Tíminn - 10.06.1987, Blaðsíða 6

Tíminn - 10.06.1987, Blaðsíða 6
6 Tíminn Miðvikudagur 10. júní 1987 Aðalfundur Sjómannafélags Rvíkur.: Fiskvinnslan getur breytt gáma útflutningi ef þeir vilja Sjómannafélag Reykjavíkur gerði einar sex ályktanir á aðal- fundi sínum, sem haldinn var í síðustu viku að Skipholti 50A. Beinir aðalfundurinn m.a. þeim tilmælum til stjórnvalda og Sigl- ingamálastofnunar ríkisins að vinna að lagasetningu um lokaða björgunarbáta á íslensk kaupskip og skal miðað við það að öll íslensk kaupskip og erlend leiguskip sem sigla til landsins verði búin slíkum bátum í síðasta lagi 1. janúar 1990. í öðru lagi fól aðalfundur SR stjórn félagins að beita sér fyrir stofnun samtaka allra þeirra aðila hér á iandi sem vinna við flutninga á sjó, á landi og í lofti. Verði stefnt að því að þessum aðilum verði náð saman á hausti komanda og þá lögð drög að lögum og reglum siíkra samtaka sem taki mið af sambærilegum lögum Skandin- aviska flutningaverkamannasam- bandsins. f þriðja lagi lýsir aðalfundur SR undrun sinni á afstöðu fiskkaup- enda í verðlagsráði sjávarútvegsins varðandi frjálst fiskverð. Fundur- inn telur það vera eina af megin- forsendum eðliiegs fiskverðs hér á landi að framboð og eftirspurn ráði verði. Fagnar fundurinn tilkomu fiskmarkaða hérí Reykjavík og í Hafnarfírði og minnir á að nær tveir áratugir eru nú liðnir frá jákvæðri samþykkt aðalfundar fé- lagsins um þetta mál. Þá bendir fundurinn á að með tilkomu fisk- markaða svo og fjarskiptamarkaða muni markaðsverð verða gildandi í raun um allt land. í fjórða lagi lýsir aðalfundurinn yfir undrun sinni á afstöðu Verka- mannasambands íslands til útflutn- ings á ferskum fiski. Fundurinn bendir á að 85% fiskiskipaflotans er nú í eigu fiskvinnslunnar og því hæg heimatökin fyrir þá aðila sem vilja breyta, vilji þeir á annað borð vinna meira úr aflanum hér innan- iands. Mikill innflutningur skut- togara til landsins var réttlættur með því að tryggja ætti atvinnu í sjávarplássum. Fjöldamörgum skuttogurum hefur nú verið breytt þannig að aflinn erfrystur um borð og breytingar á fleiri skipum eru nú fyrirhugaðar. Engar athugasemdir hafa komið frá Verkamannasam- bandinu varðandi þetta mál. Sam- tök fiskvinnslunnar hér á landi vilja nú fá meiri íhlutun í afla íslenskra fiskiskipa og þar með yfirráð yfir þeim fáu skipum sem ekki eru nú í eign fiskvinnslufyrir- tækja. Þessum aðilum hefur nú tekist að slá ryki í augu fulltrúa frjáls fiskverðs enda þótt þeir geti keypt hráefni á samkeppnisverði við erlenda markaði, en skjóta sér þess í stað á bak við verðákvörðun verðlagsráðs sjávarútvegsins. En alir vita að sú ákvörðun byggist ekki eingöngu á erlendu markaðsverði heldur einnig fram- leiðslukostnaði hér heima, m.a. með meðaltali framleiðslukostnað- ar iila og vel rekinna frystihúsa. Aðalfundurinn leggur ekki dóm á þá byggðastefnu sem fylgt er, en telur að það sé ekki sjómanna og útgerðarmanna einna að standa undir kostnaði hennar vegna, held- ur sé það samfélagins í heild. Af framansögðu má sjá að hugur þeirra sem ráða mestu í sjávarút- vegi stendur til þeirrar áttar einnar að draga kjör íslenskra fiskimanna niður sem verða má. í fimmta lagi beinir aðalfundur- inn þeirri áskorun til Sjómannas- ambands Islands að úttekt verði iátin fara fram af tryggingarfræði- ngi á slysa- og dauðatryggingarfjár- hæðum sjómanna. Verði þá horft til liðinna ára og samanburður gerður á tryggingarfjárhæðum ann- arra starfsstétta. Þá verði einnig gerð athugun á upphæðum tjón- abóta sem falla undir reglugerð nr. 31 frá 1964. f sjötta og síðasta lagi felur aðalfundur Sjómannafélags Reykj- avíkur stjórn félagsins að kalla saman stéttarféiög farmanna á hausti komanda til að ræð'a þá alvarlegu þróun sem orðið hefur í íslenskri kaupskipaútgerð. Eink- um verði rætt um hinn háa meðal- aldur skipanna svo og þá aukningu sem orðið hefur á leigutöku er- lendra skipa mönnuð erlendum sjómönnum í siglingum að og frá íslandi. Rithöfundasamband íslands: Samningar samþykktir til 5 ára Samningar bókaútgefenda og rit- höfunda svo og samningar Leikfé- lags Reykjavíkur við rithöfunda voru samþykktir á aðalfundi rithöf- undasambands íslands um mánaða- mótin síðustu. Samningar við bókaútgefendur hafa staðið allengi yfir og eru ein- hverjir mikilvægustu samningar rit- höfunda, en viðsemjendur rithöf- undasambandsins eru nú alls 9 auk þess sem það hefur umboð fyrir erlenda rithöfunda. Útgáfusamningurinn gildir til næstu fimm ára en þýðingarsamning- urinn er til næstu þriggja ára. Samn- ingaviðræður standa enn yfir við Btindrabókasafn, Bylgjuna og fleiri og endurnýjun samninga við Ríkis- útvarpið er að hefjast. Á aðalfundinum voru 14 rithöf- undar teknir inn í Rithöfundasam- bandið. Þar með eru félagar orðnir 265 talsins. Rithöfundasambandið er heildarsamtök íslenskra rithöf- unda, skáldsagnahöfunda, ljóð- skálda, leikritahöfunda, barna- og unglingabókahöfunda, þýðenda, fræðibókahöfunda og fleiri. Formaður félagsins er Sigurður Pálsson en varaformaður Einar Kárason. Aðrir í stjórn eru Vilborg Dagbjartsdóttir, Þorsteinn frá Hamri, Þórarinn Eldjárn og vara- menn eru Andrés Indriðason og Sjón. ABS Einnota umbúöir um gos og drykki: w Arleg sala 25 milljónirdósa? Notkun einnota umbúða, t.d. plastflöskur, ál og plasthúðaðar pappaumbúðir og áldósir, fyrir gos, öl og svaladrykki hefur stóraukist á undanförnum misserum. Bæði er um að ræða vörur sem framleiddar eru hér á landi og innfluttar vörur. Með tilkomu pökkunarvéla fyrir öl og gosdrykki í áldósir hér á landi, má fastlega gera ráð fyrir, að notkun slíkra umbúða stóraukist á næstunni. Ekki er talið ólíklegt að árleg sala á gosdrykkjum verði um 25 milljónir áldósa, sem samsvarar hátt í 300 tonnum af áli. Víðsvegar um heim, og í flestum nágrannalöndum okkar, hafa verið settar reglur um notkun einnota umbúða, endurnýtingu og hvaða efni megi nota í slíkar umbúðir. Áldósir eru t.d. bannaðar í Dana- veldi sem öl og gosdrykkjaumbúðir. Hér á landi eru engar reglur um framleiðslu né notkun einnota um- búða fyrir umrædda vöruflokka. Talsvert ber einnig á því að neyt- endur fleygi umbúðunum á víða- vangi. Af því tilefni hafa Hollustuvernd ríkisins, Náttúruverndarráð og Landvernd sent frá sér fréttatilkynn- ingu þar sem skorað er á landsmenn að ganga vel um landið og fleygja ekki slíkum umbúðum né öðru rusli á víðavangi. Einnig er þeim tilmælum beint til framleiðenda og innflytjenda að þeir geri sér í ríkari mæli Ijósa ábyrgð sína í þessu máli, m.a. með því í auglýsingum sínum að benda neyt- endum á að fleygja ekki umbúðum á víðavangi. Tíminn tekur undir þessa áskorun og minnir á að fólk ætti að ganga frá eins og það vill koma að stöðum. Hreint land, fagurt land. -SÓL Þær Kogga og Sonja Elídóttir voru ekkert að vinna inni af gömlum vana, heldur drifu sig út og sátu þar við að hnoða leir og móta í allskonar listmuni. Mun- ina ætla þær svo að brenna í sérstökum útibrennsluofni sem Kogga hefur komið fyrir í Laug- arnesinu. Kogga leirlistamaður, heitir fullu nafni Kolbrún Björgólfs- dóttir og er með keramikstúdíó og gallerý í Vesturgötunni. Sonja er hins vegar að læra listina hjá henni. Kogga sagðist nota rekavið til að hita upp útiofninn, en með því að brenna leirinn í slíkum ofni tæki brennslan miklu styttri tíma, eða um einn dag í staðinn fyrir fjóra í venjulegum leirbrennslu- ofnum. Þegar hlutirnir hafa verið brenndir í ofninum úti, er hægt að gera ýmislegt við þá til að fá sérstaka áferð á þá, t.d. setja þá sjóðandi heita í hálm og sinu. Þannig smýgur sót inn í leirinn og gefur honum mjög sérstaka áferð. ABS Samtök um jafnrétti milli landshluta: Landsfundur að Reykholti Helgina 20.-21. júní halda Samtök um jafnrétti milli landshluta lands- fund undir kjörorðinu „Þjóðfélags- sýn samtakanna í framtíðinni", að Reykholti í Borgarfirði. Þar verða teknar ákvarðanir um framtíðarstefnu samtakanna og þau baráttumál, sem taka þarf á á næst- unni. Telja forsvarsmenn samtak- anna þetta vera tímamótafund þar sem ljóst verði hvort SJL hafi enn styrk sem þverpólitískt afl. Hafa samtökin ákveðið að gera átak í byggðamálum vegna þeirrar aðfarar sem gerð hefur verið að búsetuskilyrðum á landsbyggðinni undanfarið. Telja þau ljóst að ef frekar verði vegið að jafnvægi milli landshluta þá muni það hafa ófyrir- sjáanlegar afleiðingar í för með sér gagnvart landsbyggðinni, sem seint verði bættar. í tengslum við fundinn verður gefið út þriðja hefti málgagns samtakanna, Útvörður, og verður því dreift til ákrifenda með nánari upplýsingum um landsfundinn. Núverandi stjórn Samtakanna skipa: Þórarinn Lárusson Skriðu- klaustri, formaður, Magnús B. Jóns- son Hvanneyri og Helga Eiðsdóttir Akureyri meðstjórnendur. Ritstjóri Útvarðar er Hákon Aðalsteinsson Egilsstöðum. ÞÆÓ Par lendir undir bíl utan vegar Ökumaður jeppabifreiðar, sem ekki hafði stjórn á ökutæki sínu sökum ölvunar, ók á pilt og stúlku í Húsafelli aðfaranótt laugardagsins, með þeim afleiðingum að þau varð bæði að flytja undir læknishendur. Parið lenti undir bílnum utan vegar í rjóðri, þar sem það hafði komið sér fyrir. Stúlkunni varð minna meint af slysinu en piltinn varð að færa mikið slasaðan suður, m.a. með opið bein- brot. Lögreglan í Borgarnesi svipti öku- manninn umsvifalaust ökuleyfi til bráðabirgða. þj

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.