Tíminn - 04.09.1987, Blaðsíða 4

Tíminn - 04.09.1987, Blaðsíða 4
4 Tíminn Föstudagur 4. september 1987 Minnispeningur um dr. Sigurð Þórarinsson: Robert L. Smith fyrstur heiðraður Alþjóðleg samtök á sviði eldfjalla- fræði, IAVCEI (International Assoc- iation of Volcanology andChemistry of the Earth’s Interior), hafa stofnað til sérstakrar viðurkenningar fyrir rannsóknir í eldfjallafræði. Þessi viðurkcnning er minnispeningur scm ber nafn Sigurðar Þórarinssonar jarðfræðings, í virðingarskyni við minningu hans, og nefnist „Sigurdur Thorarinsson Medal“. Frumkvæði að þessari viðurkenningu átti starfs- hópur á vegum samtakanna, sem nefnist Working Group on Explos- ivc Volcanism eða starfshópur um sprengi- og þeytigos, en Sigurður vann brautryðjendastarf við rann- sóknir á slíkum gosum og gjósku- lögunum sem í þeim myndast. Minn- ispeningurinn um Sigurð Þórarins- son verður að jafnaði veittur á fjögurra ára fresti, þegar þing sam- takanna er haldið. Minnispeningurinn var veittur í fyrsta sinn á nýafstöðnu þingi sam- takanna, sem haldið var í Vancouver Róbert L. Smith, jarðfræðingur var fyrstur til að hljóta minnispeninginn. í Canada 9.-22. ágúst síðastliðinn. Fyrstur til að hljóta hann var Robert L. Smith, 66 ára jarðfræðingur við Jarðfræðistofnun Bandaríkjanna (U.S. Geological Survey), fyrir brautryðjendastarf sitt við rann- sóknir á eldgosum sem valda svo- nefndum gjóskuhlaupum. I slíkum gosum berst meginhluti gosefnanna frá upptökum sínum cins og skriða af heitri gjósku og eldfjallagasi scm leitar undan halla og breiðist hratt yfir umhverfið. í gosum af þessu tagi getur rúmmál gosefnanna skipt hundruðum rúmkílómctra og í flokki þeirra er að finna einhver stærstu gos sem vitað er um á jörðinni. Robert L. Smith kom hing- að til lands sumarið 1957 og kynntist þá Sigurði Þórarinssyni ogrannsókn- um lians á Heklugosum. Annars hefur hann cinkum starfað að jarð- hitarannsóknum í heimalandi sínu. Jarðfræðafélag íslands tók að sér að sjá um gerð minnispeningsins. Steinþór Sigurðsson listmálari hann- aði peninginn. Á framhlið hans er andlitsmynd af Sigurði Þórarinssyni. Unnur Stefánsdóttir formaður LFK: LFK stefnir til meiri áhrifa innan flokksins f tilefni landsþings Landssam- bands framsóknarkvenna, sem hald- ið verður að Varmahlíð í Skagafirði um hclgina ræddi Tíminn stuttlega við Unni Stefánsdóttur formann sambandsins. Um árangurinn afstarfi LFK sagði Unnur að Landssambandið hefði verið stofnað fyrir einungis fimrn árum, en nú þegar væru starfandi nokkur hundruð kvenna um land allt. Sá hópur fer vaxandi ár frá ári og það sama má segja um starfið. Þá hefur hlutur kvenna innan flokksins aukist nokkuð á þessum tíma. Til marks um það má benda á að hlutur kvenna innan Framsóknar- flokksins í sveitarstjórnum óx úr 17% 1982 í 24% árið 1986. f síðustu Alþingiskosningum vann ein kona, Valgerður Sverrisdóttir, þingsæti fyrir flokkinn. Þá hafði ekki verið kona á þingi í 37 ár fyrir Framsókn- arflokkinn. Hins vegar finnst mér óneitanlega árangur af starfi okkar vera allt of lítill miðað við þær væntingar, sem viö höfum haft. Það er mín skoðun að Framsókn- arflokkurinn sé á vissum tímamótum og á ég þar við að ef flokknum auðnast ekki að virkja fleiri konur til ábyrgðastarfa þá mun hann líða alvarlega fyrir það. í þessu sambandi verður að hafa í huga að flokkafylgi er nú mun lausara en áður. Sá flokkur sem ekki temur sér nútíma hugsanahætti um jafnrétti kynjanna nær ekki árangri Lögreglan á Selfossi radarmælir: Tveir mældir á 177 km hraða Lögreglan á Selfossi hefur undan- farna daga verið að radarmæla í nágrenni bæjarins og hefur að með- altali tekið um 10 ökumenn á dag fyrir of hraðan akstur, þrátt fyrir að umferðin sé ekki mikil, nema um helgar. Steininn tók þó úr á þriðjudags- kvöld, þegar að tveir ökumenn voru mældir á 177 kílómetra hraða. Það þarf kannski ekki að fjölyrða um það að þeir verða nær örugglega sviptir ökuleyfi. - SÓL Unnur Stefánsdóttir formaður LFK sem skyldi. Síðustu kosningar voru tvísýnar en þær næstu vinnast ekki nema með stóraukinni þátttöku kvcnna í starfi og í efstu sætum á listum Framsóknarflokksins. Unnur sagði aðalmál þingsins yrði starf og stefna LFK. En þar fyrir utan verða umræður og gerðar álykt- anir um marga mikilvæga mála- flokka, s.s. atvinnumál, byggðamál, ferðamál, hollustustefnu, forvarnir, umhverfismál, launajafnrétti og síð- ast en ekki síst framboðsmál." Aðspurð um livert hún teldi stefna um starf og hlutverk LFK sagði Unnur að starfið hlyti að mótast af þjóðfélagsaðstæðum hverju sinni. „í upphafi lögðum við megináhersluna á að byggja upp félagsstarf LFK og vissa þætti þjóðmála. Eins og dagskrá þingsins sýnir ætlum við okkur nú að auka hlut kvenna í allri pólitískri umræðu ogákvarðanatöku innan flokksins og ekki síður út á við. Það er engu að síður mitt mat að sérstaklega þurfi að ræða nokkur afmörkuð málefni. Þar vil ég fyrst nefna atvinnumál landsbyggðarinn- ar. Það verður að auka fjölbreytni atvinnutækifæra í dreifbýlinu og það er mín skoðun að við eigum að stefna að flutningi fyrirtækja frá þéttbýlinu til dreifbýlli staða. Mögu- leikarnir á þessu fara sívaxandi með batnandi samgöngum. Þá er nauðsynlegt að efla sérstak- lega umræðu um forvarnarstarf á sviði heilbrigðismála. Það þarf að gjörbreyta áherslum í heilbrigðisk- erfinu með hliðsjón af þessu, því heilbrigði er ein af mikilvægustu - ef ekki mikilvægasta - auðlind okkar íslendinga. í þessu sambandi má benda á að nú stefnir í stórkostlegan innflutning á erlendu vinnuafli. Við verðum að hafa það í huga að rcynsla annarra þjóða af innfluttu vinnuafli hefur verið misjöfn þegar til lengri tíma er litið. Þetta varðar einnig heilbrigð- isniál og t.d. eru Bandaríkin farin að gera ýmsar varúðarráðstafanir vegna innflutnings fólks, t.d. með kröfu um eyðnipróf. Til þessara atriða vcrðum við að taka afstöðu, því gæta verður þess að um leið og eitt vandamál er leyst, í þessu tilviki skortur á vinnuafli, þá má það ekki verða til þcss að búa til önnur og jafnvel alvarlegri vandamál. Því tel ég þýðingarmikið að reyna allar aðrar leiðir en innflutning á vinnuafli. Til dæmis vakti ég athygli á því fyrir síðustu alþingiskosningar að við gætum hugsanlega leyst vinnuaflsþörf fiskiðnaðarins með því að láta fiskvinnslufólk njóta svipaðra skattfríðinda og sjómenn hafa haft. Þetta má gera með margvíslegum hætti en aðalatriðið er þó að þessi grundvallarstörf, sem að miklu leyti eru unnin af konum, verði aftur gcrð eftirsóknarverð fyrir íslendinga," sagði Unnur að lokum. ÞÆÓ Njótiu ferðarinnarlsi^’ Aktu eins og þú vilt að aðrir aki. Góðaferð! tf$TROAR 5- Svona lítur framhlið niinnispeningsins út.» Umhverfis myndina er áletrun, Sigurður I'horarinsson Medal og nafn samtakanna sem veita hann IAVCEI. Bakhliðin er auð en þar verður grafin áletrun eftir því sem við á hverju sinni. Peningurinn er 6 cm í þvermál og er úr Ijósri kopar- blöndu. Ís-Spor h/f sá um sláttu en mótin voru grafin af Sporrong AB í Svíþjóð. Jarðfræðafélag íslands á fulltrúa í nefndinni sem úthlutarþessari viður- kenningu, en hún er skipuð fimm mönnum. Fulltrúi Jarðfræðafélags- ins í úthlutunarnefnd er Sven Þ. Sigurðsson, dóscnt við Raunvísinda- deild Háskóla fslands. ICE LAND 1986 HANDBOOK PUBLISHEÐ BY THE CENTRAL BANK OF ICELANO Seölabankinn gefur út bók á ensku: Alhliða lýsing á landi og þjóð Á vegum Seðlabanka Islands er komin út ný bók um ísland á ensku og heitir hún lceland 1986. Bókin gefur alhliða lýsingu á landi og þjóð í nútíð og fortíð. Þetta er aukin og endurgerð útgáfa bókar sem í raun kom fyrst út fyrir 60 árum, er Landsbanki íslands gaf út Iceland 1926 í tilefni af 40 ára afmæli bank- ans og í kynningarskyni fyrir land og þjóð. Sú útgáfa var endurprentuð Íítið breytt af tilefni Alþingishátíðar 1930 og enn aftur árið 1936. Einum tug ára síðar var gefin út ný útgáfa, enn stærri en áður. Seðlabanki ís- lands tók útgáfu bókarinnar að sér með útgáfu Iceland 1966 og á 1100 ára afmæli íslandsbyggðar, 1974, var enn ein útgáfan gefin út. Iceland 1986 er meiri að vöxtum en áður, 428 blaðsíður og XIV blaðsíður í þokkabót í stærra broti en áður hefur þekkst í útgáfu Iceland bókanna. Til að auka enn á dýrðina eru nú í bókinni 95 litljósmyndir á 64 síðum og litprentuð kort, hagræn og söguleg, á 32 síðum. Allur texti er skrifaður af mönnum sem vita hvað þeir segja, enda sérfróðir á sínu sviði og hafa margir lagt hönd á plóginn við að gera bókina sem glæsilegasta. Efnið skiptist í nokkra þætti, m.a. landið og þjóðin, saga og menning- ararfur, stjórn og stjórnsýsla, sam- skipti við aðrar þjóðir, trúarbrögð og menntun og fjölda annarra merki- legra þátta. Ritstjórar Iceland 1986 eru Jó- hannes Nordal og Valdimar Kristin- son. Iceland Rcview mun dreifa bókinni erlendis og í bókabúðir hérlendis. Hún kostar 2.500 krónur úr búð. - SÓL

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.