Tíminn - 17.07.1987, Síða 14
14 Tíminn
Föstudagur 17. júlí 1987
AÐ UTAN
lllllll
llllllill
Keyptur
vitnisburður
sérfræðinga
getur breytt úrslitum dómsmála í Bandaríkjunum
í hverju virtu lögfræðingatíma-
ritinu á fætur öðru í Bandaríkjun-
um eru nú farnar að birtast í röðum
auglýsingar um þjónustu sérfræð-
inga sem eru reiðubúnir til að
leggja fram vitnisburð á sínu sér-
sviði gegn gjaldi. Auglýsingarnar
eru sumar frá fyrirtækjum sem
taka að sér miðlun á sérfræðinga-
vitnisburði á hinum margvíslegustu
og ótrúlegustu sviðum, aðrar eru
frá nokkurs konar upplýsinga-
bönkum og enn aðrar frá einstakl-
ingum.
í auglýsingunum má m.a. sjá
lækni, sérfræðing í vímuefnafíkn,
bjóða fram þjónustu sína í málum
sem snerta alkóhól og eiturlyf,
aðrar auglýsingar bjóða t.d. fram
þjónustu sérfræðinga í málum sem
snerta reiðhjólaóhöpp, sprenging-
ar í rafhlöðum eða flöskum, slys í
sambandi við loftbelgi sem knúnir
eru með heitu lofti, geislunarslys
o.s.frv.
Atvinnustéttin „sérfræðingar"
virðist reyndar sjálf vera komin að
því að springa. Einstaklingar sem
búa yfir kunnáttu á ótal mörgum
lítt þekktum sviðum, eins og í
ofannefndum dæmum, hafa tekið
höndurn saman við tugi þúsunda
lækna, hásksólaprófessora og verk-
fræðinga í atvinnugreininni „sér-
frótt vitni". Og hver sem hefur
peningaráð getur tekið á leigu
kunnáttu þeirra bæði í einkamálum
og sakamálum. Pjónustugjaldið
getur verið allt frá 50 dollurum á
klukkustund fyrir þjónustu sér-
fræðinga í því að framfylgja lögun-
um upp í 10.000 dollara á dag fyrir
þjónustu lýtalæknis.
Þeir sem annast miðlun slíkrar
þjónustu og útvega lögfræðingum
nöfn sérfræðinganna, segja að eng-
inn hörgull sé á sérfróðum mönn-
um sem gefa kost á sér til að bera
vitni fyrir dómstólunum, enda er
nú svo komið að kapphlaupinu í
þessari atvinnugrein er helst líkt
við vígbúnað hersins!
Gagnrýnisraddir
En samhliða þessari miklu
grósku í vitnaframboðinu hafa
óhjákvæmilega heyrst gagnrýnis-
raddir úr röðum lögfróðra manna
og löggjafarþinga ríkjanna, sem
halda því fram að búið sé að missa
alla stjórn á þessum málum. Fræði-
mönnum í lögum og dómurum ber
saman um að vitnisburður sér-
fræðinga hafi lagt þungt lóð á
vogarskálarnar í ýmsum mikilvæg-
um málum og tiltaka sem dæmi
málareksturinn um eignarhaldið á
„Baby M“, þar sem kona hafði
tekið að sér gegn gjaldi að láta
frjóvga sig með sæði manns annarr-
ar konu og ganga síðan með barnið
og ala, en afhenda það síðan til
eignar sæðisföðurnum og konu
hans. Líka nefna þeir réttarhöldin
yfir John W. Hincklcy jr., sem
sýndi Reagan forseta banatilræði.
En margir lögfræðinganna láta í
ljós ótta við þann kostnað sem
, hlýst af þjónustu sérfræðinganna
og þau áhrif sem vitnisburður
þeirra hefur. Og ekki síður hafa
þeir áhyggjur af því hversu mikið
er á reiki matið á því hvaða kröfur
eru gerðar til þess að geta kallað
sig “sérfræðing".
Þar við bætist að mörgum er
þyrnir í augum gjaldið sem sér-
fræðingarnir taka fyrir vitnisburð-
inn, þar sem sumir álíta þá tilbúna
til að selja þekkingu sína hæstbjóð-
anda. Og enn eitt atriði sem sunrir
dómarar og lögmenn benda á er
það, að sérfróðu vitnunum hættir
til að méta mikilvægi atriða út frá
eigin brjósti, enda er enginn mæli-
kvarði til um hvað „sérfrótt vitni"
þarf að hafa til brunns að bera.
„Næstum hver sem er getur orð-
ið scrfræðingur. Það eina sem þarf
er að fá símhringingu frá lögfræð-
ingi,“ segir forstöðumaður stórs
lögfræðingafyrirtækis í Chicago
sem einkum tekur að sér vörn
ákærðra í einkamálum. Og nokkr-
ar dómsniðurstöður að undan-
förnu, þ.á m. niðurstaða hæstarétt-
ar í sl. mánuði.benda til þess að
dómstólarnir séu að endurmeta
hlut sérfróðra vitna á þann veg að
takmarka nytsemi þeirra. Sumir
dómarar hafa látið í ljós það álit að
núverandi skortur á reglum varð-
andi vitnisburð sérfróðra vitna geri
auknar kröfur til dómarans að
stýra slíkum vitnisburði á ákveðnar
brautir í sumum málum. Á undan-
förnum árum hefur eftirspurnin
eftir vitnisburði sérfróðra færst gíf-
urlega í vöxt og helst það í hendur
við aukningu málshöfðana í einka-
málum, fjölda dómsúrskurða, sem
PLAYGROUND
ACCIDENTS
• Expcrt Tcstimony
• Evaluation
• Playground Equipmcnt
Failurc Analysis
• Court Room Modcls
Pjul Hogan:
Author, Buildcr, Prcsidcni of
PUygrou nd ClMfini Houm, Inc.
36 Sycamore Lane
Phoenixville, Pa. 19460
(21S) 935-1S49
VSW
kveðnir eru upp af kviðdómi, og
hversu miklu meira er lagt upp úr
tæknilegum upplýsjngum í slíkum
tnálum en áður var. En kannski er
gleggsta dæmið um gróskuna á
þessu sviði fjölgun „vitnamiðlun-
arfyrirtækja" og upplýsingamið-
stöðva, segja lögfræðingar.
Arðvænleg atvinnugrein
Elsta upplýsingamiðstöðin var
stofnuð 1961 og hefur aðalstöðvar
í Washington. Starfsemi hennar
teygist nú orðið um öll Bandaríkin
og á listum hennar má finna 10.000
sérfræðinga á 4.000 sviðum. Hjá
annarri upplýsingamiðstöð fást þær
upplýsingar að þar sé boðið upp á
þjónustu sérfræðinga „á mörg þús-
und sviðum“, allt frá málum vegna
læknamistaka, ólöglegrar veiði á
dýrum í gildrur og til sálfræðilegra
atriða í sambandi við drukknun.
Ein upplýsingamiðstöðin skýrir frá
þvf að reyndar séu sérfræðingarnir
á hennar snærum ekki svo ýkja
margir, en margir þeirra njóti mjög
mikillar virðingar á sínu sviði. Sem
dæmi er þar nefndur dr. David A.
Crown, sem veitti forstöðu réttar-
fræðilegri rannsóknardeild CIA til
1982 og tók þátt í að staðfesta að
um líkamsleifar Josefs Mengeles
væri að ræða eftir að hann var
grafinn upp í Brasilíu 1985. Hann
var ráðinn í þjónustu Heimsþings
gyðinga og staðfesti að Kurt Wald-
heim væri ásamt SS-hershöfðingja
á ljósmynd sem tekin var í Júgósl-
avíu 1943.
Fyrirtækin taka í sinn hlut fyrir
að útvega þjónustu sérfræðinganna
ýmist ákveðna upphæð eða fasta
prósentutölu af taxta þeim sem
sérfræðingurinn setur upp. En það
er líka til í dæminu að þóknunin sé
ákveðið hlutfall af þeim skaðabót-
um sem dómurinn úrskurðar. Eitt
fyrirtæki t.d. sem auglýsir að það
hafi reynslu í 12.000 málum vegna
læknamistaka hefur þennan hátt-
inn á. Mörg önnur fyrirtæki neita
að taka við greiðslum á þessum
Viðskiptafræðingar
Fræðslustörf, stjórnun og umsjón starfsþjálfunar,
skipulagsstörf o.þ.h. við Samvinnuskólann á
Bifrösteru laustil umsóknar. Viðskiptafræðimennt-
un eða önnur sambærileg menntun og reynsla
áskilin.
Mjög góð launakjör, mikil tengsl við atvinnulífið,
atvinnumöguleikar fyrir maka og fjölskyldu íbúð á
Bifröst fylgja starfi.
Umsókn sendist skólastjóra Samvinnuskólans á
Bifröst og hann veitir upplýsingar í síma 93-50001.
Samvinnuskólinn
f virtum lögfræðitímaritum í Banda-
ríkjunum birtast nú unnvörpum slík-
ar auglýsingar þar sem þjónusta
„sérfróðra vitna“ er boðin gegn
gjaldi.
tæknileg atriði. í mörgum þeim
málum sem jafnréttissamtök höfð-
uðu fyrir hönd minnihlutahópa,
var ómögulegt að færa fram rök
málinu til stuðnings án aðstoðar
sérfræðinga í talfræði. Sjúklingur
sem kærði lækni fyrir mistök í
starfi átti erfitt með að sýna fram á
málstað sinn án vitnisburðar ann-
ars læknis um hvernig hefði verið
staðið rétt að læknisaðgerðinni.
1975 urðu tímamót í notkun
framburðar sérfræðinga með laga-
setningu þingsins. Skv. lögunum,
sem viðurkenndu réttmæti þess að
kalla fyrir sérfróð vitni ef það
mætti verða til þess að „auðvelda“
kviðdómnum að átta sig á málinu,
var nú hægt að kalla til vitnis fólk
sem var vel að sér á viðkomandi
sviði. Áður þurfti að hafa til þess
próf á því sviði.
expert
witnesses
engineers & scientists
in more than 400 tcchnical
calegories such as f
AUTOMOTIVE ENGINEERING
HUMAN FACTORS
PROOUCT LIABILITY
8AFETY ENGINEERING
STRUCTURAL FAILURES
CONSTRUCTfON CLAIMS
ACCIOENT ANALYSIS
available thmugh onc
organizalioti. . .
EXPERT WITNESS
NETWORK
1608 New Himpshtrc Avc.. N.W
Suilc G-100
Waihíafton. D C 20009-2512
(202) 667-4961
(800) 345-5993
OtfmUfd w IIrw J M A-«r-»*aaat Imgrtn
( a dh iuim .4 Cimuilkilnn
' Nmtwli Innmpnmml
nótum, segja þær geta gefið tilefni
til ásakana í garð vitnisins fyrir
hlutdrægni.
Ráðunautur bandaríska lög-
mannafélagsins segir það mikið
vandamál í þeirra stétt hversu illa
sé skilgreint hvaða siðferðileg vafa-
mál geti blandast inn í launa-
greiðslur til sérfróðra vitna.
“Það að bera vitni er
líkast því að tefla skák“
Mörg þessara sérfróðu vitna eru
hins vegar ekki tengd þessum fyrir-
tækjum. þau auglýsa sína þjónustu
sjálf. Þar á meðal má nefna Paul
Hogan, sérfræðing í barnaleikvöll-
um. Hann hefur mikla ánægju af
starfi sínu og segir: „Mér þykir
ákaflega gaman að standa frammi
fyrir hópi karla og kvenna, sem
sum eru að reyna styrkja vitnis-
burðinn minn og önnur leitast við
að rífa hann niður. Þetta er líkt og
að tefla skák, maður verður að
vera viðbúinn 10 næstu leikjum
lögfræðinganna!“
Fyrir aðeins aldarfjórðungi var
starfsemi sérfróðra vitna, hvað þá
heilla fyrirtækja sem miðla þjón-
ustu þeirra, því sem næst óþekkt í
Bandaríkjunum. Viðhorf dómstól-
anna var að ekki bæri að leiða fram
vitnisburð sérfræðings ef það var á
færi leikmanna að skilja málið sem
um var fjallað. En eftir því sem
málaferli urðu flóknari varð æ
augljósari þörfin fyrir þjónustu
sérfræðinga til að skýra út ýms
Framburður um vitlaust
mataræði leiddi tii
vægari dóms
í framburði sérfróðra vitna hafa
stundum komið fram upplýsingar
sem hafa haft óvænt áhrif á úrskurð
málsins. Eitt þekktasta dæmi um
það er að finna í réttarhöldunum
yfir Dan White, eftirlitsmanninum
í San Francisco sem drap George
Moscone borgarstjóra og Harvey
Milk eftirlitsmann 1979. White var
sakfelldur fyrir manndráp en ekki
morð eins og ákæran hljóðaði upp
á, að miklu leyti vegna sálfræðilegs
vitnisburðar sem beindist að því að
sýna fram á að hann hefði verið í
uppnámi vegna andlegs álags, sem
hefði færst í aukana vegna til-
hneigingar hans til að leggja sér til
munns „junk food“, lélega skyndi-
fæðu. f vitnisburðinum varsérstak-
lega tilgreint hátt sykurmagn í
tilteknum kexkökum!
En notkun svo langsóttra kenn-
inga í vitnisburði og skortur á
reglum um hvaða hæfni fólk skuli
hafa til að bera til að geta kallað
sig sérfrótt vitni hefur leitt til þess
að nú finnst nokkrum dómstólum
°g löggjafaþingum ríkjanna tími
til kominn að stinga við fótum. Þar
er nú komin á hreyfing til að setja
lög um skilgreiningu á því hvaða
skilyrði þarf að uppfylla til að geta
kallast „sérfrótt vitni“. Þá má fara
að búast við því að hinn blómlegi
atvinnuvegur sem hefur myndast
um þessa „stétt“ fari að lognast út
af.