Tíminn - 26.08.1987, Side 7

Tíminn - 26.08.1987, Side 7
Miðvikudagur 26. ágúst 1987 Tíminn 7 Gunnar Guðbjörnsson, tenór, fór frægðarför til Vínar: - segir meistarasöngvarinn Nicolai Gedda Þú verður að vera viss. Meðal annars þess vegna sóttist Gunnar Guðbjörnsson, tenórsöngvari, eft- ir að komast á söngnámskeið hjá heimssöngvaranum Nicolai Gedda í Vínarborg fyrr í þessum mánuði. Námskeið Gedda eru umsetin, en Gunnar vildi vita hvað slíkum manni þætti um söngrödd hans og hvort stefna ætti að atvinnu- mennsku á þessu sviði. Eins vildi Gunnar verða vísari um úrval á ungum tenórsöngvurum erlendis og möguleika á frekara námi, en hérlendis hefur hann lært söng lengst af hjá Vincenzo Maria Demetz, en cinnig hjá Snæbjörgu Snæbjarnardóttur. Gunnarsendi hljóðupptöku söng sínum til Vínar. en fékk það svar, að hann yrði sjálfur að koma til að syngja fyrir meístarann, svo fengist úr því skorið hvort Gunnar ætti erindi á námskeiðið. Slíkt gerðu Japanar, Ástralir og Banda- ríkjamenn. ísland væri í raun ekki svo afskekkt. „Þegar allt kom til alls varð ég ekki að syngja fyrir," sagði Gunnar í samtali við Tímann í gær, en hann er nýkominn heim til íslands eftir þriggja vikna dvöl erlendis í þessu tilefni. „Nicolai Gedda hafði feng- ið kassettuna afhenta og hlustað á hana og virtist vcra ánægður með f>að sem hann heyrði. Þegar kom að mér á listanum yfir þá sem áttu að syngja fyrir hann sagðist hann hafa fengið upptökuna og það yrði ánægja að vinna með mér.“ Það stóðu þannig allar dyr opnar fyrir Gunnari þegar hann kom til Vínarborgar. Þrjátíu manns sungu þó fyrir, en aðeins fimmtán komust að, þrátt fyrir að margir væru þegar að syngja í óperum og komnir með fasta samninga við óperuhús. Dag- inn eftir hófst námskeiðið með hefðbundnum hætti. „í fyrsta tíma færði Gedda í tal að hann hefði eitt sinn sungið í Þjóðleikhúsinu hér á íslandi. Hann tók til þess að hér hefðu verið góðir söngvarar. Næst spurði hann mig hvort ég væri ráðinn við óperuna," sagði Gunnar. „Ég kvað nei við og benti á að ég væri aðeins tuttuguog- tveggja ára gamall. í næsta tíma þar á eftir spurði Gedda hvort ég segði satt til um aldur og fyrst svo væri, hvort ég hefði lært söng frá barnsaldri. Ég sagði sem var, að ég rnálið og gaf honum heimilisfangið mitt,“ sagði Gunnar, sem ætlarsér að læra meira áður en eiginlegur söngferill hefst. Næst vildi Bandaríkjamaður að nafni David Lutz hafa tal af Gunn- ari. Hann er rómaður undirleikari, hefur leikið undir hjá stórstjörnum á borð við Robert Holl og Luciu Popp m.a., og vildi hann halda með Gunnari tónleika. Einnig hann varð forviða að heyra u ungan aldur tenórsins, en bauð mm að hafa samband við”sig j hann kæmi aftur til Vínarborg >g gætu þeir þá jafnvel æft saman. „Það hefur af og til læðst til mín sá efi hvort ég væri að stefna á rétta braut. Hvort það hefði verið skynsamleg ákvörðun að hætta við að fara í Háskólann eftir stúdents- prófið og fara að læra að syngja, en söngur er ekki traustasta atvinna sem völ er á. En óneitanlega er ég vissari um sjálfan mig að þessari ferð lokinni og ég er núna sann- færður um að ég sé að gera rétt. Það er mikill léttir." þj „Ég er núna sannfærður um að ég sé að gera rétt.“ Gunnar Guðbjörnsson, tenórsöngvari. ('ríminn: i’jciur) hefði hafið söngnám fyrir um fjór- um árum. Þá sagði Gedda að rödd m ín væri guðsgjöf og ég yrði að fara varlega með hana.“ Hann átti seinna eftir að bjóða Gunnari að koma til sín til náms í heimaborg sinni, Stokkhólmi í Svíþjóð, - jafnvel strax eftir ára- mót ef hann gæti gefið sér tíma, en Gunnar gerir ráð fyrir að Ijúka burtfararprófi frá Nýja tónlistar- skólanum í desember. Gedda fór einnig fram á að hann ráðfærði sig við sig unt verkefnaval og eins áður en hann tæki nokkrum tilboðum. Meistarasöngvarinn er frægur fyrir fjölhæfni sína og tungumála- kunnáttu. Hann er jafnvígur á sænsk, þýsk, ítölsk, rússnesk og frönsk söngverk svo á eitthvað sé minnst. „Hann leiðrétti jafnvel Þjóðverj- ana þegar þeir gerðu textavillur í þýskum ljóðum,“ sagði Gunnar, sem fékk sinn skammt þegar hann söng fyrir Gedda franska aríu. „ís- lendingar eiga auðvelt mcð að ná ítölskunni og ég reyndist ekki eiga í vandræðum með hana ólíkt t.d. Þjóðverjunum, sem skrolluðu margir á r-unum. Gedda sagði að ég væri á réttri leið í náminu. Hann hefði sjálfsagt talsverðu við að bæta, en þyrfti ekki að breyta neinu. Undirstaðan væri rétt. Sú vissa gerir ákvörðun mína um að leggja sönginn fyrir mig auðveldari. ég þyrfti lítið nteira að læra. Nú þyrfti að fínpússa og vinna til að þjálfa röddina og hafa strangt eftir- lit með söngnuin, svo ég vendi mig ekki á ncina ósiði. Svo þarf að læra hlutverk og skoða söngverk ofan í kjölinn. Ég tek undir með Gedda að lýrísk óperuhlutverk, svo sem sum hlutverk í Mozart óperum, og þýsk ljóð henti mér best sem stendur." Segja má að meistari Nicolai Gedda hafi tekið Gunnar undir Ég kann ntjög vel við Gedda, hvort sent er sem kennara eða mann. Sú tækni sem hann kennir virðist vera nákvæmlega sú scm hentar ntér og framhald af því sent Demetz hefur vcrið að kenna mér hér heima. Annars sagði Gedda að sinn verndarvæng, því að meðan á námskeiðinu stóð hafði hann sam- band við sína eigin umboðsmenn og bað þá að hafa Gunnar í huga. Þar væri gott efni á ferðinni. Lokatónleikarnir, þar sem allir nemendur Nicolai Gedda komu fram til að syngja, fólu í sér sérs- taka upphefð fyrir Gunnar, því að hann var látinn syngja síðastur og Ijúka þar með tónleikunum. Hann söng tenóraríu úr óperunni Gianni Schicci eftir Puccini. Hann var ekki kominn af sviðinu þegar hann sá hvar maður vcifaði honunt til sín baksviðs. Þar var kominn Erich Scitter, umboðsmaður í tengslum við Hollánder skrifstofurnar í Vín- arborg, sem eru mjög frægar um- boðsstofur söngvara í Austurríki. Hann bauð Gunnari þegar samning, en skildi að hann vildi hugsa sig um. Hann væri enn ungur aðaldri. AldurGunnars kom Erich á óvart og lagði hann þá til að fá að skipuleggja tónleikaferð starfsárið 1988 til 1989. „Ég sagðist hugsa

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.