Tíminn - 08.10.1987, Page 10
10 Tíminn
'Fimmtudagur 8. október 1987
Fimmtudagur 8. október 1987
Tíminn 11
Islandsmótið í handknattleik, 1. deild:
Góðir Vesturbæingar áttu
ekki svar við Víkingsvél
Víkingar eru með besta handbolt-
aliðið á íslandi í dag, á því fengu
KR-ingar að kenna í gærkvöldi í
Laugardalshöllinni. Víkingar sigr-
uðu 28- 25 eftir að staðan í hálfleik
hafði verið 16 mörk gegn 10 íslands-
meisturunum i vil. Hæðagarðspilt-
arnir eru sjóaðir í íþróttinni, leika
sem ein heild og meistarabragur var
á tíðum á leik þcirra í gærkvöldi.
KR-ingar léku vel, eru með mun
betra lið en á síðasta ári. Breiddin er
meiri og mannskapurinn virðist í
betri æfingu, allt annað er að sjá til
manna á borð við Guðmund AI-
bertsson sem stjórnaði spili KR-inga
og gerði það vel.
Stefán Kristjánsson KR-ingur,
sem kom yfir til þeirra Vesturbæinga
frá FH, skoraði falleg mörk í byrjun
og leikurinn var jafn fyrstu mínút-
urnar. Styrkleikamunurinn fór þó
fljótlega að koma í ljós, Víkingsliðið
spilaði vel og mörkin létu ekki á sér
standa þrátt fyrir góða markvörslu
Gísla Felix Bjarnasonar í marki KR.
{ síðari hálfleiknum hélst munur-
inn þangað til í lokin er Vesturbæ-
ingar náðu að laga stöðuna og sýna
að ekkert lið getur verið öruggt um
sigur gegn þeim í vetur.
Hæðagarðsliðið er skipað sterkum
Ieikmönnum sem vinna eins og ein
heild. Karl skoraði sjö mörk fyrir
Víking, Bjarki Sigurðsson og Sig-
urður fimm mörk hvor, Guðmundur
Guðmundsson og Hilmar fjögur
mörk hvor, Einar Jóhannesson tvö
mörk og Árni Friðleifsson eitt.
KR-ingar áttu að vísu ekki svar
við leik Víkinga en gerðu marga
góða hluti. Konráð Olavsson var
markahæstur, ekki í fyrsta skipti.
Hann skoraði heil þrettán mörk, þar
af sex út vítum. Stefán Kristjánsson
skoraði fjögur falleg mörk, Sigurður
Sveinsson og Guðmundur Alberts-
son skoruðu þrjú mörk hver og
Jóhannes Stefánsson tvö mörk auk
þess að „fiska“ fjölda vítakasta.
KR-ingar virtust vera í vandræð-
um með skyttustöðuna vinstra
megin. Einir fimm menn voru notað-
ir í þessa stöðu, reyndar furðulegt
hringl því Ólafur Lárusson hafði
byrjað og virtist vera í ágætu formi
þegar honum var skipt út af og
hringlið byrjaði.
hb
Framarar töpuðu fyrir norðan
Valdimar Grímsson fer inn úr horninu í hinu nýja húsi þeirra Valsmanna.Sigurpáll Þórsari öskrar „lína“ en Valdimar
er greinilega að hugsa uni annaö. ííniamynd-Pjciur
- Gísli var hetja KA eftir aö Brynjar meiddist- Hraðaupphlaup FH-inga uröu ÍR-ingum um megn
- Valsmenn ollu vonbrigðum í sínum fyrsta heimaleik aö Hlíöarenda
Önnur umferö íslandsmótsins í
handknattleik, 1. deild karla, var
leikin í gærkvöldi. FH-ingar unnu
öruggan en þó ekki áreynslulausan
sigur á ÍR-ingum í Scljaskóla í
hröðum leik. Fyrsti heimaleikur
Vals að Hlíðarenda olli nokkrum
vonbrigðum þótt heimaliðið næði að
sigra. Akureyringarnir úr KA náðu
að vinna KA þótt Brynjar meiddist
strax á upphafsmínútunum, Gísli
Helgason varamarkmaður stóð sig
með stakri prýði milli stanganna.
ÍR-FH 19-26 (7-13)
Sigur FH-inga á ÍR-ingum var
aldrei í hættu, þeir komust í 6-0 og
höföu örugga forystu allan tímann.
Hraðaupphlaup FH-inga eru geysi-
lega vel útfærð og litu ófá mörkin
dagsins ljós eftir þau. Aðrar sóknar-
aðferðir FH-inga voru ekki alltaf
eins traustvekjandi en vörnin var
sterk. ÍR-ingar áttu góða kafla og er
auðsýnt að þeir falla ekki án baráttu.
Hlutur markvarðanna var stór í
þessum leik, Hrafn Margeirsson
varði ll mörk í ÍR-markinu en
Magnús Árnason bætti um betur í
marki FH, varði 13 mörk, þar af 11
í fyrri hálfleik. Mörkin gerðu, FH:
Þorgils Óttar Mathiesen 5, Óskar
Ármannsson 5, Gunnar Beinteins-
son 4, Héðinn Gilsson 4, Pétur
Pedersen 4. Óskar Helgason 3,
Guðjón Árnason 1. ÍR: Bjarni
Bessason 5, Ólafur Gylfason 5,
Magnús Ólafsson 4, Matthías Matt-
híasson 2, Orri Bollason 2, Finnur
Jóhannsson 1.
Valur-Þór ..20-16 (8-7)
Valsmenn léku sinn fyrsta heima-
leik að Hlíðarenda í gær og mótherj-
arnir voru Pórsarar frá Akureyri.
Heimaliðið olli vonbrigðum, mann-
' skapurinn er fyrir hendi en liðsheild-
in er jafn brothætt og áður.
Þórsarar brugðu að vísu á það ráð
að taka þá Júlíus Jónasson og Jón
Kristjánsson úr umferð frá fyrstu
mínútu og komu Völsurum greini-
lega úr jafnvægi.
Sigurður Pálsson átti stærstan þátt
í góðri byrjun Þórsara, skoraði með
fallegum uppstökkum.
Valsarar léku af krafti í byrjun
síðari hálfleiks og gerðu þá út um
leikinn. Þetta var það eina góða sem
sást til þeirra auk ágætrar mark-
vörslu Einars Þorvarðarsonar. f
heild var vörnin duglaus og sóknin
ráðleysisleg, a.m.k. miðað við þær
kröfur sem gerðar eru á þeim bæ.
Þórsarar byrjuðu vel en döluðu
þegar á leið, lítil breidd og erfiður
vetur framundan.
Mörkin: Valur: Valdimar5, Júlíus
5, Jakob 5, Einar 4 og Gísli 1. Þór:
Sigurpáll 5, Sigurður 4, Jóhann 4 og
Árni 3.
KA-Fram 27-24 (14-13)
Leikur KA og Fram á Akureyri
var slakur og gerðu leikmenn og
dómarar sig seka um fjölmörg
mistök. Brynjar Kvaran þjálfari og
markvörður KA meiddist strax í
upphafi leiksins og er jafnvel óttast
að hann hafi rifið vöðva. Gísli
Helgason tók stöðu hans í markinu
og er skemmst frá því að segja að
hann var hetja KA-manna, varði 15
mörk og 1 víti. Hann var besti
ntaður vallarins. KA náði 5 marka
forystu en Fram jafnaði leikinn um
miðjan síðari hálfleik, tóku Jakob
Jónsson úr leik. KA náði svo að
tryggja sér sigur með góðum loka-
kafla. Bestir hjá Fram voru þeir
Pálmi Jónsson í horninu og Júlíus
Gunnarsson.
Mörk KA: Jakob Jónsson 8, Frið-
jón Jónsson 6, Guðmundur Guð-
mundsson 4, Axel Björnsson 3,
Erlingur Kristjánsson 3, Hafþór
Heimisson 2, Eggert Tryggvason 1.
Mörk Fram: Júlíus Gunnarsson 7,
Pálrni Jónsson 6, Hermann Björns-
son 4, Birgir Sigurðsson 3, Ragnar
Hilmarsson 2, Agnar Sigurðsson 1,
Ólafur Vilhjálmsson 1. - hb/jb/HÁ
Naumt tap í Portúgal
íslcnska landsliöið í knattspyrnu tapaði
fyrir Portúgölum með 2 mörkum gegn 1 í
leik þjóðanna í undankeppni Ólympíu-
leikanna í Portúgal í gærkvöldi. Það voru
Portúgalir sem skoruðu tvö fyrstu mörkin,
það fyrra um miðjan fyrri hálfleik eftir
slæm varnarmistök og það síðara með
skalla snemma í síðari hálfleik. Guðmund-
ur Steinsson minnkaði muninn uin miðjan
síðari hálfleik, fylgdi vel eftir skoti Ólafs
Þórðarsonar. Guðmundur átti skot í stöng
snemma í fyrri hálfleik og á lokamínútum
fyrri hálfleiksins varði portúgalski mark-
maðurinn skot hans. -HÁ
íslandsmótið í handknattleik, 1. deild kvenna:
Framsigur í Höllinni
- Erla skoraði 13 mörk - Tap og sigur hjá Hafnarfjarðarliðunum - Víkingur vann Þrótt
Fjórir lcikir voru í 1. deild kvenna í
handknattleik í gærkvöldi. Fram sigraði
Stjörnuna nteð 26 mörkum gegn 22 í
toppslagnum og hafði Fram forystuna allan
tímann. Framarar komust í 5-1 en Stjarnan
ntinnkaði muninn í 7-8. Staðan í hálfleik
var 15-9. Leikurinn var fremur slakur en
Erla Rafnsdóttir yljaði örfáum áhorfendum
Enski deildabikarinn:
Chelsea úr leik
Úrslit í enska deildabikarnum í knatt-
spyrnu, 2. umferð í gærkvöldi:
Áston Villa-Middlesbrougl] ... 1-0 (2-0)
Bradford-Fulham .............2-1 (7-2)
Chelsea-Reading...............2-3 (4-5)
Derby-Southend................0-0 (0-1)
Hereford-Notth.For...........1-1 (1-6)
Hull-Man. Utd.................0-1 (0-6)
Newcastle-Blackpool ..........4-1 (4-2)
Norwich-Burnley...............1-0 (2-1)
Sheffield Utd.-Bury...........1-1 (2-3)
Tottenham-Torquay.............3-0 (3-1)
Northampton-Ipswich...........2-4 (3-5)
(1-1 og framlenging)
Portsmouth-Swindon ...........1-3 (2-6)
Jorge Valdano
orðinn spænskur
Jorge Valdano, knattspyrnumaðurinn
sem lék í Heimsmeistarakeppninni með
Argentínumönnum er orðinn spænskur
ríkisborgari. Valdano hefur búið á Spáni í
10 ár og fékk ríkisborgararétt í gær. Hann
fær þó ekki að leika með liði sínu, Real
Madrid, sem Spánverji. Það gera reglur
spænska knattspyrnusambandsins. Vald-
ano hefur ákveðið að láta fara nánar ofan í
það mál, segir þetta vera skerðingu á rétti
sínum sem spænskunt ríkisborgara.
um hjartarætur með snilldartöktum. Hún
var. langbesti maður vallarins ogskoraði 13
mörk. Guðríður Guðjónsdóttir var í
strangri gæslu Stjörnustúlkna og komst lítið
áleiðis. Erla var sem fyrr sagði atkvæðamest
í Stjörnunni. Anna Guðjónsdóttir kom
næst Stjörnustúlkna í markaskorun með 3
mörk. Hjá Fram skoraði Guðríður 6(3)
mörk, Ósk Víðisdóttir 5, Arna Steinsen 4
og Oddný Sigsteinsdóttir 4.
Tveir leikir voru í Hafnarfirði. Haukar
unnu KR 25-13 en FH-ingar töpuðu fyrir
Val 9-13. Þá sigruðu Víkingar Þrótt nteð 28
mörkum gegn 12 í Laugardalshöll. -HÁ
Jóhanna Halldórsdóttir stekkur inn af línunni og skorar fyrir Fram. Tímamynd Pjctur
íslandsmótið í handknattleik-1 .deild:
Spennandi en lélegt
- er Blikar unnu Stjörnuna 23-21 í Digranesi
Ef íslandsmótið verður eins spennandi
og leikur Blikanna og Stjörnunnar í Digran-
esi í gær þá er engu að kvíða. Ef mótiö
verður hinsvegar eins illa leikið og leikurinn
í gær þá er nokkru að kvíða. Þetta er í stuttu
máli niðurstaðan eftir þennan leik. Blikarn-
ir höfðu sigur með þrautseigju í síðari
hálfleik á meðan Stjörnumenn sprungu sem
flugeldar. Vendipunkturinn var þegar stað-
an var 20-18 fyrir Blika og Stjörnumenn
fengu víti. Stórgóður markvörður Guð-
mundur Hrafnkelsson varði vel og Þórður
Davíðsson brunaði upp í hraðaupphlaup og
skoraði 21- 18. Blikar héldu þessu og unnu
23-21. Staðan í leikhléi var 15-12 fyrir
Stjörnumenn.
Eins og fyrr er sagt þá var leikurinn
ekkert augnayndi. Lítið um falleg mörk en
meira um hnoð ásamt ruðningi, skrefum og
fleiri mistökum. Helst að Gylfi Birgisson,
sem var ásamt Skúla Gunnsteinssyni yfir-
burðamaður hjá Stjörnunni, skoraði falleg
mörk. Hjá Blikum var það Hans Guð-
mundsson sem hélt þeim á floti lengst af.
Staðan
Staðan í 1. deild karla á íslandsmótinu
í handknattleik eftir leikina í gærkvöldi:
FH................... 2 2 0 0 62-40 4
Víkingur.............2200 55-45 4
Valur ...................2110 39-35 3
Stjarnan ........... 2 1 0 1 47-43 2
Breiðablik...........2 10 1 41-41 2
KR................... 2 1 0 1 454 6 2
KA................... 2 1 0 1 47-50 2
Frani ..............2011 43-46 1
ÍR ................. 2 0 0 2 39-53 0
Þór.................. 2 0 0 2 37-56 0
Flumbrugangurinn var hinsvegar alger hjá
JJlikum í fyrri hálfleik á meðan Stjörnu-
menn spiluðu sæmilega. Blikar tóku Gylfa
stíft í síðari hálfleik og Guðmundur fór að
verja og við það snérist leikurinn - púðrið
fór úr leik Stjörnunnar.
1 stuttu máli þróaðist leikurinn þannig að
Stjörnumenn voru yfir í upphafi með hrað-
aupphlaupsmörkum (úpps, langt orð) Skúla
og þrumuskotum Gylfa. Hans hélt við með
einum fimm mörkum. f síðari hálfleik
snérist dæmið við. Gylfi var stoppaður og
Hansi hélt áfram að skora. Guðmundur fór
að verja og þá snérist dæmið. Lokamínút-
urnar voru spennandi eftir að Blikar jöfn-
uðu 17-17 um 10 mínútum fyrir leikslok.
Hansi gerði 10 mörk fyrir Blikana en
Kristján Halldórsson 6. Gylfi Birgisson
skoraði 8 og Skúli 5 fyrir tapliðið. Guð-
mundur Hrafnkelsson varði ein 12 skot en
Sigmar Þröstur 7. þb
Háir vextir
Grunnvextir á Kjörbók
eru nú 24% á ári og leggjast þeir við
höfuðstól tvisvar á ári.
Efinnstæða, eða hluti hennar,
hefur legið óhreyfð í 16 mánuði
hækka vextir í25,4%
og í 26% eftir24 mánuði.
Þrepahækkun þessi er afturvirk,
hámarks ársávöxtun er því allt að
27,7% án verðtryggingar.
Verðtrygging
Á 3ja mánaða fresti er ávöxtun
Kjörbókarinnar borin saman við
ávöxtun 6 mánaða bundinna
verðtryggðra reikninga.
Fteynist ávöxtun verðtryggðu
reikninganna hærri ergreidd uppbót
á Kjörbókina sem því nemur.
Örugg
og óbundin
Þrátt fyrir háa vextiog verðtryggingu
er innstæða Kjörbókar alltaf laus.
Vaxtaleiðrétting við úttekt er 0,8%,
en reiknastþó ekkiafvöxtum tveggja
síðustu vaxtatímabila.
Kjörbókin er bæði einfalt og öruggt
sparnaðarform.
11
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna