Tíminn - 10.06.1987, Síða 2
2 Tíminn
Húsafell og Geirsárbakkar:
Á þriðja þúsund ung-
linga á drykkjumóti
Aðeins níu lögreglumenn og ölvunarakstur algengur
„Eftirlit gekk vonum framar
miðað við fólksfjölda og umferð,"
sagði lögreglan í Borgarnesi eftir
hvítasunnuhelgina, en í umdæmi
hennar hafði safnast saman á þriðja
þúsund manns til hátíðarhalda.
Rúmlega eitt þúsund manns kom
saman í landi Kristleifs Þorsteins-
sonar, bónda, í Húsafelli og ámóta
fjöldi á Geirsárbökkum og var
mikil ölvun á báðum stöðum. Mest
var þarna statt fólk á aldrinum 16
ára til tvítugs. Það skildi við svæðið
svo varla sá í gras fyrir rusli og
áfengisflöskum.
Lögreglunni í Borgarnesi bættist
þriggja lögregluþjóna liðsafli og
lögreglubíll frá Akranesi um helg-
ina, en voru samt sem áður ekki
nema níu talsins í gæslu héraðsins
og höfðu vitanlega ekki undan.
Lögreglan sagði að ömurlegt hefði
verið um að litast þegar ástandið
var hvað verst. Unglingarnir hefðu
verið veltandi fullir og ósjálf-
bjarga. „Það bjargaði miklu hvað
veðrið vargott. Það var blíðuveður
alla helgina."
Umferð var gríðarlega mikil.
„Nær óslitin 'alla helgina," sagði
lögreglan. Vegir voru mjög þurrir
og ryk þyrlaðist upp og varnaði
mönnum sýn. Af því hlutust aftan-
árekstrar og útafakstur, en ekki
alvarleg slys svo vitað sé. „Það má
segja, að ekki hafi verið mikið um
slys og óhöpp á vegum, sé tekið
mið af þeim ógurlega fjölda sem
átti leið hér um. Mest voru þctta
smápústrar og bílveltur."
Ölvunarakstur var hinsvegar al-
gengur eins og gengur og gerist um
hvítasunnu- og verslunarmann-
ahelgi. „Við tókum eins mikið af
ölvuðum ökumönnum og við kom-
umst yfir,“ sagði lögreglan.
Aðstandendur mótsins á Geirs-
árbökkum sögðu í samtali við Tím-
ann að aðeins hefði verið gæsla á
mótinu á Geirsármelum, en ekki í
Húsafelli.
Miðvikudagur 10. júní 1987
Vaglaskógur:
Lést af völd-
um reyk-
eitrunar
-Tókútigrilliðinn ítjald
Fimmtán ára piltur lét lífið í
Vaglaskógi aðfaranótt laugardags.
Rannsóknarlögreglan telur að hann
hafi látist af völdum reykeitrunar frá
útigrilli, þótt það hafi ekki verið
staðfest enn á læknisfræðilegan hátt.
Jafnaldra drengsins, sem var tjald-
nautur hans, sakaði ekki af reyknum
en var dasaður og fór til læknisrann-
sóknar.
Þeir félagar höfðu fyrr um kvöldið
tekið með sér útigrillið inn í tjald til
að orna sér við. Það hafi síðar fyllst
af reyk, þegar þeir voru sofnaðir.
Þegar kunningjar komu að tjaldinu
síðar um nóttina, var drengurinn
látinn.
Hann var frá Akureyri og hafði
nýlokið gagnfræðaskóla þaðan.
Þj
Fræðslustjóri Norðurlands eystra:
Ólafur tekur
við starfinu
- fer til Akureyrar í dag
Ólafur Guðmundsson tekur við
starfi fræðslustjóra Norðurlands
eystra í dag að sögn Sverris Her-
mannssonar menntamálaráðherra.
„Það fara líka norður yfirmaður í
fjármáladeild menntamálaráðuneyt-
isins og fulltrúi frá ríkisendurskoðun
til þess að gera þar fjármálaleg skil,
svo að allt sé nú á hreinu með það,“
sagði Sverrir.
Aðspurður sagði Sverrir að því
miður lægi ekkert samkomulag fyrir
milli sín og Fræðsluráðs í Norðurl-
andi eystra því sér hefðu verið
boönar þær sættir einar að fyrrver-
andi fræðslustjóri yrði settur aftur
og bað hefði ekki verið hægt.
Ólafur hefur látið hafa það eftir
sér að hann hefði aldrei tekist þetta
starf á hendur ef hann hefði vitað
hvernig mál stóðu. „Hann átti nátt-
úrlega ekki von á því að honum yrði
tekið með þvílíkum þjósti sem raun
varð á. Starfsfólkið hefur skrifað
honum bréf og lét þau orð falla að
honum yrði ekki vært. Fjölskylda
Ólafs hikar við sem eðlilegt er en
hins vegar mun hann taka við, það
er orðið ljóst,“ sagði Svcrrir.
ABS
iviikiu eiaur var pegar siokkviiioio Kom a staoinn.
Tímamynd KB
Braggabruni í Kópavogi
Aðkoman var ófögur í gili Sandfells, þar sem Þverárhrossin sjö fundust á föstudag. Þau hafa steypst niður hlíðina og
brotnað og lemstrast á grjóti. (Tímamynd: Pjetur)
Gamall braggi á vegum Vita- og
hafnamálstofnunar, við Kársnesb-
raut í Kópavogi, sem verið var að
rífa, brann í gær. Starfsmenn stofn-
unarinnar sem sáu um að rífa bragg-
ann höfðu nýlega lokið vinnu þegar
eldurinn kom upp. Slökkvilið
Reykjavíkur var kallað út klukkan
19:59. Greiðlega gekk að slökkva
eldinn, en gripið var til þess ráðs að
dæla sjó á eldinn.
Nokkur hætta virtist hið fyrsta.
Olíutankur er fast upp við braggann
og var á tímabili óttast að hann
myndi verða eldinum að bráð.
Að minnsta kosti tvö hundruð
manns söfnuðust saman á staðnum,
fyrir forvitnis sakir og beinlínis trufl-
uðu starf slökkviliðs og aðstoðarm-
anna. Við slökkvistarfið aðstoðuðu
Hjálparsveit skáta í Kópavogi, lög-
reglan í Kópavogi og Reykjavík og
nokkrir sjálfboðaliðar.
Verkstjóri hjá Vita- og hafna-
málastofnun, Sigurður Þorbjörns-
son, sem Tíminn ræddi við á bruna-
stað sagði að ekkert tjón hefði
orðið. Búið var að hreinsa allt nýti-
legt úr bragganum og þegar var
hafist handa við að rífa hann.
Steyptust fram af Sandfelli:
ÞVERÁRHROSSIN
FUNDUST DAUD
- Aðstæöur gera dularfullt hvarf þeirra furðulegra
Hrossahvarfið af Þverá í janúarm-
ánuði síðastliðnum er með dularfyll-
ri málum, sem upp hafa komið hin
síðari ár og kynti duglega undir trú
íslendinga á hið yfirnáttúrulega. Á
föstudag fundust svo allir hestarnir
dauðir í gili ofarlega í Sandfelli ekki
alllangt frá bænum. Þar hafa menn
ekki áður rekist á hross, enda bratt
upp fjallið og í vetur hefur verið
ófært þangað nema fyrir fuglinn
fljúgandi.
Kristján Benediktsson, bóndi á
Þverá, hefur leitað hrossanna nær
samfellt í fimm mánuði og jafnvel
flogið leitarflug yfir gilið, sem þeir
loks fundust dauðir í. Þá hafi ekki
borið á neinu, en snjór var yfir öllu.
Líklegt er að hrossin hafi fælst, öil
sem eitt, og skrikað fótur í svellinu.
Þeir hafi kastast niður hlíðina og
brotnað og lemstrast á grjóti í gilinu.
Aðkoman var ófögur eftir svo langan
tíma frá dauða hestanna sjö en hrafn
hefur komist í hræin.
Hrossin voru á sunnudag dregin
niður af fjalli og urðuð við rætur
Sandfells. þj