Tíminn - 26.08.1987, Side 4
4 Tíminn
Miðvikudagur 26. ágúst 1987
Vegaframkvæmdir á
Vestfjöröum:
Lagfæring
vega og
snjóastaða
Fimmti og síðasti hluti vegafr-
amkvæmda á Vestfjörðum er nú
kominn á prent. Lesendur þurfa
samt ekki að bera kvíðboga fyrir
framtíðinni, því hún er björt og
fögur. Framundan er birting vcg-
aframkvæmda á Austurlandi. En
víkjum nú að síðasta hluta vcga-
framkvæmda vegagerðarinnar á
Vestfjörðum. Við lítum á Austur
Barðastandarsýslu.
Farið er yfir svæðið frá Skálma-
firði, þar sem sett er heildarmalars-
litag á 9,6 kílómetra. Síðan liggur
leiðin yfir í Gufufjörð, þar sem
vegur er styrktur, íagfærðir snjó-
astaðir og blindhæðir lagfærðar.
Loks verður endað í Reykhóla-
sveit, þar sem vegur er endur-
byggður.
Eins og það kæmi einhverjunt á
óvart, þá á Kristján Kristjánsson,
umdæmistæknifræðingur á ísafirði
allan heiður af gerð og undirbún-
ings þessa stórgóða og skilmerki-
lcga korts. Tíminn þakkar honum
góða samvinnu. - SÓL
Austur-Barða
strandarsýsla
Borgarnes útgeröarbær:
Skeldýraveiðar
í Borgarfirði
Borgnesingar eru nú að hefja
tilraunaveiðar á skeldýrum í Borgar-
firði. Markmið þeirra er að kanna
hvort nægilegt magn skeldýra fáist
úr firðinum til að áframhaldandi
vciðar og vinnsla nái að standa undir
sér. Ef svo er hyggjast Borgnesingar
auka fjölbreytni í atvinnulífi staðar-
ins og renna enn cinni stoðinni undir
matvælaiðnað þann scm nú er til
staðar í Borgarncsi. Tilraunaveið-
arnar eru stundaðar að tilstuðlan
atvinnumálanefndar Borgarncs-
hrepps og með stuðningi sérstaks
framkvæmdasjóðs sveitarfélagsins.
Þetta framtak Borgnesinga er sér-
staklega athyglisvert l'yrir þær sakir
að Borgarnes hcfur hingað til ekki
verið þekkt fyrir að vera útgcrðar-
staður, fremur helur verið litið á
Borgarnes scm dæmi um þá fáu
þéttbýlisstaði við sjó sem ekki
byggja afkomu sína á útgerð og
fiskvinnslu. Hins vegar tclja að-
standendur tilraunaveiðanna Borg-
arnes hentugan útgcrðarstað fyrir
þcssar veiðar þar scm líkur eru á
stórum krabba og skeldýrastofnum í
Borgarfirðinum.
Rafveita Vestmannaeyja
hækkar gjaldskrá:
Hækkun um 11,5%
á einum mánuði
Rafveita Vestmannaeyja hefur nú
hækkað gjaldskrá sína um 11,5% á
einum mánuði. Hluti hækkunarinn-
ar cr tilkominn vegna hækkunar
Landsvirkjunar, eða 7,5%, en 4%
eru framtak Rafveitunnar.
Rafveitan fór fram á það við
Iðnaðarráðuneytið að fá leyfi til að
hækka gjaldskrá sína þann 1. ágúst
sl. um 4% og fékk Íeyfi til þess.
Stuttu síðar og með örstuttum fyrir-
vara hækkaði Landsvirkjun sína
gjaldskrá um 7,5% og sótti Rafveita
Vestmannaeyja þá um sömu hækkun
og fékk leyfi ráðuneytisins til þess.
í nýrri gjaldskrá er kaupendum
leyft að auka aflúttekt sína um allt
að 20% án þess að aflgjald hækki,
og er þetta liður í þeirri viðleitni
Rafveitunnar að losna við það um-
framafl sem þeir þurfa að glíma við
á ári hverju. Leyfið gildir þó aðeins
á tímabilinu 16. maí til 15. septemb-
er.
Sé húshitun hins vegar. sérmæld.
þá greiðist ekki sölugjald af þeirri
orku. -SÓL
Öryggismál sjómanna:
Slysavarnaskólinn
tekinn til starfa
Björgunaræfingar úr sjó er meðal verkefna sem tekin eru fyrir í siysavarnaskólanum.
Slysavarnaskóli sjómanna tekur
nú til starfa að loknum sumarleyfum
í byrjun næsta mánaðar.
Kennsla verður með mjög svipuð-
um hætti og undanfarin ár og vcrður
einkum lögð áhersla á endurlífgun,
flutning slasaðra milli staða, ráð til
að halda lííi við erfiðar aðstæður og
notkun hinna ýmsu björgunartækja
og búnaðar um borð í skipum.
Einnig verður farið yfir lög og reglur
þar um. Björgun með þyrlum,
brunavarnir og slökkistörf verða
einnig til kennslu á námskeiði
slysavarnafélagsins.
Þar scm ckki hefur verið hægt til
þessa að sinna öllum innkomnum
beiðnum um námskeiðahald á veg-
um slysavarnaskóla sjómanna, cr
mjög áríðandi að þeir scm vilja
tryggja sér fast sæti á námskeiðinu
fyrir árarnót hafi samband við skól-
ann hið fyrsta og ekki seinna en í
gær.
Nánari upplýsingar eru veittar á
skrifstofu Slysavarnafélags íslands í
síma 27000 á skrifstofutíma. -SÓL
Lögreglan á Akureyri:
Tvær bílveltur og
fjórtán of hratt
Á laugardagsmorgun varð bíl-
velta í Öxnadal. Ökumaður
missti vald á bílnum í lausamöl,
með fyrrgreindum afleiðingum.
Hann var einn á ferð og slasaðist
ekki.
Aðfaranótt sunnudagsins
fylgdi annar ökumaður í kjölfarið
og velti bílnum sínum í Öxna-
dalnum einnig, var og einn á ferð
og slasaðist hcldur ekki.
Annar bíllinn er talinn gjör-
ónýtur og hinn mikið skemmdur.
Lögreglan á Akureyri hefur
einnig verið með umfangsmiklar
radarmælingar, með þeim af-
leiðingum að fjórtán ökumenn
voru teknir fyrir of hraðan akstur,
þó enginn áberandi hratt. Tveir
voru einnig teknir fyrir ölvun við
akstur. - SÓL