Tíminn - 06.10.1987, Qupperneq 19
Þriðjudagur 6. október 1987
Tíminn 19
SPEGILL
Rob Lowe
Einn af þeim eftirsóttustu
Hinn ungi leikari Rob Lowe er
álitinn einn glæsilegasti ungi herr-
ann í Hollywood. Hann erenn laus
og liðugur, þó hann hafi verið
orðaður við margar glæsipíur, svo
sem Stephanie, prinsessu af Móna-
kó, og margar fleiri. En aðalvin-
konan hans í gegnum árin hefur þó
alltaf verið Melissa Gilbert (Lára í
Húsinu á Sléttunni).
er enn laus
og liðugur
Það cru meira en fjögur ár síðan
talað var um að þau Rob og
Melissa væru trúlofuð, en síðan
hefur gengið á ýmsu hjá þeim
báðum. Einkum varð þó ævintýri
Robs með Stephanie prinsessu til
þess að skemma samband þeirra, -
en þó tóku þau saman aftur.
Nú er þó þannig komið að Mel-
issa hefur eignast nýjan kærasta,
sent er Danny Sugarman og er
hann rithöfundur. En þau Melissa
og Rob tala saman í síma tímunum
saman og sagt er að þau séu að
ráðgera að leika saman í sjónvarps-
mynd, sem heitir því skemmtilega
nafni „Gifstu mér svolítið" (Marry
Me a Little). Hver veit hvað verður
úr því samstarfi, - kannski meira
en lítil ástarsaga.
Melissa Gilbert gaf Rob vini
sínum smókinginn í afmaelis-
gjöf, og hér eru þau bæði glerfín
að fara út að skemmta sér
Rob Lowe leikur nú í hverri myndinni á fætur annarri ( Square Dance
og Something Else o.fl.) og þykir vaxandi leikari.