Tíminn - 15.08.1987, Page 15

Tíminn - 15.08.1987, Page 15
Laugardagur 15. águst 1987 Tíminn 15 Ert þú góður granni? Smávegis þras yfir limgerði getur orðið að hreinu stríði, ef málin eru látin fara úr Nágrannarnir geta skipt miklu máli ■ lífi fólks. Þess eru dæmi, einnig á Islandi, að leitað hefur verið til dómstóla vegna þess að grönnum reynist ókleift að útkljá ágrciningsmál sín. Sjaldnast gengur það þó svo langt, en tclja má víst að flestir hafi cinli verntíma látið framferði granna sinna fara óþægilega mikið í taugarnar á sér. í þessari klausu er sagt frá því sem gerist í grannamálum í Bretlandi og ekki er ólíklegt að einhver hér hcima kannist við eitthvað því líkt, þó hér hafi ekki beinlínis verið gerðar skoðanakannanir um inálin. Nýlega var til dæinis kannað á fasteignasölum, hvort kaupendur hefðu farið öðruvísi að, ef þeir hefðu vitað fyrirfram, hvernig nágranna þeir fengju. Niðurstaðan varð sú, að ein fjölskylda af hverjum 25 hefði alls ekki keypt viðkomandi eign, ef hún hefði þckkt granna sína áður. I Birminghamerháskólaprófess- or sem hefur gert nágrannadeilur að rannsóknarefni sínu. Hann full- yrðir að næsta algengt sé að fólk íhugi alvarlega að flytja vegna vandamála sem það sér í ná- grönnunum. Vissulega láta sumir líka verða af því að flytja og þá af einkenni- legustu ástæðum. Sölumaður nokkur flutti til dæmis vegna þess að konan í næsta húsi fór alltaf í sólbað ber að ofan. Einhverjum hefði kannske þótt það prýðileg ástæða til að sitja sem fastast. Aðrir eru kyrrir og reyna að þrauka. Húsmóðir í Lindfield í Sussex beindi garðslöngunni að grönnum sínum af því þeir börðu í milliveginn, þegar hún var að hjálpa dóttur sinni að æfa fyrir próf í píanóleik. Kona á sjötugsaldri í Yorkshire fleygði múrsteinum í nýjan glugga nágranna síns, því henni fannst baðherbergi sitt verða orðið að pyndingarklefa. Einmitt þar höfðu hljóðin í steinsög, borvélum og hamarshögg verið hvað verst. Eileen Purfield, 55 ára húsmóðir í Bexhill-on-Sea veit alveg hvað lífið getur verið óþægilegt, ef ágreiningur ríkir við nágrannana. Árum saman stóðu þau hjón í deilum unt lóðamörkin við George hinum megin, roskinn einbúa. George setti upp girðingu, Pur- field-hjónin rifu hana niður. Ge- orge setti upp aðra, mun traustari og lét loks reisa 180 cm háan vegg. Purfield lét þá reisa annan á sömu undirstöðum, en George braut hann líka niður. Þegar hér var komið, var lögregl- an kölluð til og málið endaði fyrir rétti, þar sem báðir aðilar urðu að láta undan til að halda friðinn. Nú er George látinn, en frú Purfield segir: Þetta var skelfilegt. And- rúmsloftið var alltaf hlaðið spennu og okkur leið illa ígarðinum.í fyrstu reyndum við að vera vinsamleg, en það var alls ekki hægt að tala við manninn. Við sáum ekki ástæðu til að flytja, því við áttum ekki sök á- vandanum. Ef einhver reynir vilj- andi að vera andstyggilegur, er ósköp erfitt að rétta honum bara hinn vangann. En hvað má gera og hvað ekki, til að^forðast að koma af stað illdeilum við nágranna sína? At- hugum eftirfarandi: Missið fyrir alla muni ekki stjórn á skapinu. Bjóðið viðkomandi upp böndunum Kannske er þetta góður granni, þó hann vilji ekki sleppa sláttuvélinni yfir limgerðið. á hressingu og reynið að ræða málin í stað þess að rífast hver í sínum dyrum. Flestir gera illt verra með því að kvarta. Þeim finnst erfitt að útskýra í rólegheitum eitthvað sem er þeim óþolandi. Mörgum hættir til að bíða of lengi með að vekja máls á hlutunum, en svo kemur að því að upp úr sýður og þeir eru fokreiðir, þegar þeir afráða að nú skuli látið til skarar skríða. Best er að hafa allar staðreyndir fyrirliggjandi, áður en kvartað er. Maður hefur til dæmis engan rétt til að gróðursetja klifurrós upp við girðingu grannans, eða að krefjast þess að hann geri við girðingu sína. Maður má heldur ekki höggva greinar af hans trjám, þó þær téygi sig yfir í manns eigin garð. Maður hefur ekki einu sinni sjálfkrafa rétt á að leggja bíl sínum við gangstéttina framan við húsið, umfram aðra, en ef einhver leggur fyrir innkeyrsluna þína, áttu þó heimtingu á að hann færi sig. Ágætt er að spyrja aðra ná- granna, hvort málið komi illa við þá líka og reynandi væri þá að fylkja liði til að losna við vandann. Kvartanir um hávaða eru lang- algengastar. Næst koma kvartanir um framferði barna og gæludýra og síðan um óþægindi vegna bíla. Ekki er ráðlegt að kalla lögregl- una til í of miklum flýti. Lögreglu- menn kæra sig sjaldnast um að blandast í nágrannadeilur, sem eru ekkert nema deilur. Ef um vísvit- andi skemmdarverk er að ræða, gegnir þó öðru máli og slíkt þarf að sanna. Rannsóknir leiða í ljós, að besta leiðin til að jafna ágreiningsmál nágranna, sé að reyna að sjá málið frá sjónarhóli hins aðilans og ræða það. Að lokum skal hver og einn minnast þess að hann á ekki ein- ungis nágranna, heldur er hann líka nágranni. Höggmyndagarður í kringum Hnitbjörg, Listasafn Einars Jónssonar var opnaður á ný eftir endurskipulagningu garðsins. A myndinni eru f.v.: Stcinþór Sigurðsson, listmálari, Hörður Bjarnason, stjórnarmaður listasafnsins og Olafur Kvaran safnvörður Ingólfur Davíðsson: Hátt ber Einars Hnitbjargagarð Hnitbjörg, sérkennileg bygging, reist með opinberum stuðningi sem safn og íbúðarhús Einars Jónssonar myndhöggvara. Húsið setti lengi svip á Skólavörðuholtið sem þá var að mestu autt, bert og blásið. Nú gnæfir mikilfengleg Hallgrímskirkj- an yfir umhverfið. Listasafn Einars er stórmerkilegt. Þá er mikil hugsun í myndum hans, meiri en flestra annarra. Margar myndastyttur hans eru á almannafæri í Reykjavík, t.d. hin fræga mynd Útlagar, sem skapaði Einari mikinn orðstír, ennfremur minnismerkið um Ingólf Arnarson á Arnarhóli, mynd Jónasar Hallgríms- sonar í Hljómskálagarðinum, fyrsta styttan eftir alíslenskan listamann, sem hér var sett upp. Garðurinn við Hnitbjörg er rammlega múrgirtur og er mikil gróska í honum, þó oft blási heldur mikið þarna uppi á Skólavörðuholt- inu. Byggingar veita honum núorðið verulegt skjól, en harðir vindsveipar þjóta stundum kringum háreista kirkjuna. Hnitbjargagarður er með sér- kennilegustu görðum í Reykjavík, og reyndar að sumu leyti einstæður, enda átti listamaðurinn sjálfur, Ein- ar Jónsson, þátt ígerð hans. Garður- inn er allstór með talsverðum trjág- róðri, upphleðslum úr grágrýti og snyddu - og ennfremur stórri hæð. fáum árum hefur verið gerð mikil bragarbót, það er, komið hefur verið fyrir mörgum afsteypum í eir af listaverkum Einars, og eykur það gildi garðsins stórkostlega. Allur er garðurinn hinn forvitnilegasti. Allir vilja skoða höggmyndadeildina (eir- steypurnar), en mörg listaverkin njóta sín best í faðmi eða nálægð gróðursins. Sitja margir gestir sem í draumi á bekkjunum, eða reika hugsandi um garðinn. Þegar ég kom í Hnitbjörg í fyrsta sinn voru áhrifin yfirþyrmandi. Ótæmandi efni virtist forvitnilegt til skoðunar. Til gamans skal ég geta þess, að framan við eina höggmynd- ina flugu mér í hug hendingarnar: „Og svo var líka samviskan sífellt að bíta og slá.“ Við hvaða myndverk er átt? Áskrift oq dreifinq í Reykjavík og Kópavogi er opin 9-5 daglega og 9-12 á laugardögum. Sími afgreiðslu 686300 Þarna eru iðnaðarmenn að leggja síðustu hönd á að ganga frá stöplum undir höggmyndir sem verða almenningi til sýnis í garðinum við Hnitbjörg.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.