Tíminn - 15.08.1987, Blaðsíða 10
10 Tíminn
Laugardagur 15. ágúst 1987
The University
of Manitoba
Manitóbaháskóli
Prófessorsstaða í íslensku
er laus til umsóknar
Tekið verður á móti umsóknum eða tilnefningum til starfs við
íslenskudeild Manitóbaháskóla og boðið upp á fastráðningu
(tenure) eftir tiltekið reynslutímabii í starfi ef öllum skilyrðum er
þá fullnægt. Staðan verður annaðhvort veitt á stiginu „Associate
Professor“ eða „Full Professor'* og hæfur umsækjandi settur frá
og með 1. júlí 1988. Laun verða í samræmi við námsferil,
vísindastörf og starfsreynslu. Hæfur umsækjandi þarf að hafa
lokið doktorsprófi eða skilað sambærilegum árangri á sviði
íslenskra bókmennta bæöi fornra og nýrra.
Góð kunnátta í enskri tungu er nauðsynleg sem og fullkomið
vald á íslensku rit- og talmáli. Kennarareynsla í bæði málfræði
og bókmenntum er mikilvæg og æskilegt að umsækjandi hafi til
að bera nokkra kunnáttu í nútímamálvísindum. Þar sem is-
lenskudeild er að nokkru leyti fjármögnuð af sérstökum sjóði og
fjárframlögum Vestur-íslendinga, er ráð fyrir því gert að ís-
lenskudeild eigi jafnan drjúga aðild að menningarstarfi þeirra.
Þess er vænst að karlar jafnt sem konur sæki um þetta embætti.
Samkvæmt kanadískum lögum sitja kanadískir þegnar eða þeir
sem hafa atvinnuleyfi í Kanada í fyrirrúmi.
Umsóknir eöa tilnefningar meö ítarlegum greinargerö-
um um námsferil, rannsóknir og starfsreynslu, sem og
nöfnum þriggja er veitt geti nánari upplýsingar, berist
fyrir 30. október 1987.
Karen Ogden
Associate Dean of Arts
University of Manitoba
Útboð
Orkubú Vestfjarða óskar eftirtiiboðum í jarðvinnu
og gerð undirbyggingar fyrir verkstæðis- og skrif-
stofuhús á Patreksfirði.
Útboðsgögn verða afhent á eftirtöldum stöðum
gegn 2000 kr. skilatryggingu.
Skrifstofu Orkubús Vestfjarða
Stakkanesi 1, 400 ísafirði.
Skrifstofu Orkubús Vestfjarða
Aðalstræti 13, 450 Patreksfirði.
Verkfræðistofu Stefáns Ólafssonar
Borgartúni 20,105 Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð þriðjudaginn 1. september
n.k. kl. 14.00 á skrifstofu
Orkubús Vestfjarða
Aðalstræti 13
Patreksfirði
Fulltrúastarf
Stjórn Kennarasambands íslands auglýsir eftir
starfsmanni til að sinna verkefnum er varða kjara-
og félagsmál kennara.
Um er að ræða 50% starf og hugsanlega aukið
starfshlutfall á álagstímum.
Umsækjendur þurfa að hafa kennaramenntun og
kennslureynslu auk þess að hafa áhuga á félags-
starfi í stéttarfélagi kennara.
Umsóknarfrestur er til 25. ágúst 1987.
Allar frekari upplýsingar gefur formaður KÍ í síma
91-24070.
Umsóknir skulu sendar til Stjórnar Kennarasam-
bands íslands, Grettisgötu 89, 105 Reykjavík,
merktar „Fulltrúastarf".
Framleiðslustjóri -
Fiskvinnsla
Framleiðslustjóri óskast í umfangsmikla fisk-
vinnslustöð á Vestfjörðum. Reynsla æskileg. Góð
laun og fríðindi í boði fyrir góðan mann.
Upplýsingar í síma 685414 eða 685715.
Framleiðni sf.
llllllllll SAMTÍNINGUR llllllllllllllllllllll
Þau finna ekki
til sársauka
Paul, tveggja ára og Victoria Waters, fimm mánaða, eru haldin einum
sjaldgæfasta sjúkdómi sem til er. Þau finna alls ekki til sársauka.
Eins og nærri má geta eru foreldrar þeirra stöðugt með lífið í lúkunum, því
einkum Paul er athafnasamur í meira lagi
Vissulega var indælt að koma
heim með nýfætt barn, sem auk þess
var ekkert nema þægðin. Þegar Paul
var lítill, grét hann aldrei eða orgaði,
brosti bara og hjalaði, meira að
segja, þegar hann vaknaði á næturn-
ar.
Ég á tvö börn frá fyrra hjónabadi
og Bob, maðurinn minn þrjú, sem
öll búa hjá okkur, svo ég hef tölu-
verða reynslu af börnum á ýmsum
aldri, segir Christine Waters, 32 ára
og eiginmaðurinn kinkar kolli.
Á gólfinu fyrir framan þau er
sonurinn Paul, nýlega tveggja ára.
Hann var að leika sér fyrir andartaki,
en nú fær hann sér blund í mestu
makindum, þangað til hann tekur til
,að nýju. Bob segir að hann sé svo
athafnasamur, að hann blátt áfram
sofni af þreytu annað slagið. Þá fyrst
er forcldrunum líka óhætt að slaka
örlítið á. Paul er nefnilega líflegasti
snáði, sem allt þarf að kanna eins og
gengur og gerist, en hann þarf mun
meira eftirlit en önnur börn.
Waters-fjölskyldan býr í litlum bæ
við Kent-ströndina í Englandi.
Fimm eldri börnin eru í skóla, en
yngsta barnið, Victoria, 5 mánaða
situr skælbrosandi í fangi móður
sinnar í sófanum.
þaul var einmitt svona, þegar hann
var á hennar aldri, segir Bob. Hann
var orðinn tæplega ársgamall, þegar
hann grét í fyrsta sinn og síðan
»*«*■* Æ
ScfSftíS!
Paul mundi ekki hika neitt við þetta, þó straujárnið væri heitt.