Tíminn - 10.06.1987, Blaðsíða 12

Tíminn - 10.06.1987, Blaðsíða 12
12 Tíminrv Miövikudagur 10. júní 1987 FRÉTTAYFIBLIT FENEYJAR - George Shultz utanríkisráðherra Bandaríkjanna sagði undir- búning fyrir þriðja leiðtogafund þeirra Reagans Bandaríkja- forseta og Gorbatsjovs Sovét- leiðtoga ganga „nokkuð vel“ en vildi ekki segja nánar hve- nær slíkur fundur yrði. RÓM — Sprengjur sprungu í sendiráðum Bandaríkjamanna og Breta í Rómarborg og bíl- sprengja sprakk fyrir utan bandarísku bygginguna. ít- alska lögreglan tengdi þessa atburði við fund leiðtoga sjö helstu iðnaðarríkja hins vest- ræna heims í Feneyjum. LUNDÚNIR — Bandaríkja- dalur lækkaði í verði á gjald- eyrismörkuðum í gær, aðal- lega vegna lítilla frétta frá Fen- eyjarfundinum. Hlutabréf á verðbréfamarkaðinum í Lundúnum hækkuðu hins veg- ar mikið í verði þar sem allt benti til að (haldsflokkur Mar- grétar Thatchers myndi bera sigur úr býtum í kosningunum á morgun. SEOUL — Mikil ólæti brutust út í Suður-Kóreu þepar um tíu þúsund stúdentar foru í mót- mælagöngur víðs vegar um landið og kröfðust afsagnar Chun Doo Hwans forseta. Stjórnarandstaðan hyggur á miklar mótmælaaðgerðir gegn forsetanum á næstunni. GENF — Sovétstjórnin lagði fram tillögu um bann við kjarn- orkuvopnatilraunum þar sem meðal annars var kveðið á um að hópur alþjóðlegra sérfræð- inga aæti farið á staði og skoðað þá, léki grunur á að einhver aðilinn færi á bak við bannið. NÝJA DELHI — Einir tvö hundruð harðlínumenn úr hópi gúrkha í Vestur-Bengal héraði á Indlandi réðust á lögreglu- stöð og meiddust þrír menn í átökunum, þar af einn lög- reglumaður. LUNDÚNIR — Breski stjórnarerindrekinn Edward Chaplin, sem hefur verið í sviðsljósinu vegna deilu breskra stjórnvalda við írans- stjórn, kom heim frá Teheran eftir að hafa verið rekinn þaðan ásamt fjórum öðrum breskum sendifulltrúum. ACCRA — Lögreglan í Ghana kom upp um ný stjórn- arbyltingaráform gegn ríkis- stjórn flugliðþjálfans Jerry Rawlings og handtók ónefnd- an fjölda fólks. ÚTLÖND Kosningar í Bretlandi á morgun: ihaldinu lítið ógnað - Fátt virðist geta komið í veg fyrir sigur Margrétar Thatcher og flokks hennar - Síðustu sporin tekin í kosningaslagnum Reutcr - Niðurstöður skoðanakannana í Bretlandi sem birtar voru í gær sýndu að fátt virðist nú geta komið í veg fyrir sigur Margrétar Thatcher forsætisráðherra og íhaldsflokks hennar í kosningunum sem verða á morgun. Thatcher og flokkur hennar höfðu 13 prósentustiga forskot á Verka- mannaflokkinn í skoðanakönnun sem birt var í dagblaðinu The Guar- dian. í þeirri könnun sögðust 45% aðspurðra ætla að kjósa íhaldsflokk- inn, 32% studdu Verkamannaflokk- inn og Bandalag frjálslyndra og jafnaðarmanna fékk 21% atkvæða. í annarri könnun fékk Thatcher 42%, Neil Kinnock og Verka- mannaflokkur hans 35% og banda- lagið 20%. Yrðu kosningaúrslit í samræmi við tölurnar úr þessum skoðana- könnunum fengi íhaldsflokkurinn öruggan þingmeirihluta, þó ekki jafn mikinn og árið 1983 þegar flokkur- inn tryggði sér 140 sæta þingmeiri- hluta. Þrátt fyrir að litlar líkur séu á að Verkamannaflokkurinn nái að hnekkja veldi íhaldsflokksins á morgun voru sérfræðingar á sviði Thatcher stýrir í átt til sigurs en Kinnock er ekki með pálmann í höndunum. Á morgun verður kosið ■ Brctlandi auglýsingamála flestir sammála um það í gær að Kinnock og flokkur hans hefðu borið sigur úr býtum í auglýsingastríðinu. Sumir töldu reyndar að kosningabaráttu fhalds- flokksins hefði verið illa stjórnað og bentu á því til sönnunar að persónu- vinsældir Kinnocks hefðu aukist um 10% síðan kosningabaráttan hófst fyrir mánuði á meðan vinsældir Thatchers hefðu staðið í stað. Thatcher gerði aðeins stuttan stans á Feneyjafundinum, fundi sjö helstu iðnaðarríkja hins vestræna heims, sem lýkur í dag. Hún kom aftur til Bretlands í gær eftir að hafa fengið stuðning leiðtoga hinna sex ríkjanna við varnarstefnu sína sem byggirá kjarnorkuvörnum. Kinnock sakaði hins vegar Thatcher um að hafa farið til Feneyja til að fá aukinn stuðning í kosningunum, ekki til að ræða um alþjóðleg vandamál. í gær voru síðustu sporin tekin í kosningaslagnum, Verkamanna- flokkurinn sagði skattastefnu íhalds- flokksins þýða að fólk ætti erfiðara með að komast af og íhaldsflokkur- inn sagði það sama um skattastefnu Verkamannaflokksins. David Owen, annar leiðtogi Bandalags frjálslynda og jafnaðarmanna, bað um stuðning í kosningunum til að koma í veg fyrir þriðja kosningasigur Thatcher og flokks hennar í röð. Feneyjafundurinn: Reagan atkvæðamikill Feneyjar - Reuter Leiðtogar hinna sjö helstu iðnað- arríkja vestræna heimsins, sem nú funda í Feneyjum, lýstu í gær yfir stuðningi við áform Reagans Banda- ríkjaforseta um að vernda skipasigl- ingar um Persaflóann. Yfirlýsing um nauðsyn þess að halda opnum siglingaleiðum um Persaflóann og styðja „áhrifaríkar • aðgerðir" Sameinuðu þjóðanna er miðuðu að því að binda enda á stríð írana og íraka, sem staðið hefur á sjöunda ár, var lesin upp í gær af Amintore Fanfani er nú gegnir stöðu forsætisráðherra ftalíu. Stjórnarerindrekar sögðu að yfir- lýsing þessi kæmi vel til móts við áætlanir Reagans um að halda sig- lingaleiðum í Persaflóanum opnum en væri hins vegar ekki loforð um hernaðarlega aðstoð. í yfirlýsingunni í gær var einnig að finna stuðning við hugsanlegt af- vopnunarsamkomulag stórveld- anna. Reagan Bandaríkjaforseti hefur verið mest í sviðsljósinu á fundi ríkjanna sjö, Bandaríkjanna, Noröur-lndland: Hiti yfir meðallagi Nýja Delhl - Reuter Miklir hitar hafa undanfarna daga herjað á íbúa Norður-Ind- lands og hafa alls 23 látist af völdum þeirra. Hitinn fór upp í 48 Celsíus- gráður víða í Uttar Pradesh hér- aði austur af höfuðborginni Nýju Delhi og búist var við að hitastig- ið myndi jafnvel hækka á næstu dögum. Sandstormar hafa fylgt í kjölfar hitabylgjunnar sem mun líklegast standa yfir þangað til í júnílok þegar monsúnvindarnir taka að blása. Bretlands, Frakklands, V-Þýska- lands, Ítalíu, Kanada og Japans. Þótt fundi þessara ríkja, sem fyrst var haldinn árið 1975, hafi upphaf- lega verið ætlað að fjalla um efna- hagsmál hafa skipasiglingar um Persaflóann verið helsta umræðu- efnið til þessa. Stjórnvöld í Kuwait hafa beðið Kínverja um að ganga í lið með Bandaríkjamönnum og Sovétmönn- um og vernda olíuflutningaskip sem sigla til og frá Kuwait fyrir árásum stríðsaðila í hinu hatramma Persa- flóastríði. Stórblaðið The New York Times hafði eftir embættismanni í utanrík- isráðuneyti þeirra Kuwaitbúa að kínversk stjórnvöld hefðu „ekki lok- að dyrunum" og væru að íhuga beiðnina. Á efnahagssviðinu stal Reagan einnig senuni rétt áður en fundurinn hófst formlega á mánudaginn er hann aflétti ýmsum þeim þvingunum sem stjórnin í Washington setti á viðskipti við Japani fyrir sex vikum. Fundinum íFeneyjum lýkurform- lega í dag. Blaðið hafði eftir stjórnarerind- rekum að beiðni Kuwait væri greini- lega þáttur í viðleitni stjórnvalda landsins að draga stórveldi heimsins inn í Persaflóastríðið, sem staðið hefur hátt á sjöunda ár, í þeirri von að þau finni leið til að binda enda á hin blóðugu átök milli írana og íraka. Bandaríkjastjórn hefur þégar lof- að að ellefu olíuflutningaskip frá Kuwait geti siglt undir fána Banda- ríkjanna og Sovétstjórnin hefur einnig samþykkt að vernda skip Kuwaitbúa. Marokkó: Skólabörn í eyðnileik Rabat - Reuter Skólabörn í Márokkó hafa fundið upp nýjan leik, svokallað- an eyðniíeik, sem mikið er leikinn í skólagörðum og á leikvöllum í landinu. Pað var dagblaðið A1 Bayane sem frá þessu skýrði um helgina. Eitt barnanna er valið til að bera sjúkdóminn og þarf að elta hin. Allir sem nást eru „sýktir". Leikurinn endar þegar allir „heil- brigðu" þátttakendurnirhafa ver- ið sýktir. Samkvæmt opinberum tölum Marokkóstjórnar, sem frétta- stofa landsins birti í febrúarmán- uði, er vitað um tvö eyðnitilfelli í borginni Casablanca og í báðum tilfellunum virtist sent sjúklin- garnir hefðu fengið smitið erlend- is. Sao Paulo í Brasilíu: Fimm rottur á hvern íbúa Sao Paulo - Rcutcr Fimm rottur eru á hvern íbúa í iðnaðarhöfuðborg Brasilíu, Sao Paulo. Það var dagblað eitt í borg- inni sem frá þessu skýrði um helgina. Blaðið Noticias Populares sagðist hafa þessa tölu frá háttsettum full- trúa heislugæslumála í borginni. Samkvæmt þessu hafast um fjörtíu milljón rottur við í borginni og þá eru úthverfin ekki talin með. Rottur eru algeng sjón í fátækra- hverfunt Sao Paulo þar sem oft má sjá þær önnum kafnar í ruslahaugum á strætum úti. Borgaryfirvöld hafa tilkynnt að dagurinn í dag verði sérstaklega tileinkaður baráttunni gegn rottum og hann á að marka upphafið á tuttugu daga herferð gegn rottufjölg- un í Sao Paulo. Algeng sjón í Persaflóanum: Olíuflutningaskip brennur eftir árás írana Persaflóinn: Kuwaitstjórn biður um kínverska aðstoð New York - Rcufcr

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.