Tíminn - 08.10.1987, Side 15

Tíminn - 08.10.1987, Side 15
Fimmtudagur 8. október 1987 Tíminn 15 PLÖTUR Hljómplata Elínar Óskar Oskarsdóttur Ólafur Vignir Albertsson og Elín Ósk Óskarsdóttir. Um þessar mundir er að koma á markað hljómplata með söng hinnar stórefnilegu sópransöngkonu Elín- ar Óskar Óskarsdóttur. Elín Ósk er frá Rauðalæk á Rangárvöllum og vakti fyrst athygli alþjóðar þegar hún tók þátt í söngvakeppni Sjón- varpsins 1983. Hún var þá nemandi Þuríðar Pálsdóttur við Söngskólann í Reykjavík en hefur verið við söngnám í Mílanó síðan 1984. í fyrra söng hún hlutverk Toscu í Þjóðleikhúsinu. Það sem fyrst vekur athygli við söng Elínar Öskar er hennar fagra og mikla sópranrödd, og mikið skap sem skín út úr bæði söngnum og framkomunni. Hvort tveggja eru mikilvægir, og raunar nauðsynlegir eiginleikar söngvara, þótt Louis Armstrong hafi sýnt það að í sumum tegundum af sönglist a.m.k. þurfi ekki einu sinni fallega söngrödd. En engu minna mikilvægt er að texta- framburður sé skýr, og að söngurinn flytji fyrst og fremst efni textans. f þessum síðarnefndu atriðum á Elín Ósk margt eftir ólært: textafram- burður hennar ,er mjög óskýr á þessari plötu, og eins og mjög mörg- um söngvurum öðrum, bæði ungum og öldnum, hættir henni til að þenja sig ákaflega án tillits til textans. En forte hefur enga merkingu nema í samanburði við mezzoforte og piano - það er mismunurinn sem máli skiptir en ekki raddstyrkurinn einn. f íslensku sönglögunum, sem sum hver eru smáperlur sem henta tæp- lega stóróperustíl, tekur Elín Ósk alltof lítið tillit til efnis kvæðanna sem lögin voru samin við. Þessi plata hefði verið ennþá betri ef söngkonan hefði slegið ögn af á köflum og sýnt þannig á sér fleiri hliðar. Hljómplatan er tvískipt: á annarri hliðinni cru lög eftir Sigfús Einars- son, Sigvalda Kaldalóns og Pál ísólfs- son, en í hinni óperuaríur eftir Tosti. Puccini, Catalani og Verdi. Arían úr „La Wally“ eftir Catalani fékk nýja frægð þegar Wilhelmina Wiggins Fernandez söng hana í kvik- myndinni „Diva", og Elín Ósk syng- ur hana líka mjög fallega. Eins og raunar aðrar aríur. Ólafur Vignir Albertsson leikur með á píanó (Bösendorfer í Hlé- garði í Mosfellssveit). Hann erlöngu viðurkenndur sem einn vor allra fremsti undirleikari, og einnig hér spilar hann af smekk og öryggi. Upptöku annaðist Halldór Víkings- son en skurður, pressun og annað fór fram í Hamborg. Tæknilega er platan vel úr garði gerð, unnin með stafrænni tæki. Útgefandi erbókaút- gáfan Örn og Örlygur og ber platan númerið ÖÖIO. Meðfylgjandi Ijós- mynd af listamönnunum er af plötu- umslaginu; hana tók Guðmundur Ingólfsson í ímynd. Þessi hljómplata lofar mjög góðu um framtíð Elínar Óskar Öskars- dóttur sem stórsöngvara. Ég trú því, og hef trúað síðan 1983, að hún sé efni í meiri háttar söngkonu, eitt hið mesta sem við höfum heyrt um hríð. Með svo mikla rödd og skap getur vel verið að henni henti betur óperu- söngur en Ijóðasöngur, en fjarri fer að það sé fullreynt, cnda á hún mikið ólært enn, bæði í tónlistarskól- um og í lífsins skóla. Sig. St. Karfavog Skeiðavog Goðheima Sólheima Teigasel Vatnasel Þverársel Kvíslahverfi í Árbæ Tíminn SIDUMULA 15 S686300 Við leitum að blaðberum til starfa víðsvegar i im hnrninp Haföu samband. ERTU AÐ SAFNA Þá er blaðburður fyrir þig DRATTARVELAR: Úrval af beislis og tengibúnaði á dráttarvélar fyrirliggjandi. Dráttartengi Ofan drifs: Kr. 13.600.- KAUPFELÖGIN OG ARMULA3 REYKJAVlK SlMI 38900 Dráttarbeisii Venjuleg stærð: Kr. 15.720.- Yfirstærð: Kr. 18.560.- Dráttarkrókar Lyftutengdir: Kr. 18.560.- Einnig fyrirliggjandi: Frambretti Þyngdarklossar Vökvakistur og stjórnventlar Styrkur til að skrifa um þjóðfélagsmál Hagþenkir - félag höfunda fræðirita og kennslu- gagna auglýsir til umsóknar starfstyrk til höfunda eða starfshóps sem hefur í hyggju að senda frá sér rit um þjóðfélagsmál. Styrkurinn verður veittur í því skyni að auðga íslenska þjóðmálaumræðu. Upphæð styrksins er 100.000.- krónur. Umsóknir skal senda stjórn félagsins fyrir 1. nóvember nk. Æskilegt er að drög að verkinu eða hluta þess fylgi umsókn og efnisgrind skal fylgja. Dómnefnd, sem stjórn Hagþenkis hefur tilnefnt, metur umsóknir. Nánari upplýsingar veitir Hörður Bergmann, formaður félagsins. Reykjavík, 6. október 1987. Hagþenkir -félag höfunda fræðirita og kennslugagna Pósthólf 8290 128 Reykjavík Verkakvennafélagið Framsókn Allsherjar atkvæðagreiðsla Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæð- agreiðslu við kjör fulltrúa á 13. þing Verkamanna- sambands íslands, sem haldið verður á Akureyri dagana 28.-31. október 1987. Frestur til að skila listum er til kl. 12 á hádegi miðvikudaginn 14. október 1987. Hverjum lista þarf að fylgja meðmæli 100 fullgildra félagsmanna. Listum ber að skila á skrifstofu félagsins, Skipholti 50A. Stjórnin Til leigu Herbergi með aðgangi að eldhúsi, baði og þvotta- húsi, gegn smá aðstoð með barn. Lág leiga fyrir réttan aðila. Upplýsingar á kvöldin í síma 52654 - Barbara.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.