Tíminn - 04.09.1987, Blaðsíða 19
Föstudagur 4. september 1987
Tínvnn 19
1111111111 SPEGILL '"T 1111! llllllllllllllllllllllllllllllll lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
s
"ú saga er sögö, að roskin frænka
írsks þingmanns hafi eitt sinn'unnið
drjúga fjárfúlgu í spilavíti í Las
Vegas. Þó gjaldkerinn hafi lagt
mjög að henni að láta færa pening-
ana inn á hótelreikninginn, vildi
hún endilega taka þá nteð sér, þar
sem hún færi af hótelinu strax að
niorgni. Þegar hún svo steig inn í
lyftuna á leið til herbergis síns,
kom á hæla henni hávaxinn maður
með grimmdarlegan hund. Um
leið og dyrnar lokuðust, skipaði
hann: - Niður með þig! Hún lét sig
falla á gólfið og bjóst við að nú væri
öllu lokið.
Það næsta sem hún heyrði var
hjartanlegur hlátur. - Eg átti við
hundinn, en ekki þig, tókst mannin-
um að stynja upp milli þláturhvið-
anna.
Næsta morgun, þegar konan fór
af hótelinu, var búið að greiða
reikning hennar og skilaboð biðu í
afgreiðslunni: - Þakka þér fyrir. ég
hef ekki hlegið svona ntikið árum
saman. Lionel Richie.
Þessi gamansaga lýsir vel
manninum, sem hefur fimm sinn-
um fengið Grammy-verðlaun og
að auki Oscar fyrir besta lag ársins:
Say You, Say Me.
Þó Lionel Riehie eigi allt, sem
viðeigandi er talið, þegar um er að
ræða stjörnu í popheiminum -
hvítan Porche, silfurlitan Benz og
litla höll í spönskum stíl í Bel
Air-hverfi Los Angeles - skortir
eitt á að líf hans sé fullkomlega
hamingjuríkt: Þau kona Itans,
Brenda hafa ekki getað eignast
barn til þessa.
Þau eiga þó eins konar l'óstur-
barn, indæla, fimm ára telpu, sent
heitir Nicole. Lionel rifjar upp: -
Fyrst þegar ég sá hana, var hún að
leika á iambúrínu á sviði með
Prince. Það var ást við fyrstu sýn.
Nicole er óskilgetin dóttir stúlk-
unnar sem sér um sviðsbúninga
Prince. Móðurinni hraus hugur við
tilhugsuninni um að telpan ælist
upp á sífelldum ferðalögum. Þegar
Lionel stakk upp á að hún dveldi
heima hjá þeim hjónum, voru allir
ánægðir með þá tilhögun.
Nú er allt útlit fyrir að Lionel og
Brenda geti hvað úr hverju ættleitt
telpuna, sem eignast hefur ást
þeirra og umhyggju. - Þessa stund-
ina finnst mér hún það sem skiptir
mestu rnáli í lífi okkar, segir hann.
Eins og gjarnan vill verða, skipta
peningar litlu fyrir þá sem eiga nóg
af þeim og Lionel þarf sannarlega
ekki að kvarta um fátækt. Plata
hans Cant slow down er sú mest
selda í sögu Motown-fyrirtækisins,
með eitthvað yfir 15 milljónir ein-
taka. Auk þess koma gífurlegar
fúlgur frá öðrum lögum hans, frá
plötum annarra, sem hann leggur
nafn sitt við, af Pepsi-auglýsingum,
hljómleikum, myndböndum, fatn-
aði og alls kyns hlutum, sem bera
nafn hans.
Hins vegar má þessi eins-manns-
tónlistarverksmiðja alls ekki vera
að því að eyða nema broti af
tekjum sínum, en hann kvartar
ekki undan því. Ánægjan af vinn-
uiini er honum meira virði en
eignirnar.
- Ég ólst upp við að vinnan
göfgaði manninn, segir hann og
dvelur að jafnaði átta stundir á dag
í hljóðverinu. - Faðir minn, sem
nú er kominn á eftirlaun var kcrf-
isfræðingur hjá hernum heima í
Tuskegee í Alabama. Mamma
stjórnaði hins vegar skólanum, sem
ég gekk í og það voru svo sannar-
lega erfið ár. Amma kenndi á
píanó og reyndi að troða fræðun-
um skipulega í mig, en gafst upp,
þegar hún uppgötvaði að ég lék allt
eftir eyranu. Þetta fólk náði
árangri, vegna þess að það naut
starfa sinna og ég fer eins að. Það
besta sem ég veit, er að semja
tónlist og hún skipar þriðja sæti í
lífi mínu. áeftirBrendu ogNicole.
Þó Lionel Richie sé raunar við-
skiptafræðingur að mennt, ætlaði
hann lengst af að verða annaðhvort
lögfræðingur eða prestur. Hann
hefur til að bera svolítið af hvoru.
reykir ekki, neytir ekki áfengis eða
lyfja af neinu tagi og sækir kirkju
Lionel segir Brendu uppsprettu allra bestu laga sinna, enda hafi hann aldrei verið ástfanginn af annarri stúlku um ævina.
Lionel Richie
reglulega. Lögin hansfjalla yfirleitt
um ástina, enda fullyrðir hann að
líf mannins byggist allt á einhvers
konar ást.
Hann er líka kunnur fyrir að láta
vel af hendi rakna til margs konar
góðgerðarmála, til dæmis rennur
hluti af launum hans fyrir Pepsi-
samninginn til málefna, sem báðir
aðilar bera fyrir brjósti.
-Séreinkenni Lionels, segirgóö-
vinur hans, - er hvað hann lætur
sér annt um annað fólk. I því
sambandi má geta herferðarinnar
„USA for Africa". Ásamt vini
sínum, Michael Jackson samdi
Lionel lagið „We are the World1'
og stjórnaði upptökum á því. Það
er snöggseldasta plata allra tíma og
færði hungruðum í Afríku 42 millj-
ónir dollara.
Þegar viðskiptamálin eru annars
vegar, er Lionel Richie á hinn
bóginn fastur fyrir sem klettur. -
Tónlist er svo sannarlega viðskipti,
segir hann og þó hann sé afslappað-
ur og ljúfur í allri framkomu, getur
enginn hvikað honum frá ákvörð-
unum hans.
Frá upphafi skipulagði hann
frama sinn í smáatriðum, rétt eins
og lögfræðingur undirbýr aðgerðir
í erfiðu máli. Hann hóf feril sinn
sem söngvari og saxófónleikari
með Commodores og velgengni
hópsins er talin að verulegu leyti
byggjast á framlagi hans.
Raunar var það nánast slysni, að
sex skólapiltar komu sarnan til að
taka þátt í hæfileikakeppni heima
í Tuskegee árið 1967, en ekkert var
slysalegt við leið þeirra eftir frægð-
arbrautinni eftir á og þeir héldu
hópinn í 15 ár. Æfingar fóru frant
í kjallaraíbúð í húsi ömmu Lionels
og hvort sem það er af hjátrú eða
lífið og ástin
Plötur hans seljast í milljónaupp-
lögum, hann er vellauðugur og
hamingjusamlega kvæntur að
auki. Tónlistin og fjölskyldan
eru honum allt.
9
tilfinningasemi, hefur cnn engu
verið breytt þar.
Commodores urðu strax vinsælir
heinta fyrir og stefndu hátt. Þeir
sögðu hvor öðrum, að þeir ætluðu
að verða „Svörtu Bítlarnir" og
hvert skref fram á við var skipulagt
og undirbúið. Þar var Lionel að
verki með stærðfræðiheila sínunt.
Haft er eftir honum: - Mér líður
mun betur við tölvu en hljóð-
nema. í augum hans er tónlistin
eins konar talnaleikur hann reikn-
aði alla hluti út og .■ægðin var eina
rétta útkoman.
Eftir tvö ár fóru Comntodores til
New York í skólaleyfinu. - Það var
ekki um að ræða nema það, eða
starf í sprengjuverksmiðju, segir
Lionel. Þeir voru uppgötvaðir í
klúbbi í Harlem og þaðan lá leiðin
beint upp á við. Fyrsta verkefnið
var um borð í risaskipinu France,
sem sigldi með þá til Monte Carlo,
þar sem næturklúbbur bauð þá
velkomna, enda Ed Sullivan þar á
ferð og sá náungi nýtur þess að
koma nýjunt stjörnum á framfæri.
Vitanlega höfnuðu Commodores í
sjónvarpsþætti hans og af því leiddi
samning við Motown og ferðalög
með Jackson Five. Inn á milli
brugðu þeir sér heim til að ljúka
prófum sínum.
í einni slíkri ferð kynntist Lionel
Brendu Harwcy og þau giftu sig.
Hann segir að frá henni sé upp-
spretta laga sinna, enda sé hún
eina stúlkan, scm hann hafi nokk-
urntíma orðið ástfanginn af. Þau
hafa nú verið hamingjusamlega
gift í 12 ár og ætla að hafa þau 50.
að minnsta kosti.
Þegar fyrsta stóra plata Commo-
.. dores kom út 1974, gekk hún vel,
en hjólin tóku fyrst verulega að
snúast þremur árum síðar, þegar
„Easy" kom út, Ijúf ballaða eftir
Lionel. Sex gullplötur fylgdu í
kjölfarið og þrjár þeirra fengu
platínu.
Alltaf var það Lionel, sem stóð
í sviðsljósinu og fjölmiðlar virtust
hafa áhuga á honum einum. Hann
bað fréttamenn að tala líka við
hina, cn því var tæpast sinnt. Núna
segist hann hafa verið félögum
sínum fjötur um fót.
Eftir að fyrsta sólóplata hans
kom út fyrir hálfu fimmta ári, gerði
hann ráð fyrir að snúa aftur til
Commodores, en þegar hann fékk
Grammy-verðlaun og fimrn milljón
eintök seldust í hvelli, gerði hann
sér Ijóst, að hann var kominn yfir
markalínuna og gæti ekki snúið
við.
Það var enn betur innsiglað í
vor, þegar samtök lagahöfunda,
textahöfunda og útgefenda greiddu
Lionel atkvæði sín þriðja árið í röð
sem höfundi ársins. Þetta þykir
jafngilda Oscarsverðlaunum og er
veitt þeim sem mest er leikinn á
umræddu ári. Hann átti Itvorki
meira né minna en fjögur lög
ofarlega á listanum: Stuck on You,
Penny Lover, Missing You og We
Are The World.
Nú búa þau Brenda á fallegri
hæð í Kaliforníu og eiga að vinunt
fólk eins og Ouincy Jones, Kenny
Rogers og Santmy Davis jr. Þrátt
fyrir það þýðir Tuskegee „heima"
og þau fara þangað eins oft og þau
geta.
- Kalifornía er Paradís, segir
Lionel. - En hún er samt bara
indæli leikvöllur, prýðis tilbreyt-
ing. Rætur okkar eru í Alabama.
Um framtíðina segir hann hlæj-
andi: - Mig langar ekki að vera
mesti, svarti söngvari allra tíma.
Takmarkið er aðeins að vera rnesti
söngvari, sem nokkurn tíma hefur
verið uppi.
Að minnsta kosti ein lítil stúlka,
Nicole að nafni er handviss um að
það se hann þegar orðinn.