Tíminn - 17.07.1987, Síða 5
Föstudagur 17. júlí 1987
|Tíminn 5
Flugmaður slapp vel er
landgræðsluvél hrapaði
Landgræðsluvélinni TF-TUN
hlekktist á í flugtaki í gær. Flug-
maður vélarinnar var ekki í lífs-
hættu, en talsvert meiddur í baki
og lá á gjörgæsludeild Borgarspít-
alans í gær og nótt.
Vélin var að taka sig á loft,
drekkhlaðin af áburði, í grennd við
Þórólfsvelli í Fljótshlíð í Rangár-
vallasýslu rétt eftir hádegi í gær.
Veður var ágætt, örlítil súld, lág-
skýjað og hægur vindur. Vélin var
að taka sig á loft til austurs, eftir
sérstakri flugbraut Landgræðsl-
unnar. Þar sem flugbrautinni
sleppir taka við Markarfljótsaurar.
Vélin brotlenti á aurunum skammt
frá fljótinu.
Héraðslæknirinn á Hvolsvelli
lagði af stað um leið og tilkynning
barst um slysið, ásamt sjúkrabif-
reið. Þyrla Landhelgisgæslunnar
var að vinna við verkefni í Surtsey,
þegar beðið var um aðstoð þeirra.
Vitandi af lækni á leið á slysstað
var haldið beint á vettvang, í stað
þess að sækja lækni af Borgarspít-
alanum. Sparaðist þar dágóður
tími. Þegar þyrlan var komin á
staðinn var læknirinn mættur og
starfsmenn landgræðslunnar höfðu
aðstoðað lækninn við að losa flug-
manninn úr flaki vélarinnar.
Reyndist hann vera með rænu og
ekki jafn slasaður og menn höfðu
óttast fyrst í stað. Þyrlan flaug með
hann í snarhasti til Reykjavíkur
þar sem hann var lagður inn á
Borgarspítalann til aðhlynningar.
Samkvæmt upplýsingum sem Tím-
inn fékk á Borgarspítalanum
reyndist maðurinn mikið meiddur
á baki og greindist við röntgen-
myndatöku sprunga í hryggjarlið.
Læknar sögðu þó ekki ástæðu til að
óttast, hann ætti að ná sér fullkom-
lega.
Vélin sem er af gerðinni Piper
Brave með einn hreyfil er talin
ónýt. Nef vélarinnar rifnaði af í
brotlendingunni og áburðurinn
sáldraðist um kring.
Flugslysanefnd og Loftferðaeft-
irlit komu á slysstað seinnipartinn
mM
TF-TÚN milli sérstakrar flugbrautar Landgræðslunnar og Markarfljóts
eftir brotlendinguna. Búið er að færa flugmanninn burt en lögreglan á
Hvolsvelli er mætt á staðinn, svo og Björgunarsveitin.
í gær og tóku þegar til við að kanna
aðstæður.
Flugtak er talinn áhættusamasti
þáttur Landgræðsluflugsins, þar
Flugmaðurinn færður slasaður
með þyrlu Landhelgisgæslunnar til
Borgarspítalans i gær.
(Tíminn: Pjetur)
sem vélarnar eru hlaðnar til hins
ýtrasta og lítið má útaf bera svo
ekki hljótist slys af.
Flugmaðurinn sem slapp svo
mildilega er reyndur og hefur yfir
tíu ára starfsreynslu á sviði flugs.
Hann er flugmaður Landgræðslu
ríkisins og hefur verið um nokkurt
skeið.
ES/þj
Jakob Magnússon stuðmaöur um Húsafellsmálið:
w
Kokhraustir
aðkomubelgir
Fyrirhugað Húsafellsmót um
næstu verslunarmannahelgi verður
haldið þrátt fyrir hörð mótmæli og
staðhæfingar Félags orlofshúsaeig-
enda að Húsafelli, í garð aðstand-
enda mótsins.
Eins og fram hefur komið standa
yfir deilur milli Félags orlofshúsaeig-
enda annars vegar og Ungmenna-
sambands Borgarfjarðar hins vegar
vegna útihátíðar sem halda á, í
Húsafelli helgina 1.-3. ágúst nk.. í
erindi sem Félag orlofshúsaeigenda
hélt á fundi U.M.S.B. í júní sl. var
félagið mjög harðort í garð Ung-
mennasambandsins, meðal annars
vegna móts sem þeir áttu að hafa
haldið um verslunarmannahelgina
1983 og skemmda sem þar voru
unnar. Við nánari eftirgrennslan
kom hins vegar í ljós að U.M.S.B.
hélt ekki umrætt mót svo ummæli
Félags orlofshúsaeigenda voru
hreinn uppspuni sem áttu ekki við
nein rök að styðjast. Jakob Magnús-
son forsvarsmaður Stuðmanna sagði
í samtali við blaðamann að kok-
hraustir aðkomubelgir myndu ekki
koma í veg fyrir að mótið yrði
haldið. Málið væri fyrst og fremst
komið til af því að Félagi orlofshúsa-
eigenda hefði sárnað þar sem ekki
hefði verið haft samráð við félagið
um framkvæmd mótsins. Við berum
fullt traust til Ungmennasambands
Borgarfjarðar og Björgunarsveitar-
innar til að annast þann undirbúning
og þá gæslu og aðhlynningu sem
nauðsynleg er á meðan á mótinu
stendur. Staðhæfingar orlofshúsa-
eigenda eru í senn hrokafullar, yfird-
rifnar og út í hött sagði Jakob að
lokum.
Um næstu verslunarmannahelgi
munU.M.S.B.hafa veg og vanda að
útihátíðarhaldi í Húsafellsskógi og
stendur nú yfir gríðarlegur undir-
búningur vegna þess. Vinsælustu
skemmtikraftar landsins munu koma
þar fram. Sex björgunarsveitir munu
gæta svæðisins, þjónustumiðstöð
verður opin, fullkomin hreinlæti-
saðstaða, vatn, rafmagn og læknar á
vakt allan sólarhringinn. Allt ætti
því að geta farið vel fram og fólk
mun væntanlega skemmta sér prýði-
lega. IDS
lllllllllllllllllllllllllll VEIDIHORNID-
Hðrkuveiði
i Norðurá
Það var ekki að sökum að spyrja,
þegar loksins rigndi af viti í
Norðurá, að góð taka var. Síðasta
holl sem kláraði f ánni fékk 22 laxa
fyrir hádegi. Með þessari ágætu
veiði eru komnir á land um 600
laxar úr ánni og virðist sem hún sé
heldur að rétta úr kútnum eftir
nokkrar kreppur. Best hafa gefið
Kálfhylur og Myrkhylur. Þá hefur
allt svæðið milli fossa verið gjöfult
síðustu daga.
Voru menn farnir að blóta
veðurguðum ótæpilega vegna
þurrka en sú tíð er liðin í bili. Tvö
síðustu holl í Norðurá hafa fengið
ágætisveiði og líkur benda til þess
að sú veiði haldist áfram.
Líf í Stóru-Laxá
Fréttir bárust úr Stóru-Laxá,
ekki alls fyrir löngu um líf í ánni.
Var það líf á fjórða svæði, án þess
að veiðimenn yrðu þess aðnjótandi
á neðri svæðum að sjá þann silfr-
aða. Er það mál manna að þessir
fiskar hafi á einhvern dularfullan
hátt komist óséðir upp ána.
Henti stönginni
Veiði í Vatnsá, sem fellur í
Kerlingadalsá, rétt við Vík hefur
gengið ágætlega. Af einum fréttum
við sem lenti í mikilli lífsreynslu.
Veiðimaðurinn er þrettán ára.
Hann renndi í einn hylinn og fiskur
tók um leið. Vinurinn varð hálf
skelkaður vegna þess hversu stöng-
in bognaði og lagði hana frá sér og
dró fiskinn inn með höndunum, og
viti menn tólf punda fiskur kom á
land.