Tíminn - 06.10.1987, Qupperneq 12
12 Tíminn
Þriðjudagur 6. október 1987
!I!;í!!!!i!II!!í!
Illllllll!ll!lll!llll
ÍÞRÓTTIR
Komið í mark í krefjandi keppni á sunnudeginum. Vindurinn var í
mesta lagi fyrir svigið en svo sannarlega var hægt að stökkva: Að
ofan er einn keppandinn, Böðvar Þórisson.
íslandsmótiö í seglbrettasiglingum:
Jóhannes varð
sigurvegari í
brettasviginu
Goðheima
Sólheima
Teigasel
Vatnasel
Þverársel
Kvíslahverfi í Árbæ
Hafðu samband.
Tíminn
SIDUMULA 15
S686300
Karfavog
Skeiðavog
ERTUAÐSAFNA?
Þá er blaðburður
fyrir þig
Við leitum að
blaðberum til
starfa víðsvegar
um borgina.
Jóhannes Ævarsson varð íslands-
ineistarí í svigi á seglbrcttum uin
helgina en þá var haldið íslandsmót
í seglbrcttasiglinguin og fór það
fram við stöðvar siglingafélagsins
Sigurfara á Seltjarnarnesi.
Svigkcppnin var háð á sunnudcg-
inum í miklum vindi og ólgandi sjó.
Kcppninni var þannig háttað að
fjórir reyndu með sér í hvert skipti
og tveir fyrstu konrust í úrslit. Alls
voru fjórur umferöir háðar með
þessu fyrirkomulagi og þrjár þeirra
töldu.
Svigkeppnin er háð á litlum og
kjöllausum brettum sem geysast
áfram með feikihraða þótt ekki sé
hægt að beita þeim að ncinu viti upp
í vindinn. Keppendurnir sigldu á
milli tveggja bauja á hlið við vindinn
og fóru í áttuhring.
Jóhannes varð sigurvegari og kom
það fáum á óvart, hann sýndi mesta
öryggið í snúningunum og náði oft
geysilegum hraða. Jóhannes keppti
á Tiga Gun seglbretti.
Valdimar Kristinsson varð annar í
sviginu, hann sigldi einnig á Tiga
Gun bretti.
Böðvar Þórisson varð þriðji en
frammistaða hans var mjög misjöfn
af einhverjum ástæðunr. Hann sigldi
þó mjög vel í einni mest spennandi
umferðinnif sjá mynd) þegar hann
kom í markið rétt á undan íslands-
meistaranum Jóhannesi. Böðvar
notaði Tiga Gun bretti.
Jóhann Guðjónsson var fjórði á
Cobra 290 bretti og Hrafnkell Sig-
tryggsson varð fimmti á Tiga Gun.
Helgin var annars seglbrettasigl-
urunum fremur óhagstæð, þeir hófu
keppni á föstudeginum á löngum
brettum. hátt í fjóra metra á lengd,
en tókst aðeinsað ljúkaeinni unrferð
á þeim.
Löngu brcttin eru með kjöl og
hægt er að beita þeim upp í vindinn.
Brautin sem farin er verður því
fjölbreyttari. Stóru brettin eru hins
vegar öll stirðari í vöfum miðað við
hin tæplcga þriggja metra löngu
svigbretti. eins og gefur að skilja.
Jóhann Guðjónsson sigraði á Fan-
atic Ultra Cat bretti sínu í fyrstu
umferðinni á löngubrettunum. Ann-
ar varð Jóhannes Ævarsson á Tiga
Pro Race, þriðji Valdimar Kristins-
son á Tiga Pro Race, fjórði Hrafn-
kell Sigtryggsson á Tiga Pro Race,
fimmti Pórarinn Ævarsson á Klepp-
er 370 og sjötti Valtýr Guðmundsson
á Tiga Pro Race.
I annarri unrferðinni varð hins
vegar að hætta keppni þar sem
vindurinn datt niður. „Það hreyfir
ekki segl", sagði einn áhorfendanna
og siglingakapparnir tíndust í land
hver af öðrunr.
Laugardagurinn var stormasamur
svo um munaði og ekkert var hægt
að sigla. Að vísu drógu menn upp
sín minnstu segl og reyndu að kom-
ast á haf út en þær tilraunir voru í
flestum tilvikum dæmdar til að mis-
takast. „Þeir framleiða ekki segl
fyrir svona vind", var viðkvæðið.
Þar með fauk keppnin á löngu
brettunum út í veðurogvind og ekki
var hægt að gera annað cn að binda
vonir við svigkeppnina á sunnudeg-
inum.
Sú keppni var oft á tíðum
skemmtileg þótt Jóhannes væri í
flestum umferðunum í nokkrum sér-
flokki. Nokkuð voru þó menn farnir
að lýjast undir lokin enda vindurinn
mikill og hitastigið á klakanum hér í
októbernránuði er hcldur ekki beint
þægilegt.
Þannig lauk íslandsmótinu í segl-
brettasiglingum á þessu ári á góðu
nótunum. Víst er þó að seglbretta-
menn geta gert betur með því að
auglýsa mótið meira upp. reyna að
fá flciri keppendur utan af landi þar
sem íþróttin er víða í miklum upp-
gangi og lialda mótið á kristilegri
tíma þannig að menn eigi ekki á
hættu að helfrjósa á staðnum.
En, jú, það er víst alltaf vindurinn
sem ræður ferðinni í þessari sívax-
andi íþrótt og fyrri lilraunir til að
halda mótið höfðu bókstaflega logn-
ast út af. hb
Aldraðir þurta lika
að ferðast — sýnum
þeim tillitssemi
I