Tíminn - 08.10.1987, Page 4
4 Tíminn
Fimmtudagur 8. október 1987
Starfsþjálfunarskóli
fatlaðra tekinn til starfa
Starfsþjálfun fatlaðra hefur nú
tekið til starfa í húsnæði á 9. hæð
að Hátúni lOa í Reykjavík. Um er
að ræða eins og hálfs árs nám í
tölvufræðum, íslensku, ensku,
verslunarreikningi, bókfærslu og
samfélagsfræði. Markmiðið er að
endurhæfa einstakling sem fatlast
hafa vegna sjúkdóma eða slysa til
þess að þeir geti farið á almennan
vinnumarkað eða haldið áfram
námi í almennum framhaldsskól-
um.
1 samfélagsfræði verður m.a.
fjallað um málefni fatlaðra sérstak-
lega og í tölvufræðinni lögð áhersla
á notkun ýmissa forrita svo sem
ritvinnslu, gagnagrunn, bókhald
o'.fl. Síðasta önnin er ætluð til
beinna tengsla við atvinnulífið, til
þess að hjálpa fólki að komast út á
vinnumarkaðinn að lokinni undir-
stöðuþjálfun.
Kcnnsla á fyrstu önn hefst í dag
en skólinn var formlega settur í
gær. Fjórtán nemendur á aldrinum
17 ára til rúmlega 50 ára hefja nám
í starfsþjálfun í dag og búist er við
að álíka stór nemendahópur hefji
nám um áramót. Kennt er frá kl.
13:00 til 16:00 daglega en ncmend-
ur fá auk þess klukkustund til
undirbúnings á dag til kl. 17:00.
Rekstrarkostnaður er geiddur af
ríkinu en Öryrkjabandalag íslands
hefur staðið straum af kostnaði við
húsnæði skólans og ber jafnframt
ábyrgð á rekstrinum þótt félags-
málaráðuneyti fjármagni hann.
Stjórn Starfsþjálfunar skipa
Margrét Margeirsdóttir, formaður
en hún er deildarstjóri í félags-
málaráðuneytinu og skipuð sem
fulltrúi þess, Ingimundur Magnús-
son rekstrarfræðingur og Arnþór
Helgason form. Öryrkjabanda-
lagsins báðir skipaðir af Ö.B.Í.
Forstöðumaður Starfsþjálfunar
fatlaðra er Guðrún Hannesdóttir
námsráðgjafi og kennir hún sam-
Frá setningu Starfsþjálfunar fatlaðra í gær. Hún er til húsa í Hátúni lOa ■ Reykjavík. Tímamynd Pjetur
félagsfræðina. Aðrir kennarar eru
Sigurjón Einarsson, Helga Björns-
dóttir, Jóhann Bernharð Kristins-
son og Jón Gíslason.
Fulltrúaráð skipað af aðilum
vinnumarkaðarins, ýrnissa félaga-
samtaka fatlaðra og opinberra að-
ila á að vera ráðgefandi fyrir stjórn
Starfsþjálfunar.
Starfsþjálfun fatlaðra kemur í
raun í stað Skóla fatlaðra sem var
stofnaöur 1983 af Ö.B.Í. Stjórnun-
arfél. íslands og Samtökum endur-
hæfðra mænuskaddaðra. Rekstur
þess skóla var á vegum Rauða
kross íslands ásamt nokkrum fé-
lagasamtökim. Síðan hefur þróun-
in orðið sú að nafninu var breytt í
Starfsþjálfun fatlaðra sem nú er
orðin sjálfstæð starfsemi og starfar
í samræmi við lög um málefni
fatlaðra.
Ingimundur Magnússon einn af
stjórnarmönnum Starfsþjálfunar
sagði að nárrt sem þetta væri fötl-
uðu fólki afar mikilvægt því það
gæti haft úrslitaáhrif á líf þessa
fólks, t.d. hvort það fær vinnu.
Hann nefndi sem dæmi að tveir
menn sem byrjað hefðu í Skóla
fatlaðra árið 1983 hefðu sagt sem
svo í byrjun náms síns að algerlega
vonlaust væri fyrir þá að ætla sér út
á vinnumarkaðinn, þeir væru í
hjólastól, væru ósjálfbjarga og
gætu ekki skrifað og þeir gætu ekki
hitt og ekki þetta. í dag væri annar
þessarra manna kerfisfræðingur og
hinn framkvæmdastjóri.
ABS
Rannsókn á áhrifum Bláa lónsins á psoriasis:
Böð í Bláa lóninu
sýna jákvæð áhrif
„Niðurstöður gefa vísbendingu
um jákvæð áhrif baða í Bláa lóninu,"
Akureyri:
Ný sundlaug
við Glerárskóla
Nú eru hafnar langþráðar fram-
kvæmdir við byggingu sundlaugar
við Glerárskóla á Akureyri. Áætlað
segir í ályktun lækna sem gert hafa
forkönnun á áhrifum baða í Bláa
lóninu á psoriasis og sagt er frá í
Læknablaðinu. Framhaldsrannsókn
er sögð komin vel á veg.
Tilgangur rannsóknarinnar var að
kanna hvort reglubundin böð í 4-5
vikur hefðu bætándi áhrif á psoriasis.
Rannsóknin byggðist á sjálfboðalið-
um sem gcrt var að baða sig 4-6
sinnum í viku. Alls 27 sjálfboðaliðar
hófu þátttöku en 21 lauk rannsókn-
inni. Þeir voru Ijósmyndaðir og
skoðaðir af lækni fyrir og eftir með-
ferðina. Niðurstöðurnar eru sagðar
styðja tilgátuna um betri líðan að
mati sjúklinga sjálfra. Mat læknanna
var að almenn líðan væri betri og
afhreistrun góð svo og að grynning
yrði á útbrotum. Roði hafi hins
vegar verið óbreyttur eða verri hjá
2/3 þátttakenda. Sýnilega hafi dregið
úr notkun húðstera.
Það eru Guðjón Magnússon, Vil-
borg Ingólfsdóttir, Hans Jakob Beck
og Guðmundur Sigurðsson sem
standa að rannsókninni. Talið er að
um 6 þús. íslendingar hafi einhver
einkenni um psoriasis. - HEI
Útflutningurinn aukist um 15%:
Almenn vörukaup
aukist um 33,5%
______ i_: - _- 1 -■ ._rn: ^ _ ién/
Vöruútflutningur þjóðarinnar í
ágústmánuði var rúmlega 45%
minni en í ágúst í fyrra reiknað á
sama gengi. Innflutningurinnn var
hins vegar um 30% meiri nú. Á
vöruskiptareikningnum var nú um
129 miilj. króna afgangur í stað
1.270 milljóna kr. í sama mánuði í
fyrra.
Á vöruskiptareikningnum fob/fob
frá áramótum til ágústloka á þjóðin
nú aðeins 2.315 millj. kr. í afgang
eða yfir helmingi rninna en í ágúst-
lok í fyrra.
Þótt verðmæti útflutningsins frá
áramótum til ágústloka hafi aukist
um 4.692 millj., eða 15% milli ára
miðað við fast gengi dugar það
skammt, því influtningurinn fob
hefur á sama tíma aukist um rúm-
lega 7.040 millj., eða um 26%,
þrátt fyrir mun lægri olíureikning
og að minna hefur nú farið saman-
lagt til kaupa á skipum, flugvélum
og til stóriðju. Aukning almenns
innflutnings er því um 33,5% á
föstu gengi.
Alls voru á fyrstu átta mánuðum
ársins fluttar út vörur fyrir um
35.210 millj. króna hvar af 78%
voru fyrir sjávarafurðir. Verð inn-
flutningsins var hins vegar um
32.894 fob en 36.627 millj. cif. á
sama tíma. Það svarar til þess að
hver íslendingur hafi þurft að
skapa um 150 þús. kr. gjaldreyr-
isverðmæti til að vinna fyrir sínum
hluta innflutningsins þessa 8 mán-
uði. - HEI
er að sundlaugin verði tekin í notkun
vorið 1989. Það er Híbýli hf. sem
annast byggingaframkvæmdir, en
kostnaður við verkið mun nema um
40 milljónum króna. Gert er ráð
fyrir að ríkið greiði 50% kostnaðarins
þar sem laugin verður fyrst og fremst
kennslusundlaug, en verði jafnframt
opin almenningi eftir að skóladegi
lýkur. Hin nýja sundlaug verður
17 m á lengd og 10 metrar á breidd,
og er gert ráð fyrir þörfum fatlaðra
við hönnun hennar og byggingu.
HIA - Akureyri
Nýjar vélar breyta bragði kókómjólkurinnar:
Rétt bragð eftir 12 ára f ramleiðslu
„Það eru komin ný tæki í gagnið
þannig að suðubragðið, eða flóunar-
bragðið hvarf úr henni. Það er hið
svo kallaða gamla bragð, eins og
sumir vilja kalla það. Gamla kókó-
mjólkin var svo hátt hituð að það
kom flóunarbragð af henni. Aðöðru
leyti er þetta nákvæmlega sama
uppskrift og er búin að vera síðan
1975,“ sagði Guðmundur Eiríksson,
verkstjóri hjá Mjólkurbúi Flóa-
manna í samtali við Tímann í gær,
en eins og kókómjólkurunnendur
hafa tekið eftir er komið nýtt bragð
af kókómjólkinni
„Við höfum fengið lítil viðbrögð
við nýja bragðinu, það hefur aðeins
heyrst í fólki og það hefur verið jafnt
af neikvæðu og jákvæðu," sagði
Guðmundur einnig.
Það er því hægt að segja að eftir
12 ára framleiðslu sé „rétta“ kókó-
mjólkurbragðið loksins komið fram.
Gömlu vélarnar voru orðnar mjög
slitnar, en endurnýjunin kostaði
nokkrar milljónir.
- SÓL