Tíminn - 17.07.1987, Síða 6

Tíminn - 17.07.1987, Síða 6
6 Tíminn Föstudagur 17. júlí 1987 y Ólympíuleikar í eðlisfræöi: Islensku strákarnir stóðu sig með prýði Olympíuleikunun í eðlisfræöi sem fram fóru í Jena í A- Þýskalandi er nú lokið og keppendur fyrir íslands hönd, þeir Sigurjón Þór Kristjáns- son,Hjörtur Jónsson og Gunnar Guðnason komu heim sl. þriðjudag ásamt fararstjórum sínum og leið- beinendum, þeim Einari Júlíussyni og Viðari Ágústssyni. Ferðin gekk að öllu leyti mjög vel og strákarnir stóðu sig með prýði, að sögn Einars Júlíussonar. Keppnin hófst að morgni 6. júlí og lauk viku síðar. Tekin voru tvö próf, annars vegar fræðilegt og hins vegar ■verklegt. Hvort próf fyrir sig tók fimm klst. og voru því lengstu og jafnframt erfiðustu próf sem ís- lensku keppendurnir hafa þurft að glíma við. 30 prófdómarar fóru yfir prófin sem að því loknu voru fengin íslensku leiðbeinendunum í hendur og niðurstöður lágu fyrir nokkrum dögum eftir hvort próf. Keppendur voru 121 að tölu, frá 21 þjóð. Rúmenar báru sigur úr býtum í keppninni, V- Þjóðverjar voru í öðru sæti og Kínverjar í því þriðja. íslendingar voru í 16. sæti af 21, sem er mikil framför frá því síðast er íslendingar máttu verma neðsta sæti. Einn íslenskur keppandi Gunnar Guðnason fékk viðurkenningu fyrir góða frammistöðu. Einar Júlíusson fararstjóri keppendanna sagði að ekki væri hægt að bera íslenska keppendur saman við keppendur annarra þjóða þar sem tiltölulega lítil eðlisfræði væri kennd í íslensk- um framhaldsskólum. Margar þjóðir væru búnar að læra eðlisfræði í sex ár þegar við værum búin að læra hana í tvö ár, auk þess sem keppend- ur annarra þjóða hefðu sumir oft tekið þátt í slíkum keppnum áður. -IDS Reykhólasveit: Bjarkarlundur 40 ára Um þessar mundir eru 40 ár liðin frá því að Hótel Bjarkarlundur í Reykhólasveit tók til starfa. Húsið var vígt meðathöfn29. júní 1947. Pað var Barðstrendingafélagið í Reykjavík,sem byggði hótelið á árunum 1945 til 1947. Tildrög þess að átthagafélag tókst þetta verkefni á hendur voru til mæli frá mönnum tengdum samgöngumálum um að félagið leysti þarna úr vanda, er skapast hafði í A-Barðastrandarsýslu. Stjórn Barðstrendingafélagsins tók þá ákvörðun að verða við þessum tilmælum og undir forystu formannsins, Helga H. Eiríkssonar var hafist handa vorið 1945. SUMARFERÐ '87 FRESTUN! Sumarferð Framsóknarfélaganna í Reykjavík verður frestað um a.m.k. viku vegna ófærðar. Þeir sem hafa látið skrá sig í ferðina vinsamlegast hafi samband við Eirík í síma 91-24480. í ij FRAMSOKNARFELOGIN ÍREYKJAVÍK Hótel Örk FAGNAR ÁRS AFMÆLIMEÐ ÝMSUM NÝJUNGUM Heimsmeistaramót unglinga í skák: Tveir keppendur að þessu sinni Heimsmeistaramót unglinga í skák fyrir 20 ára og yngri, hefst í Manila á Filipseyjum um næstu helgi,þann 20.júlí og lýkur 2. ágúst. Að þessu sinni eiga íslend- ingar rétt á þátttöku fyrir 2 kepp- endur, þar sem Hannes Hlífar Stefánsson, heimsmeistari sveina í skák, öðlaðist persónulegan rétt, með hinum glæsilega sigri sínum fyrr í sumar. Auk hans keppir Þröstur Þórhallsson fyrir íslands hönd en þeim til halds og trausts verður Guðmundur Sigurjónsson, stórmeistari. VISA ísland greiðir ferðakostnað þeirra félaga, sem leggja í hann föstudaginn 17. júlí. IDS Filipseyjafaramir Guðmundur Sigurjónsson, Þröstur Þórhallsson og Hannes Hlífar Stefánsson. Um þessar mundir fagnar Hótel Örk í Hveragerði eins árs afmæli sínu. í tilefni af því hefur verið ákveðið að brydda upp á ýmsum nýjungum í starfseminni og að sögn Helga þórs Jónssonar er hugmyndin sú að höfða meira til heilsuræktar í þjónustu og matargerð. Hveragerði er að mörgu leyti kjörinn staður til slíks, en á Örk hafa nú verið tekin í notkun leirböð, en leirinn er tekinn úr hverunum ofan við kaupstaðinn. Með leirbaðinu er hægt að fara í nudd hjá sjúkraþjálfara, sund og ljós. Þykir þessi leirpakki gífurlega endurnærandi. Þá er stutt að suðurströndinni frá Hveragerði og þetta hefur hótelið nýtt sér og býður nú gestum upp á 6 klukkutíma sjóstangaveiðitúra. Far- ið er á bíl hótelsins til Þorlákshafnar þar sem rúmlega 6 tonna hraðbátur stímar með gesti á örugg ufsamið og ef veður leyfir fengsæl lúðumið. Boðið er upp á nesti og leiðsögu- mann. Blaðamaður sannreyndi fyrir nokkru að mikil átök geta verið fyrir óvanan líkama að draga ufsann og hugsanlega væri þá gott að fara í Ieirbaðið eftir á. Hveragerði er löngu landskunnur gróðurhúsabær og þar er mikið rækt- að af grænmeti, bæði algengu og sjaldséðu. Björn Erlendsson yfir- matreiðslumaður Arkarinnar hefur nú búið til sérstakan matseðil þar sem þessi sérstaða er nýtt. Á þeim matseðli má finna eitt og annað við hæfi bæði þeirra sem vilja passa línurnar eða bara þeirra sem vilja grænmetis- eða fiskrétti úr vötnum, ám, eða fiskeldisstöðvm í nágrenni bæjarins. Við látum hér fljóta með (megrandi) uppskrift af matseðli Björns Erlendssonar yfirmatreiðslu- manns Hótels Arkar en það er “Ofnbakað eggaldin með tómötum og osti“, eða fyrir þá sem vilja flottara nafn, „Eggplant Marinara parmesian“ Eggaldin olífuolía egg mjólk, salt, pipar hveiti 1. Eggaldinið er skrælt og skorið í sneiðar u.þ.b. 5-6 mm þykkar. Þá eru eggin pískuð, krydduð með salti og pipar og aðeins af mjólk bætt út í. Sneiðarnar eru síðan settar í hveiti og svo dýft í eggjahræruna, steiktar á pönnu þar til þær eru ljósbrúnar, síðan fært upp úr og lagt á stykki og olían látin renna vel af. 2. Marinara sósan er sett í skál eða eldfast fat og svo er eggaldininu raðað ofan á. Síðan smá sósa og endað með að þekja allt með þykkri ostsneið og parmesian osti sem einn- ig er stráð létt á milli laga. Saxaðri steinselju stráð ofan á þegar borið er fram.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.