Tíminn - 13.12.1987, Blaðsíða 9
Sunnudagur 13. desember 1987
Tíminn 9
" Vi-p eoRCrUM PEGAR vi
KOMUM VESTUR > R 1 F "
Haeringur og Rifshöfn.
En af því að Haeringur
er ná kominn á dagskrá
einu sinni enn, og af þvi að
upplýst er að Rússar vilja
ekki gripinn né neinir aðr
ir, er ekki ur vefi að 'huj-
leiða á nv þá tillöæk æm
fram hefir komið um a*.fora
með hann vestur á Rifshöfn
og sökkva hcnum þar við
bafnarmannvirkin og nota
sem verksmiðju og böiverk. •
HÆRINC-U^
skólapilts sem ég man eftir, ég vann
svo í landi hina vikuna í byggingar-
vinnu og hafði alveg rosa tekjur.
Þetta byggðist á því að pabbi var á
þessum árum við síldarleit um
sumarið og reyndar fleiri sumur
líka, þannig að ég fékk að koma í
hans stað.
Undir það síðasta var skipið farið
að láta mikið á sjá, það var orðið
mikið ryðgað en að öðru leyti var allt
í lagi með það. f>að var auðvitað
reynt að spara eins og hægt var, enda
voru það gífurlega miklir fletir sem
hefði þurft að mála, þannig að það
var ekki beint fallegt þar sem það lá
inni á Grafarvogi.
Það var mjög sorglegt að fljótlega
eftir að Hæringur var seldur kemur
síldin fyrir austan og það sárvantaði
verksmiðjur.
Það má segja að Hæringur hafi
ekki verið alveg á réttum tíma hér,
því þegar hann kemur til Reykjavík-
ur hverfur síldin úr Faxaflóa. Én því
miður gátu menn ekki séð fyrir um
að síldin mundi hverfa, þetta var
mjög góð hugmynd, og þeir sem
fundu upp á að kaupa skipið voru í
raun langt á undan sinni samtíð. Það
er erfitt að spá um framtíðina þegar
náttúruöflin eru annars vegar.“
Vetrarperlur er hljómplata með jóla-
söngvum frá 16. og 17. öld. Ragnheiður
Guðmundsdóttir syngur, Þórarinn
Sigurbergsson leikur með á gítar og
Jóhannes Georgsson á kontrabassa.
Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson útsetti.
Dr. Sigurbjörn Einarsson biskup samdi
af þessu tilefni ljóð við þrjá aðventu-
söngva með hliðsjón af upprunalegum
þýskum textum. Flutningurinn er
hrífandi og hátíðlegur í einfaldleik
sínum og látleysi. Á
ORN OG ORLYGUR
SÍÐUMÚLA 11.108 REYKJAVÍK,
SÍMI91-84866
Ég aetla að syngja, er bamalagaplata Magnúsar
Þórs Sigmundssonar. Á henni eru gömul og ný lög
við þekktar þulur og bamatexta. Flytjendur auk
Magnúsar eru Pálmi Gunnarsson, Jón Ólafsson og
tíu stúlkur úr kór Verslunarskólans. Böm og fóstmr
vom fengin til aðstoðar við að velja lögin. Þar má
nefna Fingraþulu, Bíum, bíum bamba, Ein sit ég og
sauma og Mamma borgar. Plötunni fylgir textablað
með gítargripum.
BENEDIKT GÍSUSON FRÁ IIOFIT-IGI
ÆVISAGA
IASAR
SONAR
læknb
Ævisaga Jónasar Kristjánssonar læknis
er skráð af Benedikt Gíslasyni frá
Hofteigi. Jónas Kristjánsson var
óumdeilanlegur brautryðjandi náttúru-
lækningastefnunnar á íslandi. Hann var
héraðslæknir í tveimur erfíðum og
víðlendum héruðum norðanlands og
austan. í ævisögu Jónasar greinir frá
uppvexti hans og ævintýrum í æsku,
skólaárum, ferðum og starfí. Kenningum
Jónasar eru gerð góð skil í bókinni. ^
Fleiri kvistir hefur
að geyma samtals-
þætti Áma Johnsen
blaðamanns við
fólk úr ýmsum áltutn.
Hann er löngu
landskunnur fyrir
skemmtileg og hispurslaus viðtöl sín en
fyrri bók Árna í sama dúr, Kvistir í
lífstrénu, vakti mikla athygli. Árni
hefur einstakt lag á því að laða fram í
fólki persónuleika þess og skila efninu
þannig að viðmælandinn nýtur sín til
fulls. í bókinni eru m.a. viðtöl við
Veturliða listmálara, Matthías Bjarnason
alþingismann, Ása í Bæ, Þorstein
Jónsson flugstjóra og Lása kokk, -
menn sem vanir eru að fara á kostum.
Og síðast en ekki síst hina 103ja ára
gömlu heiðurskonu Aldísi á Stokkahlöð-
um, sem fylgist vel með öllu og hefur
skoðanir á flestum málum. L
220 gómsætir ávaxta- og ábætisréttir er
þriðja í röðinni af hinum vinsælu
matreiðslubókum Arnar og Örlygs.
Bókin, sem skrifuð er af Kristínu
Gestsdóttur, hefur að geyma uppskriftir
og leiðbeiningar um matreiðslu á
ábætisréttum, kökum, drykkjum,
krapréttum, saft og sultu úr ávöxtum og
berjum. Bækurnar þrjár eru fáanlegar
hjá útgáfunni í skemmtilegri öskju.
Vetrarperlur
JóIdMmgvar frá 16- og 17- öM