og sendimanna stjórnarinnar um framtíð þessa svæðis fóru þófram í gær. Kosningarverða í landinu á mánudaginn og róstusamt var víðsvegar þar í gær. VÍNARBORG — Austur- risk rannsóknarnefnd mun fá aðgang að skjalasafni júgó- slavneska ríkisins til að kanna hvort þar leynist nýjar upplýs- ingar um feril Kurts Waldheim forseta Austurríkis og fyrrum aðalritar SÞ á heimsstyrjaldar- árunum síðari. Hann er sakað- ur um að hafa starfað fyrir heri nasista á Balkanskaganum og átt þátt í ódæðisverkum þeirra á því svæði. Svört þögn í S-Afríku - Blökkumenn efndu til einna fjölmennustu mótmælaverkfalla í sögu landsins - Þingkosningar hvítra fóru aö mestu friðsamlega fram Reuter- Allt var kyrrt og reyndar hljótt líka í Soweto í gær en róstursamt hefur verið í þessu úthverfi Jóhann- esarborgar og stærstu byggð blökkumanna í Suður-Afríku undanfarna daga. í gær var líka sérstakur dagur, þá gengu hvítir menn að kjörborðinu en svartir sátu heima í mótmælaskyni við kosning- arnar. Svo virtist sem næstum allir starf- andi menn í Soweto hafi hlýtt kalli baráttuhópa gegn kynþáttaaðskiln- aðarstefnu ríkisstjórnar hvíta minnihlutans og haldið sig heima við á kosningadag. Virtist sem um væri að ræða ein mestu fjöldaverkföll blökkumanna í sögu landsins. í Soweto búa um tvær milljónir svertingja og þær 25 milljónir blökkumanna sem í Suður-Afríku búa höfðu ekki aðgang að kjör- Blökkumenn í Suður-Afríku héldu sig heima i gær á meðan hvítir landsmenn kusu sína flokka kössunum í gær. f flestum byggðum blökkumanna mættu börn ekki í skóla og í mörgum borgum var hálf eyðilegt um litast fyrir hinar þrjár milljónir hvítra manna sem kosningarétt höfðu. f Jóhannesarborg var miðbærinn t.d. hvað líkastur draugabæ, leigubíla- stöðvar og strætisvagnastöðvar nærri tómar og margar verslanir lokaðar. Winnie Mandela, kona Nelson Mandela og ein af leiðtogum blökkumanna í landinu, sagði í gær að verkfall blökkumanna sýndi að þeir væru hin raunverulega stjórnar- andstaða í landinu, ekki einhverjir flokkar hvítra manna sem sætu á þingi. í gærdag virtist sem þátttaka hvítra manna í kosningunum yrði nokkuð mikil. Ekki þarf að spyrja að kosningaúrslitunum því þótt búist væri við að flokkar til hægri og vinstri við stjórnarflokkinn myndu reyta af honum fylgi er víst er að P.W. Botha forseti og Þjóðarflokkur hans mun halda velli sem langstærsti stjórnmálaflokkur landsins. Hinn hægrisinnaði flokkur Botha hefur ráðið landinu síðan árið 1948 og kosningabarátta hans nú snérist að mestu um nauðsyn þess að halda uppi lögum og reglu. Kvikmyndahátíðin í Cannes hefst í dag: Fimmtán hundruð myndir standa fólki til boða Cannes-Reuter Kvikmyndahátíðin í borginni Cannes á Miðjarðarhafsströnd Frakklands, sú fertugasta í röðinni, hefst í dag og er búist við að þetta verði fjölsóttasta og fjölbreytilegasta kvikmyndahátíðin til þessa. For- svarsmenn hátíðarinnar eiga von á um fimmtán þúsund kvikmynda- stjörnum, kvikmyndagerðarmönn- um, kaupendum og áhugafólki frá 23 löndum á hátíðina í Cannes. Pierre Viot, forseti hátíðarinnar, segir að um fímmtán hundruð mynd- ir verði sýndar á þeirn þrettán dögum sem dýrðin stendur. Alls keppa nítján myndir um æðstu verðlaunin í Cannes, Gullna pálmann. Myndirnir koma frá tíu löndum og einna sigurstranglegust þykir vera mynd breska leikstjórans Stephen Frears „Prick up your ears“, sem byggð er á ævi leikritaskáldsins Joe Orton. Elísabet Taylor, Paul Newman, Anthony Quinn, Marcello Mastro- ianni og Faye Dunaway verða meðal þess fræga fólks sem lýðurinn fær augum litið í kvöldverðarboðum og á sýningum í Cannes næstu dagana. íbúar Los Angelesborgar: Eyðslusamir og með heilsudellu William Casey fyrrum yfirmaður CIA lést í gær Bandaríkin: Casey látinn Glen Cove, New York-Reuter William Casey fyrrum yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar CIA lést á sjúkrahúsi í New York í gærmorgun 74 ára að aldri. Casey, sem var yfirmaður CIA frá árinu 1981 fram í janúar á þessu ári og hafði tengst íranshneykslinu, lést úr lungnabólgu í Glen Cove sjúkra- húsinu. Hann var lagður þar inn fyrir ellefu dögum. Sjónvarpsútsendingar frá yfir- heyrslum í íransmálinu hófust í Washington í fyrradag og þar hefði Casey örugglega þurft að mæta hefði heilsan leyft. Hún brást Casey í desember þegar hann þurfti að leggj- ast inn á sjúkrahús og var skorinn upp vegna heilaæxlis. Hann náði sér ekki eftir þann uppskurð. Casey var lögfræðingur í New York sem einbeitti sér að skattamál- um og varð forríkur af. Hann tók að sér að stjórna baráttu Rónald Reag- ans fyrir forsetakjöri árið 1980 og Reagan gerði hann að yfirmanni CIA þegar hann var sestur að í Hvíta húsinu. Los Angeles-Reuter Los Angelesborg í Bandaríkjun- um hefur löngum verið þekkt fyrir að hýsa hina frægu og ríku og samkvæmt nýlegri könnun er margt til í þeirri ímynd. Samkvæmt könnuninni ka'upa hin- ir tólf milljón íbúar borgarinnar fleiri báta, nota meira bensín og drekka meira af víni en aðrir Banda- ríkjanienn. Ibúar hinna auðugu úthverfa Los Angelesborgar drekka tvisvar sinn- um meira af víni en hver bandarískur borgari drekkur að meðaltali, einn af hverjum 39 á skemmtibát og notar jafnmikið af bensíni á tveimur vikum og íbúi í Alaska notar á einu ári. Ekki nóg með það - annan hvern dag kaupir einhver íbúinn Rolls Royce og einn af hverjum fjórum eyðir peningum í spilavíti á ári hverju. Og hvar eru 11% af öllum sundlaugum í Bandaríkjunum? Auðvitað í Los Angeles. íbúar Los Angelesborgar eru þó ekki alltaf að skemmta sér. Könnun- in leiddi nefnilega í ljós að þeir huga að heilbrigði sínu og eru þar fremstir í röð Bandaríkjamanna. Til dæmis kaupir meira en helmingur íbúanna vítamín og einn af hverjum tíu er meðlimur í líkamsræktarklúbbi. Gjaldeyrismarkaðir: Dollaranum batnar lítillega Tokyo-Rcuter Háttsettir menn innan jap- anska seðlabankans sögðu í gær að stjórnirnar í Washington og Tokyo væru ákveðnar að koma í veg fyrir frekari lækkun dollar- ans, lækkun sem hefur haft slæm áhrif á útflutning Japana og aukið verðbólguþrýsting í Bandaríkj- unum. Gjaldeyriskaupmenn tóku að vísu ekki mikið mark á þessum yfirlýsingum japanskra banka- manna, enda heyrt þær áður, en þó var einhver breyting til batn- aðar sjáanleg á gjaldeyris- mörkuðum er þeir opnuðu í gærmorgun og dollarinnstyrktist heldur í sessi. Satoshi Sumita yfirmaður jap- anska seðlabankans sagði á blaðamannafundi að þeir Nakas- one forsætisráðherra Japans og Reagan Bandaríkjaforseti hefðu náð samkomulagi í viðræðum sínum í Washington í síðustu viku og báðir væru ákveðnir í að koma í veg fyrir enn frekari hækkun japanska yensins gagn- vart dollaranum. Pað hefur hækkað um 45% gagnvart dollar- anum á síðustu tveímur árum. Hækkun yensins hefur komið sér illa fyrir japanska útflytjendur sem hafa neyðst til að hækka verð á vörum sínum og misst þannig mikla sölu á hinum geysistóra Bandaríkjamarkaði. Á sama tíma hefur lækkun dollarans leitt til hærra verðlags á erlendum vörum á Bandaríkjamarkaði og það hefur ýtt undir hættuna á að verðbólga þjóti upp þar í landi. Öll gjaldeyrisviðskipti voru með rólegra mótinu í gær og virðist sem gjaldeyriskaupmenn séu að bíða eftir að Bandaríkja- stjórn komi fram með fastá- kveðnar áætlanir til að verja doll- arann frá frekari lækkun. Páfi furðar sig á að fátæk lingar séu barðir í Chile Vatíkanið-Reuter Jóhannes Páll páfi hefur lýst yfir undrun sinni og áhyggjum vegna frétta frá Chile þess efnis að fátæk- lingur einn sem talaði við hans heilagleika í síðasta mánuði hefði verið barinn af vopnuðum mönnum sem sögðust vera lögreglan. Talsmaður páfa sagði Vatíkanið vera að athuga þessa frétt nánar til að fá staðfestingu á hvað gerðist. Hann bætti því við páfi myndi líta mjög alvarlegum augum á barsmíð- ina þ.e. ef fréttin yrði staðfest. Páfi heimsótti Chile í síðasta mán- uði og átti meðal annars fund með fátæklingum í Santíagó, höfuðborg landsins. Mario Mejia var einn þeirra sem talaði við páfa þá en hann segist hafa verið tekinn fastur þann 1. maí, yfirheyrður og barinn og síðan sleppt lausum. Annar einstaklingur sem talaði til mannfjöldans er páfi hitti þá fátæku hefur nú fengið vernd sjálfrar lög- reglunnar eftir að hafa verið ógnað hvað eftir annað af óþekktum aðil-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.