Tíminn - 07.10.1987, Page 2
2 Tíminn
Miðvikudagur 7. október 1987
Egilsstaðaflugvöllur:
Matthías Á. hafnaði
tilboði tækjamanna
Þrátt fyrir hug í fulltrúum bæjar-
stjórnar og tækjamanna á Hcraði,
eftir fundinn við sjúkrabeð Matthí-
asar Á. Mathiesen samgönguráð-
herra í fyrradag, var skriflegt svar
ráðherra neikvætt í gær.
Tilboði Samstarfsfélaga bíla- og
tækjamanna á Héraði hefur því
verið hafnað og ákvörðun ráðherra
frá því fyrir helgi, um almennt útboð
í framkvæmdir við Egilsstaöaflug-
völl, stendur eftir óhögguð. Það
mun þá koma til kasta flugmála-
stjóra, Péturs Einarssónar, að sjá
um framkvæmd á almennu útboði
verkþáttarins.
KB
Frá setningu kirkjuþings í Bústaðakirkju í gær. Dr. Sigurbjörn Einarsson
og frú, sr. Sigurður Guðmundsson, vígslubiskup og settur biskup yfir
Islandi, og Jón Sigurðsson, kirkjumálaráðherra voru meðal þeirra sem
hlýddu messu við upphaf þingsins. Tímamynd Pjetur
Egilsstaðaflugvöllur:
Skipst er á
yfirlýsingum
Yfirlýsingar af ýmsu tagi og frá ýmsum aðilum streyma nú inn til
fjölmiðla vegna fyrirhugaðra framkvæmda við Egilsstaðaflugvöll. Hér
fylgja í fullri lengd yfirlýsingar frá Samstarfsfélagi bíla- og tækjaeigenda
á Héraði, Verktakasambandi íslands og Verslunarmannafélagi Austur-
lands.
Tækjaeigendur
á Héraði
„Vegna frétta frá samgöngu-
máluráðuneytinu í gær, þess efnis
að ekki hafi fengist niðurstaða í
viðræöum við tækjacigendur á
Héraði um byggingu fyrsta áfangu
Egilsstaðaflugvallar, vill Sam-
starfsfélag tækjaeigenda á Héraði
láta eftirfarandi koma fram úr
fundargerð fundar með flugmála-
stjóra 23. september 1987:
Samstarfsfélag bíla- og tækjaeig-
enda á Héraði hefur gert tilboð í
framkvæmd fyrsta áfanga Egils-
staðaflugvallar, sem hljóðar á
krónur 54 milljónir. Samstarfsfé-
laginu er kunnugt um að niður-
stöðutölur í umfjöllun Almennu
verkfræðistofunnar um fyrrgreind-
an verkþátt, þar sem gert er ráð
fyrir í markaðsspá að framkvæma
megi fyrsta áfanga Egilsstaöaflug-
vallar fyrir krónur 42-45 milljónir.
Ennfremur er gert ráð fyrir í
fyrrgreindri umfjöllun að verkiö
myndi kosta 48 milljónir króna, ef
notaðir væru taxtar Vegagerðar
ríkisins og um 54 milljónir, ef
notaðir væru taxtar vinnuvélaeig-
enda.
Fulltrúar samstarfsfélagsins lýsa
því yfir að til greina geti komið að
framkvæma fyrsta áfanga Egils-
staðaflugvallar fyrir 45-50 milljónir
króna og leggja áherslu á að þeir
eru reiðubúnir til frekari skoðunar
og umfjöllunar á forsendum verks-
ins og kanna til hlítar hvort sam-
starfsfélagið gæti frekar nálgast
forsendur þær sem Almenna verk-
fræðistofan hefur byggt á.“
Það var Sigurður Stefánsson,
framkvæmdastjóri Malarvinnsl-
unnar á Egilsstöðum, sem flutti
blaðinu yfirlýsinguna og var hún
samþykkt fyrir síðustu helgi.
Pað hefur síðan komið á daginn
að inni í forsendum tækjaeigenda
var verkþáttur sem ekki hafði veriö
gert ráð fyrir í útreikningum Al-
mennu verkfræðistofunnar. Sá
verkþáttur skýrir þann mun sem
virðist í fljótu bragði vera á tilboði
tækjaeigenda og útreikningum Al-
mcnnu verkfræðistofunnar. Frá
þessu var greint í frétt Tímans af
málinu í blaðinu í gær.
Verktakasamband
íslands
„Með ákyörðun um útboð á
framkvæmd við Egilsstaðaflugvöll
cr virt sú meginregla laga um
opinberar framkvæmdir, að þær
skuli boðnar út.
Verktakasamband íslands telur,
að með útboði sé tryggt að mesta
hagræðing í mannafla og tækja-
notkun geti notið sín og fjármun-
um skattborgaranna sé varið á scm
hagkvæmastan hátt.
Verktakasambandið harmarþau
skammsýnissjónarmið að loka beri
ákvcðnum landsvæðum fyrir sam-
keppni frá öðrum landsvæðum, og
tclur að slík sjónarmið þjóni hvorki
viðkomandi byggðum eða þjóðinni
í heild. Staðsetning í heimabyggð
á að vera nægt forskot fyrir heima-
menn í samkeppni viö utanaðkom-
andi aðila.
I'á er Ijóst að umfang stórfram-
kvæmda er ákafiega breytilegt á
hverjum tíma frá einum landshluta
til annars. Af þeim sökum er
þjóðhagslega nauðsynlegt að geta
fiutt þekkingu og tæki á milli
landshluta.
Stjórn Verktakasambands ís-
lands treystir ríkisstjórn íslands til
aö fara aö lögum um opinbera
framkvæmdir."
Undir þessa yfirlýsingu ritar
Pálmi Kristinsson, framkvæmda-
stjóri, fyrir hönd stjórnar VÍ, þann
5. október s.l.
Verslunarmannafélag
Austurlands
„Verslunarmannafélag Austur-
lands lýsir yfir fullum stuðningi við
kröfur tækjaeigenda og bæjar-
stjórnar Egilsstaða, um að samn-
ingar um gerð flugvallar á Egils-
stöðum fari ekki úr héraði.
Pað væri enn eitt gerræðið við
landsbyggðina ef framkvæmdir
sem slíkar yrðu fengnar ööruin en
heimamönnum.
Við beinum þeim tilmælum til
hæstvirts samgöngumálaráöherra,
að hann hlutist til um að áfram
verði haidið þeim samningum við
heimamenn, sem í gangi hafa verið
um flugvallargerðina.“
KB
Síldarvertíðin hefst á morgun:
EKKIBÚIST VID
ÖRTRÖD Á MKHJM
Síldarvertíðin hefst á morgun,
örlítið fyrr en venja er.
91 bátur hefur fcngið leyfi til
veiðanna, sem er sami fjöldi og á
síðustu vertíð. 88 bátar hafa um 800
tonna kvóta, cn þrír þeirra hafa
óreglulegan vegna þcss að þeir höfðu
öðruvísi reynslu af reknetatímanum
á sínum tíma. Heildarkvótinn nemur
því um 72.000 þúsund tonnum, en
var um 65.000 tonn á síðustu vertíð.
Að sögn Arnar Traustasonar hjá
Veiðieftirlitinu er ckki búist við að
margir fari á miðin fyrst um sinn, því
flestir vilja sjá hvernig þeim fyrstu
takist til. Hins vegar er pressa á að
hefja veiðarnar til að standa við
gerða samninga við Svía og Finna.
Örn hafði þó fregnað af nokkrum
Grindavíkurbátum sem eru að gera
sig klára í slaginn, svo og að söltun
sé að hefjast þar.
Samningar við Sovétmenn hafa
enn ekki tekist, en samningarnir við
Svía og Finna svara til 83.000 tunn-
um af heilsaltaðri síld, sem er 24%
meira en selt var þangað með fyrir-
framsamningum á sl. ári.
- SÓE
Tímamynd: Pjelur
Nóg að gera hjá Lögreglunni:
Ölvaður stakk af
Lögreglan í Reykjavík haföi nóg að gera í fyrradag og gærmorgun, enda uröu þa 27 arekstrar, (ca. 91.000 kr.),
12 óku of hratt, (ca. 92.000 kr.) og fjórir voru teknir fyrir að hafa vanrækt aðalskoöun bifreiða sinna og sáu á eftir
númeraspjöldum sínum (8.000 kr.). Þetta gerir samtals tæpar 200.000 krónur á 30 klukkustundum.
Einn af ofangreindum árekstrum varð á gatnamótum Dunhaga og Hjarðarhaga um klukkan 23 á sunnudagskvöld.
Þar ók ökumaður, grunaður um ölvun við akstur, á bifreið og stórskemmdi og stakk svo af, en náðist skömmu síöar.
Gríðarlegir raunvextir
Raunvextir í landinu eru nú um
16-18% á venjulegustu skuldabréf-
um sem í gangi eru í viðskiptum um
þessar ntundir. Hér er m.a. átt við
vexti á skuldabréfum sem fólk er að
taka og skrifa undir vegna afborgana
og greiðslukjara á varningi út úr
verslunum.
Þessar upplýsingar komu fram í
viðtölum við fjármögnunarfyrirtæki
í Reykjavík. Kom það einnig fram
að dráttarvextir samsvara um 22%
raunvöxtum, en eins og margir vita
eru raunvextir þeir vextir sem borga
þarf umfram verðbólgu. Tuttugu og
tvö prósent raunvextir í tuttugu
prósent verðbólgu merkja það að
greiða þarf, gróflega reiknað, fjöru-
tíu og tveimur hlutum meira fyrir
hlutinn sem keyptur er umfram það
sem hann er sagður kosta í verslun-
inni. KB