Tíminn - 10.06.1987, Qupperneq 16
16 Tíminn
Miðvikudagur 10. júní 1987
DAGBÓK
Fjölskylduferð í Þórsmörk
Framsóknarfélögin í Árnessýslu efna til skemmtiferðar í Þórsmörk
laugardaginn 20. júní n.k. Lagt verður af stað frá K.Á. kl. 9. Áætlaður
komutími kl. 20. Verð kr. 500 fyrir fullorðna og frítt fyrir börn.
Þátttakendur séu vel búnir og hafi með sér nesti. Þátttaka tilkynnist á
skrifstofu Þjóðólfs í síðasta lagi 16. júní í síma 1247 eða hjá Margréti
í síma 2182.
Allir velkomnir
Nefndin.
Jónsmessuferð framsóknarmanna á
Vestfjörðum 20.-21. júní 1987
Framsóknarmenn á Vestfjörðum ætla að hittast i Mjóafirði við
isafjarðardjúp (við Djúpmannabúð) þann 20. júní n.k. til útilegu og
fjölskyldumóts.
Formenn framsóknarfélaganna á hverjum stað svo og stjórnarmenn
kjördæmissambandsins gefa nánari upplýsingar.
Stjórnin
SUÐURLAND
Enn er í gangi fjáröflun vegna kosningabaráttunnar á vegum
kjördæmissambands Framsóknarfélaganna á Suðurlandi. Velunnar-
ar og stuðningsmenn sem vilja styrkja kosningasjóðinn geta lagt
peninga inná gíróreikning í hvaða banka sem er, reikningsnúmer og
banki er 2288 í Landsbankanum Hvolsvelli.
Þakkir eru sendar þeim fjölmörgu sem þegar hafa styrkt kosningabar-
áttuna.
Stjórnin
Suðurland
Skrifstofur Þjóðólfs og kjördæmissambands Framsóknarfélaganna í
Suðurlandskjördæmi Eyrarvegi 15, Selfossi eru opnar alla virka daga
frá kl. 9.00 til 12.00 og 14.00 til 16.00. Símar 99-1247 og 99-2547.
Lítið inn.
Staða
forstöðumanns
við sálfræðideild skóla er laus til umsóknar frá og
með 1. ágúst næstkomandi. Sálfræðimenntun
áskilin. Þjálfun og starfsreynsla við greiningu og
meðferð og jafnframt þekking á skólastarfi æski-
leg.
Einnig er laus staða sérfræðings (sálfræðings,
félagsráðgjafa, eða sérkennara) frá 1. sepiember
næstkomandi.
Umsóknir berist til Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur-
umdæmis Tjarnargötu 20, 101 Reykjavík fyrir 1.
júlí næstkomandi.
Upplýsingar í síma 621550.
Fræðslustjóri.
Til sölu
Góður vatnabátur með 4ra hestafla Chrysler
utanborðsmótor, verðhugmynd 30.000-35.000 kr.
Upplýsingar í síma 40736.
+
Innilegar þakkir færum við öllum sem sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför sonar míns, unnusta, föður og bróður
Viðars Ólafssonar Kjerúlfs
er lést 2. maí sl. Sérstakar þakkir færum við skipsfélögum hans og
forráðamönnum Tanga hf.
Sigurbjörg Ármannsdóttir
Ásdís Ásgeirsdóttir
Svandís Hlín Viðarsdóttir
Elmar Þór Viðarsson
Hreinn Ólafsson Kjerúlf
og aðrir aðstandendur
Hallgrímskirkja
- starf aldraðra
Á morgun, fimmtudag 11. júní, verður
farið í skemmtiferð í Þykkvabæinn undir
leiðsögn séra Auðar Eir Vilhjálmsdóttur.
Lagt verður af stað frá Hallgrímskirkju
kl. 10.30. Þátttakendurhafimeðsérnesti.
Einnig er fyrirhuguð fjögra daga ferð í
Húavatnssýslu 13.-16. júlí undir leiðsögn
séra Péturs Þ. Ingjaldssonar, fyrrverandi
prófasts í Húnavatnsprófastsdæmi.
Tilkynna þarf þátttöku í báðar þessar
ferðir hjá Dómhildi Jónsdóttur í síma
39965 en hún gefur nánari upplýsingar.
Fundaherferð
Flokks mannsins:
Við erum rétt að byrja.
Um þessar mundir stendur yfir funda-
herferð Flokks mannsins undir yfirskrift-
inni: Við erum rétt að byrja. Á morgun,
fimmtudag 11. júní, gengst flokkurinn
fyrir fundi í Gerðubergi, Breiðholti og
hefst fundurinn kl. 20. Aðalræðumaður
verður Pétur Guðjónsson, formaður
Flokks mannsins.
Fundurinn er opinn öllum þeim sem
áhuga hafa á að kynnast flokknum og
stefnumálum hans.
Kvenfélag Kópavogs
Farið verður í heimsókn austur í
Grtmsnes fimmtudaginn 11. júní í boði
Kvenfélags kvenna í Laugardal og Gríms-
nesi. Mætið við félagsheimilið kl. 18.45.
Þátttaka tilkynnist til einhverra stjórnar-
kvenna.
Sumarstarf KFUM og KFUK
Sumarstarf KFUM og KFUK er áð
hefjast. Stærsti þáttur sumarstarfsins eru
sumarbúðirnar, sem félögin reka fyrir
börn og unglinga í Vindáshlíð, Vatna-
skógi, Olveri, Kaldárseli og á Hólavatni.
Munu um 2000 börn dvelja í sumarbúðum.
félaganna í sumar.
Leikjanámskeið verða haldin í Reykja-
vík í sumar fyrir 7-9 ára börn. Þetta eru
hálfsmánaðarnámskeið með um 20 þátt-
takendum. Námskeiðin verða haldin í
júní og júlí í húsi KFUM og KFUK við
Holtaveg.
Þá verða leikjakvöld fyrir unglinga á
fimmtudagskvöldum. Opið húsverðurþá
við Holtaveg, en þar er góð aðstaða til
leikja. Einnig verður unglingamót um
verslunarmannahelgina í Vatnaskógi.
Auk barna- og unglingastarfsins eru
almennar samkomur á sunnudagskvöld-
um árið um kring.
Helgina 26.-28. júní verður haldið mót í
Vatnaskógi þar sem ungir og gamlir eru
saman. Mót þetta er öllum opið.
í sumar er ráðgert að byggja hús við
Suðurhóla og er vonast til að húsið verði
tilbúið til notkunar í haust svo KFUM og
KFUKgeti starfað í Fella- og Hólahverfi.
Sumarbúðir í Skálholti:
Síðastliðið sumar var gerð tilraun með
sumarbúðir í Skálholti, fyrir börn á
aldrinum 7-12 ára.
Dvöldu börnin í viku. Lögð var áhersla
á tónlist og myndlist ásamt útiveru og
náttúruskoðun, undir leiðsögn tón-
mennta og myndmenntakennara.
í lok námskeiðsins var haldin sýning á
verkum barnanna og sungu þau við messu
í Skálholtskirkju.
Tilraunin tókst mjög vel og er ætlunin
að halda tvö námskeið í sumar.
Fyrra námskeiðið vcrður 4.-9. ágúst,
seinna námskeið 10.-16. ágúst. Leiðbein-
endur verða Áslaug B. Ólafsdóttir,
Hjördís I. Ólafsdóttir og Halldór Vil-
helmsson.
Nánari upplýsingar gefnar í símum
13245 og 656122.
Samtök psoriasis og
exemsjúklinga
og gistiaðstaða við Bláa lónið
Samtök psoriasis og exemsjúklinga
hafa fengið gistiaðstöðu í verbúð Fiska-
ness hf., Grindavík, fyrir þá scm vilja
stunda Bláa lónið. Upplýsingar hjá Sig-
urgeir, sími 92-8280 og hjá Spoex, sími
25880.
Miðvikudag 10. júní kl. 20
Kvöldganga út í bláinn.
Létt ganga um forvitnilega gönguleið.
Ekki gefið upp fyrirfram hvert ferð er
heitið. Verð 400 kr. frítt f. börn m.
fullorðnum. Brottför frá BSÍ, bensínsölu.
Útivistarferðir:
Helgarferð í Þórsmörk.
12.-14. júni.
Gist í Útivistarskálanum góða í Básum.
gönguferðir við allra hæfi.
Vestmannaeyjaferð er frestað til 26. júní.
Dagsferðir í Þórsmörk hefjast sunnud.
14. júní.
Sumardvöl í Þorsmörk. T.d. miðvikud,-
sunnud. Verð f. fél. 3.050,- f. aðra 3.600.-
Brottför 17. og 24. júní o.s.frv. 50% afsl.
f. börn 7-15 ára og frítt fyrir yngra en 7
ára. Uppl. og farm. á skrifstofu, Grófinni
1, símar: 14606 og 23732.
. .v/xo> > ,■
'f
ÉIIÉPÍ
íýXý;/^v;;v.vX;!
'
’//. ,v
Skinfaxi
Tímarit UMFÍ
Út er komið 2. tölublað í 78. árg.
Skinfaxa, tímariti Ungmennafélags
íslands. Meðal efnis að þessu sinni er
viðtal við Eðvarð Þór Eðvarðsson,
sundmann í Ungmennafélagi Njarðvíkur.
Einnig er grein um Lottómál, eins og þau
snúa við eignaraðilum innan Ungmenna-
félags íslands, þ.e. héraðssamböndunum
og ungmennafélögunum um allt land. Þá
er einnig rætt við Vilhjálm Vilhjálmsson,
framkvæmdastjóra íslenskrar Getspár.
Hann segir m.a. í viðtalinu,, að nú sé
unnið að því að samtengja útsendingu
Lottóþáttarins í Sjónvarpinu við Rás 2
Ríkisútvarpsins fyrir sumarið.
I blaðinu er einnig grein um aðstöðu
hér á landi til iðkunar frjálsíþrótta, og
segir þar að sannast sagna sé aðstaðan
ekki beysin miðað við nágrannalöndin.
Jón L. Árnason stórmeistari skrifar
sinn fasta skákþátt í Skinfaxa. Nú segir
hann sögur og skýringar af IBM-skákmót-
inu sem haldið var hér síðla vetrar.
Nýr ritstjóri hefur tekið við störfum á
Skinfaxa. Fyrsta ritstjórnargrein hans
nefnir hann Sérstöðu Ungmennafélags
fslands og Skinfaxa.
FAXI
4. tbl. 47. árg.
Forsíðumyndin á þessu blaði FAXA er af
nýju baðaðstöðunni, sem Hitaveita
Suðurnesja hefur komið upp við Bláa
lónið. Frásögn af vígslu Flugstöðvar Leifs
Eiríkssonar er fremst í blaðinu og fylgja
greininni margar myndir. Þá er viðtal,
sem Már Óskarsson tók við Eric A.
MacVadon, aðmírál á Keflavíkurflug-
velli. Nefnist það „ísland er ævintýri
líkast“.
Sagt er frá minningabók um Helga S.
Jónsson, og frásögn er frá aðalfundi
Sparisjóðsins í Keflavík.
Minningargrein og ljóð er um Ólaf Orms-
sor. og einnig er minningargrein um
Sigurlaugu Guðmundsdóttur frá Núpi.
Frásögn er af Hótel Bláa lóninu og
myndir þaðan.
Forustugrein Faxa að þessu sinni er
eftir Guðfinn Sigurvinsson: Búum vel að
öldruðum. Þá skrifa þeir Eiríkur Alex-
andersson og Jón Böðvarsson um ferða-
mál á Suðurnesjum
Skúli Magnússon er með 21. hluta af
Sjóslysaannál Keflavíkur og frásögn er af
íslendingum í golfkeppni á Spáni.
Ritstjóri er Helgi Hólm, en málfundafé-
lagið Faxi er útgefandi blaðsins.
Iceland-Country and people
Komið er út ný og endurbætt útgáfa af
64 síðna litprentuðum bæklingi um land
og þjóð, sem nefnist Iceland-Country and
People. Bæklingurinn er á ensku, þýsku
og frönsku og gefinn út hjá Iceland
Review. Sigurður A. Magnússon er höf-
undur texta og sá um endurgerð bæklings-
ins.
Iceland-Country and People er hand-
hægt yfirlitsrit, með skýrum kaflaskipt-
ingum og ætti að koma öllum útlending-
um að góðu gagni hvort sem þeir vilja
leita upplýsinga um eldfjöll, gróðurfar,
iðnað, stjórnmál eða aðra af þeim 25
málaflokkum sem teknir eru til um-
fjöllunar í bæklingnum.
Bæklingurinn kostar 125 kr.
Sumaropnunartími
Borgarbókasafns
Frá 1. júní til 31. ágúst verða lítils
háttar breytingar á opnunartímum Borg-
arbókasafns. Aðalsafnið í Þingholtsstræti
og stóru útibúin þrjú, Bústaðsafn, Sól-
heimasafn og Borgarbókasafnið í Gerðu-
bergi, verða opin allt sumarið, en sam-
kvæmt venju skerðist starfsemi Hofsvalla-
safns og bókabílanna, og lestrarsal í
Þingholtsstræti 27 erlokað. Þessi skerðing
á starfsemi safnsins er þó minni en verið
hefur undan farin ár, þegar Bústaða- og >
Sólheimasafn voru einnig lokuð í 5-6
vikur.
Aðalsafnið og stóru útibúin verða í
sumar opin frá 9-21 á mánudögum,
þriðjudögum og fimmtudögum, en frá
9-19 á miðvikudögum og föstudögum, og
á laugardögum er lokað.
Hofsvallasafn verður lokað frá 1. júlí
til 17. ágúst, bókabílarnir verða ekki í
förum frá 6. júlí til 17. ágúst og lestrarsal-
urinn alveg lokaður eins og áður sagði.
Lánþegar Borgarbókasafns eru beðnir
að hafa í huga hinn stytta opnunartíma á
miðvikudögum og föstudögum til að kom-
ast hjá óþægindum.
Helstu vextir við banka og sparisjóði (% á ári)
1. júní 1987
(Ein * merkir breytingu vaxta frá siðustu skrá og þrjár *** vísa á banka
og/eða sparisjóði sem breyta vöxtum)
I. Vextir ákveðnir af bönkum og sparisjóðum
Lands- banki Útvegs- banki Búna&ar- banki Iðnaðar- banki Verslunar- banki Samvinnu- banki Alþý&u- banki Spari- Vegin sjó&ir me&altöl
Dagsetning siðustu breytingar 1/6 21/5 21/5 21/5 1/6 1/6 21/5 1/6
Innlánsvextir: Hlaupareikningar 6.00 . 4.00 4.00 6.00 4.00 4.00 5.00 4.00"' 4.90*
Ávisanareikningar 6.00 4.00 4.00 6.00 4.00 7.00 10.00 4.00"' 5.20*
Alm.sparisj.bækur 12.00 10.00 11.00 12.00 10.00 10.00 10.00 11.00"' 11.20*
Annað óbundlðspanfé,, 7-22.00 10-21.72 7-20.00 10-19.00 11-22.50* 10-16.00 3.50
7-22.00*
Uppsagnarr.,3mán. 13.00 14.00 11.00 13.50 15.00 14.00 12.00 12.70
Uppsagnarr.,6mán. 15.50 12.00 20.00 19.00 17.00 17.00 13.00 15.00
Uppsagnarr., 12mán. 14.00 17.00 19.00 25.50"" 15.00
Uppsagnarr., 18mán. 24.50" 22.00 24.00"" 23.80
Verðtr.reikn3mán. 2.00 2.00 2.00 2.00 2.00 2.00 1.50 1.90
Verðtr.reiknömán. 3.50 4.00 3.50 2.50 3.50 3.00 4.00 3.50 3.40
Ýmsirreikn.11 9.00 5-6.50"*
Sérstakarverðbætur 13.0* 12.00 12.00 9.00 12.00 10.00 12.00 11.0&24.6"* 13.50*
Innl.gjaldeyrisreikn.: Bandarikjadollar 6.00 5.50 6.00 6.50 5.50 5.50 5.75 6.00* 5.90*
Steriingspund 7.50 8.75 8.00 8.00 10.00 9.00 9.00 8.00* 8.10*
V-þýskmöik 2.50 3.00 3.00 2.75 3.50 3.50 3.50 3.00* 2.90
Danskarkrónur 9.00 9.50 9.25 9.25 9.00 9.50 9.50 9.50 9.20
Útlánsvextir: Vixlar (kxvextr) 22.00* 21.00 21.00" 23.50 23.00 23.00" 24.00 24.00" 22.30*
Hlaupareikningar 23.00* 21.50 22.50 25.00 24.00 24.00 25.00 25.00* 23.40*
þ.a.grunnvextir 10.00 10.00 10.00 11.00 12.00 12.00 12.00 12.00 10.70
Alm.skukJabfóf51 23.50* 21.5Æ2.071 23.00 24.50 24.00 24.00* 25.00 24/25.071 23.60*
þ.a.grunnvextir 10.00* 11.50 10.00 11.00 10.00 12.00* 12.00 12.00 10.70*
Verðtr.skbr.að2.5ár51 6.50 6.757.0'' 7.00 7.50 7.00 7.00 7.50 7.0/7.3"* 6.90*
VKð».stó».>2.5ársl 7.00 . M5n.o’) 7.00 7.50 7.00 7.00 7.50 7.0/7.3"' 7.00
Afurðaláníkrónum 21.00 20.00 20.00 20.00 20.00 18.50 24.00 21.10
Afurðalán í SDR 7.75 7.75 7.75 7.75* 8.00 8.25 7.90
Afurðalán i USD 9.00 8.75 9.00 9.00* 9.25 8.75 9.00
Afurðalán í GBD 10.25 11.50 10.50 10.50* 10.75 11.50 10.70
Afurðalán í DEM 5.25 5.50 5.25 5.25* 5.50 5.50 5.40
II. Vanskilavextif, ákveðnir af Seðlabanka: Frá 1. mars 1987 2.5% (2.21%) og frá 1. júni 1987 2.8% (33.6% á ári).
III. Meðatvextir 21.4.87 (geta gtlt í mai 87): Alm. skbr. 21.3% (9.5+11.8), vtr. lán að 2,5 ámrn 6.5% og minnst 2.5 ár 6.6%. Meðalvexbr 21.5.87 (geta gðt í
júni 87): Alm. skbr. 22.9% (10.2+12.7), vtr. lán að 2.5 ánirn 6.8% og minnst 2.5 ár 7.0%.
1) Sjá meðfylgjandi lýsingu. 2) Aðeins hjá Sp. Vélstj 3) Aðeins hjá SPR0N, Sp. Kóp., Hafnarfj., Mýras., Akureyrar, ólafsfj, Svarfd., Sigfufj., Norðfj., i Kefl..
Arskógsstr. & Eyrar. 4) Viðsk.vixlar keyptir m.v. 24.0% vexti hjá Bún.banka 25.0% hjá Samv.banka og 26.0% hjá nokkmm sparisj. 5) Vaxtaálag á skuldabréf
til uppgjörs vanskilalána er 2% á ári, Verzl.b. beitir þessu ekki. 6) Aðeins hjá Sp. Bol., Reykdasla og Akureyrar. 7) Lœgri vextimir gilda ef um fasteignaveð
er að ræða. 8) Lægri talan er vegna innlána. 9) Undant. er Sp. í Keflavik: Tókkareikn. 3%. alm. sparibók og sérst. verðbætur 10%.