Tíminn - 10.06.1987, Side 14
14 Tíminn Miðvikudagur 10. júní 1987
Unnur Try gg vadótti r
Fædd 27. désember 1907
Dáin 24. maí 1987
Unnur Tryggvadóttir, tengda-
móðir mín er látin. Hún lést eftir
örskamma legu sunnudaginn 24. maí
s.l. og var jarðsett í Vallakirkjugarði
2. júní.
Fyrir rúmum sextán árum kom ég
í fyrsta sinn í hús hennar á Akureyri.
Ég var feimin, hún var feimin, hún
bauð mér góðgerðir, allt var eins og
við var að búast þegar tengdamóðir
og tengdadóttir hittast fyrst. En allt
í einu fór hún að ræða við einhvern
fyrir utan gluggann, stóð upp söngl-
andi, lét mat á disk og var allt í einu
rokin út. Hún var að gefa smáfuglun-
um, hélt ég. Það var ekki fyrr en
seinna sem ég vissi að hún gerði
fuglunum ekki mishátt undir höfði -
svona eins og okkur hinum hættir til
að gera - hún gaf hröfnum jafnt sem
skógarþröstum. Hrafnarnir voru
fljótir að læra hvar hana var að finna
og komu reglulega í mat. Hún
spurði mig einskis, sagði svo sem
ekkert heldur, opnaði bara hús sitt
og heimili fyrir mér. Svona einfalt
var það, og ég sem hafði haldið að
það væri erfitt að gerast tengdadótt-
ir!
Vera má að það hafi verið svo
auðvelt að tengjast þessari fjöl-
skyldu vegna þess að um samband
tengdadóttur og tengdamömmu var
aldrei að ræða, í venjulegri merk-
ingu þeirra orða. Þessi merkilega
kona einfaldlega tók mig í fóstur
eins og ekkert væri eðlilegra. Hún
dekraði við mig, eins og ég sá að hún
dekraði við aðra í /jölskyldunni. Ég
hafði aldrei kynnst öðru eins, hélt
alltaf að dekur væri óhollt. En
einhvernveginn hafði hún lag á að
dekra við fólkið sitt á þann hátt að
enginn spilltist. Ég ætti að vita það,
ég sem giftigt litla barninu hennar.
Fyrst var ég þvílíkur kálfur að kunna
ekki að launa ofeldið. Reyndi hvað
eftir annað að reka hana úr eldhús-
inu, segja henni að nú skyldi ég.
Hún hló að mér. Auðvitað, ég var
að reyna að reka drottningu úr ríki
sínu. Smám saman lærði ég að
sniglast í kringum hana þegar hún
var að. Smám saman lærði hún að
biðja mig um einhver smáviðvik. Ég
hafði hana þó alltaf grunaða um að
gera það til þess að mér liði betur,
frekar en hún þyrfti á hjálp minni að
halda. Svona kynntumst við, ég og
þessi glaðlynda, hlédræga kona.
2.
Marga eiginleika hafði hún Unnur
mín sem fáum öðrum er gefið.
Engum hef ég kynnst sem hefur jafn
næmt auga og virðingu fyrir hinu
smáa og litla í veröldinni og hún
hafði. Fjólurnar við húsdyr hennar
vitna um það. Einhvern tíma hefur
hún tekið fjólur í vegarkanti og
gróðursett þarna í mölinni. Þar hafa
þær síðan dafnað og aukist í umsjá
hennar og með tímanum orðið henn-
ar aðalsmerki. Stundum tók hún
tvær, þrjár fjólur og lét í vatn í lítið
glas í eldhúsglugganum. Við hliðina
á þeim mátti líka stundum sjá sykur-
mola eða smjörklípu sem hún hafði
fyrir flugurnar. Flugurnar, þær voru
vinkonur hennar. Ég efast um að
Unnur Tryggvadóttir hafi nokkurn
tíma banað smæsta skorkvikindi.
Kæmi hún áð flugu í dauðastríði í
glugga, gerði hún allt sem hún gat til
að koma henni til lífs og gladdist yfir
árangrinum eins og um mannveru
hefði verið að ræða. Og fuglarnir.
Bömin hennar segja mér að hún hafi
einhverju sinni vaktað hreiður fyrir
þröst sem átti í útistöðum við kött í
nágrenninu...Ef kötturinn nálgaðist
kom þrösturihn á gluggann til henn-
ar og klagaði. Hún hljóp þá út og
skakkaði leikinn. Það sumar hafa
nokkrir þrastarungar mátt launa
henni líf sitt. Já, fuglarnir vissu hvar
hana var að finna og það vissu líka
börnin í nágrenninu. Þau komu í
tíma og ótíma, hringdu bjöllunni,
fengu kleinubita eða pönnuköku.
Önnur fósturbörn átti hún líka sem
aldrei vissu af umhyggju hennar.
Það voru gestirnir á tjaldstæðinu
sem er beint neðan við gluggann
hennar. Með þeim hefur hún glaðst
á sólardögum gegnum árin. Og lifað
sig inn í áhyggjur þeirra ef von var á
rigningu. „Ja, aumingja blessað
fólkið, það er allt að taka sig upp
se.m von er í þessari líka tíð,“ átti
hún til að segja. Það var sárt að
fylgjast með henni þegar hún kom
að fjólunum sínum úttröðkuðum og
slitnum upp með rótum af einhverj-
um næturhröfnum á tjaldstæðinu.
„Ja, svart er síratið,“ var máltæki
hennar þegar eitthvað bjátaði á. Svo
fór hún og fann sér nýjar fjólur og
erfði þetta ekki frekar. Æ, já, það er
mannbætandi að fá að umgangast
slíkt æðruleysi. Því miður voru
alltof fáir sem gátu notið þess, því
hlédrægari manneskju er vart að
finna. Unnur hafði lifandi áhuga á
öllu sem lifði og hrærðist nær og
fjær, hafði unun af að hlusta, lesa og
frétta. En ferðalög og heimsóknir
voru henni fjarri skapi. Hún hefur
með lífi sínu lætt þeim efa í brjóst
mér að við þurfum ef til vill ekki að
hafa svona mikið fyrir því að kynnast
lífinu. Þurfum við að vera svona
mikið á ferðinni? Þurfum við ekki
bara eitthvað af ró Unnar og næmni
fyrir smáatriðum til að öðlast eitt-
hvað af þessari alheimsvisku sem við
erum að sækjast eftir og Unnur hafði
í svo ríkum mæli og kunni svo vel að
miðla. - Ja, ntTveit ég Unnur mín,
að ef lífið og daúðinn eru þannig, þá
stendur þú einhversstaðar og hristist
af hlátri yfir þessum orðum mínum.
Þú segist bara hafa verið venjuleg
manneskja. En Unnur mín, það er
mikil list. Hve mörg okkar kunna þá
list að lifa lífinu sem venjulegar
manneskjur? ímyndum okkur
augnablik veröldina þar sem allir
kunna þessa list þína. Þetta hefur þú
kennt mér, ekki sagt mér, heldur
kennt mér með lífi þínu. Ég þakka
fyrir að hafa fengið að kynnast þér
og vona að ég beri gæfu til að
tileinka mér brot af þessum hljóðláta
boðskap.
3.
Nei, Unnur sagði ekki frá sem
kennimeistari, en hún sagði frá.
Hún hafði frásagnarhæfileika sem
hver rithöfundur hefði getað stært
sig af. Ó, að við hefðum verið fleiri
sem gátum notið hans. Fyrir okkur,
þessum fáu, standa margir atburðir
úr lífi Unnar svo ljóslifandi fyrir
hugskotssjónum, jafnvel atburðir
sem gerðust fyrir hennar eigið minni.
Ég sé fyrir mér foreldra hennar,
Tryggva Kristinsson orgelleikara og
tónlistarkennara og Nönnu Arn-
grímsdóttur og eldri systurina Krist-
ínu. Ég sé fyrir mér fæðingu hennar,
á Dalvík þriðja dag jóla árið 1907,
Unnur fæddist með mislinga, móðir-
in dó örstuttu seinna. Sólveig, kona
séra Stéfáns Kristinssonar, föður-
bróður Unnar, kom að sóttarsæng-
inni og sagði: „Ég tek barnið." Við
hana rökræddi enginn og hún fór um
hávetur með bamið veikt af misling-
um heim að Völlum í Svarfaðardal
og bætti henni í sinn eigin bamahóp.
Þar ólst Unnur upp og Sólveig og
Stefán voru „pabbi og mamma".
Reyndar sagði Sólveig síðar að Unn-
ur væri sú eina af börnum hennar
sem væri verulega lík henni. Unnur
var orðin hvíthærð þegar ég kynntist
henni, en dökk var hún á yngri
árum. Fólkið í sveitinni hafði sagt:
„Það sem þau eru mórauð, börnin á
Völlum." I þessum mórauða barna-
hópi var Ingibjörg, eða Bolla eins og
hún var kölluð,-á svipuðu reki og
Unnur. Með þeim systrum var mikil
vinátta sem hélst fram á síðasta dag,
eða þar til Bolla kvaddi þennan
heim fyrir rúmum áratug. Ég sé þær
fyrir mér þegar þær höfðu fengið
langþráð leyfi til að fara á skautum
á ísi lagðri ánni niður á Dalvík. Eða
að sumarlagi, þegar mikill silungur
var í Únni og vár dregið fyrir hann,
þá stóðu þær úti í vatninu með
vaskaföt og mokuðu fiskinum upp á
bakkana. Voru síðatl sendar á aðra
bæi að færa fólki nýjan fisk. Ég hætti
að vera mótfallin öllum rjómaísnum
og pönnukökunum sem hún hefur
gefið börnunum mínum um dagana
þegar ég heyrði hjá henni söguna af
jólunum á Völlum. Á jóladagsmorg-
un færði Sólveig börnunum heitt
súkkulaði og kökur í rúmið og þau
máttu borða eins og þau gátu í sig
látið. Og það gerðu þau sannarlega,
þangað til bunan stóð út úr þeim,
sagði hún mér.
Unnur hafði góða söngrödd er mér
sagt. Hún var rétt um fermingu
þegar hún var fyrst beðin að syngja
við jarðarför. Það hafa verið henni
átök, hún.-sem helst vildi hlaupa í
felur þegar gesti bar að garði, Eitt
sinn söng hún fyrir Ástu í Skugga
Sveini þegar leikritið var sýnt á
Dalvík. En þá stóð hún baksviðs en
stúlkan á sviðinu þagði og bærði
varirnar. Svo fjarri var það Unni að
vera í sviðsljósihú.
Unnur var bamabam Arngríms
Gíslasonar málara og Þórunnar
Hjörleifsdóttur ljósmóður. Af þeim
sagði hún mér einhverja merkileg-
ustu ástarsögu sem ég hef heyrt um
dagana. Þeim var stíað sundur, en
náðu saman að lokum eftir mörg ár.
Þegar bók Kristjáns Eldjárns. um
Arngrím kom út fletti ég strax upp á
þessari sögu. Jú, hún var þarna í
öllum aðalatriðum í þessari ágætu
bók, sama sagan. en það vantaði í
hana allan tilfinningahitann, sorgírn-
ar, gleðina og átökin sem voru í
frásögn Unnar. Æ, já, við heyrum
ekki sögurnar hennar Unnar framar.
4.
Unnyr giftist árið 1936 sveitunga
sínum Jakob Tryggvasyni orgel-
leikara. Þau hófu búskap sinn í
Reykjavík en fluttu fil Akureyrar
árið 1941 með tvær litlar dætur
sínar, Nönnu og Soffíu. Á Akureyri
hafa þau hjón búið síðan fyrir utan
fyrstu árin eftir stríð þegar Jakob var
við námíLondon. Unnurogdæturn-
ar dvöldu þar með honum í eitt ár.
Það hlýtur að hafa verið undarlegt
fyrir þessa konu sem helst aldrei
vildi fara af bæ, að flytja f stríðs-
hrjáða stórborg. Um þremur árum
eftir heimkomuna bættist svo sonur-
inn Tryggvi í fjölskylduna. Það mun
svo hafa verið um 1959 sem þau
fluttu í húsið við Byggðavegitin,
húsið þar sem fjólurnar vaxa í möl-
inni við trqppurnar.
Starfi tónlistarmannsins fylgja
miklar fjarverur að heiman, vinna á
kvöldin og á helgidögum, óregluleg-
ur vinnutími og fleira sem oft þykir
óþægilegt fyrir venjulegt fjölskyídu-
líf. En aldrei heyrðist Unnur kvarta.
Þetta var hennar líf, aðrir máttu
haga sínu eins og þeir vildu. Á sama
hátt tók hún því þegar barnabörnin
vildu ekki borða kjötsúpuna sem
hún hafði verið að elda allan morg-
uninn. Þá hljóp hún suður í búð og
keypti handa þeim rjómaís, fór
kannski tvær ferðir ef tegundin var
ekki rétt. Gladdist ef börnin voru
ánægð. En einhvern veginn hafði
hún hæfileika til-að gera þetta án
þess að spilla þeim á eftirlæti. Af
sama æðruleysi tók hún því að eldast, að
vísu átti hún því láni að fagna að
vera hraust og falleg og f fullu starfi
fram á síðasta dag. Fyrir tveimur
árum vorum við í sumarbústaðnum
í Svarfaðardal. Við tvær gengum
saman út að athuga berjaútlitið. Það
var ekki fyrr en þá að hún rak sig á
það að hún gat ekki stokkið á mHIi
þúfnanna jafn léltilega og áður.
Henni fannst það ’Sprenghlægilegt,
settist á þúfu, sló sér á lær og sagði:
„Ja, ég er aldeilis orðin kerling," og
skellihló að öllu saman.'Hún hefði
orðið áttræð um næstu jól.
Ég er í húsi hennar núna. Hér
ríkir söknuður. Eftirlifandi eigin-
maður hennar hefur snögglega orðið
einn, eftir rúmlega hálfrar aldar
samveru við þessa merkilegu konu.
Börnin þeirra eru hér, við tengda-
börnin og bamabörnin sex. Hér
ríkir sorg en jafnframt einhver fegin-
leiki. Feginleiki vegna þess að hún
fékk að kveðja þennán heim án þess
að kveljast lengi, fékk að kveðja
ennan heim með manninn sinn og
ömin þrjú við dánarbeðinn.
Hlédrægni getur verið of mikil og
var það sannarlega í hennar tilfelli.
Ég sárvorkeQfli öllum sem ekki,
fengu notið hæfileika hennar. Þij
sækir á sú hugsun núna þegar hún er
hér ekki lengur; hvað ef Unnur
hefði hagað lífi sínu öðmvísi, hvað
ef hún hefði... Héfði þá verið til
kona sem talaði við flugur, færði
hröfnunum mat og var í senn vin-
kona og móðir tengdadóttur sinnar?
„Að rækta garðinn sinn“ hefur
löngum orðið skáldum og rithöfund-
um yrkisefni. „Den lilla varden“
segir Ingmar Bergman í stórri
kvikmynd. Við sem vorum svo lán-
söm að fá að umgangast Unni lifðum
með slíku listaverki. Megum við
bera gæfu til að muna hana sem
lengst og bera boðskap hennar
áfram.
Svanhildur Jóhannesdóttir.
Kristbjörg
Sveinbjarnardóttir
Fædd 13. ágúst 1903
Dáin 16. maí 1987
Þegar andiátsfregn berst streyma
minningarnar að. Eg minnist Krist-
bjargar með hlýju og þakklæti í
huga. Hún var vinamörg og hafði
gaman af að koma á meðal fólks.
Hannyrðakona mikil og nutu margir
góðs af því er hún vann í prjónavél
og í höndum. Þá hafði hún yndi af
allri ræktun átti ævinlega falleg blóm
og gat látið alla afleggjara lifa.,
Umhyggja hennar var mikil fyrir
afkomendum sínum og skyldfólki og
nutu barnabörnin hennar þess ekki
síst. Synir mínir nutu þess einnig í;
ríkum mæli, alltaf kom pakki um jól,
og aufúsugestur var Kristbjörg í
afmælum þeirra er þeir voru yngri og
hún átti heima á Laugarvatni. En
þar átti hún heimili hjá dóttur sinni
og tengdasyni um árabil.
Kristbjörg bjó síðari árin í
Reykjavík á Nönnugötu 7, þar var
gott að koma til hennar. Þeir sem
eru minni máttar áttu hauk í horni
þar sem hún var.
Ætíð ef ég hitti hana eða heyrði í
henni í síma spurði hún „hvað er að
frétta af drengjunum þínum?“ Þann-
ig var hún, fylgdist vel með velferð
annarra. Minningin um þessa trygg-
lyndu konu mun lifa með okkur sem
til hennar þekktum. Hafi hún þökk
fyrir það sem hún var mér og mínum.
Dætrum hennar og fjölskyldum
sendum við hlýjar kveðjur. Hvíli
hún í friði.
Elinborg Guðmundsdóttir,
Laugardalshólum.
i ferdalagíö
og fl.
EffCO-
þurrkan
Nýtt og ódýrL
Ef þú hefur einu sinni
reynt Effco-þurrkuna viltu
ekkert annað. Effco-
þurrkan er bæði mjúk og
sterk. I henni sameinast
kostir klúts og tvists, það
eykur notagildi Effco-
þurrkunnar. Effco-þurrk-
an sýgur í sig hvers konar
vætu á svipstundu. Effco-
þurrkan er ómissandi í
bílinn, bátinn, ferðalagið,
á vinnustaðinn og til
heimilisins.
i bílinn
í bátinn
á vinnustaftfW í
á heimiiiö
í sumarbústaoW
Effco-þurrkan
fæst hjá okkur.