Tíminn - 07.05.1987, Blaðsíða 19
Fimmtudagur 7. maí Í987
Tíminn 19
TÍMÁRIT
Nýlega kom út þriðja tölublað af Martn-
lífi á þessu ári. Meðal efnis í þessu blaði
má nefna viðtal við Roy Marsden, sem
sjónvarpsáhorfendur kannast við sem
Adam Dalgliesh lögregluforingja í þátt-
unum „Svarti turninn". Marsden segir frá
ýmsu úr lífi sínu, og m.a. því - að honum
hundlciðist sakamálasögur!
Einnig er í blaðinu viðtal við rithöfund-
inn P.D. James, sem skrifar sögurnar þar
sem lögregluforinginn Adam Dalgliesh er
aðalpersónan.
í þessu blaði er einnig viðtal við
fræðslufulltrúa homma og lesbía, sem
segir frá starfi sínu og lífi. Hallbjörn
Hjartarson „kúreki norðursins" er nú illa
farinn eftir slys sem gjörbreytti lífi hans.
Hann segir frá ævi sinni og vonbrigðum í
sambandi við átök hans við að stofna „hið
íslenska villta vestur“.
Magnús Blöndal Jóhannsson segir frá
skini og skúrum á ferli tónskáldsins. Þá
hefur Anders Hansen, annar af höfund-
um bókarinnar „Valdatafl í Valhöll",
skrifað í Mannlíf um Albertsmálið og
stöðuna í því í dag.
Stórstjörnur hafa komið til Islands á
undanförnum árum og skemmt hér lands-
fólkinu, og í grein um þetta fræga fólk er
sagt frá ýmsurn siðum og sérvisku þess.
Þjóðleikhúskjallarinn - staður fjörugs
næturlífs, heitir ein greinin í Mannlífi. Þá
er ljósmyndaþáttur Gunnars Gunnars-
sonar ljósmyndara og ýmislegt fleira efni
er í ritinu.
Mannlíf er gefið út af útgáfufélaginu
Fjölni. Það er 140 blaðsíður, og margar
litmyndir prýða ritið. Tíu blöð koma út á
ári. Áskriftarsími Mannlífs er 91-687474.
Og til að sanna feg-
urð íslenskra
kvenna, þá er birt
mynd af „Miss World
1985“ — henni Hófí,
þar sem hún er á
mynd með Gígju
Birgisdóttur, sem þá
var nýkjörin fegurð-
ardrottning.
Við Bláa lónið
er talið sér-
staklega gott
að taka „heit-
ar myndir“. A
“A Islandi færö þú allt sem þú þráir:
Stórkostlega og hrikalega náttúrufegurð
- og djarfar og fallegar stúlkur“
- segir í fyrirsögn í
dönsku vikublaöi, þar
sem birt er frásögn
blaðamanns og Ijós-
myndara af ferö til ís-
lands
Með greininni eru birtar nokkrar
fallegar myndir frá helstu ferða-
imannastöðum íslands, og til að
'punta upp á náttúru landsins eru
þar íslenskar fáklæddar fyrirsætur.
Landkynningin gengur mest út á
að segja frá íslensku stúlkunum.
„Þær virðast við fyrstu sýn vera
feimnar og hlédrægar, og sýna sig
yfirleitt aldrei naktar- aðeins fyrir
hinn eina og besta vin sinn.
En gamalt íslenskt orðtæki segir:
Á bak við hvert tré felur sig nakin
íslensk stúlka. Og það skal tekið
fram, að á eyjunni eru yfirleitt eng-
,in tré yfir 40 sentimetra á hæð“.
) í þessumdúrerfariðmeðhelstu
; staðreyndir í greininni. Sagt er frá
fyrirsætunum, og þær nafngreindar
og störf þeirra kynnt: Dansari,
flugfreyja o.fl.
Einnig dást Danirnir mikið að
diskótekunum á íslandi. Þau séu
einhver albestu sem þekkist í
Evrópu, og þcir hafa smáviðtal við
Bubbi Morthens í
aðalviðtali Æskunnar
Þriðja tölublað Æskunnar 1987 er kom-
ið út. Jens Kr. Guðmundsson ræðir við
rokkkónginn Bubba Morthens í aðalvið-
talinu. Bubbi er einnig á veggmyndinni
sem fylgir blaðinu, ásamt Ragnhildi
Gísladóttur, en þau sigruðu nýlega í vali
lesenda Æskunnar á vinsælustu söngvur-
um og poppstjórnum s.I. árs. Þetta er í
fyrsta sinn sem Bubbi og Ragnhildur
prýða saman veggmynd í íslensku tíma-
riti.
Æskan og hljómtækjaverslunin Steríó
efna til myndagetraunar. Birtar eru sex
litmyndir víðs vegar af landinu og eiga
lesendur að geta sér til um hvar þær eru
teknar. Dregið verður úr réttum lausnum
og cinn hinna heppnu hlýtur glæsilega
hljómtækjasamstæðu, Samsung VIP-380
í verðlaun.
Starfskynningin heldur áfram í blaðinu.
Að þessu sinni er nám og starf lögreglu-
þjóns kynt. Litið er inn í Blindradeild
Álftamýrarskóla og rætt við tvo nemend-
ur. Herdís Egilsdóttir sér um páskafönd-
ur. Birtar eru myndir sem bárust í
teiknisamkeppni Æskunnar og trygginga-
félagsins Ábyrgðar hf. Iðunn Steinsdóttir
er höfundur nýrrar sögu: Lóa litla rauð-
hetta. Margt fleira skemmtilegt efni er í
blaðinu, sem er 56 síður, prentað í Odda
hf. Útgefandi er Stórstúka íslands. Rit-
stjórar eru Eðvarð Ingólfsson og Karl
Helgason.
„diskókóng íslands“ Ólaf Laufdal.
Haft er eftir honum: „Ef ég stofn-
aði diskótek í Kaupmannahöfn, þá
yrði það eitthvað í líkingu við
Broadway og Hollywood hér í
Reykjavík - og þá myndu nú
diskótekin þar í borg f samanburði
við það helst líta út eins og
markaðstjöld frá Sambandi
danskra hænsnabænda!“
Við Gullfoss
í íslenskum skógi -en í greininni
segir að varla sé hægt að finna
stærri tré á íslandi en 40 sm há,
og „á bak við hvert tré felst fá-
klædd íslensk stúlka,“ - segja
Danir
MEISTARAR
MORD-
GÁTUNNAR