Tíminn - 26.08.1987, Síða 10
10 Tíminn
Miðvikudagur 26. ágúst 1987
Knattspyrna:
Framarar
fylkja sér
Mandslið
Sigfried Held landsliðsþjálfari í
knattspyrnu hefur valið 21 leikmann
til að taka þátt í undirbúningi vegna
landsleiksins gegn Austur- Þjóðverj-
um miðvikudaginn 2. september.
Sjö Framarar eru í þessum hópi
en um helgina verða valdir 16 leik-
menn sem halda eiga merki fslands
á lofti í þessari Ólympíuviðureign.
Leikurinn fer fram á Laugardals-
velli og hefst kl. 18.00.
Hópurinn er skipaður eftirtöldum
Icikmönnum;
Markverðir:
Fridrik Friðriksson Fram
Guðmundur Hreidarsson Val
Birkir Kristinsson lA
Aðrirleikmenn:
Ingvar Guðmundsson Val
Guðni Bergsson Val
Njáll Eiðsson Val
ValurValsson Val
Ágúst Mór Jónsson Val
Halldór Askelsson Þór
Siguróli Kristjánsson Þór
Hlynur Birgisson Þór
ólafur Þórðarson ÍA
Heimir Guðmundsson ÍA
Sveinbjörn Hákonarson ÍA
Viðar Þorkelsson Fram
Þorsteinn Þorsteinss. Fram
Guðmundur Steinsson Fram
Kristjón Jónsson Fram
Pétur Arnþórsson Fram
Ormar örlygsson Fram
Guðmundu-Torf ason Winterschlag
Á myndinni eru nokkrir þeirra drengja sem dvalist hafa í knattspyrnuskóla KSÍ og NutraSweet að Laugarvatni.
Með þeim á myndinni er Helgi Þorvaldsson í drengjalandsliðsnefnd KSÍ
KSÍ og NutraSweet
Árið 1986 setti Knattspyrnusam-
band íslands, með stuðningi
Evrópuknattspyrnusambandsins. á
fót knattspyrnuskóla að Laugar-
vatni. Þangað var stefnt öllum efni-
legustu 14 ára knattspyrnumönnum
þjóðarinnar - landsliðsmönnum
framtíðarinnar - og þeim gefinn
kostur á að æfa þar undir leiðsögn
færustu þjálfara í vikutíma. Að
Laugarvatni dvöldu einnig unglinga-
og drcngjalandslið íslands við æfing-
ar í 3 daga hvort.
Svo vel þótti til takast að Knatt-
spyrnusambandið ákvað að reyna að
gera knattspyrnuskólann að árlegum
viðburði, sem er kostnaðarsamt
fyrirtæki og því leitaði Knattspyrnu-
sambandið til NutraSweet um
stuðning. NutraSweet er alþjóðlegt
fyrirtæki, með höfuðstöðvar í Sviss,
sem framleiðir sætucfni í drykkjar-
vörur og matvæli. Þeir hjá Nutra-
Sweet brugðust frábærlega við þess-
ari málaleitan Knattspyrnusam-
bandsins og munu styðja skólann
rausnarlega í ár.
Knattspyrnuskólinn mun því'
nefndur „Knattspyrnuskóli K.S.Í.
og NutraSweet“. Stuðningur Nutra-
Sweet við knattspyrnuhreyfinguna
mun verða henni ómetanleg lyfti-
stöng og er sérstaklega kærkomin
K.S.Í. í ár, sem hcfur í tilefni af 40
ára afmæli sínu lýst árið 1987 „Ár
knattþrautanna", en knattspyrnu-
skólinn er cinmitt til þess ætlaður að
auka tæknina og þar með fegurðina
í íslenskri knattspyrnu.
Þeir 24 leikmenn sem sækja munu
Knattspyrnuskóla K.S.Í. og Nutra-
Sweet í ár hafa þegar verið valdir og
koma þeir allstaðar að af landinu.
Munu þeir dvelja að Laugarvatni í 5
daga við æfingar og leiki, auk þess
sem þeim mun gefast kostur á að
hlýða á ýmis fróðleg erindi um
knattspyrnuna og mikilvægi heil-
brigðs lífernis og neyslu hollra og
næringaríkra fæðutegunda. Leik-
menn unglinga- og drengjalandsliða
íslands munu ennfremur dvelja að
Laugarvatni í 3 daga hvort lið til
undirbúnings fyrir leiki í Evrópu-
keppninni nú í haust.
Aðalkennari við Knattspyrnu-
skóla K.S.Í. og NutraSweet verður
Lárus Loftsson, þjálfari unglinga-
og drengjalandsliða íslands, en hann
mun njóta aðstoðar nokkurra
reyndra unglingaþjálfara, auk þcss
sem Jón Gíslason, matvælafræðing-
ur, Sigurjón Sigurðsson, skurðlækn-
ir og Eyjólfur Ólafsson, knatt-
spyrnudómari munu halda fróðlega
fvrirlestra.
Evrópumeistaramótiö í sundi í Strassborg:
Eðvarð Þór
styrkti stöðu
sína í hópi
þeirra bestu
Eðvarð Þór Eðvarðsson sýndi það
og sannaði á Evrópumeistaramótinu
í Strassborg að hann cr í hópi bestu
baksundsmanna heims. Eðvarð sctti
Norðurlandamet í 200 mctra bak-
sundi og lslandsmct í 100 metra
baksundi og 200 mctra fjórsundi.
Hann komst í sjálft úrslitasundið í
báðum btiksundsgreinunum.
Systkinin Magnús og Bryndís Ól-
Bikarúrslitin í knattspyrnu:
Dregið um
bláa
búninginn
Úrslitaleikurinn í Mjólkurbikar-
keppni KSÍ verður á sunnudaginn
og mætast þá Fram og Víðir úr
Garði. Leikurinn verður á Laugar-
dalsvelli og hefst kl. 14.00.
Eins og flestir knattspyrnuunn-
endur sjálfsagt vita leikíi bæði liöin
venjulega í bláum búningum og
verður því að draga unt hvort Víðis-
menn ellegar Framarar ganga út á
völlinn á sunnudaginn í sínum gömlu
góöu aðalbúningum.
Drátturinn um bláa búninginn fer
fram í dag í húsakynnum Osta- og
smjörsölunnar og bíða sjálfsagt
niargir hjátrúarfullir stuðningsmcnn
liðanna eftir því hvort liðið dettur í
lukkupottinn í litamálinu.
Hvar sem blái búningurinn lendir
er víst aö lcikurinn um hclgina
verður spennandi og skemmtilcgur.
afsbörn scttu einnig þrjú íslandsmet
hvor, Ragnar Guðmundsson setti
tvö íslandsmet og Arnþór Ragnars-
son citt.
í hcildina var frammistaða ís-
lensku keppendanna meö ágætum
en ljóst er að Eðvarð cr okkar cini
sundmaður scm getur att kappi við
þá bestu.
Evrópumcistaramótiö í Strass-
borg var annars feiknasterkt oghvcrt
heimsmetið af öðru var bætt. Aust-
ur-þýskustúlkurnarsópuðuað venju
til sín vcrðlaununum og þar v;ir
fremst í flokki Kristin Otto sem
vann þrjú einstaklingssund.
Michael Gross. Vestur-Þjóðverj-
inn langi og kallaður albatrossinn,
náði ekki aö endurtaka afrek sitt frá
árinu 1985 þegar hann vann sex
mcistaratitla. Engu að síður vann
hann tvö gull, tvö silfur og eitt
brons, ckki slæmt hjá sundmanni
sem varð að hvíla sig i tvo mánuði
fyrr á þessu ári vegna meiðsla í öxl.
Skotastúkan eru hin óopinberu áhorfendastæði í Öskjuhlíðinni fyrir ofan
Valsvöllinn kölluð. Það voru fjölmargir sem fylgdust með toppviðureign
síðustu helgar milli Vals og Fram úr skotastúkunni og á þessari skemmtilegu
inynd má sjá hluta af þeim. Tímamynd - Pjetur
Molar
MIRANDINHA, brasilíski
miðherjinn sem hefur verið seld
ur til enska knattspyrnuliðsins
Newcastle, lék sinn síðasta leik
með sínu gamla félagi, Palmeiras,
um helgina. Ekki var þetta
ánægjulegur endir á dvöl Mirand
inha hjá Palmeiras því hann var
rekinn af leikvelli fyrir að rífa
kjaft. Að auki tapaði Palmeiras
leik þessum gegn Sao Paulo mcð
þremur mörkum gegn einu...
“KING K0NG“ eða Macolm
Kirk eins og hann heitir réttu
nafni lést um helgina þegar hann
keppti í íþrótt sinni. Kirk cr
þekktur glímukappi í Brctlandi
þar sem glíma eða wrestling er
vinsæl áhorfendaíþrótt. Kirk er
158 kíló að þyngd og átti hann í
átökum við „Big Daddy" sem cr
litlu léttari. Kirk lenti undir mót
herja sínum, rotaðist og lést
stuttu síðar...
ANNAÐ banaslys var á Bret-
landi um helgina er tengdist
íþróttum. Slysið varð í nágrenni
Lundúna þar sem krikket-
lcikmaður fékk í sig eldingu og
lést. Þetta gerðist í vináttuleik
milli tveggja áhugamannafé-
laga...
ARSENAL festi í vikunni kaup
á miðjumanninum Kevin Ric-
hardson er lék með Watford á
síðasta keppnistfmabili. Richard-
son er 24 ára gamall og lék áður
með Everton, var reyndar í liðinu
sem sigraði Watford í úrslitum
bikarkeppninnar árið 1984...
ÍTALSKA 1. deildarfélagið AC
Milan hefur neitað að gefa hinuni
nýju leikmönnum sínum, Holl-
endingunum Ruud Gullit og
Marco Van Basten, leyfi til að
leika með landsliði sínu í vináttu-
lcik gegn Belgum í næsta mánuði.
Landsleikurinn fer fram þann 9.
september en fjórum dögum síð-
ar verður flautað til leiks í ítölsku
deildarkeppninni. Gullit og Van
Basten hafa þar skráð inn í samn-
inga sína að þeir geti leikið sjö
landsleiki fyrir Hollendinga á ári
hvcrju og sögðust talsmenn ít-
alska stórliðsins ætla að virða þá
klásúlu...
TERRY Gibson miðherji Man.
Utd hefur verið seldur frá félag-
inu og mun leika með Lundúnar-
liðinu Wimbledon á þessu keppn-
istímabili. Gibson lék áður með
Tottenham og Coventry en hefur
ekki náð að festa sig í sessi hjá
Manchesterliðinu...
BRASILÍUMENN komu
mjög á óvart í körfuboltakeppn-
inni á Ameríkuleikunum sem
lauk um helgina vestur í Indian-
apolis í Bandaríkjunum. Bras-
sarnir sigruðu lið Bandaríkja-
manna í úrslitaleik körfubolta-
keppninnar með 120 stigum gegn
115. Það var Oscar Schmidt sem
var potturinn og pannan í leik
brasilíska liðsins og skoraði 45
stig. Bandaríska liðið hafði farið
létt t gegnum alla leiki þar til kom
að Brössunum. í bandaríska lið-
inu voru nokkrir leikmenn sem
eru á þröskuldi þess að Ieika í
NBA, atvinnumannadeildinni
bandarísku...
BANDARÍKJAMENN unnu
annars til langflestra gullverð-
launa á þessum leikjum sem
stóðu yfir í tvær vikur. Bandríkja-
menn fengu 168 gullverðlaun og
Kúbumenn komu næstir með 75
gull...