Tíminn - 04.09.1987, Blaðsíða 7
Föstudagur4. september 1987
Tíminn 7
Zheng Tuobing fylgist með fiskvinnslu í Granda fyrr í vikunni.
Tímamynd: BREIN
Steingrímur Hermannsson utanríkisráðherra:
„Engin stórviðskipti
á döfinni við Kína<(
Opinberri heimsókn utanríkisvið-
skiptaráðherra Kínverska alþýðu-
lýðveldisins, Zheng Tuobing, til ís-
lands lauk í fyrradag. Það verður
ekki sagt að viðskipti íslands og
Kína séu mikil að vöxtum og það
sem er er okkur í óhag. Til dæmis er
eini skráði útflutningur íslands til
Kína á síðasta ári lifandi kanínur
fyrir 1,4 m.kr. eða 0,003% af heild-
arútflutningnum það ár. íslendingar
fluttu öllu meira inn frá Kína, þó
einnig lítið sé, eða fyrir rúmlega 88
m.kr., sem er 0,2% af innflutningi á
árinu 1986.
Undanfarið hafa Kínverjar haft
þá stefnu að opna land sitt fyrir
innflutningi og erlendri fjárfestingu
og hugsa mörg ríki og fjölþjóða-
fyrirtæki sér gott til glóðarinnar á
þessum stærsta markaði heims mið-
að við höfðatölu. Tíminn leitaði álits
í fyrrakvöld féll Þjóðverji af
reiðhjóli í Hlíðardal við Kröflu og
höfuðkúpubrotnaði.
Þjóðverjinn fannst meðvitund-
arlaus í dalnum, en hann var í hópi
af reiðhjólamönnum, en hafði orð-
ið viðskila við hópinn. Maðurinn
var fluttur í sjúkrabíl á sjúkrahúsið
Vinnumiðlun, undir heitinu ís-
lensk atvinnumiðlun hf. - lcejob,
hefur verið sett á stofn í Reykjavík.
Eins og felst í nafninu er starfsemi
fyrirtækisins fólgin í vinnumiðlun og
alhliða ráðningarþjónustu við stofn-
anir og fyrirtæki sem eru að leita
eftir erlendu starfsfólki. í byrjun
verður eingöngu einblínt á norræna
Steingríms Hermannssönar utanrík-
isráðherra á gildi heimsóknarinnar
og framtíð viðskipta við Kína.
„Þessi heimsókn kínverska utan-
ríkisviðskiptaráðherrans hefur tví-
mælalaust verið mjög jákvæð og
staðfest þann einlæga vilja, sem ég
varð var við í heimsókn minni þang-
að sl. vetur, til að opna sitt land fyrir
frjálsum viðskiptum og erlendri fjár-
festingu.
Hitt er svo annað mál, að mér er
fullljóst að efling viðskipta íslands
og Kína er ekki eins einfalt mál og
kann að virðast við fyrstu sýn. Engu
að síður erum við komin með annan
fótinn í dyragættina og þarna er að
opnast markaður með milljarð
manna. Það hlýtur því að verða
okkur til góðs að vera í sem bestum
tengslum við Kína. Hér er ekki um
gull og græna skóga að ræða og ekki
á Húsavík og þar kom í ljós að
hann var höfuðkúpubrotinn og var
hann þá sóttur af þyrlu og flogið
með hann á Borgarspítalann. Þar
liggur hann á gjörgæsludeild. Um
nánari líðan mannsins er ekki
vinnumarkaði, en markmið fyrir-
tækisins er að í náinni framtíð verði
hægt að snúa sér að vinnumarkaði
utan Norðurlandanna.
Forstöðumaður fyrirtækisins er
Eyjólfur Pétur Hafstein, fyrrum
forstöðumaður Nordjobb.
- SÓL
von á að um einhver stórkostleg
viðskipti verði að ræða á næstu
árum, en málin eru á réttri leið. T.d.
hafa Kínverjar lýst áhuga á að fá
íslenskt ullargarn til að vinna úr, og
reyndar hefur Álafoss þegar hafið
tilraunir með slíkan útflutning.
Það eru þó óneitanlega ýmis erfið .
vandamál fólgin í því að ná inn á og
sinna markaði cins og þeim kínver-
ska.
Fyrst má á það benda að við erum
yfirleitt með mjög dýra framleiðslu,
sem Kínverjar telja sig ekki geta
keypt eða þá fá ódýrari annars
staðar. Þannig að spurning er hvort
við náum því verði, sem við getum
sætt okkur við. Þá er flutningskost-
naður einnig mikill þó eflaust megi
ná honum niður með skipulagn-
ingu.“
Þá sagði Steingrímur að ráðherr-
ann hefði ekkert verið að breiða yfir
það að viðskiptajöfnuður þjóðanna
væri okkur mjög í óhag, innfiutning-
ur til íslands væri mun meiri en
útflutningur okkar þangað. Utanrík-
isráðherrann kínverski lýsti yfir full-
um vilja þeirra til að koma þar betra
jafnvægi á. Og það er í raun næsta
skrefið í viðskiptum landanna. Þá er
eðlilegast í stöðunni að Útfiutningsr-
áð geri úttekt á hvaða vörum kemur
til greina að koma á kínverskan
markað og að skipst verði á upplýs-
ingum á reglubundinn hátt. í dag eru
margir aðilar sem kaupa vörur frá
Kína, en hér er þó aðallega um
smávöru að ræða s.s. niðursoðið
grænmeti.
Aðspurður hvort á döfinni væri
stofnun sendiráðs eða viðskiptaskrif-
stofu í Austurlöndum fjær, en Japan
hefur stundum verið nefnt í því
sambandi, sagði Steingrímur að það
yrði ekki að veruleika í bráð einkum
vegna kostnaðar. Þá bæri að gæta
þess að opnun slíkra skrifstofu t.d. í
Japan mundi ekki koma að miklum
notum varðandi viðskipti við Kína.
ÞÆÓ
ÖKUM EINS OG MENN!
Drögum úr hraða
-ökum af skynsemi!
nlUMFEROAR
Hjólandi Þjóöverji:
Datt af hjólinu og
höfuðkúpubrotnaði
Vinnumiðlun-
in lcejob
Hjúkrunarfræðingar
Eftirtaldar stöður hjúkrunarfræöinga í heilsu-
gæslustöðvum eru lausar til umsóknar nú þegar:
1. Staða hjúkrunarforstjóra viö Heilsugæslustöö-
ina í Ólafsvík.
2. Staða hjúkrunarforstjóra og staða hjúkrunar-
fræðings við Heilsugæslustöðina í Fossvogi,
Reykjavík.
3. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöð-
ina á Þingeyri.
4. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöð-
ina á Selfossi.
5. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöð-
ina í Reykjahlíð, Mývatnssveit.
6. Hálf staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslu-
stöðina á ísafirði.
7. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöð
Suðurnesja í Keflavík.
8. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöð
Hlíðasvæðis í Reykjavík.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri
störf við hjúkrun sendist heilbrigðis- og trygginga
málaráðuneytinu, Laugavegi 116 Reykjavík
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
1. september 1987
Norska og sænska
til prófs
Nemendur sem læra norsku eða sænsku til prófs
í stað dönsku mæti til viðtals sem hér segir
Miðbæjarskóla, Fríkirkjuvegi 1.
8. sept.
5. bekkur kl. 17.00
6. bekkur kl. 17.30
7. bekkur kl. 18.00
9. sept.
8. bekkur kl. 17.00
9. bekkur kl. 18.00
framhaldssk.st. kl. 19.00
Nemendur mæti með stundaskrár sínar.
Stöðupróf í norsku og sænsku verða haldin 14.
sept. kl. 19 í Miðbæjarskóla.
Nemendur sem hafa fengið kennslu í hverfisskól-
um geta einnig haft samband við skólastjóra sína.
Umsjónarkennarar
Frá Tónlistar-
skóla Kópavogs
Innritun fer fram í sal skólans, Hamraborg 11 3.
hæð sem hér segir:
4. sept. kl. 10-13 og 15-18
5. sept kl. 10-14.
7. og 8. sept. kl. 10-13 og 15-18.
Nemendur eru beðnir að láta stundaskrár fylgja
umsóknum. Ekki verður tekið á móti umsóknum í
síma.
Athygli skal vakin á því að í vetur mun Tónlistar-
skóli Kópavogs bjóða upp á 1/2 vetrar námskeið
fyrir fullorðna. Námskeiðið verður í fyrirlestraformi
og verður fjallað um undirstöðu atriði tónlistar og
gefið yfirlit yfir helstu tímabil tónlistarsögunnar.
Skólastjóri.