Tíminn - 10.06.1987, Side 15
Miðvikudagur 10. júní 1987
.Tíminn 15
IIIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIISAMVINNUMÁL .. ..Illll. ... ... .. ..II.. .Illlll.. . .Illll. .. .....
Aðalfundur Sambandsins
Þaö sem kannski er helst frétt-
næmt frá aðalfundi Sambandsins
er að í rekstrarreikningi ársins
1986 voru lagðar til hliðar eitt
hundrað miljónir króna í afskriftir
af útistandandi skuldum. Tekið
var fram í reikningunum að hér sé
ekki um endanlega afskrift að
ræða, heldur niðurfærslu til að
mæta þeirri áhættu sem fylgir út-
lánum Sambandsins. Nemur þessi
niðurfærsla um 4,5% af útistand-
andi skammtímakröfum Sam-
bandsins, öðrum heldur en
skuldabréfum. Þar að auki voru
endanlega afskrifaðar skuldir færð-
ar meðal rekstrargjalda, en þær
námu 54 miljónum, og þar af voru
44 miljónir vegna Sambandsfélaga
sem tekin voru til gjaldþrotaskipta
eða fengu heimild til greiðslustöðv-
unar.
Á rekstrarreikningi kom fram
að hagnaður af reglulegri starfsemi
var 114 miljónir, og er það betri
útkoma en árið 1985 þegar hann
varð tæpar23 miljónir. Þegarfærð-
ir hafa verið óreglulegir liðir og
samrekstrarliðir, þar á meðal 100
miljón króna niðurfærslan á við-
skiptakröfum, er halli fyrir skatta
tæpar 22 miljónir. Síðan eru dregn-
ir frá eignarskattur og kirkjugarðs-
gjald að fjárhæð 18 miljónir, og er
þá niðurstöðutalan halli að upphæð
39,8 miljónir, samanborið við 3,1
miljónar króna hagnað árið 1985.
Fundarsetning
og kjörbréf
Valur Arnþórsson stjórnarfor-
maður Sambandsins setti 85. aðal-
fund þess að morgni fimmtudagsins
4. júlí. Hann minntist í upphafi
nokkurra látinna samvinnumanna,
og risu fundarmenn úr sætum til að
heiðra minningu þeirra. Síðan
gerði Böðvar Jónsson frá Gaut-
löndum grein fyrir störfum kjörb-
réfanefndar, og kom fram í máli
hans að 120 fulltrúar ættu rétt til
setu á fundinum, og af þeim hefðu
114 skilað kjörbréfum.
Fundarstjórar voru kosnir þeir
Páll Bergþórsson, Reykjavík, og
Ólafur Friðriksson, Sauðárkróki.
Ritarar voru kosin þau Þorsteinn
Jónatansson, Akureyri, Inga Val-
dís Tómasdóttir, Sauðárkróki, og
Gunnsteinn Karlsson, skjalavörð-
ur Sambandsins, sem færði til
bókar.
Skýrsla
stjórnarformanns
Valur Arnþórsson flutti síðan
skýrslu stjórnar og gerði ýtarlega
grein fyrir fundum hennar á liðnu
ári, ásamt þeim málum sem hún
hafði fjallað um. Fyrst skýrði hann
þó frá úthlutun styrkja úr Menn-
ingarsjóði Sambandsins, svo og
fjárfestingum þess á liðnu ári, en
þær námu samtals 263,8 milj ónum,
samanborið við 227 miljónir árið
áður.
Af öðrum málum, sem hann
ræddi sérstaklega, er að nefna
rekstur Búvörudeildar og samn-
inga við Félag sláturleyfishafa,
eignarhaldsfélag í sjávarútvegi,
þróun kaupleigu og stofnun félags-
ins Lindar hf. og fjölmiðlunarmál,
þar sem hann gat þess að Samband-
ið hefði tekið þátt í Samveri hf. og
útvarpsfélagi á Akureyri, ásamt
því að það væri þátttakandi í nýju
sjónvarpsfélagi á Austurlandi.
Einnig vék hann að breytingum á
Samvinnuskólanum, jafnréttismál-
um, mannabreytingum hjá Sam-
bandinu, sameiningu lífeyrissjóða
hjá samvinnuhreyfingunni og
fleiru. Þá skýrði hann frá því að
Kf. Skagfirðinga hefði keypt af
Sambandinu verksmiðjuna Ylrúnu
á Sauðárkróki, og einnig hefði Kf.
■nm—
Héraðsbúa keypt prjónastofuna
Dyngju á Egilsstöðum. Einnig
væru málefni saumastofunnar
Gefjunar í Reykjavík í athugun,
og sömuleiðis hefði Kexverksmiðj-
an Holt í Reykjavík verið seld.
f lok skýrslu sinnar ræddi Valur
rekstrarstöðu kaupfélaganna, m.a.
í kjölfar breytinga á verslunarhátt-
um og erfiðleika í landbúnaði, og
einnig vegna nýju búvöruiaganna
sem hann taldi óviðunandi fyrir
blönduðu félögin. Þau lög sagði
hann að byndu félögin í annan
endann að því er varðaði greiðslu-
skyldu til bænda, en leystu ekki
fjármögnunarvanda ef um um-
frambirgðir væri að ræða, líkt og
t.d. væru horfur á að yrði í haust
að því er varðaði nautgripakjöt.
í máli Vals kom einnig fram að
kaupfélögin standa mjög misjafn-
lega, en litlu félögin standa þó ýmis
höllum fæti og þola illa stjórnunar-
kostnað. Hann sagði hugsanlegt að
tímabært væri að draga upp og
ræða nýtt samvinnukort yfir lsland,
með öflugum svæðakaupfélögum,
sem hefðu burði til að bera kostnað
við yfirstjórn og til að þjóna félags-
mönnum sem best. Ljóst væri að
byggja þyrfti upp heildstætt skipu-
lag fyrir samvinnuhreyfinguna, svo
að hún gæti orðið enn styrkari í
framtíðinni heldur en nú er.
Skýrsla forstjóra
f skýrslu sinni rakti Guðjón B.
Ólafsson forstjóri fyrst ástand og
horfur í rekstri þjóðarbúsins og
helstu stærðir í þeim málum. Þá
greindi hann frá veltu Sambands-
ins, sem nam 15.470,9 miljónum
króna og jókst um 31,8%. Þar af
var útflutningur 8.449 miljónir og
jókst um 32,8%. Af heildarvelt-
unni voru 9.269 miljónir umboðs-
sala, og jókst hún um 32,2%. Þá
vék hann að afkomu Sambandsins,
og kom fram í máli hans að eigið
fé þess og sjóðir hækkuðu samtals
um 10% á árinu, úr2.373 miljónum
í 2.609 miljónir. Það kom m.a.
fram í skýrslu hans að Iðnaðardeild
og Skipadeild skiluðu hagnaði á
árinu, en hins vegar varð tap á
Verslunardeild, um 90 miljónir ef
hlutdeild hennar í sameiginlegum
kostnaði var tekin með.
Þá greindi forstjóri frá rekstri
kaupfélaganna á liðnu ári. Hjá
eim eru um 3.600 starfsmenn, og
eildarvelta þeirra árið 1986 varð
rúmlega 20 miljarðar og jókst um
22,7%. Hjá þeim urðu nú umtals-
verð umskipti í rekstri, eftir af-
komu ársins 1985 sem varð ein hin
lakasta í sögunni. Á síðasta ári
varð um 50 miljón króna hagnaður
af rekstri allra kaupfélaganna
samanlögðum. Eigið fé þeirra
samanlagt er rúmlega 4,1 miljarð-
ur, og eiginfjárhlutfall þeirra allra
erum29%. Fjárfestingarhjá kaup-
félögunum urðu 906 miljónir á
síðasta ári og jukust um meir en
400 miljónir.
Varðandi rekstrarafkomu Sam-
bandsins nefndi hann að tekju-
möguleikar þess hefðu verið rýrðir
verulega á síðustu árum. Samband-
ið hefði tekið á sig miklar skuld-
bindingar, oft til að styðja kaupfé-
lög og samvinnufyrirtæki úti um
landið, en athuga beri að á móti
slíku þurfi tekjuöflun. Hugmyndir
sínar kvað forstjóri stefna í þá átt
að dreifa beri ákvarðanatöku og
ábyrgð meir út um fyrirtækið en nú
er. Ymsar aðgerðir kvað hann í
gangi, svo sem að selja eða leggja
niður óarðbærar einingar. M.a. gat
hann þess að gamla vöruhúsið við
Geirsgötu hefði verið selt, og
sömuleiðis verksmiðjurnar Ylrún
og Dyngja. Þá væri unnið að úttekt
á vanda Verslunardeildar, og tekin
hefði verið upp ný stefna í tölvu-
málum, þannig að tölvuvinnslan
yrði sem mest færð út í deildirnar.
Líka væri unnið að nýju kostnaðar-
eftirliti hjá Skipadeild, og í gangi
væru viðræður við Álafoss um
samstarf í ullariðnaði. í heild þyrfti
að gera átak í Sambandinu til að
auka tekjur og lækka kostnað.
Ávarp fyrrverandi
forstjóra og umræður
Þá flutti Erlendur Einarsson
fyrrverandi forstjóri einnig ávarp á
fundinum. M.a. gat hann þess að
afkoma kaupfélaganna á síðasta
ári væri vonandi byrjun á varan-
legri uppsveiflu. Líka ræddi hann
hlutverk samvinnufélaganna í ís-
lensku efnahags- og þjóðlífi síð-
ustu árin, og einnig um björgunar-
hlutverk Sambandsins gagnvart
kaupfélögunum á sama tíma.
Töluvert miklar umræður urðu
síðan á fundinum um skýrslurnar,
þar sem menn komu víða við að
vanda. Meðal annars bar skipu-
lagsmálin töluvert á góma í þeim
umræðum, og kom fram sú hug-
mynd að e.t.v. ætti að boða til
sérstaks samvinnuþings um þau
mál.
Reikningarnir voru síðan sam-
þykktir einróma. Jafnframt því var
samþykkt að leggja tvær miljónir
króna í Menningarsjóð Sambands-
insog einamiljón íListasjóð þess.
Þá voru mál Samvinnulífeyris-
sjóðsins tekin til umræðu, en í
undirbúningi hefur verið að sam-
eina hann og Lífeyrissjóð verk-
smiðja Sambandsins á Akureyri.
Samþykkt var tillaga þess efnis að
sjóðurinn yrði framvegis sjálfstæð
stofnun undir eigin stjórn, sem í
eiga sæti fjórir menn, tveir kosnir
af aðalfundi Sambandsins og tveir
af þingi Landssambands ísl. sam-
vinnustarfsmanna. Einnig varsam-
þykkt þarna tillaga þess efnis að
báðir lífeyrissjóðirnir sameinist á
jafnréttisgrundvelli og án nokkurra
takmarkana eða skilyrða.
Jafnréttismál
Dagbjört Höskuldsdóttir flutti
þarna áfangaskýrslu um störf jafn-
réttisnefndar samvinnuhreyfingar-
innar síðasta ár. f nefndinni sitja
auk hennar Ásthildur Ólafsdóttir,
Magnús Guðjónsson og Jón Sig-
urðsson.
Hún nefndi sérstaklega hin svo
nefndu Kvennaframanámskeið,
sem haldin hafa verið víðs vegar
úti í kaupfélögunum og f Bifröst,
undir stjórn Sigrúnar Jóhannsdótt-
ur kennara við Samvinnuskólann.
Þessi námskeið eru skipulögð í
þremur áföngum og miðast að því
að auka kjark kvenna til að verða
virkir þátttakendur í félagsmála-
starfi samvinnufélaganna.
Þá var lausleg könnun á launa-
mun kynjanna í samvinnuhreyfing-
unni gerð á síðasta ári. Nefndin
hefur lagt á það áherslu að vönduð
könnun verði gerð á þessum
málum. Hefur það hlotið jákvæðar
undirtektir í stjórn Sambandsins
og hjá Vinnumálasambandi sam-
vinnufélaganna, og má vænta þess
að framundan sé að þessu verði
hrundið af stokkunum. Loks af-
henti hún fulltrúum nokkurra
kaupfélaga viðurkenningarskjöl
frá nefndinni fyrir frumkvæði og
dugnað við að stuðla að jafnrétti
kynjanna. Slík skjöl fengu KRON,
Kf. Borgfirðinga, Kf. V-Barð-
strendinga, Kf. Bitrufjarðar og Kf.
A-Skaftfellinga.
Málefni
samvinnustarfsmanna
Sérmál aðalfundar að þessu sinni
var málefni samvinnustarfsmanna,
og voru framsögumenn tveir.
Magnús Guðjónsson, sem verið
hefur annar tveggja fulltrúa
starfsmanna í stjórn Sambandsins,
ræddi málefni þeirra í ýtarlegri
yfirlitsræðu og lagði fram til kynn-
ingar hugmyndir að starfsmanna-
stefnu fyrirsamvinnufélögin. Voru
þær hugmyndir mjög ýtarlegar og í
tíu liðum. Jón Sigurðsson skóla-
stjóri í Bifröst ræddi fyrst og fremst
námskeiðahald skólans og aðra
fræðslu hans fyrir samvinnustarfs-
menn. Taldi hann að námskeiðin
þyrftu að ná til um 1500 manns á
ári, ef vel ætti að vera, sem væri um
tvöföldun frá því sem nú ér. Líka
taldi hann að þörf væri orðin á að
fara að halda sérstök námskeið
fyrir æðstu stjórnendur samvinnu-
hreyfingarinnar.
Undir þessum lið urðu aftur
miklar umræður þar sem menn
komu víða við. Af því, sem þar
kom fram, er sérstaklega að nefna
að fram kom tillaga þess efnis að
framvegis skyldu fulltrúar starfs-
manna í stjórnum kaupfélaga og
annarra samvinnufyrirtækja sitja
þar með fullum réttindum, þ.e.a.s.
með atkvæðisrétti. Núna er fyrir-
komulagið þannig að slíkir fulltrú-
ar sitja víðast hvar í þessum stjórn-
um með málfrelsi og tillögurétti,
en án atkvæðisréttar.
í ljós kom að um þetta voru
mjög skiptar skoðanir meðal fund-
armanna. Meðal annars kom það
fram í máli margra að eðlileg krafa
væri að starfsmenn ættu að vera
félagsmenn í félögunum sem þeir
ynnu fyrir, og sem slíkir hefðu þeir
jafnan rétt á við aðra til að beita
sér í félagsstarfinu. Líka var á það
bent að starfsmaður, sem væri
félagsmaður, gæti þar með verið
kominn með tvöfaldan rétt, sem
væri óeðliiegt. Slíkt gæti til dæmis
leitt það af sér að starfsmenn gætu
komist í þá aðstöðu að hafa meiri-
hluta í stjórnum, sem hæpið væri
að telja æskilegt.
Niðurstaðan varð sú að tillög-
unni um atkvæðisrétt starfsmanna-
fulltrúa var vísað til stjórnar Sam-
bandsins. Hins vegar var einróma
samþykkt önnur tillaga þar sem
fundurinn lýsti stuðningi við þær
hugmyndir um starfsmannastefnu
sem kynntar voru þar í framsögu-
ræðu. Samþykkti fundurinn ein-
róma að fela stjórn Sambandsins
að fullmóta þessa stefnu hið allra
fyrsta.
Önnur mál
Af cðrum málum, sem fram
komu á fundinum, má nefna tillögu
frá Kf. Hvammsfjarðar þess efnis
að sett yrði upp sérstakt tilrauna-
og þróunarsláturhús, og var henni
vísað til Búvörudeildar og haust-
fundar Félags sláturleyfishafa til
umfjöllunar. Tillögu frá KRON
um eflingu fræðslustarfs var vísað
til stjórnar Sambandsins. Þangað
var einnig vísað annarri merkri
tillögu, frá Kf. Austur-Skaftfell-
inga á Hornafirði, um stofnun
sérstaks húsaverndunarsjóðs, sem
hefði það að markmiði að styrkja
varðveislu gamalla og sögufrægra
húsa í eigu kaupfélaganna.
Að vanda var mikið ort á fundin-
um og fuku vísur þar óspart á milli
manna og úr ræðustól. Ein þeirra
var sú sem hér fylgir, höfundur er
Páll Bergþórsson:
Margir gera sér mikla von
um myndugleik forstjórans horska,
enda er hann Guðjón B. Ólafsson
æfður að fást við þorska.
Og var þetta aðeins ein af fjölda -
mörgum sem flugu þarna um borð.-
esig
Frá aðalfundi Sambandsins. Myndin er tekin á bak við háborðið, og sér aftan á þá Val Arnþórsson og Pál
Bergþórsson fram eftir fundarsalnum í Bifröst. (Ljósm. Knstján Pctur Guðnason.)