Tíminn - 15.08.1987, Side 13

Tíminn - 15.08.1987, Side 13
Laugardagur 15. ágúst 1987 Tíminn 13 UM HVERJA HELGI - fólk flykkist að til að taka þátt í dularfullri morðgátu og byrla því eitur. Gestirnir fá líka peninga sinna virði, þegar þeir sjá gerviblóðið fljóta, bætir hún við. Joy á mikið safn morðvopna, en byssueftirlíkingin, sem notuð var til að útrýma einu fórnar- lambinu, orsaícaði einu sinni al- vöruuppnám. Áður en Joy lagði af stað heim til London með lest, fékk hún sér hressingu á bar í Euston. Þegar hún seildist eftir sígarettupakka í veskið sitt, sá hún konu, sem starði á fölsku_- byssuna um leið. - Ég velti því ekki meira fyrir mér, segir Joy, - en konan hlýtur að hafa tilkynnt lögregl- unni þetta. Þegar lestin rann inn á stöðina, komu rannsóknarlög- reglumenn á vettvang og lögðu hald á byssuna, en færðu mig til yfirheyrslu. Sagan sem ég hafði að segja um helgarmorð, þótti allt of ótrúleg. Joy fékk hugmyndina að starfseminni þegar hún heyrði útvarpsfrétt um morð á hóteli. - Ég hugsaði í fyrstu um/Jivað það væri skelfilegt ef svona lagað gerðist á mínu hóteli, segir Joy, sem þá var skrifstofustjóri á hóteli í Southport. - Síðan fór ég að sjá möguleikana. Fljótlega gerði Joy sér grein fyrir að hafa mætti stórfé upp úr svona löguðu og ákvaö að helga sig morðum að fullu. Nú ferðast hún mörg þúsund kíló- metra á mánuði hverjum með helgarmorð sín, milli hótela víðsvegar um landið og er alls staðar tekið vel. . - Mikilvæga'st^er "áð hafa alla með. Gestirnir eru^ekki að horfa á morðgátu, heldur taka þátt í henni. Þeim er boðið að vekja grunsemdir eina helgi og þykjast vera aðrir en þeir eru. Sé málið tengt skóla, geta þeir verið fyrr- um skólasystkini, ef það tengist brúðkaupi, er gamall vinur brúðarinnar hentugur. Fólk nýtur þess að leika eitt- hvert hlutverk, hcldur Joy áfram. - Bankastjóri getur verið tískufatahönnuður eina helgi, ef hann bara, vill. Þetta er eins konar flótti frá daglega lífinu. EitÉ sinn var með okkur sál- fræðingur frá Kaliforníu, sem sannfærðist um að svona lagað væri prýðileg sálræn afslöppun. Einu vandræðin, sem ég hef fundið til, er að gestunum hættir til að elta mig hvert fótmál, í von um að ég komi upp um allt saman. Stundum getur þetta orðið óþægilegt, svo ekki sé meira sagt. Það skemmtilegasta er, að yfirleitt tekst aðeins einni mann- eskju, að geta upp á hver morð- inginn er. - Við höfum iðulega haft með okkur lögreglumenn í helgarleyfum, sem sjá ekki nokkra skímu í gátunni, bétir Joy stolt við að lokum. Einstakt tækifæri fyrir bömin til þess að komast í snertingu við dýrin - og fyrir þá fullorðnu til þess að kynnast landbúnaði nýrra tíma. OPIÐ: Kl. 14-22 virka daga, kl. 10-22 um helgar. Strætisvagnar 10 og 100 stoppa í grennd við BÚ ’87. Allir krakkar fá að fara á hestbak. Reiðsýningar. Hestaleiga. Góðhesta- og kynbóta- sýningar 20.-23. ágúst. Hrossamarkaður, 14 af bestu hrossum landshlut- anna boðin upp. Fiskirækt og margar fleiri nýjar búgreinar. w í íslenskum landbúnaði er komin lengra en marga grunar.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.