Tíminn - 17.07.1987, Qupperneq 10

Tíminn - 17.07.1987, Qupperneq 10
10 Tímínn Föstudagur 17. júlí 1987 ÍÞRÓTTIR Frjálsar íþróttir: Said Aouita með besta heimstímann í 2000 m - Óvænt tap Reynolds í 400 m Heimsleikar stúdenta: Einar ekki einn af átta fyrstu Reuter Einar Vilhjálmsson var ekki meðal átta fyrstu manna í úrslita- keppni spjótkastsins á Heimsieik- um stúdenta í Zagreb í Júgóslaviu í gær. Ekki tókst að fá upplýsingar um árangur Einars eða hvar hann hefði verið í röðinni en hans var ekki getið á fréttaskeytum Reut- ers. Einar kastaði rúma 72 m i eina kasti sínu í úrslitakeppninni I fyrra- kvöld, fyrirfram var ákveðið að 70 m dygðu í úrslifin og því var Einar ekki að eyða púðri í fleiri köst. Áttundi maður I gærkvöldi kastaði 74,06 m og kemur satt að segja mjög á óvart að Einar skuli ekki vcra ofan við það. Einar kastaði sem kunnugt er 82,96 m og setti Norðurlandamet um síðustu helgi. Það var Sovctmaðurinn Marek Kaleta sem sigraði í spjótkast- keppninni í gærkvöldi en úrsiit urðu nánar til tekið þessi á Heims- leikum stúdenta: m 1. Marek Kaleta (Sovót.).81,42 2. Sojad Krdzalic (Júgúslavíu) .... 80,26 3. Vokler Hadwich (A-Þýskal.) .... 78,82 4. Nicu Roata (Rúmeníu).77,82 Evrópukeppni drengjalandsliða í knattspyrnu: Landsliðið valið 5. Peter Blank (V-Þýskal.)............74,72 6. Fabio De Gaspari (ítaliu) .........74,46 7. Jyrki Blom (Finnlandi)..............74,16 8. Brian Crouser (Bandaríkj.)........74,06 Árangurinn í spjótkastkeppn- inni er siakur hvemig sem á því stendur en ekki var minnst á annað í fréttaskeytum Reuters en að veð- ur hefði verið hið ágætasta. -HÁ Einar Vilhjálmsson, ekki einn af átta fyrstu í spjótkasti á Heimsleik- um stúdenta í Zagreb i Júgóslavíu. met í kraft- lyftingum Níu íslandsmet féllu á sýninga- móti ■ kraftiyftingum sem haldið var í tengslum við landsmót UMFI á Húsavík um síðustu helgi. Unnur Sigurjónsdóttir lyfti 100 kg í hnébeygju sem er met í 56 kg flokki, Már Óskarsson setti ís- landsmet unglinga í 75 kg flokki (212,5 kg) og Óskar Sigurpálsson setti fjögur met í 100 kg flokki öldunga, 300 kg í hnébeygju, 137,5 kg í bekkpressu, 310 kg i réttstöðulyftu og 747,5 kg saman- lagt. Hörður Magnússon setti ís- landsmet í hnébeygju og saman- lögðu I 110 kg flokki, 355 kg í hnébeygju og 872,5 kg saman- lagt. Þá bætti Halldór Sigur- bjömsson nýlegt met Magnúsar Vers Magnússonar í hnébeygiu, lyfti 366 kg. Mótið var haldið utanhúss og vakti töluverða athygli. Dómarinn hafði rangt fyrir sér Forráðamenn sovéska knatt- spyrnuliðsins Spartak Moskvu hafa boðist til að ieikur liðsins gegn Dnépr Dnépropetrovsk í sovésku 1. deildinni verði endur- tekinn. Leiknum lauk með 2-2 jafntefli en eftir að hafa horft á leikinn á myndbandi voru for- ráðamenn Spartak þess fullvissir að dómarinn hefði gefið þeim bæði mörkin. Það fyrra var víta- spyrna en í síðara tilvikinu fór boltinn aldrei yfir línuna. Spartak er efsta lið sovésku 1. deildarinnar, fjórum stigum á undan Dnépr. Aukin adsókn íl.deild Aðsókn á leiki í 1. deild ís- landsmótsins í knattspyrnu hefur aukist um 22,15% að meðaltali frá fyrra ári. Eftir fyrstu 7 um- ferðirnar höfðu 32.297 áhorfend- ur komið á Ieiki í 1. deild á móti 26.441 í fyrra. Á Akranesi hefur reyndar fækkað örlítið en fjöigun áhorf- enda hefur orðið mest hjá Þór, tæp 68%, Val, rúm 52% og KR, rétt liðlega 50% Reuter Said Aouita frá Marokkó náði besta heimstímanum í 2000 m á frjálsíþróttamóti í París í gærkvöldi. Aouita hljóp 2000 metrana á 4:50,81 mín. en Bretinn Steve Cram átti áður besta tímann, 4:51,39 mín. Heimsmet er ekki viðurkennt í 2000 m og nefnist árangur Aouita því besti heimstími. Bandaríkjamaðurinn Butch Reynolds tapaði mjög óvænt f 400 m hlaupinu í gærkvöldi. Sigurvegarinn var reyndar enginn byrjandi, Níger- íumaðurinn Innocent Égbunike, en Reuter Keppni í úrslitahlaupi 100 m grindahlaups kvenna á Heimsleikum stúdenta í Zagreb í Júgóslavíu í gærkvöldi var svo jöfn að annað eins hefur ekki fyrr þekkst í frjálsum íþróttum. Fyrstu þrír keppendurnir voru allir á sama tíma upp á 1/100 úr sekúndu og sú sem var í fjórða sæti var aðeins 1/100 úr sek. seinni í mark. Til að skera úr um röð fyrstu þriggja keppenda var skoðað bil milli þeirra í 1/1000 sek. og fengust þá úrslit. Til gamans má geta þess að bilið milli keppenda hefur verið rétt rúmur sentimetri. Það er kannski eins gott að myndavélin í markinu er nákvæm. Úrslitin í 100 m grindahlaupinu urðu annars þessi: Reynolds hefur ekki tapað 400 m hlaupi á þessu ári og kom tapið öllum í opna skjöldu. Reynolds þykir einn efnilegasti 400 m hlaupari sögunnar og líklegur til að slá met ianda síns Lee Evans frá árinu 1968. Reynolds hljóp á 44,15 sek. á Grand Prix í London á föstudaginn sem er besti tími sem náðst hefur í 400 m hlaupi í Evrópu en í gærkvöldi fékk hann 44,77 sek, 0,13 sek. lakari tíma en Egbunike. Hann setti Samveldis- met, 44,45 sek., í hlaupinu í London á föstudaginn. sek. 1. Heike Thhele (A-Þýskalandi).....12,84 2. Aliuska Lopez (Kúbu) ............12,84 3. Florence Colle (Frakklandi).....12,84 4. Lavonna Maartin (Bandar.) .......12,85 5. Anne Piquereau (Frakklandi) .... 12,89 6. Sophia Hunter (Bandaríkj.).......12,96 7. Linda Okolo-Koulak (Sovét.).....13,21 8. Krístin Patzwahl (A-Þýakal) .....13,39 HÁ Lárus Loftsson þjálfari hefur valið þá 16 leikmenn sem keppa fyrir fslands hönd á Norðurlandamóti drengjalandsliða í knattspyrnu í Rönneby í Svíþjóð dagana 25.-29. júlí nk. Liðið er þannig skipað: Arnar Grétarsson UBK Atli M. Rúnarsson Þór Ak. Axel G. Vatnsdal Þór Ak. Gunnar Þ. Pétursson Fylki Halldór F. Kjartansson UBK Huginn Helgason Tý Kjartan Gunnarsson Selfossi Magnús Schram Stjörnunni Nökkvi Svenisson Tý Sigurður Þ. Sigursteinsson ÍA Sigþór M. Kjartansson Reyni S. Steinar Þ. Guðgeirsson Fram Vilberg Sverrisson Fram Vilhjálmur H. Vilhjálmsson Fram Þorsteinn F. Bender Fram Þórhallur D. Jóhannsson Fylki liðanna sem keppa á Norðurlanda- mótinu og verður leikið í tveimur riðlum. ísland leikur í A-riðli ásamt Dönum, Færeyingum og A-liði Svía en í B-riðli leika Englendingar, Norðmenn, Finnar og B-Iið Svía. Undirbúningur fyrir val drengja- landsliðsins hófst á Laugarvatni fyrir tæpu ári en þangað komu 25 efnilegir 4. flokksleikmenn í knattspyrnu- skóla KSÍ. Leikmenn úr skólanum mynda kjarnann af landsliðshópnum og einnig hefur drengjalandsliðs- nefndin staðið fyrir úrtökuleikjum víða um land í vor og sumar. Það er ánægjulegt að sjá hversu stór hluti landsbyggðarinnar er í liðinu, af 16 manna hóp eru 10 utan af landi. Englendingar hafa bæst í hóp íþróttirnar í kvöld: Sundmeistaramót íslands - ÍA og FH mætast í 1. deildinni á Akrarresi Said Aouita sigraði alla keppinauta sína í Paris í gærkvöldi og náði besta heimstímanum í 2000 m hlaupi. Heimsleikar Stúdenta: Einn hundraðasti milli fyrsta og fjórða sætis Bryndís Ólafsdóttir Sundmeistaramót íslands hefst í Laugardalslauginni í kvöld kl. 20.00. Mótið stendur alla helgina og hefst keppni kl. 16.00 iaugardagogsunnu- dag. Meðal keppenda á mótinu verð- ur allt besta sundfólkið og má búast við að íslandsmet falli. Það sundfólk sem undirbýr sig nú fyrir Evrópu- meistaramótið í sundi sem verður um miðjan ágúst mun þó ekki toppa sérstaklega fyrir mótið þar sem það hefur neikvæð áhrif á mót eftir mánuð. Engu að síður er búist við skemmtilegri keppni og sem fyrr sagði að eitthvað af íslandsmetum falli. ÍA-FH á Akranesi Einn leikur verður í 1. deildinni í knattspyrnu í kvöld, Skagamenn fá FH-inga í heimsókn upp á Akranes og hefst leikurinn kl. 20.00, ekki kl. 19.00 eins og sagt er í mótabókinni. Skagamenn eru í toppbaráttunni en FH-ingar berjast gegn falli og þurfa að vinna leikinn ef ekki á að fara illa fyrir þeim. Tveirí l.deildkvenna Tveir leikir verða í 1. deild kvenna, KA og Breiðablik leika á Akureyri og KR og ÍBK á KR-vellin- um. Leikirnir hefjast báðir kl. 20.00. Miðnæturmót Ármenningar halda miðnæturmót í frjálsum íþróttum í kvöld og verður það á frjálsíþróttavellinum í Lau- gardal. Öldungameistaramót í golfi Öldungameistaramót fslands f golfi hefst á Hólmsvelli í Leiru f dag og stendur alla helgina. Keppendur eru 50 ára og eidri og eru margir mjög góðir kylfingar meðal þátttak- enda.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.