Tíminn - 18.11.1987, Blaðsíða 4

Tíminn - 18.11.1987, Blaðsíða 4
4 Tíminn Miðvikudagur 18. nóvember 1987 Skrifstofustjóri Tíminn óskar að ráða skrifstofu- stjóra. Upplýsingar gefur fram- kvæmdastjóri í síma 686300. Tíminn Miðstjórnarfundur SUF Miöstjórnarfundur Sambands ungra framsóknarmanna veröur hald- inn í Reykjavík laugardaginn 28. nóv. n.k. Dagskrá nánar auglýst síðar. Stjórnin. Seltirningar Aöalfundur Framsóknarfélags Seltjarnarness veröur haldinn mánu- daginn 23. nóvember kl. 20.30 í Félagsheimili Seltjarnarness (efri sal) Dagskrá: 1. Venjuleg aöalfundarstörf. 2. Kosning fulltrúa á kjördæmisþing 29. nóv. 3. Framnesiö. 4. Stjórnmálaumræður, Jóhann Einvarösson þingmaöur, Níels Árni Lund varaþingmaður. Félagar fjölmennið. Nýir félagar velkomnir Stjórnin. Kjördæmisþing í Reykjanesi Kjördæmisþing framsóknarmanna í Reykjaneskjördæmi veröur hald- ið sunnudaginn 29. nóv. 1987 kl. 10 aö Garðaholti í Garðabæ. Reykjanes Skrifstofa kjördæmissambands framsóknarmanna í Reykjaneskjör- dæmi er opin að Hamraborg 5, Kópavogi kl. 17-19 alla virka daga og kl. 17-21 á þriðjudögum. Sími 43222. Stjórnin. Vesturland Skrifstofa kjördæmissambandsins Brákarbraut 1, Borgarnesi veröur opin á mánudögum og miðvikudögum kl. 13.00-17.00. Sími 71633 og sími utan skrifstofutíma 51275. Stjórnin Sauðárkróksbúar Framsóknarfólk muniö aðalfundinn fimmtudaginn 19.11. kl. 20.30 að Suðurgötu 3. Stefán Guðmundsson alþingismaður kemur á fundinn. Framsóknarfélag Sauðárkróks. Kjördæmisþing framsóknarmanna í Norðurlandskjördæmi vestra verður haldið í Félagsheimilinu á Blönduósi dagana 28.-29. nóv. n.k. Þingið hefst á laugardag kl. 13. Dagskrá auglýst síðar. Tvær þingsályktunartillögur Unnar Stefánsdóttur o.fl.: Sjávarútvegsskóli í Vestmannaeyjum í þingsályktunartillögu sem Unn- ur Stefánsdóttir (F.Su.) mælti fyrir í sameinuðu Alþingi er lagt til að rfkisstjórnin kanni möguleika á því að stofna sjávarútvegsskóla í Vest- mannaeyjum. í ræðu sinni vísaði þingmaðurinn til niðurstöðu starfshóps á vegum menntamálaráðherra og sjávarút- vegsráðherra, þar sem bent er á æskileika þess að sameina Vélskól- ann, Stýrimannaskólann og Fisk- vinnsluskólann undir einn hatt og bæta þar við nýjum námsbrautum, s.s. á sviði fiskeldis og endur- menntunar. Yrði hlutverk samein- aða skólans að fullnægja þörf sjávar- útvegsgreina fyrir sérhæft starfsfólk, starfshópurinn telur eðlilegt að skól- inn starfi á framhaldsskólastigi og útskrift úr honum opni leið til há- skólanáms, kjósi nemendur það. Tók þingmaðurinn undirþetta álit og minnti á nauðsyn þess að betri skipan komist á menntunarmál sjá- varútvegsins. Staðsetning slíkrar menntastofnunar skipti miklu máli, því náin tengsl við atvinnugreinina sé nauðsynleg og að nemendur sem kennarar hafi greiðan aðgang að öllum greinum sjávarútvegsins. Unnur sagði að Vestmannaeyjar uppfylltu öll þessi skilyrði, því í þessari langstærstu verstöð landsins Unnur Stefánsdóttir sé að finna flest það sem nýjast er og fullkomnast í sjávarútvegi hér á landi. Þá sé í Vestmannaeyjum að finna nokkurn grunn til að byggja á, því þar sé starfandi stýrimannaskóli og vélskóli við framhaldsskólann. Tengdi þingmaðurinn tillöguna byggðamálum og sagði að líta mætti á staðsetningu slíks skóla í Vest- mannaeyjum sem mikilvægt skref til jafnvægis í byggðamálum eins og ríkisstjórnin hefði gefið fyrirheit um að gera átak í. Unnur Stefánsdóttir mælti einnig fyrir annarri þingsályktunartillögu sinni á Alþingi í gær. Sú tillaga felur í sér áskorun á ríkisstjórnina að vinna að mótun opinberrar ferðam- álastefnu og í því skyni verði hraðað störfum nefndar sem skipuð var í júnímánuði sl. til þess að undirbúa slíka stefnumótun. í ræðu sinni minnti þingmaðurinn á þá hröðu þróun sem hefði verið í þessari atvinnugrein á undanförnum árum, en um 15% meðalaukningu hefði verið að ræða milli ára frá 1980. Nauðsyn opinberrar ferða- málastefnu væri því orðin mjög brýn, upplýsingar væru fyrir hendi og því ekki eftir neinu að bíða. Nefndi þingmaðurinn síðan ýmis atriði sem slík stefna þyrfti að taka til, s.s. stuðning hins opinbera við fjárfestingar og skipulag á sviði ferðamála, fræðslumál atvinnugrein- arinnar, kynningamál, verndun landsins og umgengni o.fl. ÞÆÓ Aflinn fyrstu 10 mánuöina: 30.000 tonnum meira af þorski en í fyrra Fyrstu 10 mánuði þessa árs hafa landsmenn veitt tæplega 30.000 tonnum meira af þorski en þeir höfðu gert á sama tíma í fyrra. Heildarþorskaflinn í lok október var orðinn 336.131 tonn, en var á sama tíina í fyrra 307.351 tonn. í októbersíðast liðnum voru veidd 14.955 tonn af þorski, á móti 13.653 tonnum í október 1986. Bátar hafa veitt 5.838 tonn, en veiddu 3.695 tonn í fyrra og togarar veiddu í október þessa árs 9.117 tonn, en veiddu 9.958 tonn í október síðasta árs. Það sem af er árinu hafa bátar hins vegar veitt 168.247 tonn af þorski, á móti 157.710 tonnum í fyrra og togarar 167.884 tonn á móti 149.641 tonni á síðasta ári. Samtals veiddu bátar 64.017 tonn af öllum afla í október, en 129.733 tonn í fyrra, og munar um að þá voru komin 106.598 tonn af loðnu á land. í október þessa árs voru hins vegar aðeins kontin 25.500 tonn af loðnu á land. Togarar veiddu 24.180 tonn af öllum afla í október þessa árs, en 23.865 tonn í sama mánuði 1986. Heildarafli allra skipa í október þessa árs var 88.197 tonn, en var 153.598 tonn í október í fyrra. Vestmannaeyingar eru langfeng- sælastir Islendinga fyrstu 10 mánuði þessa árs, en þá voru komin 152.292 tonn á land þar og munar mest um rúm hundraðþúsund tonn af loðnu. Ef litið er yfir landshluta, þá hafa Austfirðingar veitt 301.597 tonn af öllum afla, Reyknesingar 225.545 tonn og Norðlendingar 218.950 tonn. - SÓL Gjöf til Landspítalans Nýlega afhentu félagar í Lions- klúbbnum Viðarri hjartadeild Land- spítalans að gjöf hjartaratsjá sem notuð er til að fylgjast með hjart- slætti og blóðþrýstingi sjúklinga. Þetta er í þriðja sinn sem klúbburinn gefur hjartagæslutæki til Landspítal- ans og hefur fé verið safnað með merkjasölu og öðrum fjáröflunar- leiðum. Á síðasta ári aflaði klúbbur- inn fjár með útgáfu almanaka. Fyrir hönd klúbbsins afhenti Helgi Gunn- arsson formaður síðasta starfsárs gjöfina og sagðist vona hún nýttist hjartasjúkum í framtíðinni. Kristján Egilsson læknir hjarta- deildar veitti gjöfinni viðtöku. Hann sagði að tæki sem þetta hefðu fyrst komið fram fyrir um það bil 20 árum og það hafi gjörbreytt aðstöðu gegn bráðri kransæðastíflu enda gæfu þau til kynna allar truflanir á hjartslætti sjúklinga. Þá þakkaði hann Lions- klúbbnum Víðarri veittan stuðning við hjartasjúka og óskaði klúbbnum allra heilla. Um tuttugu klúbbfélagar voru við- staddir afhendingu gjafarinnar, þar á meðal Guðmundur Bjarnason heil- brigðis og tryggingaráðherra sem er einn af félögum í Lionsklúbbnum Víðarri.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.