Tíminn - 05.09.1987, Side 13
Laugardagur 5. september 1987
Tíminn 13
UTLOND
illlUllllllllll
llllllll
Viötal við Mathias Rust tekið í Lefortovo fangelsinu í Moskvu:
stuðla að friði“
- Vestur-Þjóðverjinn ungi segist hvorki vera
njósnari né kjáni og ekki heldurframagosi í auraleit
Frá Þór Jónssyni blaðamanni Tímans
sföddum í Svíaríki:
Hinn 28. maí síðastliðinn varð
nítján ára gamall Vestur-Þjóðverji
Mathias Rust heimsfrægur í einu
vetfangi er hann lenti lítilli einka-
flugvél í grennd við Rauða torgið í
Moskvu. Þessi dagur var tileinkaður
landamæragæslunni en snérist
skyndilega úr hátíð í þá stund sem
hið sovéska herveldi beið hinn mesta
álitishnekki.
Mathias Rust hafði sérstaklega
æft sig í að lenda á þröngu svæði og
átti auðvelt með að sneiða hjá mann-
virkjum og vegfarendum þegar hann
lenti á torginu eftir fífldjarft flug í
sovéskri loftheigi þar sem engin
tilraun var gerð til þess að stöðva
hann. Aðeins einu sinni varð hann
var hins ógnarlega herstyrks Sov-
étmanna þegar þota ein þaut hjá.
Mathias Rust hefur setið í fangelsi
í Moskvu og þar tóku sovéskir
embættismenn viðtal það við hann
sem hér birtist.
Gloppur
í Sovétríkjunum varð ekki hátíð í
kjölfar lendingar Rust. í fyrstu lýstu
að vísu háttsettir menn í stjóm
Gorbatsjovs þakklæti yfir að Rust
hefði bent á gloppur í vörn Sovétr-
íkjanna en bættu þó jafnframt við að
tiltækið hefði verið forkastanlegt.
Jafnvel voru bundar vonir við að
Rust yrði sleppt án réttarhalda þótt
honum bæri tíu ára fangelsi og háar
sektir samkvæmt lögum. En síðan
ákvað björninn í austri að bíta frá
sér. Ótrúlegt þótti að Rust hefði
skipulagt ferð sína sjálfur og tilefnið
hefði verið að bera friðarboðskap á
torg, heldur þótti líklegra að för
hans væri áróðursbragð gegn Sovét-
ríkjunum.
Þegar komist var að slíkri niður-
stöðu voru embætismenn og yfir-
menn úr sovéska hemum reknir
m.a. Sergej Sokolov landvarnaráð-
herra. Honum var umsvifalaust
skutlað á listann yfir ellilífeyrisþega.
En það var ekkert hálfkák þegar
Alexander Koldunov marskálkur
var látinn víkja. Hann var rekinn
með skömm og var opinberlega lýst
yfir að ástæðan væri flug Mathiasar
Rust. Og þá var víst að Rust færi
fyrir sovéska dómstóla eins og alþjóð
hefur orðið vitni að síðustu daga.
Greiði
Rust gerði í raun Gorbatsjov Sov-
étleiðtoga greiða því honuni var gert
hægt um vik að losa sig við, að eigin
mati, óþægilega valdamenn í stjórn-
inni. Rust hefur setið í hinu fræga
Lefortovo fangelsi í Moskvu en
þangað hafa foreldrar hans og vest-
ur-þýskir sendimenn heimsótt hann.
Herbergið hans er vistlegt, panell á
veggjum og engir rimlar fyrir
gluggum. Hann hefur haft aðgang
að þýskum bókum og tímaritum og
á veggnum hangir dagatal frá heima-
landinu.
Mathias Rust hefur haldið því
staðfastlega fram í allt sumar og í
réttarhöldunum sem hafa staðið síð-
ustu daga að flug hans hafi átt að
hvetja til alheimsfriðar, skilnings
milli austurs og vesturs.
Hann var skjótur en vélrænn í
svörum í þessu viðtali svo sem hann
hefði undirbúið viðbrögð sín lengi.
Fífldirfska
Sovésk yfirvöld velkjast ekki í
vafa unt að Rust er fífldjarfur ungur
maður sem í einfeldni taldi sig vinna
að friði en þau telja að hann skrökvi
því að hann hafi lagt á ráðin einn
síns iiðs. En hér fer á eftir frásögn
hans sjálfs. Sovéskir embættismenn
spurðu hann í þaula um viðhorf hans
og skoðanir eftir þriggja mánaða vist
í fangelsinu í Moskvuborg. Hér fer
frásögn hans lítið eitt stytt.
Þess vegna flaug
ég til Moskvu
Segðu frá sjálfum þér Mathias: Ég
fæddist í Hamborg árið 1968.
Snemma fékk ég áhuga á að læra
flug og skráði mig í flugklúbb.
Hvað ert þú í raun Mathias? Þú
ert sagður njósnari, framagosi í
auraleit eða ungur kjáni: Þetta eru
þrjár fullyrðingar sem eiga ekki við
rök að styðjast. Ég er ekki njósnari,
ég flaug ekki hingað ti! að verða
frægur og ég er ekki fífldjarfur. Ég
fór hingað, eða réttara sagt flaug, af
einkaástæðum og ég er hingað kom-
inn sem einstaklingur.
235 lítrar
Sagt hefur verið að það muni hafa
tekið þig langan tíma að undirbúa
flugið þar sem þú stóðst að því einn.
Er sérstakur búnaður á flugvél
þinni?: Eiginlegur undirbúningur
hófst ekki fyrr en tveimur mánuðum
áður en ég lagði af stað. Ég gerði allt
sjálfur, sá lærdómur sem ég hlaut í
flugklúbbnum nægði mér fullkom-
lega til að takast slíkt flug á hendur.
En þú munt hafa haft aukaeld-
sneytisgeyma?: Nei, ég þverneita að
aukageymar hafi verið um borð.
Flugvélin, eða nánar þessi tegund
vélar, er búin geymum til að taka
235 lítra af eldsneyti og þeir nægðu
mér. Á þennan hátt er vélin fram-
leidd.
Hvers vegna tókstu aftursætin úr
vélinni? Það er rétt að ég fékk
aðstoð föður míns við að fjarlæga
þau til að koma farangri betur fyrir.
Sæti aðstoðarflugmannsins tók ég úr
til að koma kortum, áttavitum og
miðunartækjum fyrir.
Bandarísk kort
En hvar fékkstu bandarísku
landakortin sem þú hafðir meðferð-
is?: Þau eru prentuð í Bandarikjun-
um en hver sem er getur orðið sér út
um þau í Vestur-Þýskalandi. Ég
keypti þau hjá vestur-þýsku fyrirtæki
og var auðveldara að nálgast þau en
ég hugði. Engar leynilegar upplýs-
ingar eru á kortunum, aðeins hefð-
bundnar flugleiðir.
Sagði þér einhver hvernig þú ættir
að komast hjá að sovéski flugherinn
yrði þín var?: Nei, enginn. Ég ákvað
mína flugleið sjálfur með flughæfni
vélarinnar fyrir augum.
Veist þú hvar sovésku ratsjár-
stöðvarnar eru?: Nei, það veit ég
ekki.
Hvers vegna hélstu vélinni þráfalt
í sömu flughæð?: Flughæð eftir þess-
ari leið réðst af veðri. Ég flaug eins
hátt og mér var fært undir skýjum,
hefði ég hækkað flugið hefði ég lent
í skýjum sem ég vildi að sjálfsögðu
ekki.
Sex klukkustundir
í heimalandi þínu halda sumir því
fram að flugið til Moskvu hafi tekið
sex klukkustundir en ekki fimm.
Hvað átti sér stað þennan auka-
klukkutíma? Lentir þú t.d. einhvers
staðar til að losa þig við útbúnað?:
Nei, samkvæmt mínum útreikning-
um og skrám flaug ég frá Helsinki
lausteftirkl. 13.00 á Moskvutíma og
lenti einhvern tímann á milli 18.00
og 19.00. Ég flaug skemur en í sex
klukkustundir og fullyrðingar um
annað eru rangar.
Þú lentir hvergi, flaugst án við-
komu?: Já, ég millilenti ekki.
Hví slökktir þú á talstöðinni á
leiðinni?: Ég var hræddur um að
flugstöðin í Helsinki myndi kalla á
mig og skipa mér að taka aðra stefnu
eða lenda einhvers staðar. Ég vildi
ekki óhlýðnast skipunum en hefði
þá ekki náð áfangastaðnum,
Moskvu.
En Mathias, hefði ekki verið ör-
uggara og auðveldara að fá leyfi til
flugs af þessu tagi? Slíkt friðarflug
var flogið af bandarískum flugmanni
eftir löglegum leiðum fyrir skömmu:
Hefði ég fylgt reglunum hefði flugið
ekki vakið þá athygli sem nú er
raunin, til að ná markmiði mínu
þurfti ég á því að halda.
Barátta fyrir friði
Vissulega hefur þú vakið athygli
en af hverju flaugstu endilega til
Moskvu?: Framar öðru vildi ég að
flugið stuðlaði að friði alls staðar í
heiminum. í öðru lagi vil ég að
skilningur aukist milli þjóða okkar.
En friðarumræður fara einnig að
miklu leyti fram í Washington og
Bonn, því flaugstu ekki þangað?:
Það hefur verið mikið talað um frið,
já, en það fer minna fyrir fram-
kvæmdum. Stjórnvöld komast að
samkomulagi en oft eru það ekki
nema orðin tóm. Ég vildi sýna þá
friðarvon sem býr í venjulegu fólki.
Þú svaraðir ekki spurningunni,
þér hefði tekist þetta með því að
fljúga til Washington. Hvers vegna
valdir þú Moskvu?: Því að ég trúi að
Sovétríkin vilji vinna og að þau vinni
fyrir friði og geti einhverju áorkað.
Ef ég hefði flogið til Washington
hefðu færri tekið eftir því. Ég valdi
Moskvu því ég hélt að flug mitt gæti
haft jákvæð áhrifáfriðarumleitan-
ir.
Ögrun
Skilur þú hvaða afleiðingar það
hefði haft ef þér hefði fatast flugið,
er þér ljóst að flug þitt má túlka sem
ögrun?: Já, það má leiða getum að
því. Pólitísk samskipti landa okkar
hefðu getað orðið slæm ef ég hefði
verið skotinn niður. Flug mitt var þó
ekki farið til að ögra því hefði ég
fengið skipun um að breyta um
stefnu eða lenda hefði ég lent án
vífillengja.
Sástu enga sovéska flugvél á leið-
inni?: Jú, reyndar. Ég átti um
klukkustundar flug að baki um sov-
éska lofthelgi þegarég mætti flugvél.
Hún flaug í hring umhverfis mig og
sneyddi braut mína um hundrað
metrum neðar til vinstri en hún
skipaði mér ekkert og gaf mér engar
bendingar heldur hvarf eftir dálitla
stund.
Foreldrar þínir heimsóttu þig í
Lefortovo og síðan sagði móðir þín
við fréttamenn að rannsóknarnefnd-
in ynni verk sitt af hendi án þess að
draga taum Sovétríkjanna: Já, það
er rétt hjá móður minni, ég get
aðeins staðfest að ég er ánægður
með aðbúnað hér og meðferð.
Áhœtta
Svo sem við höfum þegar sagt
afsakar góður endir ekki tillitslausa
hegðun, það eru til aðrar leiðir vilji
menn krefjast friðar og skilnings:
Vissulega tek ég undir að það fólst
viss áhætta í aðgerð minni en ég tel
ennþá að mér beri fyrirgefning á
þessu. Hvað varðar aðferðina tel ég
að flugið hafi verið mína eina leið til
þess.
Viðtal þetta birtist í
sænska síðdegisblaðinu
GT. þj/hb
Bændur
Óskum eftir aö komast í samband viö bændur,
sem hafa aðgang aö bergvatnsá. Og vilja rækta
hana upp með sjóbirtingi.
Getum nú þegar lagt fram seiði.
Upplýsingar í símum 91-656477, 91-666391 og
91-666701 á kvöldin og um helgar.
Fellalax hf.
Utboð
Austurlandsvegur, Mýri-Hof
Vegagerð ríkisins óskar eftirtilboðum í ofangreint
verk. Lengd vegarkafla 7,2 km, fyllingar 53.0003,
skeringar46.000m3 og neðra burðarlag 46.000 m3.
Verki skal að fullu lokið 1. júli 1988.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á
\/cqAGERÐIN Reyöarfiröi °9 ' Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og
með 9. september n.k. Skila skal tilboðum á sömu
stöðum fyrir kl. 14:00 þann 21. september 1987.
Vegamálastjóri
t
Friðþjófur Baldur Guðmundsson
útvegsbóndi Rifi,
lést á St. Fransiskusspítalanum, Stykkishólmi 3. september.
Fyrir hönd barna, fósturbarna, tengdabarna og barnabarna.
Halldóra Kristleifsdóttir
t
Faðir minn og vinur okkar
Vigfús Brynjólfsson
sem lést á heimili sínu Dalbraut 27, 31. ágúst verður jarðsunginn frá
Bústaðakirkju mánudaginn 7. september kl. 3
Þóra Vigfúsdóttir
Gunnar Sigurðsson og fjölskylda.
t
Þórður Ö. Jóhannesson
kennari
Þórsmörk 1 Hveragerði
sem lést aðfaranótt 31. ágúst verður jarðsunginn frá Hveragerðiskirkju
fimmtudaginn 10. sept. kl. 14.00
Guðrún Þjóðbjörg Jóhannesdóttir
Þórunn Á. Björnsdóttir og dætur
t
Móðir okkar
Sesselja Guðlaug Sigfúsdóttir
verður jarðsungin frá Langholtskirkju mánudaginn 7. september
klukkan 10.30. Jarðsett verður að Torfastöðum.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem vildu minnast
hennar er bent á Langholtskirkju.
Fyrir hönd annarra vandamanna.
Hulda Brynjólfsdóttir
Þóra Kristín Jónsdóttir
Sigrún Gróa Jónsdóttir