Tíminn - 15.08.1987, Page 4
4 Tíminn
Laugardagur 15. ágúst 1987
KVÓTI - og hvernig þá?
Illskárstur en
án sóknarmarks
„Ég tel að við verðum að hafa
einhverja stjórn á veiðunum og
það mætti einna helst minnka
stjórnunina með því að hafa bara
stjórnun eða kvóta á þorskveiðum.
Annað mætti gefa nokkuð frjálst."
Sagði Tómas Porvaldsson forstjóri
Þorbjarnar h.f. í Grindavík, þegar
Tíminn leitaði eftir áliti hans á
fiskveiðistefnunni og hvað mætti
helst breytast um næstu áramót.
„Það gæti verið ein leiðin að losa
þannig aðrar tegundir undan kvót-
anum en ég tel að við verðum að
hafa stjórn á veiðunum. Ég tel að
Halldór Ásgrímsson hafi náð mjög
góðum árangri í stjórnun sinni og
tekist vel til samstjórn við LÍÚ og
FFÍ.
Gagnrýnin hefur vitanlega verið
nokkur svona vítt og breitt um
landið en einna síst hjá hinum
svokölluðu frystitogurum. Þeir
hafa verið einum of lausbeislaðir
að ég tel. Það finnst reyndar öllum
og það er það sem menn segja
almennt hér.
Hér á Suð-Vesturlandi er almenn
óánægja með viðmiðunarárin og
menn telja sig almennt hafa verið
beittir misrétti." Sagðist Tómas
vera tilbúinn til að skýra það nánar
hvenær sem er ef út í þessi mál væri
farið. Nefndi hann sem dæmi að á
þeim veiðiskipum sem höfðu 1000-
1500 tonn hefði kvótinn orðið 400-
700 tonn sem almenn regla. Hann
sagði að það byggðist á því að
miklu meiri smáfisur væri veiddur
á öðrum stöðum víða um landið.
„Ég tel að við eigum að halda
áfram kvótakerfinu með tiltölulega
litlum lagfæringum. Ég held að við
komumst einna best út úr því að
fara þessa nokkuð troðnu slóð.
Ég tel að kvótaskiptingin eigi að
ná yfir öll veiðiskip, stór eða smá.
Og ég tel að þessi svokallaða
smábátaútgerð sé að komast út í
öfgar. Þó að ég sé cinn af þeim sem
er alinn upp á smábátum og opnum
bátum lengst af, þá tel ég að þessi
mál séu að fara út í öfgar. Það vita
allir að verið er að smíða skip sem
eru þrjátíu til fjörtíu tonn og ekki
mæld nema níu komma níu tonn til
að sleppa undir mörkin.
Öll þessi útgerð er utan við
kvótaskiptingu og það er verið að
leika hér á kerfið. Það verður að
komast skikkan á þessi mál.
Umfram allt er jjað þó eitt atriði
sem hefur eyðilagt gjörsamlega allt
kvótakerfið en það er sóknarmark-
ið. Sóknarmarkið þýðir í raun það
að stór hluti skipanna, en einkan-'
lega togarahlutinn, sem getur
hagnýtt sér þetta, hann veiðir óheft
allt árið um kring. Ef því verður
ekki sleppt, þá á kvótakerfið engan
rétt á sér.
Það þarf að lcggja sóknarmarkið
alfarið niður. Og það er almenn
skoðun allra rólegri manna að
sóknarmarkið hafi gersamlega
eyðilagt kvótann. Svör manna sem
vilja miðla málum eru á þá leið að
menn verði að fá að geta beitt sínu
og aukið svolítið við hjá sér með
því að afla aðeins meira. En með
því að sækja betur geta menn líka
hætt að tala um skiptingu.
Það er vitað mál að það eru yfir
hundrað togarar í landinu sem er
beitt alla daga, sýknt og hcilagt, á
smáfisk. Þarna þarf að skera alfarið
niður og sóknarkvóti á ekki að
vera til. Hann eyðileggur alveg
möguleika smærri skipa en gildir
eingöngu fyrir togara.
Sóknarmarkið er það slæmt að
Tómas Þorvalds-
son forstjóri
Þorbjörns í
Grindavík:
kvótafyrirkomulagið á varla nokk-
urn rétt á sér ef það verður látið
fylgja áfram.
Þetta á við allt S-Vesturland.
Ein hugmynd önnur er líka til.
Hún er þannig að jafnt verði skipt
á skip miðað við mannafjölda. Það
ætti rétt á sér miðað við það að
þarna erum við einfaldlega að
skipta tekjum á fólk. Við erum að
gera rangt ef við skiptum kvótan-
um þannig að 15 manns fái 2000
tonn en 12 manns fái aðeins 600.
Þannig myndi húsmóðir aldrei
skipta á diskana hjá fólki sínu.
Þess vegna gæti ég ímyndað mér að
uppstokkun á þorski yrði hlutfalls-
lega eftir mannafjölda á bátunum.
Þá yrði að niiða við þann manna-
fjölda sem þekktur er í dag svo að
mcnn færu ekki að bæta við mörin-
um í von um meiri kvóta.
Þetta eru svona þeir helstu
punktar sem ég vildi leggja áherslu
á í sambandi við mótun fiskveiðist-
efnunnar," sagði Tómas að lokum.
KB
Dagvist barna í Reykjavík:
Kynning fyrir þá
sem byrja aftur
Dagvist barna í Reykjavík
stendur fyrir kynningarnámskeiði
dagana 17. og 18. ágúst fyrir fóstrur
og annaö uppcldismenntað fólk
sem hefur vcrið fjarverandi dag-
vistaruppeldi lorskólabarna um
lengri eða skemmri tíma, en helur
hug á að hefja starf að nýju.
Námskcið þetta er fyrst og
l'remst hugsað scm kynning á starf-
scmi Dagvista barna í Reykjavík,
auk þess sem kynntar verða ný-
jungar í dagvistaruppeldi á íslandi
síöastliðin 5 tii 10 ár.
Námskeiðsstjórar eru Fanny
Jónsdóttir og Arna Jónsdóttir.
Byggðaáætlun fyrir Vestfirði í vinnslu:
Gerð til að koma á
jafnvægi í búsetu
Um þessar mundir er unnið að byggðaáætlun fyrir Vestfirði. Áætluninni er
ætlað að varpa Ijósi á hvernig stöðva má frekari fólksflótta frá Vestfjarða-
kjálkanum en hann hefur verið mönnum mikið áhyggjuefni. Áætlun þessi
mun vera einsdæmi því ekki hefur verið farið út í að gera svona áætlanir fvrir
aðra landsfjórðunga.
Skattarnir á Norðurlandi
Það hefur víst framhjá fáum
farið að álagningarskrá skatta árið
1987 hefur verið slengt frámaní
almenning. Menn eru að vonum
misdaprir nteð niöurstöðurnar en
hugga sig þó við drauma um
skattlaust ár og hundrað prósent
ráðstöfunarrétt yfir tekjum sínum. f
Norðurlandsumdæmi eystra er
heildarálagning tæpir 2 milljarðar
króna, og í Norðurlandsumdæmi
vestra er heildarálagning ríflega
684 milljónir króna. Á Norður-
landi eystra greiða einstaklingar
ríflega 1450 milljónir, börn yngri
en 16 ára greiða 3,5 milljónir og
félög og fyrirtæki greiða um 500
milljónir. Meðaltalshækkun
álagðra gjalda er um 33,9%.
Hækkun gjalda einstaklinga er um
28%, barna um 30% og félaga um
53% milli ára.
Á Norðurlandi vestra greiða ein-
staklingar um 543,5 milljónir, börn
yngri en 16 ára 1,9 milljónir og
fyrirtæki 138,7 milljónir króna.
Meðaltalshækkun álagðra gjalda
er um 21,9%, hjá einstaklingum
rúm 20%, hjá börnum um rúntlega
32% og hjá fyrirtækjum 26%.
Hæstu skattgreiðendur á Norðurlandi eru:
Norðurland vestra:
Einstaklingar:
1. Guðjón Sigtryggsson skipstjóri Skagaströnd
2. Jón Dýrfjörð vélvirki Siglufirði
3. Sveinn Ingólfsson framkv.stj. Skagaströnd
4. Árni Sigurðsson skipstjóri Skagaströnd
5. Ólafur Sveinsson læknir Sauðárkróki
Fyrirtæki:
1. Kaupfélag Skagfirðinga 14 milljónir
2. Síldarverksmiðjur ríkisins Siglufirði 7,2 milljónir
3. Þormóður rammi Siglufirði 5,7 milljónir
4. Kaupfélag A-Húnvetninga Blönduósi 5,5 milljónir
5. Kaupfélag V-Húnvetninga Hvammstanga 4,3 milljónir
kr. 1.289.468
kr. 1.224.034
kr. 1.223.040
kr. 1.028.405
kr. 969.552
Norðurland eystra:
Einstaklingar:
1. Oddur C. Thorarensen lyfsali Akureyri kr. 3.029.361
2. Vigfús Guðmundsson lyfsali Húsavík kr. 2.270.588
3. Gylfi Baldvinsson útg.m. Árskógssandi kr. 1.857.368
4. Helgi M. Bergs framkv.stj. Akureyri kr. 1.747.918
5. Gauti Arnþórsson yfirlæknir Akureyri kr. 1.547.826
6. Jón Arnar Pálmason hönnuður Akureyri kr. 1.490.398
7. Elías Eliasson bæjarfógeti Akureyri kr. 1.472.598
8. Stefán Sigtryggsson viðsk.fr. Akureyri kr. 1.440.739
9. Haraldur Árnason tæknifr. Akureyri kr. 1.422.643
10. Benedikt Ólafsson lögfr. Akureyri kr. 1.353.184
11. Valur Arnþórsson kaupfélagsstj. Akureyri kr. 1.339.662
12. Óli Ragnarsson lyfsali Dalvík kr. 1.310.680
Fyrirtæki:
1. Kaupfélag Eyfirðinga 66 millj.
2. Útgerðarfélag Akureyringa 27 millj.
3. Slippstöðin Akureyri 14 millj.
4. Höldur sf. Akureyri 11,5 millj.
5. Kaffibrennsla Akureyrar 11 millj.
6. Bliki hf. Dalvík 10 millj.
7. Kaupfélag Þingeyinga Húsavík 9, 8 millj.
8. Akureyrarbær 8,2 millj.
9. Manville Húsavik 8 millj.
10. Akur hf. Akureyri 7,1 millj.
11. Fjórðungssjúkrahúsið Akureyri 7 millj.
- HIA - Akureyri
Guðmundur H. Ingólfsson hjá
Byggðastofnun er starfsmaður þess-
arar byggðaáætlunar og hefur hann
ferðast um Vestfirði þvera og endi-
langa síðustu þrjá mánuði og lagt
þetta verkefni fyrir sýslunefndir, all-
ar sveitarstjórnir og fjölda einstakl-
inga og stofnana.
Markmiðið er að ljúka áætluninni
fyrir 1. september. Henni er ætlað
að varpa ljósi á það hvernig hægt er
að koma í veg fyrir frekari fólks-
fækkun frá framleiðslusvæði Vest-
fjarða. Verið er að skoða með hvaða
hætti er hægt að koma á jafnvægi í
búsetu á Vestfjörðum og reyna að
hafa einhverja stjórn á þeim breyt-
ingum sem eru fyrirsjáanlegar á
búsetu og þróun byggðar á Vest-
fjörðum. Þróunin virðist hafa ver-
ið og er enn fækkun fólks, en
framleiðsluverðmæti til þjóðarbús-
ins eru ekki minni. Svoleiðis gengur
það ekki endalaust.
Gögnin sem notuð eru við vinnslu
byggðaáætlunarinnar eru einkum
byggð á viðtölum við Vestfirðinga
sjálfa, enda var það skilyrði af hálfu
Byggðastofnunar að verkefnið yrði
framkvæmt af heimamönnum sjálf-
um að svo miklu leyti sem hægt væri.
Hugmyndin er að kynna áætlunina
Fjórðungsþingi Vestfjarða sem hald-
ið verður að Reykjanesi 4.-5. sept-
ember. Á því þingi verður einnig
fjallað um samgöngumál, þar á með-
al útkomnar jarðgangaskýrslur, en
samgöngumál snerta alla aðra
byggðaþætti, svo sem atvinnuupp-
byggingu og félagsmál.
Sérstök verkefnisstjórn var skipuð
til að hafa umsjón með byggðaáætl-
uninni. í henni eru Sigurður Guð-
mundsson forstöðumaður þróunar-
sviðs Byggðastofnunar, Jóhann T.
Bjarnason framkvæmdastjóri Fjórð-
ungssambands Vestfjarða og Jón
Björn Gíslason stjórnarmaður
Fjórðungssambandsins á Patreks-
firði.
ABS