Tíminn - 18.11.1987, Page 5

Tíminn - 18.11.1987, Page 5
Miðvikudagur 18. nóvember 1987 Tíminn 5 Páll í Polarisog Óttar Yngvason hafagerttilboðsem ekki er hægt að hafna: Hæstbjóðanda seld á og lendur Thorsættar Thor Jensen sem eignaðist veiðiréttinn í Haffjarðará áríð 1919. Tilboð hefur borist í jarðeignir Thors settarinnar í Snæfellsness- og Hnappadalssýslu og fylgir veiði- réttur í Haffjarðará og Oddastaða- vatni, en vegna þessara jarða hafa farið fram margslungin málaferli að undanförnu. Hefur þar Óttar Yngvason, lögmaður, gengið fram fyrir skjöldu eigenda. Hann ásamt Páli Jónssyni í Polaris hefur nú gert tilboð í eignirnar og er það sagt svo hagstætt að eigendur hyggist ganga að því svo fremi hrepparnir tveir, Kolbeinsstaðahreppur og Eyja- hreppur, og ábúendur fjögurra jarðanna nýti ekki forkaupsrétt sinn. Veiðirétturinn heillar Um er að tefla tíu jarðir samtals, Oddastaðavatn og Haffjarðará sem telst til betri laxveiðiáa á landinu. Mál þetta var lagt fyrir oddvita hreppanna á mánudag og hafa þeir fjögurra vikna frest til að gera upp hug sinn varðandi kaupin. Sveitungar eru sagðir vilja allt til vinna að jarðirnar falli í skaut hreppanna en ekki fyrrgreindra aðila, en Guðmundur Albertsson, oddviti Kolbeinsstaðahrepps, sagði að til þess að það mætti heppnast þyrfti aðstoð afar fjár- sterks aðila. Hrepparnir gætu ekki einir sér boðið betur en Óttar Yngvason og Páll Jónsson, sem augljóslega sækjast eftir arði af veiðirétti í ánni, en flestar jarðimar hafa ekki verið nýttar til búskapar svo árum skiptir og hafa engan fullvirðisrétt. Jarðabók Árna og Páls Veiðiréttur sá er Thor Jensen keypti af Landssjóði 1919 í Haf- fjarðará var upphaflega í eign Hít- ardalskirkju sbr. Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns. Par er tekið fram hvaða bæir megi hafa not af ánni. Veiðiréttarítaks er getið m.a. í máldaga Hítardals sem talinn er vera frá 1354 og er þar sagt að Hítardalur eigi laxveiði að helmingi í Haffjarðará. Þá hafi heimilisfólk að Ytra-Rauðamel veitt lax og silung en ekki átölu- laust af Hítardalsmönnum. Deilur vegna veiðiréttar í Haffjarðará eru því ekki nýjar af nálinni. Thor Jensen festi kaup á hverri jörðinni við Haffjarðará á fætur annarri og loks veiðirétt árið 1919. Síðar afsalar hann eignum sínum til sonar síns, Richards Thors, 1940, og þaðan eru þær komnar í eigu bama hans sem eru núverandi eigendur að jörðum og veiðirétti. Veiðiítök í lönd þeirra jarða sem liggj a að Haffj arðará og Ödda- staðavatni féllu öll niður þegar eignarhald veiðiítaksins og við- komandi jarðar komst á eina hendi og breytir í því efni engu þó veiðiréttur í ánni hafi frá því í fasteignamati 1931 verið metinn sérstaklega skv. lögum um fast- eignamat. 1982 var mat árinnar fjórfaldað og hærri skattar runnu til hreppanna. Það er eini arður hreppanna af ánni, en ágóði af sölu veiðileyfa hefur runnið til eigenda. Er ráðgert að meta ána á ný innan tíðar. Ekki hugmynd Nú kemur til álita að Páll og Óttar kaupi allar jarðir sem liggja að Haffjarðará og Oddastaðavatni og fylgir veiðiréttur í hvoru tveggja. Páll hefur haft Laxá í Kjós á leigu undanfarin ár en vegna ágreinings við landeigendur um verð á Laxá missti hann hana nú í haust. Til að grennslast fyrir um fyrir- huguð kaup hafði Tíminn samband við Óttar Yngvason, lögmann, talsmann núverandi eigenda og annan þeirra er hyggur á kaup á jörðunum: „Pess er aðeins beðið hvort hreppamir og ábúendur hyggist nýta sér forkaupsréttinn. Þetta mál stendur ekkert öðru vísi.“ Óttar hefur að öllum líkindum ekkert viljað segja um að hann hafi við annan mann gert tilboð í þessar jarðir, því að hann sagðist ekki hafa hugboð um hverjir kaupendur gætu verið. „Þú verður að hafa samband við annan um það,“ sagði Óttar. Töluverður ágreiningur Guðmundur Albertsson að Heggsstöðum, oddviti í Kolbeins- staðahreppi, sagði að enginn for- mlegur fundur hefði farið fram með honum og oddvita Eyja- hrepps, Svans Guðmundssonar í Dalsmynni, um þetta mál, en vissu- lega hefðu þeir rætt saman. Málið hefði borist til þeirra á mánudag og væri að mörgu að hyggja í sam- bandi við það. „Við höfum nú ekki gert upp hug okkar varðandi þetta," sagði Guðmundur og að meira þyrfti til en óskir oddvitanna og íbúa í sveitinni. “Við höfum lögum skv. fjögurra vikna frest til að gera afstöðu okkar heyrinkunna. Til sölu eru tíu jarðir, áin og vatnið og allt það sem með fylgir. En það er töluverður ágreiningur um þetta, sem hefur staðið lengi. Það er t.d. ekkert veiðifélag þarna og hefur ekki fengist stofnað. Eigendurhafa ekki viðurkennt aðra aðila þarna en sjálfa sig og á því verður áreiðanlega engin breyting með þeim sem nú gera boð til jarðanna, - altént ekki til batnaðar. Það eru engir nýir menn sem koma til skjalanna. Þar er Óttar Yngvason, sem hefur staðið fyrir öllum undan- gengnum deilum." Stenst tilboðið að lögum? í tilboðinu segir að nýir eigendur séu kunnugir öllum deilumálum og taki við þeim úr höndum eigenda af ætt Thors. Páll Jónsson hefur þó ekki verið riðinn við málin áður. Guðmundur Albertsson hefur sent kauptilboðið til lögfræðings síns, sem hefur rannsakað undan- gengin málaferli. „Það er náttúr- lega óvanalegt að eignir í tveimur hreppum séu boðnar til kaups í einu lagi og ósundurliðaðar. Það er ef til vill hæpið að það standist að lögum. Þetta er verið að athuga. Síðan eru fjórar jarðir í ábúð, en ábúendur eiga forkaupsrétt fram yfir hreppana. En verði forkaups- réttur ekki nýttur fara jarðirnar í eigu Óttars og Páls. Eigendur hafa gengið að tilboði þeirra." Guðmundur sagðist nú vera að athuga hvort vilji væri fyrir því í hreppunum að kaupa jarðirnar og möguleika fyrir því. Miklir fjármunir í veði „Tilboðið er að sjálfsögðu ekki sett fram með það fyrir augum að hreppunum sé hagræði að því að kaupa. Það eru miklir fjármunir í veði. En þarna eru tíu jarðir sem sumar hverjar eru einskis virði til búskapar eða mannlífs og aðrar að fara sömu leið. Eigendur hafa aðeins hugsað um að taka til sín arð af veiðinni." Á meðan hafa nytjajarðirdrabb- ast niður að sögn oddvitans og misst fullvirðisrétt. Til að hefja búskap á þeim aftur yrði að reisa nýjar búgreinar frá grunni. Raun- verulegur arður af jörðum er því aðeins af seldum laxveiðileyfum svo sem staðan er nú. „Fyrir lítil sveitarfélög eins og þessi tvö er það óhemju blóðtaka þegar tíu jarðir falla út á þennan hátt hvort sem litið er á það í fjárhagslegu eða félagslegu sjónar- miði. En Óttar vill ekki sleppa af þessu hendinni og hann hefur ráðið ferðinni síðasta áratug. Það er ugglaust gott ástand hjá honum núna til að fjármagna þessi kaup, því að hann hefur verið með annan fótinn í útgerð og útflutningi á rækju o.fl. Það hefur gefið vel af sér undanfarið. Tilboðið er það hagstætt fyrir eigendur að útilokað er fyrir hrepp- ana að bjóða sams konar kjör nema með því að gera samning við einhverja fjársterka aðila fyrst. Tilboðið er langtum hærra en hrepparnir eiga nokkra möguleika til að ráða við. þj Umræðan um lánsfjárlagafrumvarpið: Verðbréfamarkaðurinn veltir 8 milljörðum Það kom fram í máli Ásmundar Stefánssonar (Ab.Rvk.) að verð- bréfasjóðir hér á landi hafa vaxið úr tæplega hálfum milljarðil984 í 3-4 milljarða í ár. Á sama tíma hafa útistandandi skuldir á verðbréfa- markaðinum vaxið í 6-8 milljarða. Þannig að um næstu áramót verði veltan á verðbréfamarkaðinum um 10 milljarðar á meðan velta banka- kerfisins nemur um 70 milljörðum króna. Þama væri um stjómlausan mark- að að ræða, sem koma þyrfti bönd- um á og þar stæði ríkisstjórnin aðgerðalaus. Ásmundur gerði ýmsar aðrar at- hugasemdir við lánsfjáráætlunina og taldi að óheftur verðbréfamarkaður o.fl. gerði það að verkum að litlar líkur væri á að lánsfjárlögin stæðust. En Jón Baldvin Hannibalsson fj ármálaráðherra hafði ítrekað í framsögu sinni þau meginmarkmið ríkisstjórnarinnar að ná fram halla- lausum fjárlögum með því m.a. að draga úr erlendum lántökum ríkis- sjóðs og leita í frekari mæli eftir lánsfé innanlands. Júlíus Sólnes (B.Rn.) sagði láns- fjárlagafmmvarpið fela í sér skynsamleg markmið, en vafasamt væri að leiðir fjármálaráðherra þjón- uðu því markmiði. Varaði hann við hættunni á vaxtahækkun vegna auk- innar lánsfjáröflunar á innlendum lánamarkaði, því slíkar hækkanir hefðu alvarleg áhrif á atvinnu- reksturinn. Guðrún Agnarsdóttir (Kvl.Rn.) sagðist vilja innlenda lántöku, en óttast svo snöggar breytingar, sér- staklega vegna vaxtasprengingar. Bar þingmaðurinn lánsfjárlagafmm- varpið saman við niðurstöðu síðustu lánsfjárlaga og taldi að litlar vonir væru að það stæðist. Guðmundur H. Garðarsson (S.Rvk.) mótmælti því vantrausti á einakageirann sem kæmi fram í ræðum sumra manna, því samkvæmt þeim væru skuldabréfaeigendur gerðir að vafafólki. Miðstýring í þessum efnum væri engin lausn. Sagði hann að uppistaðan í verðbréf- asjóðunum væri ríkisskuldabréf. Ræddi þingmaðurinn fyrirhugaða frystingu fjármálaráðherra á 500 m. kr. af lántökum úr lífeyrissj óðum, þ.e. af því fjármagni sem skilar sér umfram það sem nú er samið um í krónutölu. Taldi hann slíka frystingu óeðlilega. Fjármálaráðherra svaraði síðan framkominni gagnrýni. Sagðist hann ekki hræðast vaxtahækkun, því að frádregnum lánum til húsnæði- skerfisins þá væri lántaka ríkissjóðs hlutfallslega minni en verið hefði. Sem andsvar við fullyrðingum Ás- mundar Stefánssonar um hækkun vegna væntanlegra breytinga á sölu- skatti rakti fjármálaráðherra þær breytingar, sem fyrirhugaðar eru á tollatöxtum og vörugjaldi. En ætlað er að sú breyting geti lækkað fram- færsluvísitölu heimilanna um 1%, en meðaltalsverðhækkunin á nauð- synjum verði að meðaltali 1%, en gripið verði til aðgerða til að stemma áhrif þess á hina lægstlaunuðu. ÞÆÓ

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.