Tíminn - 05.09.1987, Qupperneq 19
Laugardagur 5. september 1987
Tíminn 19
Vegur Madonnu vex sífellt. Plötur hennar renna út,
slegist er um miða á tónleika hennar ogsíðast en ekki
síst er hún á hraðri leið með að verða
kvikmyndastjarna. Nýjasta myndin hennar „Who's
That Girl" þykir alveg geysigóð. James Foley leikstjóri
segir um Madonnu: „Hún er blátt áfram stórkostleg.
Stúlkan hefur sérstaka kímnigáfu og er alveg
bráðfyndin".
Mótleikari Madonnu í myndinni Hver er þessi
stúlka? er Griffin Dunne, en ekki Sean Penn,
eiginmaður hennar.
Samstarfsfólkið við upptöku á þessari nýju mynd
hælir Madonnu á hvert reipi. Hún hafi alltaf haldið ró
sinni á hverju sem gekk, var vinaleg við alla og ekki með
neina stjörnustæla. „Reglulega sæt og elskuleg stúlka,"
segja tæknimennirnir.
Verður „Blái engillinn“
næsta viðfangsefni Madonnu?
Nú segja margir að Madonna, sem aldrei getur verið
iðjulaus, hafi valið sér nýtt viðfangsefni, -Bláa engilinn
-. Marlene Dietrich vann sér fyrst frægð með leik í
myndinni Blái engillinn fyrir nærri hálfri öld, og nú
hefur Madonna mikla löngun til að takast á við það
sama verkefni.
Madonna var í rabbþætti í sjónvarpi hjá Johnny
Carson. Þar sagði hún með bros á vör:“Eg er bara
venjuleg stelpa úr mið-vesturríkjunum, hálfgerð
sveitastelpa". En stjórnandi þáttarins benti
áhorfendum á að þessi hógværa stúlka væri heimsfræg
rokkstjarna, kvikmyndaleikkonaogframkvæmdastjóri
fyrir blómstrandi fyrirtæki: Siren Films. Ekkért
venjuleg sveitastúlka!
Madonna og mótleikari hennar í nýjustu myndinni
- Hver er þessi stúlka - Hann heitir Griffin Dunne og
eru þau óvenjulegt par að sjá: Hann alvarlegur meö
gleraugu og í kjól og hvítt, en Madonna eins og
hálfgerður trúður
Slær
•
HVER
ER ÞESSI
STÚLKA?