Tíminn - 05.09.1987, Page 11

Tíminn - 05.09.1987, Page 11
Laugardagur 5. september 1987 llllllllllllll ÍÞRÓTTIR llllll Reykjavíkurmót: Handbolti jF i Seljaskóla Reykjavíkurmótið í handboJta hefst í dag, laugardaginn 5. septem- ber, og fer það að öllu leyti fram í íþróttahúsi Seljaskóla. Leikið verð- ur af krafti fram á næstu helgi og þá ráðast úrslit. KR, ÍR, Víkingur, Ármann, Valur, Fram og Fylkir taka þátt í mótinu í karlaflokki og verður gam- an að fylgjast með þessum liðum, sérstaklega má búast við að Fram, Víkingur og Valur verði sterk. í kvennaflokki keppa Víkingur, KR, Valur og Fram. Mótið hefst í dag eins og áður sagði með viðureign KR og ÍR í karlaflokki. Þessi lið leika kl. 14.00 og síðan taka við Ármann og Valur. Á morgun leika svo Víkingur og KR í kvennaflokki kl.18.45, Víking- ur og ÍR í karlaflokki kl. 20.00 og Fram og Fylkir kl.21.15. Tíminn 11 UMSKmót í tennis UMSK mótið í tennis verður hald- ið dagana 11.-13. september næst- komandi á tennisvöllunum í Kópa- vogi. Keppt verður í einliðaleik og tví- liðaleik karla, einliðaleik kvenna og í einliðaleik í unglingaflokki pilta og stúlkna. Þátttaka tilkynnist i sírna 45991 fyrir klukkan 6 þriðjudaginn 8. sept- ember. Mótaskrá mun liggja fyrir fimmtu- daginn 10. september. Reykjavíkur- mót í tennis Reykjavíkurmótið í tennis verður haldið dagana 11.-13. september næstkomandi á Víkingsvöllum. í Fossvogi. Keppt verður í einliðaleik og tví- liðaleik karla, einliðaleik kvenna og í einliðaleik í unglingaflokki pilta og stúlkna. Þátttaka tilkynnist til TBR í síma 82266 fyrir kl. 6 þriðjudaginn 8. september. Mótaskrá mun liggja fyrir fimmtudaginn 10. september. Kvennalandslið: Tap hjá íslenskum I gærkvöldi lék íslenska landsliðið í kvennaknattspyrnu vináttuleik við v-þýskar stöllur sínar. Lágu þær íslensku 5-0 fyrir þeim þýsku eftir að staðan í hálfleik hafði verið 2-0. Áttu íslensku stúlkurnar ágætan leik í fyrri hálfleik, og skoruðu þýsku stúlkurnar mörkin tvö á síðustu 5 mín. hálfleiksins. í stðari hálfleik varð þjálfari íslenska liðsins að gera breytingar á leikskipulagi vegna. meiðsia og riðlaði það eilítið leik liðsins og náðu Þjóðverjar að skora 3 mörk í seinni hluta síðari hálfleiks. Bestan leik áttu þær Cora Barker, sem fékk góða dóma hjá þýska landsliðsþjálfaranum. Guðrún Sæ- mundsdóltir. Ragna Lóa Stefáns- dóttir og Ragnheiður Víkingsdóttir. Liðin eigast við að nýju á sunnudag- inn. _ pS Sláturhús Sláturfélags Suðurlands á Hvolsvelli. Jón H. Bergs forstjóri: Ekki hvetjandi fyrir atvinnurekstur - ef forystumaður verkalýðsfélags rífur niður og rangfærir staðreyndir í Tímanum s.l. miðvikudag 2. september er frásögn af ályktun Verkalýðsfélagsins Rangæings um atvinnumál launafólks í Rangár- vallasýslu. í ályktuninni segir að „hvert atvinnufyrirtækið af öðru hafi hætt starfsemi sinni án þess að nokkuð hafi komið í staðinn." Þetta eru alvarleg og því miður ekki ný sannindi. Hefur vissulega verið tilefni til að leiða hugann að því hverjar séu ástæður þess að fyrirtæki virðast dafna svo illa í Rangárvallasýslu og hvort þessi reynsla dragi ekki úr áhuga at- vinnurekenda á því að stofna til nýs atvinnurekstrar í héraðinu. í þessu sambandi eru mörg til- efni til þess að athuga hvort at- vinnuumhverfið, samskipti at- vinnurekenda við verkalýðsfélagið og framganga þeirra manna, sem hafa troðið sér fram til forystu í fámennum hópi launþega í sýsl- unni, eigi sinn þátt í að hrekja atvinnureksturinn burt. Alkunna er að sæmilegur vinnufriður og góð samskipti atvinnurekenda og laun- þega eru hornsteinar þess að fyrir- tæki geti starfað eðlilega. Þetta á ekki síst við ef hægt er að benda á betri starfsskilyrði á öðrum lands- væðum. Inn í frásögnina af framan- greindri ályktun er fléttað ýmiss konar ranghermi og rugli, sem haft er eftir formanni verkalýðsfélags- ins um starfsemi Sláturfélags Suðurlands, sem þörf er á að leiðrétta hér. Erlent vinnuafl Það er ekkert nýtt að flytja þurfi inn erlent vinnuafl. Sláturfélag Suðurlands hefur á áttatíu ára starfsferli oft ráðið Dani til starfa. Hafa þetta verið hinir færustu menn á sviði kjötiðnaðar og flutt með sér nýja og betri þekkingu inn í landið. Hafa starfsbræður þeirra, kjötiðnaðarmenn, kjötiðnaðurinn í heild og neytendur framleiðslu- varanna haft ómetanlegt gagn al' því að þessir erlendu menn skyldu fást til starfa hér á landi. Alkunpugt er að flestar atvinnu- greinar í landinu vantar urn þessar mundir fólk til starfa, og á það einnig við um mörg fyrirtæki á Suðurlandi. Einkum kemur þetta fram þegar skólar hefja nú aftur störf og námsfólk hverfur úr fyrir- tækjunum til að leita frekari þekk- ingar. Vegna þcssa og mikiliar grósku í atvinnurekstri hafa mörg fyrirtæki og samtök fyrirtækja leit- að eftir erlendu vinnuafli. „Alkunna er að sæmilegur vinnufriður og góð samskipti atvinnurekenda og launþega eru hornsteinar þess að fyrirtæki geti starfað eðlilega. Þetta á ekki síst við ef hægt er að benda á betri starfsskilyrði á öðrum landsvæðum.“ Það hefur SS líka orðið að gera, því að það er skylda fyrirtækisins að vinna afurðir, sem berast vinnslustöðvunum, sem mest og best. Því hefur SS nýlega orðið að ráða 27 Dani til starfa til næsta vors. Margt af þessu fólki er sér- menntað í kjötiðnaði og verslunar- störfum, og ræður það sig til starfa á sömu kjörum og aðrir sem starfa í starfsgreinum þeirra í fyrirtæk- inu. Það er rangt að dvöt fólksins sé kostuð af fyrirtækinu á hótelher- bergjum, heldur aðstoðar SS fólkið við öflun leiguhúsnæðis, en það sér sjálft um húsaleigugreiðslur. Það er ánægjuleg staðreynd, að þrátt fyrir órökstuddar fullyrðingar sýnir það sig að starfskjörin í þessum greinum eru, þegar á allt er litið, ekki lakari hér en í nágranna- löndunum. Það er rangt, eiris og fleira sem haft er eftir Sigurði Óskarssyni, að þetta erlenda fólk sé ráðið til starfa í „SS höll í Reykjavík." SS á enga höll í Reykjavík sem kunnugt er um. Ef átt er við kjötiðnaðarstöð Sláturfélagsins, sem verið er að byggja í Laugarnesi, þá tekur það húsnæði ekki við starfsemi SS, sem nú er við Skúlagötu, fyrr en eftir 2-3 ár. Andvaraleysi heimamanna í uinræddri grein verður Sigurði Óskarssyni tíðrætt um það sem hann kallar „andvaraleysi og sauðshátt heimamanna og tals- manna þeirra“ og urn verkaskipt- ingu milli stjórna bændasamtak- anna, forustumanna þeirra og stjórnenda og starfsliðs. Sem betur fer hefur „andvaraleysið og sauðs- hátturinn" ekki verið rneiri en svo að „hcimamenn" hafa hvað eftir annað hafnað framboði Sigurðar Óskarssonar til forustu í atvinnu- Jón H. Bergs. málum og landsmálum, sem hann hefur reynt að troða sjálfum sér í. Bændur hafa líka valið sér aðra talsmenn, og því er lítt mark takandi á því sem haft er eftir formanni verkalýðsfélagsins um til- finningar bænda. Undanfarið hafa staðið yfir við- ræður milli vinnuveitenda og stétt- arfélaga um viðbótarsamninga. Ef til vill stafa órökstuddar fullyrðing- ar í umræddri blaðagrein af reiði yfir því að ekki skuli gengið að öllum kröfum um kjarabætur sem hafa verið settar fram, og ganga miklu lengra en sambærileg ákvæði í gildandi kjarasamningum í Iand- inu. S.Ó. fullyrðir að Sláturfélagið bjóði 160-190 krónur á tímann fyrir dagvinnu. Hið rétta er að vinnulaun þessi verða á bilinu 171 til 214 krónur, auk kr. 60-65 til viðbótar vegna premíugreiðslu á hvern unninn dagvinnutíma. í reynd hefur það verið þannig að flestir starfsmenn, sem unnið hafa fleiri en eina slát- urtíð, hafa fengið greitt samkvæmt hæsta taxta, sem er í dag kr. 214 + 60 eða kr. 274. Það gerir 47.492 krónur á mánuði fyrir dagvinnuna. Til viðbótar þessum launum hefur „Þegar Siguröur Óskarsson talar um takmarkaða og frumstæða framleiðslu, veit hann væntanlega ekki að á Hvolsvelli starfrækir SS eina fullkomnustu kjölpökkunarstöð landsins og þótt víðar væri leitað.“ allt starfsfólk sláturhúsanna frítt fæði allan daginn, og í sumum tilfellum frítt húsnæði. Það væri mikið ábyrgðarleysi að gtmga að öllum kaupkröfum og gæfi slæmt fordæmi á tírnum þenslu og vax- andi vcrðbólguhættu í þjóðfélag- inu. Vanþekking á atvinnurekstri Af góðu samstarfi og persónu- legum kynnum við ntarga verka- lýðsforingja í landinu er undirrit- uðum vel kunnugt unt að flestir þeirra leggja sig fram um að eiga þátt í að bæta skilyrði til atvinnu- rekstrar og hafa það sent sannara reynist. Það er því slæmt, þegar fram kemur í fjölmiðlum, að sumir verkalýðsforingjar hafa annað hvort ekki þekkingu á atvinnu- rekstri þeim, sem fram fer á félags- svæði þeirra, eða þá að þeir skýra vísvitandi rangt frá þýðingarmikl- um atriðum í atvinnurekstrinum. Sláturfélag Suðurlands er einn stærsti atvinnurekandi í Rangár- vallasýslu. Sigurður Óskarsson læt- ur hafa eftir sér að Sláturfélagið veiti „15-20 manns vinnu við tak- markaða og frumstæða framleiðslu í tengslum við nýja sláturhúsið á staðnum." Hér kemur fram mikil vanþekking eða þá jafnvel vísvit- andi ósannindi. Formaður verkalýðsfélagsins hlýtur að vita betur, þvt' að í vinnslustöð Sláturfélagsins á Hvolsvelli starfa að staðaldri yfir 30 manns og 10-12 manns bætast við þegar stórgripaslátrun stendur yfir, svo ekki sé nú minnst á sauðfjárslátrunina, þegar á annað hundrað manns bætast við í starfs- hópinn. Greidd ársverk hjá SS í Rangárvallasýslu voru alls 63 á síðasta ári, en 193 í sunnlensku sýslunum þremur og hafði fjöigað urn 41 ársverk á s.l. þrem árum, þrátt fyrir mikinn samdrátt í bú- vöruframleiðslunni. Þegar Sigurð- ur Óskarsson talar um takmarkaða og frumstæða framleiðslu, veit hann væntanlega ekki að á Hvols- velli starfrækir SS eina fullkomn- ustu kjötpökkunarstöð landsins og þótt víðar væri leitað. Það virkar varla hvetjandi til stjórnenda og starfsliðs að flytja meiri starfsemi inn á félagssvæöi verkalýðsfélags, þegar forustumaður þess leggur sig þannig frant um aö rífa niður og rangfæra staðreyndir um allt það sem vel er gert. Jón H. Bergs.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.