Tíminn - 15.08.1987, Síða 14

Tíminn - 15.08.1987, Síða 14
14 Tíminn ÍÞRÓTTIR Laugardagur 15. ágúst 1987 íslandsmótið í knattspyrnu, 2. deild: Markalaus barátta á Valbjarnarvelli - ÍR og Selfoss skildu jöfn í leik þar sem mikið bar á baráttu en minna á spili ÍR og Selfoss skildu jöfn í viður- eign sinni í gærkvöldi er fram fór á Valbjarnarvelli. Leikurinn var í járnum allan tímann, lítið um færi og úrslitin sanngjörn þegar upp var staðið. Bæði liðin eru því áfram með í baráttunni um 1. deildarsætin tvö, ÍR-ingar hafa 21 stig en Selfyssingar standa betur, eru með 23 stig. Leift- ur er í efsta sæti deildarinnar með 24 stig, Selfyssingar koma næstir með 23 stig, Víkingar og Þróttur eru með 22 stig, ÍR 21 stig og Vestmanna- eyingar 20 stig, öll þessi lið, og jafnvel Einherji frá Vopnafirði og Breiðablik koma til með að berjast hart um stigin á næstu vikum. ÍR byrjaði af krafti í gærkvöldi, áttu skot í slá strax á 1. mínútu. Leikurinn jafnaðist þó snemma en miðjuþófið var ríkjandi, dekkningin stíf og ekkert gerðist utan að Selfyss- ingar fengu fjölda langra innkasta sem ekki nýttust þó Jón Birgir Kristjánsson væri nálægt því að skora í eitt skiptið. í síðari hálfleik var sama dæmið upp á tengingnum en undir lokin sóttu gestirnir stíft og Páll Guð- mundsson fékk gott færi til að stela stigunum þremur en skaut yfir. Ljóst er að bæði lið verða að spila betur í síðustu leikjunum eigi 1. deildarsæti að nást. Vörn Selfyssinga var góð í þessum leik, Hreiðar Sigtryggsson mark- vörður, Sævar Sverrisson og Þórar- inn Ingólfsson voru sérstaklega áber- andi, Sævar hélt markakónginum Heimi Karlssyni algjörlega niðri í leiknum. Hjá ÍR var sömu sögu að segja, vörnin var sterk með Guðjón Ragn- arsson í ágætu formi. Þá var Þor- steinn í markinu öryggið uppmál- að. 2. deildarkeppnin heldur áfram í dag og verður sjálfsagt hart barist í öllum leikjunum enda hvert stig mikilvægt. Einherji tekur á móti Víkingum á Vopnafirði og takist þeim að sigra þann leik eru þeir ennþá með í slagnum. Á Siglufirði keppa heimamenn við Vestmanna- eyinga, enn einn leikur sem er heimaliðinu mikilvægur, annars er fall orðin meira en hugsanlegur möguleiki. í Kópavogi reynir efsta lið deildar- innar, Leiftur frá Ólafsfirði, að tryggja’sér þrjú stig sem myndi koma þeim langt yfir þröskuld annarrar deildarinnar. Breiðablik þarf hins vegar nauðsynlega á stigum að halda annars blasir botnbaráttan við. Á ísafirði keppa síðan heima- menn við Þrótt úr Reykjavík. Þrótt- ur er með í toppbaráttunni en ísfirð- ingar eru nánast fallnir í 2. deild. Möguleikinn er þó enn fyrir hendi og því víst að ísfirðingar leggja allt kapp á að vinna. y Bikarkeppni FRÍ um helgina: ÍR-veldi hnekkt? Bikarkeppni Frjálsíþróttasam- bands íslands fer fram nú um helgina og gæti keppni orðið spcnnandi, sérstaklega í 1. deild þar sem IR- ingar, bikarmeistarar síðustu fimm- tán ára, munu vafalaust mæta harðri keppni frá keppnisliði HSK. Keppt verður í þrenrur deildum. I. deildarkeppnin fer fram í Rcykja- vík og hefst kl. 14.00 í dag og 11.00 á sunnudeginum. Kcppni í 2.deild fer fram í Hafnarfirði og hefst kl. II. 00 báða dagana. Þriðja deildin fer síðan frant í Stykkishólmi á sunnudeginum og hefst keppni þar kl. 13.00. Fyrirkomulagið er þannig að tvö ncðstu liðin í I. og 2. deild falla niður um deild og tvö efstu liðin fara upp. I 1. deild eigast við ÍR, HSK, KR, UMSK, UÍA og UMFK. Búist er við mjög mikilli keppni milli ÍR og HSK og reyndar má ekki afskrá bæði UMSK og KR í þessum slag. Þessi félög hjuggu nærri sigurgöngu ÍR-inga í fyrra og aðeins tvö og hálft stig skildu þrjú efstu liðin í fyrra. Telju má næsta öruggt að UMFK falli í 2.deild en hvert hinna félag- anna fylgir með er erfitt um að spá. í Hafnarfirði mæta einnig sex lið til leiks, FH, Ármann, UMSB, USAH, UMSS og UDN. Þar eru FH-ingar líklegastir til að bera sigur af hólmi en UDN er hins vegar í mestri fallhættu. Sjö lið hafa tilkynnt þátttöku í 3. deild, HSH, UNÞ, HSÞ, USÚ, USVS, UMSE og HSS. Af þessum félögunr þykja HSH og UMSE lík- legust til að komast upp í 2. deild. Einar sjötti í Lundúnum Einar Vilhjálmsson varð sjötti í spjótkastinu á Grand Prix mótinu í Lundúnum í gær þar sem helstu stjörnur frjálsíþróttanna voru saman- komnar. Einar kastaði 76,68 metra og Sigurður Einarsson fylgdi skammt á eftir, varð sjöundi með 76,60. Það var Bretinn Mike Hill sem sigraði með kast upp á 81,64 metra, annar var góðkunningi okkar íslendinga Peter Borglund frá Svíþjóð með 80,58 og þriðji enginn annar en Tom Petranoff frá Bandaríkjunum með 79,78. Dag Wenlund frá Svíþjóð var fjórði með 79,30, Sejad Krdzalic frá Júgóslavíu kastaði 78,76 og Einar kom svo næstur. Tvö silfur og eitt brons Þetta eru kapparnir sem tóku þátt í Norðurlandameistaramóti öldunga í frjálsum íþróttum sem fram fór í Björneborg í Finnlandi fyrir skömmu. Þeir eru frá vinstri Elías Sveinsson KR, Ólafur Unnsteinsson HSK, Ólafur J. Þórðarson ÍA, Jón H. Magnússon ÍR og Guðmundur Hall- grímsson UÍA. Á milli þeirra stend- ur Þorsteinn Löve sem keppti fyrir hönd Svía á þessu móti. íslendingunum gekk ágætlega öll- um saman, komust allir í úrslit í sínum greinum og urðu því meðal átta fyrstu. Alls tóku 800 keppendur þátt í mótinu. Guðmundur og Elías nældu sér í silfurverðlaun, Guðmundur varð 2. í 200 metra hlaupi og Elías 2. í kringlukasti. Þávarð Guðmundur3. í 100 metra hlaupi. priðju hverja viku M/S JÖKULFELL lestar í

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.