Tíminn - 17.07.1987, Qupperneq 3

Tíminn - 17.07.1987, Qupperneq 3
Föstudagur 17. júlí 1987 Tíminn 3 Stórólfsvellir lagðir undir ánamaðka í stað graskögglaverksmiðju: Ánamaðkaátvögl notuð í áburðarframleiðslu Fyrirhugað er að flytja inn ána- maðka af ákveðinni tegund til áburðarframleiðslu. Einhverjum kann að finnast hugmyndin fárán- leg og detta í hug ánamaðkatínsla í rigningu en hugmyndin er allt önnur og stórvirkari. Stórólfsvallabúið hefur hingað til verið notað undir grasköggla- framleiðslu en engin framleiðsla er þar lengur á graskögglum. Tveir athafnamenn hafa fengið leyfi til að nota hráefni á landi Stórólfs- valla í þróunarverkefni sem felst í því að nota fóður fyrir ánamaðka sem umbreyta því síðan í lífrænan áburð. Ánamaðkarnir eru settir í afmarkaða hauggarða sem þeir eru látnir éta sig í gegnum og skila síðan áburði af sér. Áburðinn má nota á hvað sem er, kemur í staðinn fyrir tilbúinn áburð og er t.d. talinn sérlega góður til garð- yrkjubúskapar. Hann er lyktarlaus og miklir möguleikar á að fá hann mengunarlausan hér á landi því lítið er um mengun hérlendis. Áburður af þessu tagi er seldur dýru verði erlendis, enda geta bændur þar selt afurðir sínar dýr- ara verði noti þeir lífrænan áburð. Ánamaðkarnir sem fyrirhugað er að flytja inn eru hollenskir, heita á latnesku „eisenia", eru ekki stærri en venjulegir íslenskir en miklu afkastameiri. Jafnvel er talið að hægt sé að nota ákveðna tegund af íslenskum ánamaðki til áburðar- gerðar en það yrði annað þróunar- verkefni. Á íslandi eru til á annan tug tegunda ánamaðka. Þeir sem standa að þessu þróun- arverkefni eru Stefán Gunnarsson garðyrkjubóndi í Dyrhólum og Ragnar Kristjánsson svepparækt- andi á Flúðum. Þeir vildu sem minnst láta hafa eftir sér því þeir ætluðu sér að fara hægt af stað og sjá hvað kæmi út úr þessu áður en þeir úttöluðu sig um hvaða mögu- leika þetta gæti gefið. Langan tíma hefur tekið að fá umsagnir og leyfi ýmissa aðila áður en starfsemin hefst en nú er ákveð- ið að veita þeim aðstöðu til verk- efnisins á Stórólfsvallabúinu~ og yfirdýralæknir hefur gefið leyfi fyr- ir innflutningi ánamaðkanna. Einnig hefur Rala, Hollustu- vernd ríkisins, Náttúruverndarráð landbúnaðarráðuneytið og fleiri fjallað um hvort um sýkingarhættu væri að ræða af ánamöðkunum en niðurstaðan er sú að óhætt sé að flytja þetta inn með ákveðnum skilyrðum, svo sem að ánamaðk- arnir fullnægði heilbrigðiskröfum og slíkt. Ekki er ljóst hvort starf- semin getur hafist af alvöru fyrr en næsta vor vegna þess hve langan tíma hefur tekið að fá leyfi og annað sem tilheyrir. Ekki er langt síðan farið var að nota svona áburð erlendis og áfram er verið að þróa þessa áburðar- framleiðslu erlendis. Hollending- ar, ítalir og Bandaríkjamenn hafa einkum þróað þetta. Ánamaðkar þessir geta um- breytt öllum mögulegum úrgangi í áburð, svo sem fjóshaugum, grasi, úrgangi úr gróðurhúsum og hálmi sé úrgangurinn rétt samsettur. Jafnvel er hægt að láta þá éta sorp sem hefur verið hitað og brotið niður að ákveðnu marki áður. í Danmörku hefur það t.d. verið athugað hvort hægt sé að sortera sorp og láta ánamaðka éta þann hluta sem getur brotnað niður ásamt öðru ánamaðkafæði til þess að búa til áburð. Tvö tonn af ánamaðki komast fyrir á um hundrað fermetrum lands Þessi tvö tonn af ánamöðkum geta búið til allt að 50 tonnum af áburði á ári svo það er gífurlegt magn sem fer í gegnum hvern ánamaðk á ári auk þess sem þeim fjölgar gífurlega á ári hverju. En það er ekki aðeins áburður- inn sem ánamaðkarnir búa til sem hægt er að nýta. Sérfræðingur í fóðurfræðum sem Tíminn hafði samband við sagði að ánamaðkarn- ir fjölguðu sér gífurlega og ána- maðkarnir sjálfir væru notaðir t.d. sem fiskeldisfóður, þurrkaðir og notaðir sem próteingjafi í kjarn- fóður og fleira. Háskólar í Dan- mörku og fleiri rannsóknaraðilar hafa m.a. kannað möguleika á því hvernig nota má ánamaðka. M.a. er skoðað hvernig hægt er að nota hann í Iíftækniiðnaði og er hann t.d. notaður í lyf gegn ákveðnum magasjúkdómum. Ekki er þar með öll sagan sögð því ánamaðkana ku einnig mega nota til þess að hreinsa jarðveg sem hefur orðið fyrir þung- málmsmengun á ákveðnum svæðum. Þungmálmurinn sest til í ánamaðkinum og maðkurinn sjálf- ur verður þá bráðeitraður en auð- veldara er að safna saman úrgangi á þennan hátt. ABS Guðrún Guðmundsdóttir og Guðmundur R. Jóhannsson taka við verðlaunum fyrir lóðina að Austurtúni 2 á Hólmavík. (Tímyniynd siefan Gíduon) Hólmavík: Góð umgengni verðlaunuð Frá Stefáni Gíslasyni á Hólmavík: Síðastliðinn sunnudag hlutu 5 að- ilar á Hólmavík verðlaun fyrir góða umgengni. Verðlaunaveitingin teng- ist fyrirhugaðri útihátíð í Skeljavík um verslunarmannahelgina, en að- standendur hátíðarinnar skipuðu sérstaka nefnd til að velja verðlauna- hafana. Veitt voru þrenns konar verðlaun: f fyrsta lagi hlutu þrjár fegurstu lóðir staðarins viðurkenningu, í öðru lagi voru veitt verðlaun fyrir snyrtileg- ustu umgengni við fyrirtæki og í þriðja lagi fyrir óvæntustu framfarir í fegrun umhverfisins. Verðlaunaveitingin hófst kl. 13.30 í fegursta veðri, sólskini og 16 stiga hita. Athöfnin fór þannig fram, að nefndarmenn óku um bæinn, heim- sóttu verðlaunahafana hvern af öðr- um og afhentu þeim sérstök skilti til uppsetningar utandyra. Verðlauna- hafarnir 5 voru þessir: Fegurstu lóðir: Lóð Guðrúnar Guðmundsdóttur og Guðmundar R. Jóhannssonar Austurtúni 2, lóð SteinunnarGuðbrandsdóttur og Hans Magnússonar Borgabraut 1 og lóð Þorbjargar Stefánsdóttur og Unnars Ragnarssonar Borgabraut 2. Best umgengni við fyrirtæki: Vél- smiðjan Vík hf. Hafnarbraut 14. Óvæntustu framfarir í fegrun um- hverfisins: Svæðið umhverfis Pool- stofuna á homi Hafnarbrautar og Kópnesbrautar. Nokkrum vikum áður en verð- launin voru veitt, var tilkynnt hvaða dag fegmnarnefndin ætti að skila áliti. Þetta hafði greinilega jákvæð áhrif á framtakssemi fólks, og er óhætt að segja að víða hafi verið unnin stórvirki í görðum Hólmvík- inga síðustu vikur, enda veður yfir- leitt með afbrigðum gott til slíkra verka. Björk Jóhannsdóttir á Hólmavík teiknaði verðlaunaskiltin eftirsóttu, en þau voru síðan framleidd hjá skiltagerðinni Útlit í Reykjavík. Kostnaður við fyrirtækið var greidd- ur af tveim einstaklingum sem ekki vildu láta nafna sinna getið. Vaxtahækkun hjá Lands* bankanum Nokkur ónákvæmni kom fram í viðtali Tímans við Brynjólf Helga- son forstöðumann markaðssviðs Landsbankans sl. þriðjudag. Vaxta- breyting átti sér stað hjá Landsbank- anum 11. júlí sl. Þá hækkuðu vextir á innlánum að meðaltali um 2,7%. Útlánavextir hækkuðu hins vegar að meðaltalium3,75%. Engarhækkan- ir urðu á vöxtum afurðalána. En bankar hafa leyfi til að hækka vexti þann L, 11. og22. dag hvers mánað- ar. ÞÆÓ Jóná hjólinu á Lækjar- torgi Jón Kristinsson sem hefur ver- ið að hjóla frá Akureyri til Reykjavíkur í þeim tilgangi að safna fé til byggingar hjúkrunar- heimilis fyrir aldraða á Akureyri, Sel II mun koma til Reykjavíkur og verða við Elliðaárnar kl. 15:30 í dag. Hjólreiðarmenn bæði ungir og eldri eru hvattir til þess að taka á móti honum þar og hjóla með honum síðasta spölinn niður á Lækjartorg. Lögreglan mun greiða götu hjólreiðarmanna frá Elliðaánum. Á Lækjartorgi mun Davíð Oddsson borgarstjóri eða staðgengill hans veita viðtöku minningargrip um þessa för Jóns til varðveislu og verður það kl. 16.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.