Tíminn - 17.07.1987, Qupperneq 19
Föstudagur 17. júlí 1987
Tíminn 19
SPENCER TRACY
lifði tvöföldu lífi
Ijós við dauða hans
- sem kom í
10. júní 1967 var
ráðskonu Georges Cukor,
kvikmyndaleikstjórans
fræga, nóg boðið. Hún
hafði ekkert orðið vör við
sjúka gestinn sem dvalist
hafði langdvölum í
garðhúsinu í nokkurn tíma
og tók nú til sinna ráða.
Hún gerði það sem henni
hafði verið bannað, leitaði
inngöngu í húsið og fann
gestinn látinn. Spencer
Tracy, leikari og
Óskarsverðlaunahafi, sem
var orðinn að goðsögn í
Hollywood um sína daga en
hafði kosið að eyða síðustu
árunum út af fyrir sig sjúkur
í lungum, hafði látist af
hjartaslagi, 67 ára gamall.
Auðvitað varð uppi fótur og fit
og aðstandendur kallaðir á staðinn.
Fyrstur mætti bróðir hins látna,
síðan lögvígð eiginkona hans, Lo-
uise Treadwell, og börn þeirra tvö.
Og síðast kom Katherine
Hepburn. Hún hafði leikið á móti
Tracy í 9 kvikmyndum síðan 1942
og þau höfðu staðið í ástarsamb-
andi allan þann tíma. Þetta var í
fyrsta sinn sem konurnar tvær
stóðu augliti til auglitis og þær
heilsuðust virðulega með handa -
bandi.
Spencer Tracy og Katherine Hepb-
urn stóðu í ástarsambandi í aldar-
fjórðung, allt til dauðadags Spenc-
ers
Hjónabandið stóð frá
1923 til dauðadags
Fundum þeirra Spencers Tracy
og Louise Treadwell bar saman á
járnbrautarstöðinni í White Plains
í New York ríki 1923. Áfangastað-
ur beggja var sá sami, sumar-
leikhúsið á staðnum þar sem þau
höfðu fengið vinnu. Fimm mánuð-
um síðar voru þau gift og einu ári
seinna fæddist þeim frumburður-
inn, sonurinn John. Hann var dauf-
dumbur og á þeim tíma voru
Louise Treadwell Tracy var gift
Spencer í 44 ár. Þau stofnuðu
saman sjúkrahús fyrir heyrnarlaus
börn sem ber nafn hennar.
margir þeirrar skoðunar að dauf-
dumbir hlytu að vera meira fatlaðir
en svo að þeir ættu nokkurn tíma
eftir að verða sjálfbjarga. For-
eldrarnir ungu létu samt ekki deig-
an síga og sinntu drengnum sínum
vel. Louise gaf leikkonudrauminn
upp á bátinn og helgaði sig heimil-
inu og uppeldi sonarins og 1932
fæddist svo dóttirin Susie.
Nú höfðu kvikmyndajöfrarnir í
Hollywood fengið augastað á hin-
um efnilega unga leikara Spencer
Tracy og fjölskyldan fluttist búferl-
hann með börnum sínum Susie og John. John fæddist
heyrnarlaus og átti það áfall sinn þátt í því hver örlög
fjölskyldunnar urðu.
alsgáður, verð ég reiður sjálfum
mér. Ég fór kannski í hádegismat
sem stóð svo í tvo daga! En á þeim
tíma var allur kvikmyndaheimur-
inn undir áhrifum og engum þótti
það athugavert." Hann þakkaði
Katherine Hepburn að hann losn-
aði úr áfengisviðjunum.
Katherine Hepburn og Spencer
Tracy léku fyrst saman í kvikmynd
1942 og urðu strax óaðskiljanleg.
Það er langt í frá að hún hafi verið
fyrsta ástkona Spencers, en eftir að
þau tóku saman sýndu þau hvort
öðru tryggð. Hún hefur aldrei gifst
og er nú 78 ára gömul. En Tracy
sýndi líka Louise konu sinni tryggð
á sinn máta. Hann sá um að hún
byggi við fjárhagslegt öryggi alla
tíð og saman komu þau á fót
sjúkrahúsi fyrir daufdumb börn.
Spencer sá til þess að það bæri nafn
Louise Tracy og þar er enn í dag
rekið árangursríkt starf í þágu
heyrnarlausra barna undir forstöðu
dóttur þeirra, Susie.
um til Kaliforníu. Frami hans varð
skjótur og þar með voru örlög
fjölskyldunnar ráðin. Louise hélt
áfram að sinna búi og börnum en
Spencer hafði öðrum hnöppum að
hneppa. Þau lifðu hvort sínu lífi.
Viðbrögð þrjóska írska
kaþólikkans voru
áfengisvíma - en þá kom
Katherine Hepburn
tilsógunnar
En í augum kaþólikkans með
írska þrjóskublóðið í æðum kom
skilnaður ekki til greina. Vafalaust
tók hann þó ekki síður nærri sér en
kona hans hvernig komið var og
mörgum árum síðar sagði hann
nánum vini sínum hver viðbrögð
hans hefðu orðið. „Þegar ég hugsa
um öll þau ár sem ég var stöðugt
undir áfengisáhrifum, aldrei
Föstudagur
17. júlí
6.45 Veðurfregnir. Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 Morgunvaktin.Hjördís Finnbogadóttir og
Óðinn Jónsson. Fróttir sagðar kl. 8.00 og
veðurf regnir kl. 8.15. Fréttayfirlit kl. 7.30 en áður
lesið úr forustugreinum dagblaðanna. Tilkynn-
ingar eru lesnar kl. 7.25,7.55 og 8.25. Þórhallur
Bragason talar um daglegt mál kl. 7.20. Fréttir
á ensku sagðar kl. 8.30.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
9.05 Morgunstund barnanna: „Berðu mig til
blómanna“ eftir Waldemar Bonsel. Ingvar
Brynjólfsson þýddi. Herdís Þorvaldsdóttir les
(4).
9.20 Morguntrimm. Tónleikar.
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Mér eru fornu minnin kær. Umsjón: Einar
Kristjánsson frá Hermundarfelli og Steinunn S.
Sigurðardóttir.
11.00 Fréttir. Tilkynningar.
11.05 Samhljómur. Umsjón: Bergþóra Jónsdóttir
og Erna Guðmundsdóttir. (Þátturinn verður
endurtekinn að loknum fréttum á miðnætti).
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar.
14.00 Miðdegissagan: „Franz Liszt, örlög hans
og ástir“ eftir Zolt von Hársány. Jóhann
Gunnar ólafsson þýddi. Ragnhildur Steingríms-
dóttir les (24).
14.30 Þjóðleg tónlist.
15.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
15.20 Lesið úr forustugreinum landsmálablaða.
16.00 Fróttir. Tilkynningar.
16.05 Dagbókin.
Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Fréttir. Tilkynningar.
17.05 Síðdegistónleikar: Úr óperum Verdis. a.
Forleikur og aría úr „Grímudansleiknum".
Margaret Price syngur með „National“-fílharm-
óníuhjómsveitinni í Lundúnum. Georg Solti
stjómar. b. Lokaatriði óperunnar „Rigoletto“.
Renato Bruson, Neil Schioff, Edita Gruberova
og Robert Lloyd syngja með Hljómsveit heilagr-
ar Cecilíu í Róm;. iGiuseppe Sinopoli stjómar.
c. „Di qual tetra luce", aría úr „II Trovadore".
Luciano Pavarotti, Gildis Flossman og Peter
Baille syngja með hljómsveit Ríkisóperunnar í
Vínarborg; Nicola Rescigno stjómar.
17.40 Torgið. Umsjón: Þorgeir Ólafsson og Anna
M. Sigurðardóttir.
18.00 Fréttir. Tilkynningar.
18.05 Torgið, framhald.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tlkynningar.
Daglegt mál. Endurtekinn þáttur frá morgni
sem Þórhallur Bragason flytur.
Náttúruskoðun.
20.00 Bach og Paganini. a. Karl Richter leikur á
orgel Tokkötu og fúgu í d-moll eftir Johann
Sebastian Bach. b. Salvatore Accardo leikur á
fiðlu Kaprísur eftir Niccolo Paganini.
20.40 Sumarvaka. a. Jón á Stapa. Þorsteinn
Matthíasson flytur frumsamda frásögn. Fyrsti
hluti. b. Póstferðir á fyrri öld. Rósa Gísladóttir
les þátt um Níels Sigurðsson póst úr Söguþátt-
um landpóstanna, riti sem Helgi Valtýsson tók
saman.
21.30 Tifandi tónar. Haukur Ágústsson leikur
létta tónlist af 78 snúninga plötum. (Frá
Akureyri).
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Gömlu danslögin.
23.00 Andvaka. Umsjón: Pálmi Matthíasson. (Frá
Akureyri)
24.00 Fréttir.
00.10 Samhljómur. Umsjón: Bergþóra Jónsdóttir
og Ema Guðmundsdóttir. (Endurtekinn þáttur
frá morgni).
01.00 Veðurfregnir.
Næturútvarp á samtengdum rásum til
morguns.
árr
00.10 Næturvakt útvarpsins. Gunnlaugur Sigfús-
son stendur vaktina.
6.00 í bítið - Guðmundur Benediktsson.
Fréttir á ensku sagðar kl. 8.30.
9.05 Morgunþáttur.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Á milli mála. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir
og Gunnar Svanbergsson.
16.05 Hringiðan. Umsjón: Broddi Broddason og
Erla B. Skúladóttir.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Eftirlæti. Valtýr Björn Valtýsson flytur kveðj-
ur milli hlustenda.
22.05 Snúningur. Umsjón: Vignir Sveinsson.
00.10 Næturvakt útvarpsins. Óskar Páll Sveins-
son stendur vaktina til morguns.
Fréttir kl.: 7.00, 8.00, 9.00, 10.00, 11.00, 12.20,
15.00,16.00,17.00,18.00,19.00,22.00 og 24.00.
SVÆÐISÚTVARP
18.03-19.00 Svæðisútvarp fyrir Akureyri og
nágrenni - FM 96,5. Umsjón: Unnur Stefáns-
dóttir.
Föstudagur
17. júlí
7.00- 9.00 Pétur Steinn og morgunbylgjan.
Pétur kemur okkur réttu megin framúr með
tilheyrandi tónlist og lítur yfir blöðin. ísskápur
dagsins?
Fréttir kl. 7.00, 8.00 og 9.00.
9.00-12.00 Valdís Gunnarsdóttir á lóttum
nótum. Sumarpoppið á sínum stað, afmælis-
kveðjur og kveðjur til brúðhjóna.
Fréttir kl. 10.00 og 11.00.
12.00-12.10 Fréttir.
12.10-14.00 Þorsteinn J. Vilhjálmsson á hádegi.
Þorsteinn ræðir við fólkið sem ekki er í fréttum
og leikur létta hádegistónlist.
Fréttir kl. 13.00.
14.00-17.00 Ásgeir Tómasson og föstudags-
poppið. Ásgeir hitar upp fyrir helgina.
Fréttir kl. 14.00,15.00,16.00.
17.00-19.00 Hallgrímur Thorsteinsson í Reykja-
vík síðdegis. Leikin tónlist, litið yfir fréttirnar og
spjallað við fólkið sem kemur við sögu. Isskápur
dagsins endurtekinn.
Fréttir kl. 17.00.
18.00-18.10 Fróttir.
19.00-22.00 Anna Björk Birgisdóttirá Flóamark-
aði Bylgjunnar. Flóamarkaður milli kl. 19.03og
19.30. Tónlist til kl. 22.00.
Fréttir kl. 19.00.
22.00-03.00 Þorsteinn Ásgeirsson nátthrafn
Bylgjunnar kemur okkur í helgarstuð með góðri
tónlist.
03.00-08.00 Næturdagskrá Bylgjunnar - Óiafur
Már Björnsson leikur tónlist fyrir þá sem fara
seint í háttinn og hina sem fara snemma á fætur.
A
Föstudagur
17. júlí
ATH. Fréttirnar eru alia daga vikunnar, einnig
um helgar og á almennum frídögum.
07.00-09.00 Þorgeir Ástvaldsson Snemma á fæt-
ur með Þorgeiri Ástvalds. Laufléttar dægur-
flugur frá því í gamladaga fá að njóta sín á
sumarmorgni. Gestir teknir tali og mál dagsins
í dag rædd ítarleqa.
08.30 STJÖRNUFRETTIR. (Fréttir einnig á hálfa
tímanum)
09.00-12.00 Gunnlaugur Helgason. Jæja...
Helgason mættur!!! Það er öruggt að góð tónlist
er hans aðalsmerki. Gulli fer með gamanmál,
gluggar í stjörnufræðin, og bregður á leik með
hlustendum í hinum ýmsu get-leikjum.
11.55 STJÖRNUFRÉTTIR (fréttir einnig á hálfa
tímanum).
12.00-13.00 Pia Hansson. Hádegisútvarpið
hafið.... Pia athugar hvað er að gerast á
hlustunarsvæði Stjörnunnar. Matur og vín.
Kynning á mataruppskriftum, matreiðslu og
víntegundum.
13.00-16.00 Helgi Rúnar Óskarsson. Lagalistinn
er fjölbreyttur á þessum bæ. Gamalt og gott
leikið af fingrum fram, með hæfilegri blöndu af
nýrri tónlist. Helgi fylgist vel með því sem er að
gerast.
16.00-19.00 Bjarni Dagur Jónsson. Þessi hressi
sveinn fer á kostum með kántrý tónlist og aðra
þægilega tónlist, (þegar þið eruð á leiðinn
heim). Spjall við hlustendur er hans fag og
verðlaunagetraun er á sínum stað. Síminn er
681900.
17.30 STJÖRNUFRÉTTIR.
19.00-20.00 Stjömutíminn. The Shadows, Fats
Domino, Buddy Holly, Brenda Lee, Little Eva,
Connie Francis, Sam Cooke, Neil Sedaka, Paul
Anka. Ókynntur klukkutími með því besta,
sannkallaður Stjörnutími.
20.00-22.00 Árni Magnússon. Árni er kominn í
helgarskap og kyndir upp fyrir kvöldið.
23.00 STJÖRNUFRÉTTIR.
22.00-02.00 Jón Axel ólafsson. Og hana nú...
Það verður stanslaust fjör í fjóra tíma. Getraun
sem enginn getur hafnað, kveðjur og óskalög á
víxl. Hafðu kveikt á föstudagskvöldum.
02.00-08.00 Bjarni Haukur Þórsson. Þessi hressi
tónhaukur vaktar stjörnurnar og gerir ykkur lífið
létt með tónlist og fróðleiksmolum.
Föstudagur
17. júlí
18.30 Nilli Hólmgeirsson. 24. þáttur. Sögumaður
örn Árnason. Þýöandi Jóhanna Þráinsdóttir.
18.55 Litlu Prúðuleikararnir. Ellefti þáttur. Teikni-
myndaflokkur í þrettán þáttum eftir Jim Henson.
Þýðandi Guðni Kolbeinsson.
19.15 Á döfinni Umsjón: Anna Hinriksdóttir.
19.25Fréttaágrip á táknmáli
19.30 Rokkamir geta ekki þagnað. í þessum
þætti kynna Hendrikka Waage og Stefán Hilm-
arsson hljómsveitina Súellen.
20.00 Fréttir og veður
20.35 Auglýsingar og dagskrá
' 20.40 Meistari að eilífu Stutt mynd eftir Sigurbjöm
J. Aðalsteinsson. Fjallað er um stúlku sem
saknar liðinnar tíðar.
20.50 Á hljómleikum með Beny Rehman.
Skemmtiþáttur með svissneska tónlistar-
manninum Beny Rejiman og hljómsveit hans.
Þeir kappar hafa m.a. skemmt á Brcadway í
Reykjavík fyrr á þessu ári.
22.35 Derrick Níundi þáttur. Þýskur sakamála-
myndaflokkur í fimmtán þáttum með Derrick
lögregluforingja sem Horst Tappert leikur. Þýð-
andi Veturliði Guðnason.
23.30 Auðna ræður öllum hag (La Mitad de
Cielo). Ný, spænsk verðlaunamynd. Leikstjóri
Manuel Gutierrez Aragon. Aðalhlutverk: Angela
Molina, Margarita Lozano, Antonio Valero og
Nacho Martinez. Rósa er eftirlæti föður síns en
giftist gegn vilja hans og þrátt fyrir aðvörun
skyggnrar ömmu sinnar. Hún verður fljótlega
ekkja og flyst til stórborgarinnar ásamt dóttur
sinni til þess að sjá sér farborða. Með dugnaði
sínum tekst henni að koma ár sinni fyrir borð en
brátt verður hún ástfangin á ný og enn reynast
óvæntir meinbugir á ráðahagnum. Þýðandi
sonja Diego.
00.40 Fréttir útvarps i dagskrárlok.
VSTÖÐ2
Föstudagur
17. júli
16.45 Betra seint en aldrei (Long Time Gone).
Bandarísk sjónvarpsmynd með Paul Le Mat,
Will Wheaton og Anna Dusenberry í aðalhlut-
verkum. Nick yfirgaf konu sína og tveggja ára
son til þess að lifa hinu Ijúfa lífi. Þegar
fyrrverandi eiginkonu hans býðst starf í miðaust-
urlöndum, kemur það í hans hlut að sjá um
soninn. Þeir lenda í ýmsum ævintýrum sem
verða til að styrkja samband þeirra.____
18.45 Knattspyrna - SL mótið-1. deild. Umsjón:
Heimir Karlsson.
19.30 Fréttir.
20.00 Sagan af Harvey Moon (Shine On Harvey
Moon). Nýr bandarískur framhaldsmyndaflokk-
ur með Kenneth Cranham, Maggie Stedd,
Elisabeth Spriggs, Linda Robson og Lee Whitl-
ock í aðalhlutverkum. í lok seinni heimsstyrjald-
ar snýr Harvey Moon heim frá Indlandi. En
kemst að því að England eftirstríðsáranna er
ekki samt og fyrr._________________________
20.50 Hasarleikur (Moonlighting). Bandarískur
framhaldsmyndaflokkur með Cybill Sheperd og
Bruce Willis í aðalhlutverkum.
21.40 Einn á móti milljón (Chance In A Million).
Breskur gamanþáttur með Simon Callow og
Brenda Blethyn í aðalhlutverkum.
22.05 Greifynjan og gyðingarnir (Forbidden).
Bandarísk kvikmynd frá 1985, sem gerist í
Þýskalandi á árum seinni heimsstyrjaldarinnar.
Nina Von Halder er af aðalsfólki komin, en kýs
að lifa fábrotnu lífi og gerist meðlimur í neðan-
jarðarhreyfingu, þrátt fyrir að fjölskylda hennar
eru ákafir fylgjendur Hitlers. Myndin er byggð á
sannri sögu og Nina Von Halder er nú lyfja-
fræðingur í Berlín. Með aðalhlutverk fara Jacq-
ueline Bisset og Jurgen Prochnow. Leikstjóri er
Anthony Page.
23.55 Hefndin. (Act of Vengeance) Bandarísk
sjónvarpsmynd með Charles Bronson og Ellen
Burstyn í aðalhlutverkum. Þegar slys verður í
kolanámum í Pennsylvaniu, tekur formaður
samtaka námumanna málstað námueigend-
anna. Námumenn hvetja Yablonski til þess að
bjóða sig fram í lífshættulegan kosningaslag.
Leikstjóri er John McKenzie. Myndin er bönn-
uð bömum.
01.25 Hungrið. (Hunger). Hryllingsmynd frá árinu
1983 með Catherine Deneuve, David Bowie og
Susan Sarandon í aðalhlutverkum. Catherine
Deneuve leikur fagra blóðsugu, sem þaf á
fersku blóði að halda, til þess að viðhalda æsku
sinni og þrótti. Leikstjóri er Tony Scott. Myndin
er stranglega bönnuð bömum.
02.55 Dagskráriok.